Morgunblaðið - 24.11.1983, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983
Niðjar Steinunnar og Ólafs M. Stephensen eru 136 að tölu en um 200 með tengdafólki.
Maddama Steinunn Stephensen.
Ólafur M. Stephensen, prófastur.
Fjölmennt fjölskyldumót
niðja Steinunnar og
Ólafs M. Stephensen
Nýlega var fjölskyldumót
niðja þeirra Ólafs M. Stephensen
prófasts og maddömu Steinunn-
ar Stephensen frúar hans haldið
í félagsheimilinu Garðaholti í
Garðabae. Er þetta orðinn allstór
hópur manna, því eins og kom
fram í ávarpi sem einn afkom-
enda þeirra hjóna, Þorstéinn
Halldórsson, flutti á mótinu eru
niðjar þeirra orðnir 136 að tölu,
en 200 að tengdafólki meðtöldu.
Sjálf eignuðust þau ólafur og
Steinunn 11 börn, og auk þeirra
fóstruðu þau tvö önnur sem sín
eigin vaeru.
Ólafur M. Stephensen fæddist
24.7. 1863 í Viðey, sem lengi hef-
ur verið í eigu feðra hans, enda
er Ólafur fjórði ættliður í beinan
karllegg frá ólafi Stephánssyni
stiptamtmanni og þar með þriðji
frá Magnúsi konferenzráði
Stephensen háyfirdómara
Landsyfirréttarins. Andaðist
Ólafur á heimili Stepháns sonar
síns hér í Reykjavík 12. mars
1934.
Steinunn Stephensen, sem var
fjórtándi ættliður frá ólöfu ríku
á Skarði, tuttugasti og sjötti frá
Guðrúnu Ósvífursdóttur og þrí-
tugasti og fyrsti frá ólafi hvíta
herkonungi og Auði (Unni) djúp-
úðgu landnámsmanni, var fædd
1. febrúar 1870 að Karlsskála
Reyðarfirði, dóttir Eiríks
Björnssonar bónda þar. Stein-
unn andaðist að heimili Ingi-
bjargar dóttur sinnar Breiða-
bliki, Seltjarnarnesi, 25. mars
1957.
Milil ættrækni hefur alltaf
ríkt í þessari fjölskyldu. sem sést
best á þátttöku í móti sem þessu.
Þarna voru liðlega 130 manns
saman komnir tii að heiðra
minningu þeirra Ólafs og Stein-
unnar, víðs vegar að af landinu.
Góður andi ríkti á mótinu enda
höfðu margir þeirra sam þarna
voru ekki hist um hríð svo margs
var að minnast. Sátu menn að
spjalli hátt á fjórðu klukkustund
og nutu góðra veitinga, en hver
fjölskylda hafði meðferðis
eitthvert góðgæti á glæsilegt
kaffihlaðborð sem þarna var sett
upp.
Ólafur Stephensen í ræðustól.
Þorsteinn Halldórsson í ræðustól. Frá fjölskyldumótinu.
Flokksstjórnarfundur Alþýðuflokks á laugardag:
Framtíð Alþýðublaösins ráðin
„ÞAÐ kemur ýmislegt inn í mynd-
ina og við munum leggja fyrir
flokksstjórnina hugmyndir allt frá
því að leggja blaðið niður og upp í
að halda áfram útgáfu með veru-
lega minnkuðum tilkostnaði. Viku
blaðsútgáfa hefur komið til greina
og aðrar hugmyndir, sem við erum
að bræða með okkur,“ sagði Árni
Gunnarsson varaþingmaður Al-
þýðuflokksins og einn af þremur
Alþýðuflokksmönnum sem faiið
var að gera úttekt á stöðu Alþýðu-
blaðsins og leggja fyrir flokks-
stjórnarfund nk. laugardag tillögur
um framtíð Alþýðublaðsins, en eins
og Mbl. hefur skýrt frá hafa for-
maður og varaformaður flokksins
lagt til að útgáfu blaðsins verði
hætt.
Tillögu flokksforustunnar
þessa efnis var ekki vel tekið af
starfsmönnum Alþýðublaðsins
og fleirum og lyktaði málinu á þá
lund að þriggja manna nefnd var
falið að gera úttekt á rekstri
blaðsins og tillögur um framtíð
þess. Árni sagði einnig að nefnd-
in hefði tekið saman fastar og
lausar skuldir blaðsins sem væru
orðnar umtalsverðar. Ekki vildi
hann nefna neinar tölur, en við-
urkenndi aðspurður að skuldirn-
ar væru ríflega sex milljónir
króna. Hann sagði að það yrði
hlutverk flokksstjórnar að taka
ákvörðun um framtíð blaðsins
þar sem í flestum tilvikum yrði
um áframhaldandi fjárhags-
skuldbindingar að ræða fyrir
flokkinn og flokksstjórnina varð-
andi útgáfuna.
Árni sagði að auk umfjöllunar
um framtíð Alþýðublaðsins yrðu
flokksmálin og staða stjórnmál-
anna einnig á dagskrá fundarins
á laugardag.