Morgunblaðið - 24.11.1983, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983
flfaKgtntliIfiMfr
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, simi 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 20 kr. eintakiö.
Þjóðskáld
kvatt
Því skáld af guðs náð þeim einum er unnt að vera,
sem átthaga sína og land sitt í hjartanu bera.
Þannig orti Tómas Guðmundsson í ljóðinu Á meðal skáld-
fugla í síðustu ljóðabók sinni. Hann hverfur þar aftur til
bernskustöðvanna við Sog og ræðir við skáldfuglana þar.
Tómas bar átthaga sína, land sitt og borg í hjartanu enda
kveðjum við þjóðskáld í dag þegar hann er til grafar borinn.
Aðrir ræða um skáldið Tómas Guðmundsson hér í blaðinu í
dag en á þessum stað skal þess sérstaklega minnst hve fastur
hann stóð fyrir sem talsmaður andlegs frelsis og andstæðing-
ur ofríkis í hvaða mynd sem það birtist. Var Tómas Guð-
mundsson í forystusveit borgaralegra rithöfunda og um ára-
bil formaður útgáfuráðs Almenna bókafélagsins sem stofnað
var á sínum tíma til mótvægis við áhrif einræðisafla marx-
ismans í bókmenntalífi þjóðarinnar.
Fyrir fáeinum árum gaf Almenna bókafélagið út ritsafn
Tómasar Guðmundssonar í tíu bindum. Þar er meðal annars
að finna nokkrar ritsmíðar hans um pólitísk málefni. Um þær
segir Tómas í eftirmála: „Ég hef alltaf litið á það sem hina
mestu ógæfu, sem nokkurn mann geti hent, að skorta einurð
og kjark til að kannast við þær skoðanir, sem koma heim við
sannfæringu hans, og ekki veit ég heldur dæmi þess, að
nokkur hafi til lengdar harmað það að hafa reynst sannfær-
ingu sinni trúr.“
Eins og þessi ummæli gefa til kynna þurfti enginn að fara
í grafgötur um skoðanir Tómasar Guðmundssonar á þjóðfé-
lagsmálum. Á sínum tíma var hann í hópi lögskilnaðarmanna
sem vildu fara sér hægt í sambandsslitunum við Dani. Hikaði
hann ekki við að lýsa skoðunum sínum í því máli með einörð-
um og rökföstum hætti en tók síðan fullan þátt í gleði þjóðar-
innar við stofnun lýðveldis 1944 eins og aðrir skoðanabræður
hans. Ættjarðarljóð Tómasar lýsa óbifanlegum trúnaði við
landið, þjóðina, söguna og tunguna og trú á að sá sem öllu
stýrir muni leyfa okkur að búa við blessun sína um langa
framtíð. Er þetta þráðurinn í hátíðarljóðinu sem hann orti að
beiðni Þjóðhátíðarnefndar 1974 og las á ógleymanlegri
stundu á Þingvöllum á 1100 ára afmæli íslandsbyggðar.
í ræðu á stúdentafundi í ársbyrjun 1950 sagði Tómas Guð-
mundsson: „Hins vegar fer það ekki á milli mála, að á vorum
tímum er komin til sögunnar ný hætta, sem enn er ekki vitað,
hvort heimsmenningin fær staðist. Sú hætta er hvarvetna
nálæg, þar sem aðstaða er fengin til að sveigja allt andlegt líf
heilla þjóða undir ok friðheilags og óskeikuls hugmyndakerf-
is, sem viðurkennir engan annan mælikvarða á persónuverð-
mæti einstaklingsins en nytjagildi hans fyrir það ríkisvald,
sem svo ráðstafar honum að geðþótta sínum. Það voru fyrst
og fremst nasistaríkin, sem opnuðu augu lýðræðisþjóðanna
fyrir þessari andlegu þrælkun, en þó að þau séu nú flest að
velli lögð, þá hvílir samt enn skuggi hinnar sömu hættu yfir
heiminum eins og mara. Munurinn er sá einn, að í þetta sinn
leita menn grun sínum staðar í hugmyndakerfi þeirra ríkja,
sem nú hafa tekið upp höfuðbaráttuna við lýðræðið. Ég vona,
að ég geri engu ríki rangt til, þó að ég gangi út frá því sem
gefnu, að þar eins og í fleiri efnum hafi Sovét-Rússland
forystuna."
Sagan sýnir að Tómas Guðmundsson gerði engu ríki rangt
til með því að beina gagnrýninni á Sovétríkin. Hiklaus af-
staða hans gegn þeim sem gengu erinda heimskommúnism-
ans hér á landi og erlendis er enn til marks um sanna og
fölskvalausa ættjarðarást Tómasar Guðmundssonar.
Morgunblaðið þakkar Tómasi Guðmundssyni samfylgdina,
ómetanlegan stuðning hans fyrr og síðar og fagnar því að
hafa fengið að eiga samleið með honum í trúnni á að aðeins
frjáls andleg samskipti verði mannkyninu til blessunar.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983
29
Heimsókn forseta íslands til Portúgals lokið:
„Portúgalir hafa tekið á móti
okkur af miklum höföingsskap“
Símamynd AP.
Jose Luis Nunes, einn af forsetum portúgalska þingsins,
sýnir Vigdísi Finnbogadóttur forseta og Geir Hallgrímssyni
utanríkisráðherra þingbygginguna.
Borgarstjóri Lissabon, Nuno Krus Abecassis, afhendir Vig-
dísi borgarlykla. Á myndinni eru ennfremur utanríkisráó-
herrahjónin Geir Hallgrímsson og Erna Finnsdóttir og Ingvi
Yngvason ráðuneytisstjóri.
— sagði Vigdís
Finnbogadóttir í lok
heimsóknarinnar
LLssabon, 23. nóvember, frá Hirti Gísla-
syni blaóamanni Morgunblaósins.
„ÞESSI FÖR hefur verið ákaflega
ánægjuleg, enda hafa Portúgalir tekið
á móti okkur af miklum höfðingsskap.
Það sem mér hefur komið mest á
óvart hér, er að ég var gerð að heið-
ursborgara Lissabonborgar og afhent-
ur gylltur lykill að borgarhliðunum og
silfurslegið skip, sem er tákn borgar-
innar og jafnframt landkönnuðanna
og landafundanna miklu. Samkvæmt
þessu verða borgarhlið Lissabonborg-
ar aldrei lokuð fyrir íslendingum,"
sagöi Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, er blaðamaður Morgunblaös-
ins ræddi við hana í Qualus-höllinni í
dag.
Vigdís sagði ennfremur, að boð
eins og það sem hún hefði nú þegið
frá Eanes, forseta Portúgals, bæri
skilyrðislaust að þiggja. Þetta væri
sem útrétt vinarhönd og því oftar
sem boð sem þessi væru þegin, gerði
hún sér betur grein fyrir því hve
mikilvægt er að þiggja þau. Með
þessu væri verið að styrkja vina-
bönd og í framhaldi þess stæðu vin-
ir saman. Vinátta þessara tveggja
Atlantshafsþjóða væri mjög nauð-
synleg og ekki síst væri okkur
nauðsynleg vinátta við Portúgali
vegna þess hve mikil viðskipti við
hefðum átt við þá á undanförnum
árum. Þó þjóðirnar þekktust lítið,
ættu þær margt sameiginlegt. Báð-
ar þjóðirnar væru fiskveiðiþjóðir og
í hvaða þjóðfélagi sem sæfarinn
byggi, væri hann ætíð hetja.
Vigdís sagði ennfremur að hún
teldi engan vafa á því að þessi heim-
sókn hefði haft jákvæð áhrif og því
væri betur af stað farið, en heima
setið. Islensku gestirnir hefðu allir
gert sitt besta til að kynna Island og
Islendinga og hún teldi að það hefði
tekist vel að styrkja vináttu og
viðskiptasamband þjóðanna.
I dag heimsótti Vigdís þjóðþingið,
þar sem varaforseti þingsins tók á
móti henni og kynnti hana m.a.
fyrir þingfulltrúum og sýndi henni
húsakynni. I ræðu, sem Vigdís hélt
við það tilefni kynnti hún sögu ís-
lendinga, sagði frá stofnun Alþingis
og skýrði frá stjórnarskrá landsins.
Vigdís færði portúgalska þjóðþing-
inu Skarðsbók að gjöf, en þáði sjálf
portúgalskan postulínsvasa. Að því
loknu snæddi forsetinn hádegisverð
með forsætisráðherra Portúgals,
Mario Soares, en síðan heimsótti
forsetinn Gulbenkiam-stofnunina,
sem m.a. styrkir listir og heilbrigð-
ismál. Þar tók á móti forsetanum
aðalforstjóri stofnunarinnar svo og
Victor Samachado, einn af fram-
kvæmdastjórum stofnunarinnar og
kona hans, sem er íslensk og heitir
Kerstin. Var Vigdísi færð að gjöf
portúgölsk postulínsskái, en síðan
var henni kynnt stofnunin og þau
listaverk sem hún hefur að geyma.
I kvöld heldur forsetinn veislu til
heiðurs forseta Portúgals, Eanes og
verða þar m.a. staddir helstu emb-
ættismenn Portúgals svo og helstu
viðskiptaaðilar íslands. I veislunni
mun forsetinn vera í íslenskum
skautbúningi. Með þessari veislu,
lýkur opinberri heimsókn forsetans
til Portúgals en á morgun heldur
hún áleiðis til V-Berlínar, þar sem
hún opnar íslandskynningu.
Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra:
Orva þarf innflutning frá Portúgal
„Ég held að þessi heimsókn hingað
hafi verið ákaflega góð landkynning.
Forsetinn hefur hvarvetna fengið hlýj-
ar og góðar móttökur og vakið virð-
ingu lands og þjóðar með ræðum sín-
um og framgöngu allri," sagði Geir
Hallgrímsson, utanríkisráðherra, er
blaðamaður ræddi við hann í dag. „í
heimsókn sem þessari gefst tækifæri
til að ræða sameiginleg hagsmunamál
landanna við helstu stjórnendur hér.
Það kemur ætíð að gagni þegar full-
trúar landanna hittast á öðrum vett-
vangi, þar sem þeir gæta hagsmuna
landa sinna, hvort sem það er á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna, Atlants-
hafsbandalagsins, Efnahagsbanda-
lagsins eða Evrópuráðsins.
Loks er þess að geta, að ekki síst
hefur þetta þýðingu fyrir tvíhliða
viðskipti landanna, en nú á Portú-
gal í erfiðleikum, þar sem útflutn-
ingur þjóðarinnar er langtum minni
en innflutningur og að þessu leyti er
kannað hjá þeim löndum, sem mest
er flutt frá, hvað þau geti keypt frá
Portúgal.
Við höfum vonandi getað leitt
Portúgölum fyrir sjónir, að íslensk
stjórnvöld og viðskiptaaðilar Portú-
gals á Islandi hafa stórlega aukið
innflutning frá Portúgal á siðustu
árum og við viljum stuðla að áfram-
haldi þess. Okkur hefur verið bent á
það hér, að Portúgalir hafi fisk-
veiðiheimildir hjá Norðmönnum og
Kanadamönnum og þeir hafa jafn-
framt sóst eftir veiðiheimildum hjá
okkur. I því sambandi hefur verið
reynt að skýra fyrir Portúgölum, að
saltfiskurinn, sem við flytjum út til
þeirra, er blautverkaður og með því
sköpum við sambærilega atvinnu í
Portúgal við þurrkun saltfisksins og
þá sem þeir hugsanlega gætu fengið
með veiðiheimildum. Báðar þjóðirn-
ar, sem eru í EFTA og því fylgjandi
frjálsri verslun, geta því ekki vænst
þess að tvíhliða viðskipti milli þjóð-
anna séu alltaf í jafnvægi. En þar
sem markaður okkar fyrir saltfisk í
Portúgal er mjög mikilvægur,
Portúgal er þriðji stærsti innflytj-
andi íslenskra aðila, þá ber okkur að
leitast við að örva innflutning frá
Portúgal."
og Kibli við upphaf 1. einvígisskákarinnar 1 London. Símamynd ap.
Smyslov tók foryst-
una gegn Ribli í gær
Vassily Smyslov, 62 ára gamall fyrrverandi heimsmeistari í skák tók
forystuna í einvígi sínu við Ungverjann Zoltan Ribli með því að vinna
biðskákina úr fyrstu umferð sem tefld var áfram í London í gær.
Smyslov stóð augljóslega betur að vígi í biðstöðunni, en „sérfræðingar"
á einvíginu í London töldu þó ólíklegt að heimsmeistaranum fyrrverandi
tækist að knýja fram vinning vegna þess hversu lítið lið var eftir í
stöðunni. Smyslov fann hins vegar snjalla leið og þrengdi jafnt og þétt
að andstæðingi sínum. Ribli tókst jafnan að forðast mát, en í 58. leik, í
mjög erfíðri stöðu, greip hann til þess ráðs að fórna manni. Fórnin stóðst
ekki og Ungverjinn varð því að gefast upp í 65. leik.
Skák
Margeir Pétursson
Smyslov hefur því fengið óska-
byrjun og með þeirri rólegu og
yfirveguðu taflmennsku sem er
aðalsmerki hans ætti hann að eiga
góða möguleika á að halda for-
skotinu í þessu tólf skáka einvígi.
Það hefur oft verið talað um að
Kasparov ætti möguleika á að
verða yngsti heimsmeistari skák-
sögunnar, en sú staðreynd hefur
ekki komið fram áður að Smyslov
á möguleika á að verða sá elsti.
„Hvar er Botvinnik?" heyrðist
spurt hjá Skáksambandinu í gær
þegar fréttist um sigur Smyslovs í
biðskákinni. Það var einmitt
Mikhail Botvinnik sem vann,
heimsmeistaratitilinn af Smyslov
árið 1957, fyrir 26 árum! Hann er
seztur#í helgan stein fyrir löngu,
en Smyslov hefur sjaldan verið
betri en nú.
Biðstaðan var þessi. Ribli lék
þeim biðleik sem flestir væntu:
Svart: Zoltan Ribli
41. — Hac8 (biðleikurinn) 42. h5!
— f4 (Eina vörnin, því eftir 42. —
gxh5, 43. f4! er svartur varnarlaus.
T.d. 43. - Bb3, 44. Hg7+ - Kh8,
45. Hh6 og mátar).
43. h6 — Bf5, 44. Hg7+ — Kh8, 45.
Hff7 — g5, 46. Rd4 - Hcl+, 47.
Kh2 — Bg6
Ribli hefur fetað einstigi og hér
bjuggust margir við því að hann
væri laus úr erfiðleikunum. En
baráttan er rétt að byrja, það er
lærdómsríkt að fylgjast með með-
höndlun endataflssnillingsins á
stöðunni.
48. Hf6 — Hlc5, 49. Hd7 — Hg8,
50. He7 — Ha5, 51. Rc6
Svarta liðið er svo óvirkt að
Smyslov getur óhindraður stillt
sínum mönnum í óskastöður.
51. — Ha6, 52. Hee6 — Bh5, 53.
Re5! — Ha7
53. — Hxe6, 54. Hxe6 léttir
svörtum ekkert vörnina. Eftir 54.
- Be8, 55. Kh3 — Bh5, 56. He7 er
hann kominn í leikþröng og 54. —
He8, 55. Hf6 þjónar engum til-
gangi.
54. Hf5 — Hb7, 55. Hd6 — Ha7, 56.
Hb6 — He7, 57. Hbf6!
Hótar 58. Hf8, því hrókakaup
gera svörtum enn erfiðara fyrir
við að valda veikleikann á g5.
57. — Hee8, 58. Rc4!
MorgunblaðiÖ/ GBerg
Frystitogarinn Akureyrin, sem gerð verður út frá Akureyri, fer í reynslu-
siglingu í nótt og er áætlað að vera á veiðum í fjóra sólarhringa. Ef allt
fer að óskum í þeirri ferð verður skiptið afhent frá Slippstöðinni að
siglingunni lokinni. Þar hefur skipinu á undanförnum mánuðum verið
breytt í frystitogara.
*
-
Korchnoi fylgdi nýja leikn-
um ekki nægilega vel eftir
Skák
Margeir Pétursson
AKl’UR kom Viktor Korchnoi Gary
Kasparov á óvart með nýjum leik í vel
þekktu afbrigði. Það er einkennandi
fyrir tvær fyrstu einvígisskákirnar
hversu vel undirbúinn Korchnoi virðist
vera, en í þeim báðum tókst honum að
koma hinum tvítuga andstæðingi sínum
í erfiðleika strax í byrjuninni. I annarri
skákinni tókst áskorandanum fyrrver-
andi þó ekki að fylgja frumkvæði sínu
jafn vel eftir og í þeirri fyrstu þegar
hann sigraði. Eftir að hafa fengið væn-
lega miðtaflsstöðu virtist Korchnoi
ofmeta möguleika sína á kóngsvæng og
eftir uppskipti á drottningum var fljót-
lega samið jafntefli.
Kasparov virðist aldrei þessu vant
ekki hafa mikið nýtt fram að færa
enda hefur hann áreiðanlega ekki bú-
ist við að fá að nota sínar uppáhalds-
byrjanir, eins og Petrosjan-afbrigðið
í drottningarindverskri vörn í fyrstu
skákinni og í gær Tarrasch-vörnina
gegn drottningarbragði Korchnois
2. einvígisskákin:
Hvítt: Viktor Korchnoi
Svart: Gary Kasparov
Tarrasch-vörn.
1. d4 — d5, 2. c4 — e6, 3. Rc3 — c5, 4.
cxd5 — exd5, 6. Rf3 — Rc6, 6. g3 —
RI6, 7. Bg2 — Be7, 8. (H) — 0-0
Grunnstaðan í Rubinstein-
Schlecther-afbrigðinu í Tarrasch-
vörn er nú komið upp. Korchnoi velur
vinsælasta framhaldið.
9. Bg5 — cxd4, 10. Rxd4 — h6, 11. Be3
— He8,
I illCIlfl 11.411 (tt
Einkennandi fyrir Tarrasch-vörnina.
Svartur hefur stakt peð á d5, sem er
veikleiki, en fær í staðinn frjálsræði
fyrir menn sína.
12. a3!?
Hér hefur verið einblínt á 12. Da4,
12. Hcl, 12. Rb3 og 12. Rxc6, en þess-
um leik hefur aldrei verið leikið áður
svo vitað sé í kappskák. Við fyrstu
sýn lætur leikurinn lítið yfir sér, en
síðar kemur í ljós að markmiðið er að
veita hvítu drottningunni afdrep á
a2.
12. — Be6, 13. Db3 — Dd7,
13. - Ra5, 14. Da2! - Rc4, 15. Bf4
þjónar nú einvörðungu hagsmunum
hvíts, því þá fær hann þunga pressu
gegn staka peðinu.
14. Rxe6
Hindrar 14. — Bh3, og tryggir hvít-
um nokkra stöðuyfirburði sem byggj-
ast á biskupaparinu og heilbrigðari
peðastöðu. 14. Hfdl kom einnig vel til
greina.
14. — fxe6, 15.Hadl — Bd6, 16. Bcl
Korchnoi undirbýr framrásina e2 —
e4.
14. — Kh8, 17. Da4 — De7, 18. e3?!
Með vinningsforskot afræður
Korchnoi að fara að öllu með gát.
Hvassara var 18. Hfel með hugmynd-
inni 19. e4 — d4, 20. e5
18. — a6, 19. Dh4 — Hac8, 20. e4
Loksins fer peðið alla leið.
20. — d4, 21. Re2 — e5,
I þessari stöðu bjuggust margir við
því að Korchnoi myndi þreifa fyrir
sér um sóknarfæri á kóngsvæng með
tvíeggjuðum leik á borð við 22. g4!?
En hann ætlaði sér ekki að taka
neina áhættu.
22. Bh3 — Hc7, 23. Bg5! — Kg8, 24.
Bxf6 — Dxf6, 25.Dxf6 — gxf6,
Eftir drottningakaupin verður
staðan að teljast því sem næst í jafn-
vægi. Mislitir biskupar eru á borðinu
og auka á jafnteflislíkurnar. Hvítur á
að vísu möguleika á uppbrotinu f2 —
f4, en svartur á sitt valdaða frípeð á
d4.
26. Rcl — Ra5, 27. Rd3 — Rb3, 28. Bf5
— a5, 29. Kg2 — Kg7, 30. Kh3 — Hee7,
31. Rcl og hér bauð Korchnoi jafn-
tefli sem Kasparov þáði eftur u.þ.b.
fimm mínútna umhugsun.
Staðan:
Korchnoi l'Æ
Kasparov 'h
Nú hótar hvítur að auka þrýst-
inginn á g5-peðið með tilfærslunni
Rd6 — e4. Aðalbaráttan fer fram
á hg og f línunum og á svo litlu
svæði nýtur riddari sín vel.
58. — g4?
Örvæntingarfull mannsfórn, en
vörn gegn áðurnefndri tilfærslu er
ekki að sjá.
59. Re5!
Ekki 59. Hxh5?? - g3, 60. Kh3
— Hel og svartur mátar.
59. — gxf3, 60. Hxh5 — Hxg2, 61.
Kh3 - Hg3, 62. Kh4 - f2, 63. Hxf4
— Hgl, 64. Hhf5 — Hhl, 65. Kg3 og
svartur gafst upp. Einfaldar stöð-
ur bjóða stundum upp á ótrúlega
glæsilega taflmennsku-