Morgunblaðið - 04.12.1983, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983
t
Móðir okkar,
GUÐRÚN EYJÓLFSDÓTTIR,
Suöurgötu 55, Hafnarfirði,
lóst á Borgarsjúkrahúsinu að morgni 2. des.
Þorbjörg Ólafsdóttir,
Gunnar Ólafsson.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
ÁRNI JÓNSSON,
kaupmaöur,
Lálandi 19,
lést í Landspítalanum 1. desember.
Sigurlaug Jónsdóttir og börn.
t
MAGNÚS GUÐMUNDSSON,
Reykjahlíö 12, Raykjavík,
andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 2. desember.
Fyrir hönd vandamanna,
Elísabeth Vilhjálmsson
og börn hins látna.
t
Sonur minn og bróöir okkar,
EINAR BJARNI JÚLÍUSSON,
Lækjargötu 1,
Hafnarfiröi,
sem andaðist 23. nóvember, veröur jarösunginn frá Hafnarfjarö-
arkirkju þriöjudaginn 6. desember kl. 13.30.
Blóm eru vinsamlega afþökkuö en þeim sem vilja minnast hans er
bent á líknarstofnanir.
Guörún Einarsdóttir,
Sjöfn Júlíusdóttir,
Dagrún E. Júlíusdóttir.
t
Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
SVAVAR GÍSLASON,
bífreiöastjóri,
Skipasundi 62, Reykjavík,
veröur jarösunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 5. des-
ember kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afbeöin en þeim sem vildu minnast hins látna
er bent á Rauöa kross islands eöa aörar líknarstofnanir.
Gísli Svavarsson, Guölaug Bjarnadóttir,
Ólöf Svavarsdóttir, Viöar Bjarnason,
Millý Svavarsdóttir, Ríkharð Óskarsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Konan mín og móöir okkar,
GUÐRUN HINRIKSDÓTTIR,
Sunnubraut 35, Kópavogi,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 5. desember kl.
15.00
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagiö.
Jónas Runólfsson,
Hinrik Jónasson,
Kristín Jónasdóttir,
Hulda Jónasdóttir.
t
Maöurinn minn, stjúpfaöir, tengdafaöir, bróöir og mágur okkar,
GUOJÓN GUDMUNDSSON,
Míklubraut 16,
verður jarösunginn frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 6. desember kl.
15.00.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuö en þeim sem vildu minnast hins
látna er bent á Krabbameinsfélag islands.
Pauline
Sigrún L. Kvaran,
Ævar R. Kvaran,
Örlygur Kvaran,
Silja Kvaran,
Guörún Stewart,
Inga Guömundsdóttir,
Bryngeír Guómundsson,
Siguröur Þ. Guömundsson,
Ólafur Kr. Ólafsson,
Karlsdóttir,
Rainhardt Á. Reinhardtsson,
Þóra Kvaran,
Hanna Helgadóttir,
Digby Collins,
Jamie Stewart,
Halldór Pétursson,
Guölaug Löve,
Minna Christensen.
Guðrún Hinriks-
dóttir — Minning
Fædd 19. september 1936
Dáin 25. nóvember 1983
Ó, horfðu hærra, vinur!
Guðs hönd þig áfram ber.
Ef hjarta af harmi stynur,
guðs hjarta viðkvæmt er.
Ef ólán að þér dynur,
guðs auga til þín sér.
Ef jarðnesk höll þín hrynur,
guðs himnar opnast þér.
Jóh. úr Kötlum.
Aðfaranótt 25. nóvember sl.
andaðist i Landspítalanum æsku-
vinkona mín Guðrún Hinriksdótt-
ir af völdum „vágestsins", sem
læknavísindin standa enn ráð-
þrota frammi fyrir. Baráttan við
sjúkdóminn varð ekki löng, en
ströng var hún og harðneskjuleg.
Spurningar leita á hugann.
Hvers vegna hún, hrifin burt úr
þessum heimi frá öllum, sem
henni þykir vænst um. Hver er til-
gangurinn? Því getur sá einn
svarað, sem öllu ræður á himni og
jörðu.
Minningar leita á hugann. Þær
þyrpast að, skipulagslausar í einni
hringiðu.
Fyrstu kynni okkar Gunnu,
vinkonu minnar og jafnöldru, og
byrjun að æfilangri vináttu, eru
frá bernskuárum okkar. Hún kom-
in í heimsókn til Reykjavíkur,
langt að, frá fjarlægu landshorni.
Lítil stúlka, með glóbjarta
hrokkna lokka, himinblá augu,
glettið bros og talaði „öðruvfsi' ís-
lensku, en ég hafði áður heyrt, en
sem mér var sagt að væri kjarn-
gott íslenskt mál, kallað norð-
lenska.
t
Jarðarför bróöur míns,
JÓNS KRISTINS JÓHANNESSONAR
frá Skóleyjum,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 5. desember nk. kl. 10.30
fyrir hádegi. Jarösett veröur í Gufunesi.
Fyrir hönd systkinanna,
Ingveldur Jóhannesdóttir.
t
Hugheilar þakkir fyrir auösýnda samúö við andlát og útför
MARGRÉTAR ANDRÉSDÓTTUR,
Grýtubakka 14.
Sigríóur Árnadóttir,
Helga Guömundsdóttir,
Erna Guómundsdóttir,
Guömunda Guómundsdóttir
og aörir vandamenn.
t
Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og jaröarför móöur
minnar, tengdamóöur, dóttur og ömmu,
ERLU H. GÍSLADÓTTUR.
Sérstakar þakkir sendar starfsfólki deildar 11B Landspítalans.
Magnea Guömundsdóttir,
Kjartan Ólalsson,
Gísli Arason
og barnabörn.
t
Hugheilar þakkir færum viö öllum þeim er vottuöu okkur samúö og
hluttekningu viö fráfall og jaröarför eiginmanns mins og fööur,
ÞÓRHALLS KARLSSONAR,
flugstjóra,
Rauöahjalla 11, Kópavogi.
Sérstakar þakkir viljum viö færa öllum aöilum er tóku þátt í og
unnu aö leit og björgun, einnig starfsmönnum Landhelgisgæslunn-
ar ásamt eiginkonum þeirra og félögum í Félagi isl. atvinnuflug-
manna fyrir ómetanlega hjálp og stuðning.
Aöalheióur Ingvadóttir,
Þórhildur Þórhallsdóttir,
Elías Þórhallsson,
Hrafnhildur Þórhallsdóttir.
t
Hugheilar þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö
og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar,
tengdafööur og afa,
VALDIMARS SIGURÐSSONAR,
Hringbraut 52,
Hafnarfiröi,
og heiöruöu minningu hans. Sérstakar þakkir eru færöar læknum
og öllu starfsfólki hjartadeildar Landspítalnas í gegnum árin.
Guös blessun fylgi ykkur öllum.
Ásdís Þóróardóttir,
Þóröur Valdimarsson, Svanhildur isleifsdóttir,
Sigríöur Valdimarsdóttir, Gunnar Gíslason,
Ragna Valdimarsdóttir, Eðvald Karl Eövalds
og barnabörn.
Þakkarkort veröa ekki send en andviröi gefiö líknarstofnunum.
Guðrún fæddist i Flatey á
Skjálfanda 19. september 1936,
eldri dóttir hjónanna Laufeyjar
Bæringsdóttur og Hinriks
Sveinssonar. Þar ólst hún upp
fyrstu æviár sín og var ekki há í
loftinu, er hún fékk að fylgjast
með föður sínum að störfum hans
við sjóinn, en Hinrik var með út-
gerð þessi ár í Flatey. Oft minntist
hún á þennan tíma í Flatey, þaðan
sem hún átti margar ljúfar minn-
ingar með elskulegum foreldrum
og yngri systur, Margréti.
Foreldrar hennar fluttust til
Reykjavíkur með dætur sínar árið
1949. Næstum daglegar samgöng-
ur voru milli heimila okkar, þar
sem mæður okkar voru mágkonur
og vinkonur. Við fylgdumst að við
leik og störf og eru æskuárin björt
og skemmtileg í minningunni.
Nokkrar telpur úr Norðurmýrinni
mynduðu sterk vináttubönd,
fylgdust að í gagnfræðaskóla, þar
sem fleiri stúlkur tóku þátt í að
mynda þann hóp, sem haldið hefir
vináttu fram á þennan dag, og átt
margar góðar stundir saman.
Að loknu gagnfræðaprófi vann
Guðrún við skrifstofustörf hjá
Kristjáni G. Gíslasyni hf., síðan
við verslunarstörf í verslun Mar-
teins Einarssonar í nokkur ár. Um
það leyti útskrifaðist hún sem
snyrtisérfræðingur og vann um
tíma sem „sminkari" hjá Þjóð-
leikhúsinu. Hún hafði brennandi
áhuga á að starfa sem snyrtisér-
fræðingur, en gat lítið sinnt því
áhugamáli sínu, þar sem nú hófst
sá áfangi í lífi hennar sem hún gaf
allan tíma sinn óskiptan.
Hún giftist eftirlifandi eigin-
manni sínum Jónasi Runólfssyni,
framreiðslumanni, 21. ágúst árið
1960 og eignuðust þau þrjú efnileg
börn: Hinrik, fæddur 24. nóvem-
ber 1960, stúdent; Kristín, fædd
20. júní 1965, nemandi í Mennta-
skóla Kópavogs, og Hulda fædd 12.
desember 1972, enn í barnaskóla.
Guðrún og Jónas voru ákaflega
samhent hjón, sem byggðu sér og
börnum sínum yndislegt heimili
að Sunnubraut 35, Kópavogi. Hún
var eiginmanni sínum elskuleg
eiginkona og börnum sínum sönn
móðir, sem taldi það stærsta hlut-
verk sitt í lífinu, að hlynna að
þeim og vinna að þroska þeirra.
Foreldrar Guðrúnar, Laufey og
Hinrik, bjuggu að Granaskjóli 5
hér í Reykjavík. Þau eignuðust
tvær dætur, Guðrúnu og Margréti,
fædd 3. janúar 1944, en hún er gift
Ágústi Guðmundssyni, landmæl-
ingamanni, og eru þau búsett í
Reykjavík. Hún á tvö börn: Lauf-
ey, fædd 1964, og Svanur, fæddur
1967.
Laufey átti einn son frá fyrra
hjónabandi, Ólaf Ólafsson,
járnsmið. Hann býr í Hafnarfirði
og er giftur Dagbjörtu Guðjóns-
dóttur. Eiga þau fimm börn. Lauf-
ey lést 14. febrúar 1979 en Hinrik
26. desember 1982.
Guðrún og Margrét voru for-
eldrum sínum góðar dætur og um-
hyggjusamar og sýndu þeim í
verki þakklæti sitt, þegar þau
þurftu mest á að halda.
Guðrún var lagleg kona, stillt,
og látlaus í framkomu en glöð og
kát á góðra vina fundi, trygglynd
og góð vinkona. Hún var mikil
hannyrðakona og hafði gaman af
blómarækt.
Veikindum sínum tók hún með
æðruleysi, ákveðin í að berjast til
þrautar. Hún stóð ekki ein í þeirri
baráttu, eiginmaðurinn og einka-