Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983 Vír í Bláfjalla- lyftu kominn NÝR VÍR í stólalvftuna í Bláfjöllum, í stad þess sem slitnaði, er að koma til landsins fyrir eða um helgina. Verður hægt að fá hann í land eftir helgi. Strax og hann er kominn í hendur starfsmönnum Bláfjalla- nefndar, mun koma til landsins maður frá framleiðanda lyftunnar, Dobblemayer, og tengja vírinn á staðnum. En síðan þarf annar sér- fræðingur frá þeim að koma og taka út lyftuna. Hefur framleiöandi brugðist mjög fljótt við um útvegun á nýjum vír, því tveggja mánaða af- greiðslufrestur er á slíkum vírum hið minnsta. Kemst nýja lyftan því væntanlega í gagnið hið fyrsta. ítarleg rannsókn fer nú fram á gamla vírnum við háskólann í Zurich í Sviss og tekur nokkurn tíma, en þar er sérfræðingadeild til prófunar í slíkum málum. Bæjarfógetaembættið á Ólafsfirði: Vikið úr starfi Þuríður Pálsdóttir heiðruð fyrir 30 ára óperustarf UM ÞESSAR MUNDIR eru 30 ár frá því að Þuríður Pálsdóttir, óperusöngkona, hóf að syngja í óperum. f tilefni þessa ávarpaði Garðar Cortes, stjórnarformaöur íslenzku óperunnar, Þuríði í lok sýningar á óperunni La Traviata í gærkvöldi, og afhenti henni silfurkönnu frá íslenzku óperunni, sem þakklætisvott fyrir störf hennar í gegnum tíðina. Garðar Cortes sagði Þuríði Pálsdóttur vera eina af brautryðjendum í óperustarfsemi á íslandi og sagði hana einn þeirra söngvara, sem alltaf vildi vera heima á íslandi, þrátt fyrir tilboð erlendis frá. Morgunblaðið/Friðþjófur. Albert Guðmundsson um lækkun vörugjalds í 15%: Ekkert svigrúm - rfkis- sjóður í spennitreyju Myndi þýða 400 millj. kr. tekjumissi ríkissjóðs „ÞAÐ ER eindreginn vilji held ég allra stjórnarþingmanna að lækka þessi gjöld, en það er líka staðreynd að ef þessi lækkun á sér stað þá þýðir það 400 millj. kr. tekjumissi fyrir ríkissjóð. Þrátt fyrir góðan vilja er ríkissjóður ekki þannig á vegi staddur að hann megi á þessum tíma við missinum,“ sagði Albert Guð- mundsson, fjármálaráðherra, er Mbl. spurði hann álits á þeirri kröfu Eyjólfs Konráðs Jónssonar, alþing- ismanns, um að hið svonefnda „sér- staka, tímbundna vörugjald" verði lækkað verulega. Eyjólfur Konráð mun vilja Piltur grunaður um að kveikja í bifreið 'IGIJR piltur úr Reykjavík r í gær í yfirheyrslum hjá innsóknarlögreglu ríkisins gna gruns um að hann fði kveikt í bifreið í ykjavík í fyrrinótt. jkkviliðið í Reykjavík var att að bifreiðinni síðla faranætur laugardagsins, var hún þá allmikið emmd, en ekki ónýt, að ?n varðstjóra slökkviliðs- Lögreglunni tókst að rekja slóð frá bílnum, og var pilturinn handtekinn í kjölfar þess, en málið var ekki fullrannsakað í gær, er blaðið fór í prentun. ganga til þess samkomulags, eins og skýrt er frá í Mbl. í gær, að vörugjaldið verði lækkað úr þeim 24% og 30% sem það er í í 15%. Aðspurður sagðist Albert ekki sjá neitt svigrúm til lækkana í augna- blikinu. Hann sagði síðan: „Ég er núna að láta kanna möguleikana á hvað hægt sé að gera, en ég sé ekki í augnablikinu að neitt svigrúm sé fyrir hendi. Því miður get ég því ekki leyft mér að mæla með þess- ari breytingu. Þetta er þó hlutur sem gera verður hið fyrsta, eða um leið og aðstæður leyfa. Það er minn eindregni vilji, eins og Eyj- ólfs Kpnráðs, og ég hef verið að lækka tolla og skatta síðan ég tók við embætti." Fjármálaráðherra sagði að lok- um: „Ef ég sé einhverja smugu þá mun ég nota hana, en ríkissjóður er í spennitreyju eins og stendur og ekkert svigrúm til þessa." vegna fjárdráttar BÓKARA bæjarfógetaembættisins á Ólafsfirði og eiginkonu hans, sem einnig starfar við embættið, hefur verið vikið úr starfi vegna meints fjármálamisferlis, að því er Barði Þórhallsson bæjarfógeti staðfesti í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins í gær. Ríkisendurskoðun hefur haft málið til rannsóknar og mun hafa lokið verki sínu, en Barði kvaðst í gær enn ekki hafa séð niðurstöðurnar og þvf ekki getað tjáð sig um þær. Málsatvik sagði Barði vera þau, að bókarinn hefði tekið sér lán úr sjóði embættisins að upphæð 10 þúsund krónur, og einnig hefði komið í Ijós að í sjóði vantaði 37 þúsund krónur. Allt þetta fé, 47 þúsund kr., hefði nú verið endur- greitt að fullu, en ekki hefði verið um annað að ræða en að víkja manninum úr starfi, sem og eig- inkonu hans, sem hefði verið vit- undarmaður að málinu. Málinu tengist svo einnig áminning, sem Bílvelta við Lögberg EKKI urðu slys á mönnum er fólksbifreið valt og hafnaði utan vegar á hvolfi, skammt frá Lög- bergi á Suðurlandsvegi í gær, skömmu fyrir hádegi. Sam- kvæmt upplýsingum er Morgun- blaðið fékk hjá lögregluvarðstof- unni í Árbæjarhverfi lenti bif- reiðin, sem var fólksbifreið, í hálku, snerist á veginum og hafnaði á hvolfi utan vegar. Bif- reiðin er talsvert skemmd, en ökumaður og tveir farþegar sluppu sem fyrr segir án meiðsla. ms. Suðurnes: Næg atvinna iðnaðarmanna Vogum, 2. desember. í SAMTALI við Karl Georg Magnússon, formann Iðnsveina- félags Suðurnesja, og Halldór Pálsson, framkvæmdastjóra fé- lagsins, kom fram að næg at- vinna væri hjá iðnaðarmönnum á Suðurnesjum. Til dæmis væru mikil verkefni í málmiðnaði og í byggingavinnu væri nóg að gera meðan veður hamlaði ekki vinnu. Aðeins hjá pípulagninga- mönnum er um samdrátt að ræða, en hann er tilkominn vegna þess að hitaveitufram- kvæmdum er að ljúka á Kefla- víkurflugvelli. — EG. bókara hafði verið veitt af fógeta fyrir nokkrum vikum, vegna bréfs er hann ritaði í nafni embættisins og á bréfsefni þess, en án sam- þykkis fógeta, að því er Barði Þórhallsson bæjarfógeti sagði í gær. Jólalesbók barnanna EINS og venjulega mun jólales- bók barnanna fylgja jólablaði Morgunblaðsins. Börn og unglingar eru hvatt- ir til þess að senda lesbókinni efni að vanda og þarf það að hafa borist fyrir 12. des. nk. Efni má vera af ýmsu tagi, t.d. sögur, leikir, teikningar, ljóð, gátur, frásögur, viðtöl o.fl. Nauðsynlegt er að merkja efnið vel með nafni, aldri og heimilisfangi og bregðast nú skjótt við þar sem tíminn er naumur. Efnið skal merkt: Jólalesbók barnanna Morgunblaðið Aðalstræti 6 101 Reykjavík Frá slysstað á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Framrúðan er mölbrotin og bifreiðin mikið skemmd eins og sést á myndinni. Morgunblaíið/Júlíus. Slys er ölvaður ók á ljósastaur FLYTJA varð farþega fólksbif- reiðar á slysadeild vegna skurðar í andliti, eftir að bifreiðinni hafði verið ekið á ljósastaur í Reykjavík í fyrrinótt. Slysið varð um klukk- an hálffjögur aðfaranótt laugar- dags, á Reykjanesbraut, er öku- maður virðist hafa misst stjórn á bifreið sinni og ekið á ljósastaur við götuna. Farþegi í framsæti kastaðist á framrúðu og skarst sem fyrr segir talsvert í andliti. önnur meiðsl urðu ekki á fólki að sögn lögreglunnar, en grunur leik- ur á að ökumaðurinn hafi verið undir áhrifum áfengls er slysið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.