Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 1
96 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
279. tbl. 70. árg. SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Uganda:
Forseti herráðsins
lést í þyrluslysi
Nairobi, Reykjavík, 3. desember. AP.
DAVID OYITE-OJOK, forseti herráðs Ugandahers, lést í þyrluslysi í nótt ásamt
átta öðrum mönnum. Oyite-Ojok var talinn annar valdamesti maður í llganda.
I yfirlýsingu frá ríkisstjórninni
sagði, að slysið hefði átt sér stað í
gær, föstudag, og að einnig hefðu
látist í slysinu fimm aðrir háttsett-
ir menn í hernum og þrír óbreyttir
borgarar.
Ojok var 49 ára gamall og hátt-
settur í hernum þegar Idi Amin tók
völdin á sínum tíma. Hann var í
útlegð í Tanzaníu á valdatíma Am-
ins en var fyrir hersveit ugandískra
útlaga og tanzanískra hermanna
þegar Amin var hrakinn á burt.
Ingi Þorsteinsson, ræðismaður
Islands í Kenya, kynntist Ojok náið
þegar hann var í útlegð í Tanzaníu
og var honum og Ugandastjórn til
ráðuneytis eftir að Obote og jafnað-
armannaflokkur hans tóku við
valdataumunum f Uganda. Ingi,
sem er viðskiptafræðingur að
mennt og tæknifræðingur hvað
varðar vefnaðarvöruframleiðslu,
fór til Kenya í byrjun áttunda ára-
tugarins til tveggja ára dvalar en
hefur starfað þar síðan. Hann stýr-
ir nú þeim málum í Kenya og nær
starfssvið hans til markaðar, sem
telur 60 milljónir manna.
Ingi ber David Oyite-Ojok afar
vel söguna, segir hann hafa verið
mjög vel gefinn mann, sem hafi
ekki átt sístan þátt í því, að lýðræð-
islegir stjórnarhættir eru í heiðri
hafðir í Uganda. Ingi Þorsteinsson
tók þátt í því að fjármagna kosn-
ingabarátti Obotes og var einn af
höfundum stjórnarstefnunnar, sem
hefur gert erlendum fyrirtækjum
kleift að fjárfesta í landinu með
góðum árangri fyrir land og þjóð.
Segir Ingi, að mikill missir sé í Ojok
fyrir Uganda auk þess sem hann
eigi á bak að sjá góðum og einlæg-
um vini.
Ljósm. FriÖþjófur.
Jólaskraut á aðventu
f dag er annar sunnudagur í aðventu og nú fer að styttast í jólin með birtu og yl. Þá mun henni hlýna
þessari ungu stúlku, sem í gær var að selja jólaskraut í Austurstræti.
Barist í Trípólí og
spenna eykst í Beirút
— Loftárásir fsraelsmanna á stöðvar Palestínumanna
Beirút, Trípólí, Sameinuðu þjóóunum. 3. desember. AP.
UPPREISNARMENN INNAN PLO og fylgismenn Yasser Arafats leiðtoga
samtakanna skiptust á fallbyssu- og eldflaugaskothríð í Trípólí og nágrenni í
fyrrinótt, fyrstu skærurnar þar í nokkra daga, og komu þær er sýnt þótti að
dráttur virtist ætla að verða á því að Arafat yrði á brott frá Tripólí með lið
sitt. Arafat hafði óskað eftir því að fá að ferðast undir fána Sameinuðu
þjóðanna meðan brottflutningurinn stæði yflr, en „margs konar erfiðleikar"
komu í veg fyrir það.
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna ræddi fánamálið allan dag-
inn í fyrradag og komst ekki að
annarri niðurstöðu en að ræða
málið nánar í gær, en niðurstöður
þeirra umræðna lágu ekki fyrir.
Erfiðleikarnir eru m.a. hvernig
Sýrlendingar og Saudi-Arabar
bregðist við notkun fánans, en
þeir höfðu veg og vanda að vopna-
hléinu. Þá velta menn því fyrir sér
hvort bardagar sem kynnu að
brjótast út kynnu að skoðast sem
árásir á Sameinuðu þjóðirnar og
einnig velta Sameinuðu þjóðirnar
því fyrir sér hvort eigi sé rétt að
þær sjái um brottflutning her-
manna Arafats ef fáni þeirra
verður notaður. Þannig mætti
áfram telja.
Kyrrt var að mestu í Beirút síð-
ast er fréttist, en þó var spenna
þar mikil þar eð fréttist að drúsar
væru að vígbúast af kappi. Fyrir
nokkru sagði Walid Jumblatt leið-
togi drúsa að þeir væru tilbúnir til
Fádæma fantar ógna
smábömum í Lundúnum
Ingi Þorsteinsson, ræðismaður ís-
lands í Kenya, ásamt David Oyite-
Ojok, forseta herráðs Uganda, sem
lést í þyrluslysi í fyrrinótt.
Bréfasprengja
til Heseltine
Bréfasprengja ætluð David Hesel-
tine varnarmálaráðherra Bretlands
sprakk í höndum öryggisvarðar sem
opnaði bréfið. Slasaðist hann talsvert,
en þó ekki lífshættulega.
Heseltine hefur fengið allmargar
sprengjur af þessu tagi að undan-
förnu og allar hafa þær verið eins
gerðar. Er það skoski frelsisherinn
sem sent hefur bréfin, en það er neð-
anjarðarflokkur nokkur sem hefur
helgað sig sjálfstæðisbaráttu Skot-
lands.
Lundúnir, 3. desember. AP.
NÝ TEGUND rána á götum úti í
Lundúnum hefur vakið ugg og skelf-
ingu i brjóstum borgarbúa. Eru á
ferðinni ófyrirleitnir fantar sem
draga afsíðis mæður með korna-
börn, hóta misþyrmingu á börnunum
afhendi mæðurnar ekki eigur sínar.
Nýjasta ránið af þessu tagi þótti
hið ógeðfelldasta af mörgum síð-
ustu vikurnar. Tveir ungir menn,
um hálfþrftugt, undu sér að 19 ára
gamalli stúlku sem var á gangi
með 15 mánaða gamlan son sinn í
barnavagni. Stóð annar mann-
anna álengdar meðan hinn tókst á
við móðurina. Veitti hún viðnám
og sparkaði i fót árásarmannsins.
En hann náði af henni handtösk-
unni sem í voru 40 pund í pening-
um. Kastaði hann töskunni til vin-
ar síns sem beið rólegur og reykti
sígarettu. Er hann hafði tekið við
töskunni, laut hann að barninu og
drap i sígarettunni á andliti
barnsins, en síðan hlupu báðir
burt sem fætur toguðu.
Þremur dögum áður réðust þrír
skúrkar að ungri móður og hrifs-
uðu af henni 20 mánaða gamalt
barn hennar. Einn þeirra hélt í
fætur barnsins og veitti því ljótan
skurð með hnífi. Hótaði hann
verri sárum afhenti móðirin ekki
aura sína sem hún gerði, 33 pund.
Minna höfðu tveir fantar aðrir
átaka 1. desember ef sýnt þætti að
Amin Gemayel forseti landsins
væri að tefja fyrir kröfum þeirra í
kjölfarið á þjóðarsáttarfundinum
sem haldinn var í Sviss á dögun-
um. Sagt er að hermenn drúsa séu
orðnir óþolinmóðir og vilji grípa
til vopna á ný.
ísraelskar herþotur gerðu árás-
ir á stöðvar Palestínumanna og
vinstri manna á svæðum í mið-
hluta Líbanon í gær. Sögðu hern-
aðaryfirvöld í ísrael að árásirnar
hefðu „heppnast fullkomlega".
Voru ísraelar að hefna fyrir hand-
sprengjuárás á ísraelskan her-
flokk sem talið er að Palestínu-
menn og vinstri menn hafi staðið
fyrir í borginni Nabatyeh, svo og
margar fleiri árásir af svipuðu
upp úr krafsinu í Brixton. Tóku
þeir smábarn af 12 ára gamalli
barnapíu, börðu það og mis-
þyrmdu uns stúlkan afhenti þeim
alla þá peninga sem hún bar á sér:
8 pens. Almenn hneykslan er á at-
burðum þessum og lögregluforingi
sem rannsakað hefur flest málin
sagði í blaðaviðtali: „Ég á bágt
með að skilja hvers konar villidýr
við erum að fást við í þessum mál-
um.“
tagi. 1 Nabatyeh féll einn ísra-
elskur hermaður og fjórir særð-
ust.
Amin Gemayel forseti Líbanon
hélt í gær frá Washington þar sem
hann átti viðræður við Ronald
Reagan Bandaríkjaforseta og
George Shultz utanríkisráðherra.
Þóttu viðræðurnar gagnlegar, en
óvíst er um stöðu mála í kjölfar
þeirra.
Nýstárleg
niðursuðu-
dós kynnt
Bríissel, 2. desember. AP.
SÉRSTÆÐ niðursuöudós er á
meðal 300 nýjunga, sem kynntar
eru á árlegri sýningu uppfinn-
ingamanna í Belgíu um þessar
mundir. Þótt margar nýjunganna
þyki athyglisverðar er niðursuðu-
dósin talin líklegust til þess að
njóta almcnnrar hylli, ekki síst
vegna ótvíræðs notagildis henn-
ar.
í raun er um tvær dósir að
ræða, aðra inni í hinni. í tóm-
inu á milli þeirra er sérstakt
efni, sem hitnar í 60 gráður á 7
mínútum eftir að lítið gat hef-
ur verið gert á ytri dósina.
Að sögn uppfinningamanns-
ins fór hann að vinna að þess-
ari hugmynd sinni eftir að
hann varð vitni að skógareldi,
sem kviknaði út frá litlum
varðeldi. Það tók uppfinninga-
manninn fimm ár að þróa
hugmyndina.