Morgunblaðið - 24.11.1983, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983
17
Dans-
kennsla
í Vík
Vík, 6. nóvember.
Nýlokið er danskennslu í Vík en
það voru kennarar frá dansskóla
Sigurðar Hákonarsonar sem sáu
um kennsluna. Þessar myndir eru
frá danssýningu yngstu nemend-
anna sl. lostudagskvöld en þar var
dansað af lífi og sál.
Morgunbladid/RR.
Skírnir
kominn út
Skírnir, tímarit Hins íslenzka
bókmenntafélags, 157. ár, er kom-
inn út og fylgir 15. bókmenntaskrá
Skírnis með.
Efni Skírnis er: Að vera eða
ekki eftir Matthías Viðar Sæ-
mundsson og fjallar hann um
tvær smásögur eftir Gest Páls-
son og Sigurð Nordal; Óresteia á
íslandi nefnist grein eftir Krist-
ján Árnason; Kveðið um Ólaf
helga nefnist grein eftir Véstein
Ólason — samanburður þriggja
íslenzkra bókmenntagreina frá
lokum miðalda; íslenzkt saltara-
blað í Svíþjóð nefnist grein eftir
Guðbjörgu Kristjánsdóttur;
Snörp bitu járn nefnist hugleið-
ing Lýðs Björnssonar um Gísla
sögu; Málrækt, bókmenntir og
fjölmiðlar er erindi Árna Böðv-
arssonar, sem hann flutti á aðal-
fundi Hins íslenzka bókmennta-
félags í desember 1982; Tveir
höfundar Egils sögu nefnist
grein eftir Svein Bergsveinsson;
Vilhjálmur Árnason skrifar um
Siðferði, samfélag og manneðli,
og fjallar þar um bók Páls S.
Árdal um siðfræði skoska heim-
spekingsins David Hume; Loks er
svo grein eftir Sverri Tómasson,
sem heitir Helgisögur, mælsku-
fræði og forn frásagnarlist.
Einnig eru í Skírni ritdómar
eftir Arna Böðvarsson, Jón
Hnefil Aðalsteinsson, Lúðvík
Kristjánsson, Jón Viðar Jónsson,
Inga Boga Bogason og Ólaf
Jónsson.
Stórkostleg bylting ígólfefnum!
Perstorp, 7mm þykk gólf boró,
semhægteraó
leggja beint á gamla gólf ió!
Nýju Perstorp gólfboröin
eru satt aö segja ótrúleg.
Þau eru aðeins 7 mm á
þykkt og þau má leggja ofan
á gamla gclfiö - dúk, teppi,
parket eða steinsteypu.
Þaö er mjög einfalt aö
leggja Perstorp gólfboröin
og 7 mm þykktin gerir
vandamál þröskulda og
hurða aö engu. Perstorp
gólfboröin eru líka vel varin
gegn smáslysum heimilis-
lífsins eins og skóáburði,
naglalakki, kaffi, te, kóki og
logandi vindlingum.
Þú færð Perstorp aðeins
hjá okkur.
Skírnir er 192 blaðsíður, rit-
stjóri er Ólafur Jónsson. Bókm-
enntaskrá Skírnis er 115 blaðsíð-
ur, tekin saman af Einari Sig-
urðssyni.
Kalmar
SKEIFUNNI 8.SIMI 82011
ós*
Úr blaðaummælum:
Sviösetningin er stórkostleg. Blade Runner er
ævintýramynd eins og þær gerast bestar.
Handrit er hvorki of einfalt né of ótrúlegt og öll
tæknivinna í hæsta gæöaflokki.
DV 17/11 ’83.
Ridley Scotts hefur komiö öllum endum svo
listilega saman aö Blade Runner veröur aö
teljast meö vönduöustu, frumlegustu og listi-
legast geröu skemmtimyndum á síöari árum.
Mbl. 19/11 '83.