Morgunblaðið - 24.11.1983, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 24.11.1983, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983 Hvar er Vular-vatn? Bókmenntir Sveinbjörn I. Baldvinsson Kjartan Ólafsson: Undraheimar Indíalanda, Ferðaþættir frá Indlandi Gandhis 200 bls. Setberg. Kjartan Ólafsson er sjálfsagt meðal víðförlustu Islendinga. Hann hefur m.a. ferðast víða um Asíu og Suður-Ameríku auk ferðalags um Ástralíu. Hann hefur áður sent frá sér tvær ferðabækur, „Sól í fullu suðri" og „Eldóradó". Vöktu þær báðar mikla athygli, einkum voru menn hrifnir af stíl Kjartans. Þessi nýja bók, „Undraheimar Indíalanda", hefur að geyma dagbókaskrif frá ferð höfundar víða um Indland fyrir allmörg- um árum. Það kemur þó hvergi fram hvenær ferð þessi var farin og þykir mér það skrýtið miðað við nákvæmni frásagnarinnar að öðru leyti: „Um kl. 7.15 komum við til Gömlu Dehli“ (bls. 13). í bókinni lýsir Kjartan því sem fyrir augu hans ber víða á Ind- landi, svo sem í Kasmír, Bombay, Banares, Pondichéry og á fleiri merkum stöðum. Enn- Kjartan Ólafsson fremur er bókin full af fróðleik um sögu og siði Indverja. Er þar oft um að ræða einkar áhuga- verða hluti, en staðar- og mann- lífslýsingar frá hinum ýmsu stöðum vilja renna nokkuð sam- an í huga ókunnugs lesanda. Þannig er lýst ákaflega mörgum hofum og myndastyttum, sem allt er helgað hinum og þessum persónum úr þjóðkvæðum Ind- verja, Ramayana, eða aðskiljan- legum goðverum hindúasiðar. Kjartan gerir grein fyrir þess- um fyrirmyndum í sérstökum köflum og er það vel. Finnst mér það helsti kostur bókarinnar hve þar er samankominn mikill fróð- leikur um menningu Indverja. Sjálf ferðalýsingin þykir mér ekki sérlega mikilfengleg. Hún er lítt samhangandi, vegna stöð- ugra fróðlegra innskota og ein- hvern veginn fór þannig fyrir mér við lesturinn að mér veittist iðulega erfitt að greina á milli einstakra lýsinga eftirá. AIls staðar virðist eymdin óskapleg, sóðaskapur mikill og betl nánast þjóðarsiður. Er það reyndar ekki undarlegt, þegar þess er gætt hvílík fátækt er ríkjandi í þessu stóra landi. Það sem er merki- legast og óhugnanlegast við þetta allt saman er sú staðreynd, að allir þessir fátæklingar (með nokkrum undantekningum þó) eru af trúarlegum ástæðum sátt- ir við hlutskipti sitt. Stíll Kjartans vekur ekki hrifningu mína. Hann er óneit- anlega skrautlegur, enda kann höfundurinn mikið af sérkenni- legum orðum, sem ég hef mörg hver ekki séð eða heyrt fyrr. Orð eins og „kjávís", „búlkaralegur" og „spókaraleg". Svona orða- notkun hneigist ég til að kalla glysgirni, fremur en fagran stíl. Á hinn bóginn eru svipmyndir þær sem Kjartan dregur upp í fáeinum setningum oft afbragðs skemmtilegar og greinilegt að vandað er til skrifanna. Sem dæmi má nefna eftirfarandi staðarlýsingu frá gististað hans í Kasmír. Takið eftir stuðlun- inni: „Gistihús þetta reyndist vistlegt með skriðjurtum víða um veggi. Úti í garði stóð stór hvít sólhlíf og há og spengileg tré. Bak við hótelið reis fell með kapellu á kolli. Hand- an Dalvatns mátti greina mistruð fjöll í fjarska." (bls. 99). I bókinni eru margar svart/hvítar ljósmyndir og nokkrar skýringarteikningar og er það vel við hæfi, þegar um svo framandi staði er að ræða. Hins vegar finnst mér sárlega vanta kort af Indlandi, svo lesandi geti betur gert sér grein fyrir því, hvar Kjartan er staddur í þessu viðfeðma landi, í það og það skiptið. Þykir mér þetta landa- bréfsleysi vera mikill ljóður á annars mjög vel frágenginni bók. Allt útlit hennar er til sóma og fjarska lítið um prentvillur. En hvar er Vular-vatn? Hvar rennur Ganges? „Undraheimar Indíalanda" er sérkennileg ferðasaga, sögð með svipmyndum og hugleiðingum fremur en hefðbundinni frásögn. Það sem gefur bókinni helst gildi er hinn mikli fróðleikur sem í henni er að finna um ýmsa þætti indverskrar menningar og sögu, svo sem hindúasið, búddatrú, sagnir um dvöl Jesú í Indlandi, Gandhi o.fl. Bók af þessu tagi minnir mann ósjálfrátt á aðrar ferðaminn- ingar frá þessum slóðum, svo sem frásagnir Jóns Indíafara frá sautjándu öld og minningabæk- ur Sveinbjarnar Egilssonar frá þeirri tuttugustu. Frásögn Kjartans á það sammerkt með bókum Sveinbjarnar að hún er full af kennslubókarlegum fróð- leikskornum og útskýringum fyrir ósiglda lesendur. En að einu leyti er hún algerlega frá- brugðin báðum þessum fyrir- rennurum sínum. Við lestur hennar kynnumst við höfundin- um nánast ekki neitt. Jón og Sveinbjörn urðu vinir manns strax á fyrstu blaðsíðunum. Kjartan tranar sér lítt fram í frásögn sinni, ef til vill af ein- skærri hógværð. En ég held þó að bókin hefði orðið heilsteypt- ari og skemmtilegri ef hann hefði fremur verið ferðafélagi lesandans, heldur en leiðsögu- maður og fyrirlesari. JOJOBiV JOJOBX r j -Health rí)aU f o L. \ \ \? / I WmiVITAMKE KÆKATUÍ ^ÖaALCONCMTIOf^ ^WyriAMIN E WIT« vtTAMIN | HENNA TaCWMfNT OOMDmONí" **** irnwi|ll1» HENNA TWSTXrNT SHAMPOOJ * UKTK SHAMPOO *«MTH p tí everk ^OABUTW ÍM Vale of Health er nýr flokkur náttúruefna, sem Vale og Health Organic Products Company hefur þróað, og stuðlar að heilbrigði húðar og hárs. Hvíta matt-flaskan frá Vale of Health er full af gæðum ómengaðrar náttúru. Leitið því í versluninni að hvítu flöskunni, sem á stendur „Vale of Health". Vandaður litprentaður upplýsingabæklingur á íslensku liggur frammi á öllum útsölustöðum. Heildsölubirgðir: Friðrik Björnsson heildv. Sími 77311 Háskólasjóður: Kort með verkum Þorvaldar Skúlasonar HÁSKÓLASJÓÐUR Háskóla fs- lands hefur gefid út tvö kort eftir verkum Þorvalds Skúlasonar í eigu Listasafns Háskóla íslands. Verkin eru: skip í höfn (1942, olíulitir, 90 x 100) og stóðhestar (1941, olíulitir, 107 x 160). Megintilgangur Háskólasjóðs samkvæmt skipulagsskrá er að efla menningarstarfsemi innan Háskólans. Kortin eru gefin út í takmörk- uðu upplagi. Auk þess sem Háskólinn hyggst með þessu efla Háskólasjóð hefur hann þá ánægju að bjóða til kaups kort með myndum eftir nafntog- aðan listamann. Kortin eru boðin til sölu stofn- unum og fyrirtækjum og fást einnig á aðalskrifstofu Háskólans og í Norræna húsinu. (KrétUtilkynning). CRESCO HF. hefur opnað nýja verslun og sýningarsal á Laugavegi 53 í Revkjavík. I tilkynningu frá hinni nýju verslun, segir m.a. að á neðri hæð séu seldar gjafavörur svo sem borðbúnaður, kristalsglös o.fl. og á efri hæð sé sýningar- salur m.a. fyrir eftirprentanir. í sömu tilkynningu segir ennfremur: „Á næstu vikum og mánuðum verða sýningar á verkum heimsþekktra listmálara og má þar nefna höfunda eins og Cezanne og Pissarro. Starfsmenn Cresco hf. eru nú fjórir en framkvæmdastjóri er Helga Sig- þórsdóttir, viðskiptafræðingur."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.