Morgunblaðið - 24.11.1983, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 24.11.1983, Blaðsíða 48
FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Rýmkaðar reglur um gjaldeyrisviðskipti: Taka gildi um mánaða- mótin BÚIST er við að í dag verði geng- ið frá reglum um aukið frjálsræði í gjaldeyrisviðskiptum og munu reglur þessar taka gildi um næstu mánaðamót, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. I fyrsta lagi er um að ræða breytingar á reglum um skila- skyldu gjaldeyris þannig að heimilt verði að leggja inn á gjaldeyrisreikninga andvirði vöru og þjónustu, en sam- kvæmt núgildandi reglum á að selja gjaldeyrinn gjaldeyris- banka. Þá er ákvæði úm að út- flutningur iðnaðarvara verði gefinn frjáls, og reglur um eignayfirfærslu verða rýmkað- ar. Loks ber að geta ákvæðis þar sem rýmkaðar eru reglur um notkun greiðslukorta, svokall- aðra kredikorta, þannig að al- menningi verði gert kleift að nýta sér þessa þjónustu á ferðalögum erlendis. Þyrill kyrrsett- ur í Noregi FLUTNINGASKIPIÐ Þyrill hefur verið kyrrsett í K ri.stians.su nd í Nor- egi í rúma viku vegna skulda. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins eru það lánardrottnar í Noregi, Danmörku og Frakklandi sem kröfðust kyrrsetningar skipsins og lausn hafði ekki fengist á málinu í gær. Ahöfnin á Þyrli, sem mun vera 12—13 manns, hafði samband við norska sjómannasambandið og ís- lenska sendiráðið í Osló, en mat- arlaust var orðið í skipinu. Fengu þeir fyrirgreiðslu frá norska rík- inu, sem nemur 200 krónum norskum á viku á hvern mann. Er mannskapurinn orðinn óþolin- móður eftir að komast heim. Flutningaskipið Þyrill hefur verið í lýsisflutningum. „Ein meö öllu“ hækkar í 35 krónur PYLSAN, eða ein með öllu, hækk- aði nýverið í kjölfarið á hækkun á unnum kjötvörum, sem samþykkt var í verðlagsráði. „Ein með öllu“ kostar í dag 35 krónur í Pylsu- vagninum, en kostaði fyrir hækk- un 30 krónur. Hækkunin er 16,66%. Morgunblaðið/ Friðþjófur Fullorðin kona beið bana í umferðarslysi BANASLYS varð í umferðinni í Reykjavfk síðdegis í gær. Kona á áttræð- isaldri beið bana eftir að hafa orðið fyrir fólksbifreið á Laugavegi á móts við Mjólkursamsöiuna. Konan lést á leið í sjúkrahús. Konan var á leið yfir gangbraut þegar hún varð fyrir bifreið, sem ekið var vestur Laugaveg. Ökumaður mun ekki hafa séð hana fyrr en hún skall á bifreið hans, en dimmt var yfir þegar slysið varð klukkan 17.49. Læknar komu á staðinn í neyðarbifreið Rauða kross Islands. Gangbrautin þarna yfir Laugaveginn er fullorðnu fólki erfið yfir- ferðar, því gatan er breið og engin umferðareyja á milli. Mjög erfið lausafjárstaða innlánsstofnana: Bankar ákveða takmörkun útlána sinna á næstunni LAUSAFJÁRSTAÐA innlánsstofnana er mjög erfið, en hún skánaði þó nokkuð í októbermánuði sl., samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Lausafjárstaðan var neikvæð um 1.077 milljónir króna í októberlok sl., en var til samanburðar neikvæð um 1.007 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Lausafjárstaðan hefur því skánað nokkuð hlutfallslega, en er ennþá mjög óviðunandi. Þróunin á þessu ári hefur ver- ið óhagstæðari en gert hafði ver- ið ráð fyrir sérstaklega er birgðasöfnunin meiri, og síðan er meira af ógreiddum útflutn- ingi almennt, þannig að útflutn- ingstekjur hafa komið inn mun hægar en gert hafði verið ráð fyrir. Staðan hefur verið nokkuð mismunandi slæm hjá inn- lánsstofnunum, en verst hefur hún verið hjá Landsbanka ís- lands og Útvegsbanka íslands, sem hafa fjármagnað vanda út- gerðarinnar að langstærstum hluta, en ástandið hjá útgerðar- fyrirtækjum hefur sjaldan verið verra eins og kunnugt er. Þess má geta, að Landsbankinn fjár- magnar um 70% af skuldum út- gerðarinnar. Vegna hinnar slæmu stöðu banka og sparisjóða hafa nýver- ið farið fram viðræður milli Seðlabankans og innlánsstofn- ana um þessi mál. Hafa innláns- stofnanir í kjölfar þess komið sér saman um takmörkun útlána í samræmi við það, svo og til þess að ná brýnum markmiðum bættrar lausafjárstöðu þeirra og bætts jafnvægis þjóðarbúsins í heild. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hefur ásókn ein- staklinga í lánsfé farið mjög vaxandi á síðustu vikum, og á það reyndar einnig við um fyrir- tæki. í framhaldi af ákvörðun innlánsstofnana um takmörkun útlána á næstu mánuðum má nú búast við, að erfiðara reynist að fá lánafyrirgreiðslu. Yfirgnæfandi meirihluti samþykkur launastefnu stjórnvalda: 65,4% samþykkir launa- þróun næstu 12 mánaða — ef hún hefur áhrif til lækkunar verðbólgu, er niðurstaða skoðanakönnunar Hagvangs hf. 65,4% aðspurða í skoðanakönnun Hagvangs hf. svörðuð því játandi að þeir væru reiðubúnir til að sætta sig við takmarkaðar launahækkanir, innan þess ramma er ríkisstjórnin hefur boðað á næstu 12 mánuðum, ef það hafi áhrif til lækkunar verð- bólgu. Spurningin var orðrétt svo: „Ef kjaraskerðing getur haft áhrif til lækkunar verðbólgu ertu þá sjálf(ur) tilbúin(n) eða ekki til- búin(n) að launahækkanir verði ekki umfram það sem ríkisstjórn- in hefur boðað á næstu 12 mánuð- um“? Hægt var að svara spurning- unni á fjóra vegu: 1) Já, 2) Nei, 3) Ef allir gerðu það, 4) Veit ekki. Yfirgnæfandi meirihluti svaraði spurningunni játandi, eða 65,4%, neitandi 16%, 11,4% svöruðu „ef allir gerðu það“ og óákveðnir vóru 7,2%. Af íbúum höfuðborgarsvæðis svöruðu 60,6% játandi, í þéttbýli úti á landi 71,3% játandi og í strjálbýli 74,4% játandi. Brúttóúrtak var 1.300 mann: nettóúrtak 1167, svarprósenta va 76,9% af brúttóúrtaki og 85,7% a nettóúrtaki. Könnunin var ve unnin og er tölfræðilega marktæl Hún var unnin á vegum Hagvang hf. og hafði ríkisstjórnin ekk frumkvæði að henni. Sjá nánar á þingsíöu Mbl bls. 26 og viötal viö Ásmum Stefánsson forseta ASÍ á bls. 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.