Morgunblaðið - 04.12.1983, Síða 18
lg MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983
Opiö í dag 2—5
Bugðulækur —
Sérhæö
Vorum aö fá í einkasölu fallega
efri sérhæð. 135 fm, 5—6 herb.
á góöum staö viö Bugðulæk.
Bilskýli.
Ártúnsholt —
hæð og ris
Á góöum staö 150 fm, 30 fm
bílskúr. Selst fokhelt. Teikn. á
skrifstofunni. Ákv. sala.
Skipholt
5—6 herb. góö íbúð á 1. hæö
117 fm meö aukaherb. í kjall-
ara. Til sölu eða í skiptum fyrir
4ra herb. íbúö í sama hverfi.
Blikahólar —
4ra herb.
6. hæð i lyftuhúsi meö bílskúr.
Falleg íbúö á góðum staö. Mik-
iö útsýni. Ákv. sala.
Holtsgata —
4ra herb.
Falleg íbúð á 3. hæð öll ný-
standsett.
Rofabær —
3ja herb.
Björt og falleg íbúö á góöum
staö viö Rofabæ. Ákveðin sala.
Laus fljótlega.
Hlíöarvegur —
2ja—3ja herb.
kjallaraíbúö meö sérinng. Stórir
gluggar. Lítiö niöurg. Ákv. sala.
Hesthúsbásar
Kjóavellir
Til sölu eru 4 hesthúsbásar i
glænýju hesthúsi við Kjóavelli
meö hlutdeild i hlöðu, kaffi-
stofu, hnakkageymslu o.fl.
Heimasími 52586 — 18163
Sigurður Sigfússon,
simi 30008
Björn Baldursson lögfr.
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Hraunbær —
2ja herb.
Stór og falleg íbúö á 2. hæð
á einum besta staö í
Hraunbæ. Ákveöin sala.
Dúfnahólar
3ja herb. góö íbúö á 3. hæö
(efstu) meö bílskúrsplötu.
Stórkostlegt útsýni. Skipti
möguleg á 1. hæð á svipuð-
um stað, eöa í Bökkunum.
Ákv. sala.
Vantar 2ja—3ja herb.
400 þús. við samning
Höfum verið beönir aö út-
vega stóra 2ja eða 3ja herb.
íbúð á stór-Reykjavíkur-
svæöinu. Góöar greiöslur í
boöi.Öruggur kaupandi.
Breiðvangur Hafn.
— neðri sérhæö
Glæsileg hæö i tvíbýli um
130 fm í nýlegu húsi meö
stórum bílskúr. Mjög vönd-
uö og falleg eign. Ákveðin
sala.
Brekkugerði —
einbýli
7 herb. sérlega vandaö hús
meö sérhannaðri lóð meö
hitapotti. Þeir sem áhuga
hafa, hringi á skrifstofuna.
Sjón er sögu ríkari. Við sýn-
um eignina.
íslenzk kona hlaut heiðursverðlaun Listaháskólans í Miinchen
íslensk myndlistarkona, Guðrún
Tryggvadóttir, hefur verið valin
efnilegust nemenda, sem útskrif-
ast frá Myndlistarakademíunni í
Miinchen í ár. Þykir þetta mikill
heiður og er Guðrún fyrst útlend-
inga til að hljóta hann.
A hverju ári velur akademian
í Múnchen tvo bestu nemend-
urna úr hópi þeirra sem þar
stunda nám og hljóta þeir að
launum rétt til að halda sýningu
á verkum sínum í hátíðarsal
skólans. Hefur Guðrún þekkst
það boð og mun sýning hennar
standa þar frá 12. til 16. desem-
ber nk. í tilkynningu frá forseta
Listaháskólans í Múnchen segir
að ástæða fyrir því að Guðrún
varð fyrir valinu í ár sé að hún
hafi náð ríkulegum árangri í
listsköpun sinni og að verk henn-
ar séu unnin af miklum eldmóði
og einlægni.
Guðrún Tryggvadóttir er fædd
í Reykjavík árið 1958. Hún nam
við Myndlistar- og handíðaskóla
íslands 1974—1978 og síðan eitt
ár í París, áður en hún hélt til
Múnchen og hóf nám í málara-
deild Listaakademíunnar þar.
Guðrún hefur haldið einkasýn-
ingar í Reykjavík, á Akureyri og
í New York og tekið þátt í mörg-
um samsýningum, hér heima og
erlendis. Hún tók þátt í sýning-
unni „Gullströndin andar“ í
Reykjavík í vetur sem leið og
hélt síðast einkasýningu í Rauða
húsinu á Akureyri í mars sl.
Guðrún Tryggvadóttir við verk sín.