Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983 45 hagsvandi viðkomandi sveitarfé- lags sé svo alvarlegur að aukaálag verði ekki umflúið. Aðstæður hljóta að ráða ákvörðun. Ríkis- stjórnin mælist hinsvegar til þess við sveitarstjórnir, að þær gangi eins skammt í álögum og aðstæður frekast leyfa og að framkvæmda- áætlanir verði innan ramma efna- hagsstefnu stjórnarinnar. • 4) Ríkisstjórnin er nú að ganga frá breytingum á skattalögum, sem létta munu almenna skatt- byrði í landinu af lægri iaunum. Frumvarp um þetta efni mun koma fram næstu daga. Það vakti athygli að talsmenn Alþýðubandalagsins í þessari um- ræðu „höfðu tungur tvær og töl- uðu sitt með hvorri". Þórður Skúlason, sveitarstjóri á Hvammstanga (varamaður Ragn- ars Arnalds, sem situr þing Sam- einuðu þjóðanna), haslaði sér völl við hlið félagsmálaráðherra í þessu máli, þó hann notaði tæki- færið til að skamma ríkisstjórnina fyrir „miskunnarlausa kjara- skerðingu". Svavar Gestsson, flokksformaður, hafði hinsvegar allt á hornum sér um þvílíkt háttalag. Röksemdir Þórðar, eina starf- andi sveitarstjórans sem nú situr á Alþingi, vóru m.a. þessar, efnis- lega eftir hafðar: • 1) Rekstrargjöld sveitarfélaga hækkuðu um 68% 1983, miðað við fyrra ár, en tekjur aðeins um 58%. Hér við bætist óvissa um inn- heimtu vegna kjaraþrengingar. Afleiðingin er mjög erfið fjár- hagsstaða, greiðsluerfiðleikar og samdráttur í framkvæmdum, sem bitnuðu á þeim er sízt skyldi, svo sem á þjónustu barnaheimila og skyldri starfsemi. • 2) Minnkandi verðbólga kemur sveitarfélögum til góða en fram- vinda í þeim efnum er óviss. Nauð- synlegt er að sveitarfélögin fái svigrúm til að bæta fjárhagsstöðu sína, „sem hefur farið gífurlega versnandi á undanförum árum“. — „Hvers vegna er það nauðsyn- iegt að hafa þessa forsjá Alþingis yfir sveitarstjórnum, sem eru lögformleg stjórnvöld, kosin af þegnum í hverju sveitarfélagi og ættu að hafa bezta yfirsýn yfir hag íbúanna og fjárhagslega stöðu þeirra og sveitarsjóðanna"? Svavar Gestsson, flokksformað- ur, svaraði flokksbróður sínum um hæl, þótt hann beindi orðum til félagsmálaráðherra: „Ráðherra talar um greiðsluþrot sveitarfé- laganna. En hefur hann engar áhyggjur af greiðsluþroti heimil- anna í landinu"? Þann veg spurði Svavar (ráðherra sveitarstjórn- armála á þeim árum þegar staða sveitarfélaga „fór gífurlega versn- andi“) ekki þá hann og samráð- herrar úr Alþýðubandalagi stóðu að hækkun afturvirks tekjuskatts, hækkun vörugjalds, hækkun sölu- skatts, verðjöfnunargjalds á raf- orku o.s.frv., auk fjórtán verðbóta- skerðingum launa, 1978—1983. Fækkun og samræm- ing gildandi laga „Alþingi ályktar að skora á rík- isstjórnina að skipa fimm manna nefnd er undirbúi hreinsun úr- eltra ákvæða úr núgildandi lögum, geri tillögur um lagabálka sem engum tilgangi þjóna lengur og fella má úr gildi og um greinar gildandi laga sem eðlilegt er og nauðsynlegt að samræma. í nefnd- inni eigi sæti einn fulltrúi frá Dómarafélagi íslands, einn frá lagadeild Háskóla íslands og einn frá Lögmannafélagi Islands. Þá kjósi Alþingi tvo þingreynda menn til setu í nefndinni". Þannig hljóðar tillaga til þings- ályktunar sem fimm þingmenn úr öllum þingflokkum flytja. I grein- argerð segir m.a.: „Nú er verið að undirbúa útgáfu nýs lagasafns sem verður mikið að vöxtum. Mörg þeirra þjóna vart nokkrum minnsta tilgangi. Form- lega hafa þau ekki verið afnumin og útgáfa þeirra sóun á pappír og prentsvertu ... Alþingi hefur ver- ið mjög atkvæðamikið við laga- setningu, og það svo að oft hefur keyrt úr hófi. Einföldustu hlutir eru bundnir í lög. Þá hefur Alþingi ekki hagnýtt sér svonefnda „sól- arlagsaðferð", sem bindur gildis- tíma laga við ákveðinn árafjölda. Séu þau ekki verð endurnýjunar að þeim tíma liðnum falla þau úr gildi og lagahreinsunin verður sjálfvirk að nokkru leyti". Lagt er til að nefnd sú, sem til- lagan fjallar um, „semji ítarlegt lagafrumvarp er miði að því að nema úr gildi öll þau lagaákvæði sem-eru úrelt, valda vafa og óvissu og stangast á“. Tillögunni fylgir sérstök grein- argerð eftir dr. Pál Sigurðsson, dósent, um nauðsyn lagahreinsun- ar — eða grisjunar laga. Hann segir auðvelt að benda á mörg dæmi um ákvæði í gildandi lögum, „sem engum heilvita manni kemur í hug að framfylgja né virða, og eru sum þeirra fáránleg frá sjón- arhóli nútímamanna". Lög sem „engum heilvita manni kemur í hug að framfylgja né virða“, vekja ekki virðingu fyrir lögum almennt. Það er ekki minnsta atriði þessa stóra máls. Fyrsti flutningsmaður þessarar tillögu er varaþingmaðurinn Árni Gunnarsson. Hann sýnist hafa átt erindi í verið. Við viljum halda í þetta með því að gefa nýja húsinu nafn. — Er mikill áhugi á samkeppn- inni? — Við höfum þegar fengið á sjötta þúsund tillögur og vinnum nú að því að gera lista yfir þær handa dómnefndinni. — Eru margar uppástungur um sama nafnið? — Ég má nú ekki segja of mikið núna. Þó má geta þess, a& mikill fjöldi þátttakenda vill tengja nafn hússins við vonina, og það segir mikið um þann hug sem fólk ber til okkar. Það er líka áberandi hvað margir hafa skemmt sér vel yfir þessu og koma með allskonar gáskafullar uppástungur. Ég er mjög ánægð með slíkar tillögur, þær gera dómnefndarstarfið svo miklu skemmtilegra. — Hvað gerist, ef dómnefndin velur nafn, sem margir hafa stungið uppá? — Þá drögum við um verðlaun- in. — Hvenær lýkur samkeppn- inni? — Hún stendur til 6. desember. — Hvenær má vænta úrslit- anna? — Við ætlum að reyna að hafa þau tilbúin um miðjan desember þegar húsið verður vígt og ef ekki verður ágreiningur í nefndinni ætti það að takast, sagði Ragn- heiður Guðnadóttir að lokum. FÍI fagnar frumvarpi um virðis- aukaskatt Stjórn Félags íslenskra iðnrek- enda fagnar því, að fjármálaráð- herra hefur nú dreift frumvarpi til laga um virðisaukaskatt og þar með hafið umræðu um þetta mál, segir í ályktun frá félaginu, sem Mbl. hefur borist Það er löngu viðurkennt að nú- verandi söluskattur hefur mjög veigamikla galla. Hann hefur neikvæð áhrif á skynsamlega og hagkvæma uppbyggingu fyrir- tækja og hann veikir stöðu inn- lendrar framleiðslu í samkeppni við erlendar vörur, hvort sem er á innlendum eða erlendum markaði. Eina raunhæfa leiðin til að ráða bót á þessum ágöllum er að taka upp virðisaukaskatt í stað núver- andi söluskatts. Þetta er mikil- vægur þáttur í að treysta undir- stöðu atvinnustarfseminnar í landinu og er ein af forsendum iðnþróunar á næstu árum. Það er nauðsynlegt að gefa þessum atrið- um rækilega gaum í allri umræðu um virðisaukaskatt. Nú setjum við nýtt met í sjónvarpstilboðum. Við bjóðum 26" CS-1006 Philips litsjónvarp með innan við 10% útborgun og eftirstöðvar má greiða á allt að 8 mánuðum. Það fæst líka á frábæru staðgreiðsluverði, aðeins kr. 35.900.-. Við komum tækinu heim í stofu, stillum það og þið fáið vetrardagskrá sjónvarpsins eins góða og möguiegt er. Þetta köllum við sveigjanleika í samningum. Heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.