Morgunblaðið - 04.12.1983, Side 5

Morgunblaðið - 04.12.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983 5 Faye Dunaway og James Farentino ( hlutverkum sínum sem Evita og Juan Peron. Sjónvarp kl. 21.55: Evita Peron í kvöld verður sýndur fyrri hluti sjónvarpsmyndarinar „Evita Per- on“. Evita er leikin af Fay Dunaway. Maður hennar, Juan Peron, er leikinn af James Farentino. Mynd- in er í heild um fjögurra tíma löng og verður síðari hluti hennar sýndur 11. desember. Leikstjóri er Marvin Chomsky, en hann leik- stýrði m.a. myndinni „Holocaust", sem sýnd var í sjónvarpinu fyrir nokkru. Evita fæddist 17. maí árið 1919. Hún var yngst fimm systkina og ólst upp í töluverðri fátækt. Skírn- arnafn hennar var Maria Eva Du- arte. Hún átti sér þann draum að verða leikkona, sem hún og varð. Hún lék aðalhlutverk í nokkrum kvikmyndum snemma á fimmta áratugnum, en hætti starfi sínu sem leikkona er hún giftist Peron. Eva Peron var áhrifamikil inn- an argentínsku stjórnarinnar ( forsetatíð eiginmanns síns. Hún var þekkt og vinsæl meðal fá- tækra Argentínubúa, sem hún oft á tíðum færði gjafir og vann ým- iskonar góðgerðarstörf fyrir. Evita barðist harðri baráttu við krabbamein sem hún þjáðist af í fjögur ár og dró hana að lokum til dauða er hún var aðeins 33 ára að aldri. Juan Peron lést árið 1974 og hvílir nú við hlið konu sinnar. Gcimvera kemur ( þáttinn og veldur fjaðrafoki. Sjónvarp kl. 18: Stundin okkar „í Stundinni okkar í dag sýnir Sigurður R. Traustason okkur hvernig á að búa til aðventu- krans, en Hrólfur Kjartansson sýnir brögð og brellur, sem beita má um áramót eða á þrettándan- um,“ sagði Ása H. Ragnarsdótt- ir, sem ásamt Þorsteini Marels- syni er umsjónarmaður „Stund- arinnar". „Kínversku listamennirnir leika sér fimlega með stóla, og teiknimyndirnar „Smjattpatt- ar“ og „Mytto og haustið" verða sýndar. Gústi api er kominn i jólaskap og byrjaður að búa til jólaföndur. Loks ger- ir dularfull vera utan úr geimnum usla i þættinum og truflar bæði tæki og starfslið." ÆFINQ4STOÐIN ENGIHJALLA 8 * ^46900 Jólaíill Samvinnuferöir-Landsyn efnir til samkeppni. um nafn á „sumar“húsin í Hollandi ■y tt í des°mbermánuði bjóðum við mánaðarkortið fyrir aðeins kr. 750 í kjölfar mikilla vinsælda og vel heppnaðra ferða í „sumar“húsin í Hollandi sl. sumar.hefur Samvinnuferðir-Landsýn nú gert nýjan og einstaklega hagstæðan samning um Hollandsferðir sumarið 1984. Áfram verður boðið upp á vikulegar ferðir til Eemhof og nú bætist hinn stórglæsilegi gististaður Kempervennen við, en þangað verður einnig flogið í hverri viku. I krafti mun stærri samnings en fyrr, er Samvinnuferðum-Landsýn unnt að bjóða ferðimar til Hollands 1984 á óbreyttu verði frá sl. sumri, og er salan nú þegar komin I fullan gang. Frábær afþreyinaar- og íþróttaaðstaoa Tennis og minigolf. Bowling. Reiðhjólaleiga, hjólreiðabrautir. Sjóskiði. sjóbretti o.fl. þ.h. Diskótek. Göngusvæð'. Iþróttavellir - opin útivistarsvæði. Leiktækjasalur. * Veðursæld og fallegt umhverfi ★ Einstök veðurbliða (yfir 20 stiga hiti og sól upp á nær hvem dag allt sl. sumar). ♦ Fjölskrúðugt dýralif. ★ Kyrrlátt umhverfi. * Fjölbreyttur gróöur. * Víðáttumikil sólbaðsaðstaða. * Gisting í algjörum sérflokki ♦ Yfir 70 m? smáhýsi og 30 m2 ibúðir með glæsilegum innréttingum. ★ Arinn í vistlegri stofu, vel búinni öllum húsgögnum. *- Litasjónvarp með fjölda sjón- varpsstöðva auk eigin videó- kerfa Eemhof- og Kemper- vennensvæðanna. ★ Rúmgott eldhús með öllum nauðsynlegum eldunaráhöld- um og borðbúnaði. * 3 svefnherbergi I öllum húsum. Samkeppni Og nú efnum við til samkeppni um verðugt nafn á „sumar"húsin í Hollandi, - eitt orð, sem ekki einungis nær yfir glæsileg hús og góða gistingu, heldur einnig alla þá fjölbreyttu þjónustu og aðstöðu, sem boðið er uþp á í miðbæ „sumar'húsajáorpanna. Sú staðreynd, að þessi fjölskylduþaradís er í fullri notkun allt árið um kring gerir „sumarhúsanafnið síðan enn frekar ófullnægjandi. Þess vegna fá nú alllr tækifæri til þess að finna „rétta" orðið og freista þess að vinna til veglegra fjölskylduverðlauna næsta sumar. * Fullkomin þjónusta * Gestamóttaka og uþplýsinga- miðstöð opin frá morgni til kvölds. ■* Fjöldi veitingastaða og verslana. * Pósthús, banki og önnur þjónusta * Barnagæsla og leikskóli. * Aðstoð og fyrirgreiðsla islenskra fararstjóra, hvenær sem á þarf að halda. * Fjölbreyttar skoðunar- og skemmtiferðir með islenskri fararstjórn. * „Hitabeltis“- sundlaug með öllu tilheyrandi ★ Inni- og útisundlaug. * Rennibrautir i innilauginni. ★ öldugangur og fjör á hálftíma fresti. * Sauna og tyrkneskt bað. ★ Háfjallasól, Ijós og „sólarfallbyssa". * Heitir þottar, nuddþottar ★ Barnasundlaug. ★ Sundlaugarbar. * Hvíldaraðstaða. Skilafrestur 1 Tillögum þarf að skila fyrir 10. janúar 1984 og má hver þátttakandi senda allt að 5 tillögur. Þeim skal skilað i umslagi merktu „Orð“ til Samvinnuferða- Landsýnar, Austurstræti 12, 101 Reykjavík ásamt nafni, heimilisfangi og símanúmeri sendanda. 2. Dómnefnd skipuð þeim Eysteini Helgasyni, frkvstj. Samvinnuferða-Landsýnar, Gunnari Steini Pálssyni, frkvstj. Auglýsingaþjónustunnar, og Guðna Kolbeinssyni, islenskufræðingi.mun fjalla um tillögurnar sem berast. 3. Berist fleiri en ein tillaga um það nafn, sem verðlaunin hlýtur, verður dregið um verðlaunahafann. Dómnefnd áskilur sér einnig rétt til að hafna öllum tillögunum. 4. Urslit samkepþninnar verða kynnt i lok janúar. * Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRIETI 12 - SÍMAR 27077 t 28899 Notid þetta einstæða tækifæri og slappiö af í einni fullkomnustu æfingastöð landsins. ivnpuo yfir þetta att saman 7

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.