Morgunblaðið - 24.11.1983, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 24.11.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983 35 innar feli í sér samþættingu margra greina fer því samt fjarri að sjónarhorn og efniviður sögu og landafræði séu að engu höfð. Það iiggur í augum uppi að til- vera og þróun mannkynsins og þó sérstaklega saga og lífsskilyrði manna á íslandi eru hornsteinar samfélagsfræðináms hér á landi. Vandinn felst í því að velja úr hefðbundnu efni þessara greina og tengja það sjónarmiðum samfé- lagsfræðinnar. Um leið og saga verður grein á meiði samfélagsfræði er brýnt að sjónarhorn hennar verði víkkað og efnismeðferð dýpkuð frá því sem verið hefur. Meginmarkmið henn- ar verður ekki lengur bundið við það að rekja atburðarás í réttri tímaröð, heldur að lýsa gerð þjóð- félaga á tilteknu tímaskeiði og leita skýringa á félagslegri og menningarlegri þróun þeirra. Stjórnmálabreytingar, sem mest hefur verið lagt upp úr í sögu- námi, eru ekki nema einn þáttur þessarar þróunar. Með því að leggja meiri áherslu á félags- og menningarþætti í sögulegri fram- vindu er og komið til móts við fræðileg sjónarmið sagnfræðinnar eins og hún hefur þróast á síðustu áratugum. Nýjum viðfangsefnum og sjón- armiðum hljóta að fylgja breyt- ingar á efnismeðferð. Nemendur, einkum á síðstu námsárum í grunnskólanum, þurfa að fá tæki- færi til að kynna sér fyrirbæri fortíðar og fjalla um þau sagn- fræðilega. Þeir verða að komast í kynni við sögulegar heimildir og þjálfast í að draga af þeim álykt- anir. Slíkum vinnubrögðum verð- ur ekki komið við nema hvert við- fangsefni sé kannað til hlítar. Til þess gefst hins vegar ekki svigrúm nema vikið verði frá þeirri kröfu að nemendur fái á þessu stigi eins konar yfirlit yfir helstu atburði sögunnar í heild. Val sögulegra viðfangsefna hlýtur vissulega að orka tvímælis og vera háð rfkjandi hefðum. Hér hefur sú ákvörðun verið tekin að velja söguleg við- fangsefni með tilliti til þess hve vel þau henta til að skýra af hvaða rótum þjóðfélög nútímans eru sprottin. í þessu efni er skylt að taka sérstaklega tillit til menning- ararfs íslendinga. Það hefur verið hlutverk sögu og landafræði að fræða nemendur um umhverfi og samfélag. Því má halda fram með sterkum rökum að þessar tvær greinar, einar sér, megni ekki að gefa nemendum nægilega heildarsýn yfir hið flókna samfélag nútímans og skýra rætur þess. Sérhver heilvita maður hlýtur að skilja að börn sem eru að alast upp á Islandi nú á tímum hljóta að verða að læra um efnahagsmál og stjórnmál — svo dæmi sé tekið — því annars væri eftirfarandi setning grunnskóla- laganna „Skólinn skal temja nem- endum víðsýni og efla skilning þeirra á mannlegum kjörum og umhverfi, á íslensku þjóðfélagi, sögu þess og sérkennum og skyld- um einstaklingsins við samfélag- ið“ hreint hjóm. Um samþættingu Þótt Islandssagan eigi að vera hornsteinn samfélagsfræði- kennslu má ekki gleyma því að ís- land er ekki eitt i heiminum og að umfjöllun um aðrar þjóðir getur hjálpað nemendum til að skilja marga þætti í eigin þjóðfélagi. Félagsvísindagreinar geta lagt sitt af mörkum til að nemendur geti skoðað mikilvæg viðfangsefni frá mörgum sjónarhornum og öðl- ast með því meiri heildarsýn. Við teljum því ærna ástæðu til að sækja til þessara greina — og reyndar allra þeirra er að gagni koma í þessum tilgangi. Sem dæmi um slík viðfangsefni má nefna að í nýju námsefni um landnám íslands er augum nem- enda beint að lifsbaráttu land- námsmanna — hvernig þeir hög- uðu samskiptum sínum og hvað það var er leiddi til stofnunar Al- þingis. Ekki er talið nóg að fjalla eingöngu um nafntoguðustu land- námsmennina. Þetta námsefni gefur gott tilefni til að nemendur íhugi margvísleg orsakasamhengi og að þeir ígrundi mismunandi af- leiðingar sem ákveðnir atburðir gátu haft í för með sér. Annað dæmi er vert að nefna um sam- þættingu greina þar sem sagan gegnir mikilvægu hlutverki við að varpa ljósi á þætti er varða alla íslendinga miklu. I námsefni sem ber heitið Náttúruhamfarir og landmótun er saga Jóns Stein- grímssonar nýtt til að tengja mannlíf og náttúru. Skaftáreldar og móðuharðindin riðu íslending- um nær að fullu. Heimaeyjargosið er okkur enn í fersku minni og hve giftusamlega þar tókst til að bjarga mannslífum. Má ætla að við samanburð á þessum atburð- um öðlist nemendur góðan skiln- ing á þróun lífshátta, þeirri tækni er menn ráða yfir hverju sinni og hverju það breytir. Umfjöllun um líf Jóns Steingrímssonar gefur jafnframt tilefni til að fræðast um marga þýðingarmikla þætti er einkenndu líf á íslandi á 18. öld. Að hverju er unnið? Um þessar mundir er unnið að gerð nýs námsefnis fyrir nemend- ur á aldrinum 10—15 ára. Það efni sem út hefur komið fyrir þennan aldurshóp er einungis lítill hluti þess efnis sem ráðgert hefur verið að gefa út fyrir þetta stig eða sem næst sjötti hluti þess. Hér skal gerð grein fyrir því hvar Islandssöguefni kemur við sögu í hinu nýja efni samkvæmt þeim hugmyndum sem nú er unnið eftir. 10 ára nemendur munu fjalla um landnám íslands, daglegt líf landnámsmanna, stofnun Alþing- is, upphaf kirkju og kristni í land- inu og um þjóðveldistímann. Að námsefni 11—12 ára barna í Is- landssögu verður vikið síðar. 13 ára nemendur fjalla rækilega um atvinnuhætti, verkmenningu o.fl., er tengist kjörum fólks fyrr á öld- um. Þá munu þeir einnig fást ýtarlega við sögu heimabyggðar sinnar frá landnámi til vorra tíma. Meginviðfangsefni 14 ára nemenda munu verða um þróun íslensks samfélags frá bændasam- félagi til nútímasamfélags eða saga síðustu þriggja alda. Hér verður jöfnum höndum fengist við atvinnu- og fjölskyldusögu, stjórnmálasögu og menningar- sögu. Hluti þessa efnis hefur kom- ið út í bráðabirgðaútgáfu undir heitinu Jón Sigurðsson og sjálf- stæðisbaráttan. Eins og sjá má af þessu yfirliti er megináhersla lögð á fyrstu ald- ir byggðar f landinu og hinar þjár síðustu. Rökin fyrir þessu vali eru þau að þekking á uppruna íslend- inga og sögur frá fyrstu öldum byggðar í landinu séu snar þáttur í sjálfsvitund Islendinga og menn- ingararfleifð og hljóti því að skipa verðugan sess. Áhersla á sögu síð- ustu alda á sér fyrst og fremst þau rök að hún dugi best til að skýra af hvaða rótum nútímaþjóðfélag er runnið. Það hefur því verið talið verjandi að leggja minni áherslu á tímabilið 1300—1700. Þessu skeiði sögunnar er þó ekki sleppt en á það lögð lítil áhersla. Kristnitakan, siðaskiptin og atmað er tengist sögu kristinnar kirkju á íslandi eru einnig við- fangsefni í námsefni i kristnum fræðum fyrir nemendur í grunn- skóla. Ekki er hægt að láta hjá líöa að nefna að í hinu nýja námsefni í samfélagsfræði sem ætlað er 7—9 ára nemendum er lögð áhersla á að fjalla rækilega um Island nú á tímum. Fjölskyldan, skólinn, störf fólks, umhverfi í sveit, þorpi og borg og sjávarútvegur Islendinga eru dæmi um viðfangsefni sem gert er hátt undir höfði. Til skamms tíma hefur lítil áhersla verið lögð á slíka fræðslu en um mikilvægi hennar verður vart deilt. Eins og fram hefur komið hefur aðeins verið skrifaður lítill hluti námsefnis í samfélagsfræði. Áætl- anir og hugmyndir að viðfangs- efnum eru endurskoðaðar árlega. Jafnframt hefur verið leitað álits viðurkenndra fræðimanna viðvíkj- andi efnisvali og efnistökum. Þeg- ar fram koma vel rökstuddar til- lögur til breytinga eru þær að sjálfsögðu teknar til rækilegrar athugunar. Dr. Gunnar Karlsson sagnfræð- ingur er einn þeirra manna sem hafa velt vandamálum sögu- kennslu fyrir sér af ábyrgð. Hefur hann nú skrifað námsefni í Is- landssögu fyrir 11—12 ára nem- endur og fjallar þá um tfmabilið 1200—1700. Er nú unnið að því að þetta námsefni verði gefið út í til- raunaskyni því að það hefur hlotið góða dóma þeirra kennara sem hafa reynt það í frumdrögum. Ábyrg umræða um skólastarf Það er erfitt að gera sér grein fyrir málstað „andstæðinga" sam- félagsfræðinnar. Þeir reyna ekki að rökstyðja gagnrýni sína enda hlýtur að vera erfitt að finna rök fyrir staðhæfulausum fullyrðing- um. Það mætti halda að þeir álitu að ef nemendur læra ekki ná- kvæmlega það sama og á sama hátt og þeir gerðu á sinni skólatíð, þá sé voðinn vís. Það virðist gleymast að nemendur í dag læra margt sem var ekki komið til sög- unnar þegar þessir háu herrar voru í skóla. Það er ekkert nýtt í umræðum um skólamál að því sé haldið fram að yngri kynslóðin standi sig verr en þeir eldri gerðu á sínum tíma. Nægir að nefna hér eitt dæmi okkur eldri til áminningar, 1920 höfðu nokkrir forsvarsmenn Há- skóla Islands eftirfarandi að segja um kunnáttu nemenda sinna sem þá höfðu lokið námi í „Mennta- skólanum". „Sjerstaklega finst oss, að stúd- entunum sje ábótavant í þekkingu á íslenskri tungu. Við allar skrif- legar æfingar kemur það í ljós, að ýmsa þeirra skortir mjög þekk- ingu í íslenskri rjettritun og hafa litla hugmynd um notkun aðgrein- ingarmerkja. Rjettritunarvillur lýta stórlega ritgerðir sumra við prófið, og margir hafa lært svo illa að skrifa, að þraut er að kom- ast fram úr ritgerðunum. Öll framsetningin og vöntun kommu- setningar bera þess stundum vott, að þeir hugsa ekki eins skýrt og ætlast mætti til eftir sex ára nám í Mentaskólanum." Og prófessor Sigurður Nordal segir: „En af almennum kynnum af stúdentum, m.a. af því að hafa hlýtt á alt íslenskuburtfararprófið 1915 og lesið stílana, get ég fullyrt, að kunnátta stúdenta í móðurmál- inu er stórra ábóta vant, og miklu meiri en hægt er að ráða af próf- einkunnum þeirra, sem virðast mjög af handahófi." ...“ (Baldur Jónsson: „Mályrkja Guðmundar Finnbogasonar.") Er hér ekki verið að dæma van- getu þeirrar kynslóðar sem þykir til fyrirmyndar í dag hvað varðar gott málfar og skilning á menn- ingararfleifð þjóðarinnar? Enginn má þó skilja orð mín svo að ég telji að skólastarf eigi að vera hafið yfir gagnrýni. Þvert á móti — en þar sem skólinn verður að fylgja eftir örum þjóðfélags- breytingum ríður á að öll umræða um skólamál sé heiðarleg og ábyrg. Það skuldum við þeirri ungu kynslóð sem situr uppi með það öngþveiti sem ríkir í þjóðfé- lagi okkar og þarf að leysa þau vandamá) sem við höfum ekki reynst menn til — þrátt fyrir ríka þjóðerniskennd. Ekki vil ég efast um að þeir sem hafa geyst fram á ritvöllinn und- anfarna daga beri hag íslandssög- unnar fyrir brjósti. Því vekur það furðu mína hversu illa þeir reka málstað sinn og hirða ekki um að kynna sér málavöxtu eða reyna að fara með rétt mál. Ekki er hægt að sjá að þeir velti fyrir sér á hvern hátt sé farsælast að standa að sögukennslu til að nemendur fái áhuga á sögu þjóðar sinnar og nýti sér hana til þroska og aukins skilnings. Ekki er heldur hægt að segja að þessir „málsvarsmenn" íslandssögukennslu hafi lært að skoða heimildir, afla sér upplýs- inga, vega þær og meta og draga skynsamlegar ályktanir. Erla Kristjánsdóttir er kennari og uppeldisíræóingur og starfar nú sem námsstjóri í samfélagsfræói fyrir 4.-9. bekk grunnskóla. Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekið við hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boöið að notfæra sér viötals- tíma þessa. Laugardaginn 26. nóv- ember veröa til viðtals Hilmar Guölaugsson og Margrét S. Einars- dóttir. Margrét Hilmar NAMSTEFNA Notkun ársreikninga Ársskýrslu verðlaun 1983 Haldin að Hótel Loftleiðum, Kristalssal, 30. nóvember 1983. ki. 1400 Námsstefnan sett Sigurður R. Helgason, formaður SFÍ. HVAÐA UPPLÝSINGAR ÞURFA ÁRSREIKNINGAR AD FLYTJA MED TILLITITIL ÞARFA OG HAGSMUNA EFTIRFARANDI HÓPA?: ki. 14:05 SJÓNARMIÐ EIGENDA Qunnar H. Hálfdánarson, framkvæmdastjóri Fjárfestingafélags íslands. KI 14:20 SJÓNARMIÐ STJÓRNENDA Þorkell Sigurlaugsson, forstöðumaður áætlunardeildar Cimskip. ki. 14:35 SJÓNARMIÐ LÁNASTOFNANA Ragnar Önundarson, aðstoðarbankastjóri, Iðnaðarbanka íslands. ki. 14:50 SJÓNARMIÐ SKATTAYFIRVALDA Qestur Steinþórsson, skattstjóri í Reykjavík. ki 15 05 SJÓNARMIÐ HAGTÖLUVINNSLUNNAR Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri, Félags ísl. iðnrekenda. KI 15:20 SJÓNARMIÐ ENDURSKOÐENDA Sveinn Jónsson, löggilturendurskoðandi, Endurskoðun h/f Kl. 15:35 Kaffihlé ki. 16:00 Álit dómnefndar um bestu ársskýrslu ársins 1982 og afhending verðlauna. Árni Vilhjálmsson, prófessor, formaður árs- skýrslunefndar SFÍ Veitingar. TILKYNNIÐ ÞÁTTTOKU í SÍMA 82930 STJÓRNUNARFÉLAG ÍSIANDS lísœ3 ÍUR AUGL TEIKMSTQFA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.