Morgunblaðið - 24.11.1983, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 24.11.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983 37 Væringar í stjórn Stálfélagsins hf.: Formaður óskar ráðuneytisaðstoð- ar til að halda framhaldsaðalfund STJÓRNARFORMAÐUR Stálfé- lagsins hf. hefur óskað eftir því við viðskiptaráðuneytiö, að það hlutist til um að annar framhaldsaðalfund- ur félagsins verði haldinn tafarlaust. „Ég hef ítrekað óskað eftir því í stjórn félagsins að fundurinn verði haldinn án tafar, en meirihluti stjórnarinnar, þrír menn af fimm, hafa hafnað því,“ sagði stjórnarfor- maðurinn, Jóhann Jakobsson efna- verkfræðingur, í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær. „Ég tel það skyldu mína að halda lög landsins og samþykktir félagsins, og því mun ég sem for- maður boða til almenns hluthafa- fundar í félaginu um næstu mán- aðamót og gera þar grein fyrir stöðu mála í félaginu. Þar hefur undanfarið ýmislegt breyst, sem skiptir framtíð félagsins verulegu máli,“ sagði Jóhann. „Fyrr á árinu hef ég reynt að boða til fram- haldsaðalfundar, en komið var í veg fyrir það af meirihluta stjórn- arinnar og skrifstofu félagsins, sem telur sig bundna af þessum meirihluta." Framhaldsaðalfundur Stálfé- lagsins hf. var haldinn 7. júlí sl., en ekki tókst að ljúka aðalfund- arstörfum í fyrsta sinn þar sem ekki voru mættir handhafar meirihluta hlutabréfa í félaginu. Stjórnarkjöri var frestað á fram- haldsaðalfundinum og tekið fram í fundargerð, að stjórnin skyldi sitja til hausts. Jóhann Jakobsson telur að sá tími sé liðinn og að stjórnin hafi því takmarkað um- boð til starfa. „Þessi meirihluti stjórnarinnar vill ekki halda framhaldsaðalfundinn á meðan beðið er eftir væntanlegum stór- Allt í óvissu með skipti á sýkta minka- stofninum á Dalvík „Trúi ekki öðru en að þetta gangi,“ segir Þor- steinn Aðalsteinsson framkvæmdastjóri búsins „Ég trúi ekki öðru en að þetta gangi upp. Ég fyrir mitt leyti get ekki hugsað þá hugsun til enda að búa með sýktan stofn í eitt ár enn og þurfa að undirbúa skipti næsta sumar upp á nýtt. Auk þess myndi framþróunin í minkaræktuninni stöðvast í heilt ár,“ sagði Þorsteinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri minkabúsins á Böggvisstöðum á Dalvík, í samtali við blm. Mbl. Á minkastofninn á búi Þorsteins herj- ar afar erfiður veirusjúkdómur, plasmarytosis. Þessi sjúkdómur er einnig í minkabúinu Grávöru á Grenivík en í fyrrahaust var honum útrýmt með stofnskiptum hjá Loð- feldi á Sauðárkróki. „Það hefur verið stefnt að því að skera allan sýkta stofninn niður,“ sagði Þorsteinn „á einu búi á ári og var búið að ákveða að kaupa nýja minka frá Danmörku sem áttu að koma hingað til mín í stað- inn fyrir sýkta stofninn. En þá kom upp sjúkdómur í Danmörku á takmörkuðu svæði og lokað var fyrir innflutning þaðan. Ég hef miðað allt við þetta og verið að undirbúa skiptin í allt sumar. Við ætluðum að reyna að fá sóttkvína, sem er á búunum á Sauðárkróki og á Hólum vegna innflutnings þeirra t fyrra, færða til okkar til að leysa málið og kaupa þaðan 1000 dýr og skera niður eftir sem áður. Það hefur enn ekki fengist leyft. Staðan hjá mér er sú að ég verð að gera þetta — tíminn er hlaupinn frá mér og að öllu eðli- legu hefði ég þurft að vera búinn að taka blóðprufur og vera byrjað- ur að felda. En það er mikið mál, sem ég hef ekki farið út í, þar sem staðið hefur til að skera allan stofninn niður. Ef ég get ekki skipt um stofn nú, eins og ég hef stefnt að, þýðir það að feldunin verður eftir áramótin, sem hefur í för með sér mikil skakkaföll vegna rýrnunar á feldgæðum vegna þess hve þá væri orðið áliðið. Ég hef farið fram á að fá sömu fyrir- greiðslu hjá landbúnaðarráðu- neytinu til stofnskiptanna og fékkst fyrir Sauðárkróksbúið í fyrra, en einhverjar hindranir virðast vera í kerfinu, því enn hef- ur það ekki verið samþykkt. Eitthvað er talað um að ódýrara sé fyrir mig að fá minkinn innan- lands og því sé eðlilegra að ég fái minni fyrirgreiðslu. Én í raun og veru verður tapið hjá mér ekkert minna, ég fæ lélegri dýr og sker niður 3000 dýr og fæ ekki nema 1000 í staðinn hér innanlands, þannig að tekjutapið verður mikið og gæti mismunurinn á kostnaðin- um við öflun lífdýranna vegið eitthvað á móti því. Ef ég hinsveg- ar biði með að skipta fram á næsta ár hefði það mun meiri kostnað í för með sér fyrir ráðu- neytið, því þá myndi ég að sjálf- sögðu flytja inn minka í sama hlutfalli og gert var fyrir Sauð- árkróksbúið og ég reikna þá með að ekki yrði hægt að neita mér um sömu fyrirgreiðslu og það fékk. Ég trúi því hins vegar að þetta leysist en það verður að gerast næstu daga. Þessi sjúkdómur stendur búskapnum fyrir þrifum og hefur gert árum saman. Ég hef sagt það opinberlega áður og stend við það hvar sem er, að sjúkdómurinn kostar mitt bú um 3 milljónir á ári, þó vægt sé reiknað, í aukakostnaði og tekjutapi, og við höfum eingöngu lifað þetta af vegna þess að við höfum getað framleitt ódýrt fóður. Nauðsyn- legt er að þessi skipti verði sem fyrst því að þeim loknum gætu opnast verulega ábatasamir möguleikar i útflutningi lífdýra, því þá yrði ísland orðið eina land- ið sem laust væri við þennan erf- iða sjúkdóm," sagði Þorsteinn Að- alsteinsson. Samsöngur í Mývatnssveit Mývatnssveit, 22. nóvember. KARLAKÓRINN Heimir í Skaga firói hélt samsöng í Skjólbrekku sl. laugardagskvöld. Söngstjóri var Jiri Hlavacek og undirleikari Stanislava Hlavacekova. Einsöngvarar voru Kristján Jósepsson og Þorvaldur ó. Óskarsson. Þá var tvísöngur: Pét- ur Pétursson og Gísli Pétursson. Ennfremur sungu þrísöng Pétur Pétursson, Ingimar Ingimarsson og Jón Gíslason. Söngnum var mjög vel tekið og varð að endur- taka mörg lög og syngja aukalög. Á söngskránni voru sautján lög eftir innlenda og erlenda höfunda. Aðsókn á þennan ágætr ^ "'rf'*>« hefði mátt vera betri. ,s Jan' um hluthöfum, sem er m.a. Vatnsleysustrandarhreppur. Við biðum eftir þessum sömu hluthöf- um í vor. Það er reyndar rétt, að við höfum ekki selt nema um 5% af því hlutafé, sem þarf til stofn- unar stálversins, eða fengið inn um 5 milljónir af eitt hundrað," sagði Jóhann. Hann sagði að ýmislegt hefði gerst, sem hann teldi að gerði nauðsynlegt að ljúka aðalfund- arstörfum hið fyrsta. „í hálft ann- að ár hafa allar áætlanir verið miðaðar við uppbyggingu fullkom- ins og nýtískulegs stálvers," sagði stjórnarformaðurinn. „Við miðum við að framleiða steypustyrktar- stál og létta prófíla, um 20 þúsund tonn á ári. Slík verksmiðja, skv. okkar skýrslum og útreikningum erlendra aðila, er dýr, á að kosta um 22 milljónir bandaríkjadala. En hagkvæmnisútreikningar sýna, að hún á að vera arðbær miðað við meðalverð á stáli sl. tíu ár. í haust var séð, að ekki væri hægt að ná inn nauðsynlegu hluta- fé. Ríkissjóður hefur ætlað að eiga 40% í stálverinu, og koma inn í myndina eftir að við værum búnir að safna 60%. Á fjárlögum er ekk- ert fjármagn ætlað í þetta og ekki heldur á lánsfjáráætlun. Þá var ljóst, að annaðhvort yrðum við að stoppa eða kanna aðra möguleika á uppbyggingu verksmiðjunnar, t.d. að lækka fjárfestinguna með því að kaupa notaðan tækjakost. Það er hægt en myndi þýða, að verksmiðjan yrði ekki eins full- komin og nýtískuleg og ráð var fyrir gert. Þetta eru að sjálfsögðu verulegar breytingar á uppruna- legum áætlunum og m.a. þess vegna knýr á að halda aðalfund og gera hluthöfunum 800 grein fyrir þessum breyttu viðhorfum." Stjórnarformaðurinn sagði að eftir að þessi nýju viðhorf hefðu komið upp hefði samstarf í stjórn félagsins ekki verið viðunandi og „stjórnin að vissu leyti óstarfhæf, enda vinnur meirihluti hennar utan funda. Stjórnin er umboðs- laus miðað við lög þessa lands og samþykkt framhaldsaðalfundar 7. júlí, þar sem stjórninni var falið að sitja til hausts," sagði Jóhann. „Meirihluti stjórnarinnar er eins- konar sjálfskipuð verkefnisstjórn og hefur á þann hátt tekið að sér hlutverk stjórnar félagsins. Við það er ekki hægt að una og því hef ég óskað eftir því við ráðuneytið að það hlutist til um að fram- haldsaðalfundur verði haldinn og störfum hans verði lokið.“ Fimm menn skipa stjóm Stálfé- lagsins hf. Jóhann Jakobsson er formaður og Markús Sveinsson í Héðni varaformaður, en þeir tveir hafa óskað eftir að framhaldsað- alfundur verði haldinn hið fyrsta. Meirihluta stjórnarinnar skipa þeir Sveinn Sæmundsson í blikk- smiðjunni Vogi (ritari), Leifur ^lannesson í Miðfelli (gjaldkeri) og Jón Magnússon hjá Rönning (meðstjórnandi). Erlingur Davíösson Hildur og ævintýrin hennar Erlingur Davíðsson, rithöfundur, sem er löngu þjóökunnur fyrir bækur sínar, hefur nú sent frá sér sína fyrstu barnabók, söguna um Hildi og ævin- týri hennar. Sagan fjallar um Hildi litlu, sem er fimm ára og fer í skoðunarferð með afa sinum út í náttúruna. Hún spyr og spyr eins og barna er hátt- ur. Hvað heita blómin? Hvað heita fuglarnir? o.s.frv. og afi leysir úr öllum spurningunum. Bókinni er ætlað að vekja börn til umhugsunar um fegurð umhverfisins og hið frjálsa líf dýranna úti í náttúrunni. Hildur og ævintýrin hennar er 56 bls., káputeikningu og myndir gerði Kristinn G. Jóhannsson og prentun annaðist Prentsmiðja Björns Jóns- KVÚLDSÝNING “ 323 “"“626 j&3£> Wa*,tóVdíese\ fimmtudag Opið til 10 í kvöld ^^ilegt uxvav ábVT9ð 09 annats. EKinn ftOO -83 l0-8°° G0rð-rr,2dVtaHT * .«2 34.000 ?\41000 62620a00°2ndVtattT >81 •S2XZ? X vatnarabV1^ VetiðvelUo«un; 42-000 19.000 29.000 25.000 27.000 31.000 , 45.000 Mest fyrir peningana! BÍLABORG HF Smiðshöfða 23 sími 812 99

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.