Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983
7
Val
ilUI
Mig langaði til að finna ein-
hvern notalegan texta til að
orna okkur við á jólaföstunni.
En ritningin gaf ekkert færi á
því. Guðspjöll og pistlar þessa
drottinsdags fjalla um allt
annað en notalegheit. Þeir
gefa okkur ekki tækifæri til að
komast í jólastemmningu,
þvert á móti, þeir tala um ógn
og skelfingu hinna komandi
tíma. Lúkas segir t.d. í tuttug-
asta og fyrsta kafla: Tákn
munu verða á sólu, tungli og
stjörnum og á jörðu angist
þjóða, ráðalausra við dunur
hafs og brimgný. Menn munu
gefa upp öndina af ótta og
kvíða fyrir því, er koma mun
yfir heimsbyggðina, því kraft-
ar himnanna munu bifast. Og í
Malakí, fjórða kafla segir eft-
irfarandi: Því sjá, dagurinn
kemur, brennandi sem ofn, og
allir hrokafullir og allir þeir er
guðleysi fremja, munu þá vera
sem hálmleggir, og dagurinn
sem kemur mun kveikja í þeim
— segir Drottinn allsherjar —
svo að hvorki verði eftir af
þeim rót né kvistur.
Þegar við skoðum þessi orð í
ljósi þeirra skelfinga, sem við
heiminum blasa, verða þau
óhugnanlega augljós. Því að
allir vita, að ef kjarnorkustríð
brýst út, þá táknar þau gjör-
eyðingu alls lífs á jörðu.
Stjórnmálamenn leika sér
stundum með hugmyndir um
takmarkað kjarnorkustríð, en
allir þeir, er sáu fréttaþáttinn
um vígbúnaðarkapphlaup stór-
veldanna í sjónvarpinu á
þriðjudaginn var, hljóta að
hafa komist að annarri niður-
stöðu. Hann færði okkur heim
sanninn um, að brjótist út
stríð, í upphafi hefðbundið,
eins og það er kallað, þá líður
fljótt að því að allar samgöng-
ur lamast, símasamband rofn-
ar og samherjar verða sam-
bandslausir við umheiminn
með þeim hugsanlegu afleið-
ingum, að kjarnasprengjur
falla. Og þrátt fyrir geysilega
fullkomna og örugga þekkingu
á sviði vísindalegs hernaðar
getur alltaf orðið slys, einhver
þrýstir hönd á hnapp eða raf-
eindaútbúnaður bilar og þá er
allt ef til vill um seinan.
Risarnir tveir í austri og
vestri standa andspænis og
varpa á milli sín fjöreggi þjóð-
anna. Og þeir láta sem enginn
sé þeim meiri, enginn æðri né
máttugri. Og það er nú einu
sinni háttur mannsins að
hreykja sér í eigin mætti, hann
tekur sér allt vald í sínar
hendur. Og enginn getur neit-
að því að hann hefur aukist
mjög að allri þekkingu, þekk-
ingu, sem virðist vera orðin
honum um megn. Og nú eru
okkur boðuð þau sannindi, að
ef til vill verður stríð framtíð-
arinnar háð í himingeimnum,
endalokin munu koma að ofan.
Lúkas guðspjallamaður orðar
það þannig, að kraftar himn-
anna munu bifast. En hvort
þetta mun gerast á okkar tím-
um veit enginn nema Guð al-
máttugur, því hann einn, þeg-
ar allt kemur til alls, ræður
ferðinni. Hann einn mun segja
hvenær maðurinn hefur fyllt
mæli hroka síns.
Hið ótrygga ástand heims-
mála veldur okkur vissulega
mikilli angist og kvíða. En við
erum ekki skilin eftir án von-
ar. Því við lok tímanna, segir
Lúkas guðspjallamaður,
„munu menn sjá mannssoninn
koma í skýi í mætti og mikilli
dýrð. En þegar þetta tekur að
koma fram, þá réttið úr yður
og lyftið upp höfðum yðar, því
lausn yðar er í nánd.“
Við fögnum senn fæðingar-
hátíð frelsarans. En við vitum
líka, að hann er hinn kross-
festi og upprisni og við vænt-
um endurkomu hans í mætti
og mikilli dýrð. „En þann dag
eða stund veit enginn, hvorki
englar á himni né sonurinn,
enginn nema faðirinn. Verið
varir um yður, vakið! Þér vitið
ekki, nær tíminn er kominn
(Mk. 13:32-33).
Kristnir menn búa sig undir
helgi jólanna með það fyrir
augum að hver stund geti orðið
sú síðasta í faðmi ástvina. En
þeir gera það í þeirri fullvissu,
að ekkert geti skilið þá frá
kærleika Guðs hvort sem er í
þessu lífi eða hinu næsta. Með
þessu hugarfari skulum við
ganga gleði jólanna í mót.
Guð gefi öllum frið á jóla-
föstu.
J
(Olb (fl|nvm
viturleg fjárfesting
Old Charm setur stolt sitt
leiða húsgögn frá liönum tímum. Feg-
urð og fágun sem stenst tímans tönn.
DUNA
Síðumula 23 - Sími 84200
urinn er djúpur og allt er handvaxbor-
ið.
Old Charm Tudor eikarhúsgögn fást
nú í miklu úrvali.
Prýöið heimilið með húsgögnum frá
liönum tímum fyrir lágt verö.
Hentar vel með húsgögnum í öðrum
stíl.
Skoðaöu Old Charm.
Fáanlegt í Tudor-brúnu, Ijósu og
antik.
SPARIFJÁR-
EIGANDI!
Hvaða ávöxtunarleið ættir þú að velja á næst-
unni?
Reynsla síðustu 12 og 5 mánaða ætti að gefa þér
nokkra vísbendingu um það. ^
Síðustu 12 inánuðir Síðustu 5 mánuðir
Á vöxt ii iui rlciö: Peninga- eign l.nóv.82 Peninga- eign l.nóv.83 Ávöxtun í% síðustu 12 mán. Peninga- eign l.júní.83 Peninga- eign l.nóv.83 Ávöxtun í% síðustu 5 mán.
Verðtryjtgð veðskuldabréf 100.00(1 199.703 100% 100.000 129.322 29%
Sparisliírteini Ríkissjóðs lOO.INX) 191.752 92% 100.000 127.079 27%
Verðtr. sparisj.reikn. 6 mán 100.000 186.759 87% 100.000 125.671 26%
Verðtr. spansj.reikn. 3 mán 100.000 184.910 85% 100.000 125.150 25%
Alm. sparisjóðslxjk 100.000 141.139 41% 100.000 116.639 17%
Er ástæða til að trúa því besta á það versta?
GENGI VERÐBRÉFA
4. desember 1983:
VERÐTRYGGÐ
SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS:
1970 2. flokkur Sölugengi pr. kr. 100.- 16.551,64
1971 1. flokkur 14.605,83
1972 1. flokkur 12.646,76
1972 2. flokkur 10.710,56
1973 1. ftokkur A 7.597,55
1973 2. flokkur 6.936,52
1974 1. flokkur 4.787,74
1975 1. flokkur 3.943,32
1975 2. flokkur 2.971,35
1976 1. flokkur 2.815,65
1976 2. flokkur 2.238,46
1977 1. flokkur 2.066,74
1977 2. flokkur 1.733,84
1978 1. flokkur 1.408,04
1978 2. flokkur 1.107,68
1979 1. flokkur 933,78
1979 2. flokkur 721,66
1980 1. flokkur 598,11
1980 2. flokkur 470,21
1981 1. flokkur 403,92
1981 2. flokkur 299,90
1982 1. flokkur 272,55
1982 2. flokkur 203,66
1983 1. flokkur 158,01
Meðalávöxtun umtram verötryggingu
3,7—5,5%.
VEÐSKULDABRÉF
ÓVERÐTRYGGO
Sölugengi m.v. natnvexti
og 1 afborgun á ári.
(HLV)
12% 14% 16% 18% 20% 33%
1 ár 75 77 78 80 81 87
2 ár 61 62 64 66 68 77
3 ár 51 53 55 57 59 69
4 ár 44 46 48 50 52 64
5 ár 39 41 43 45 47 60
VERÐTRYGGÐ
VEÐSKULDABRÉF
Sölugengi Nafn- Ávöxtun
m.v. vextir umfram
2 afb./éri (HLV) verötr.
1 ár 95,34 2% 8,75%
2 ár 92,30 2% 8,88%
3 ár 90,12 2V4% 9,00%
4 ár 87,43 2%% 9,12%
5 ár 85,94 3% 9,25%
6 ár 83,56 3% 9,37%
7 ár 81,22 3% 9,50 Vi
8 ár 78,96 3% 9,62%
9 ár 76,75 3% 9,75%
10 ár 74,62 3% 9,87%
11 ár 72,54 3% 10,00%
12 ár 70.55 3% 10,12%
13 ár 68,60 3% 10,25%
14 ár 66,75 3% 10,37%
15 ár 64,97 3% 10,49%
16 ár 63,22 3% 10,62%
17 ár 61,57 3% 10,74%
18 ár 59,94 3% 10,87%
19 ár 58,42 3% 10,99%
20 ár 56,92 3% 11,12%
VERDTRYGGÐ
HAPPDRÆTTISLÁN
RÍKISSJÓÐS
D — 1974
E — 1974
F — 1974
G — 1975
H — 1976
I — 1976
J — 1977
1. fl. — 1981
Sölug«ngi
pr. kr. 100.-
4.346,76
3.077,05
3.077,05
2.039,70
1 847,77
1.478,54
1.308,04
281,65
Ofanskráö gengi er m.a. 5% ávöx-
tun p.á. umfram verötryggingu auk
vinningsvonar. Happdrættisbréfin
eru gefin út á handhafa.
Verðbréfamarkaður
Fjárfestingarfélagsins
Lækjargötu12 101 Reykjavik
lónaóarbankahúsinu Sími 28566