Morgunblaðið - 21.12.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1983
15
Hvernig væri
að brosa svolítið
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Matthías Johannessen:
FERÐARISPUR.
Eiríkur Hreinn Finnbogason
annaðist útgáluna.
Almenna bókafélagið 1983.
Ferðarispur er með sérkenni-
legri ferðabókum því að hún er
einnig ljóðabók. I bókinni eru
ferðaþættir Matthíasar Johann-
essen, flestir birtir áður, en að-
eins fáein ljóðanna hafa áður
verið prentuð. Bókin er í stóru
broti og prýdd ljósmyndum.
Það eru margir minnisstæðir
ferðaþættir í Ferðarispum. Ég
nefni Á Hólsfjöllum og Aust-
fjörðum, Úr Rómarför, Inns-
brúck og Zúrich, Wagner og Lúð-
vík og Ólympíuleikarnir í
Múnchen. Allir eru þessir þættir
mjög persónulegir og í þeim öll-
um lifir ísland sínu lífi, eða eins
og höfundurinn segir sjálfur:
„Þessi bók fjallar um landið
okkar, bæði hér heima og erlend-
is.“
Það er einkenni ferðaþátta
Matthíasar Johannessen að
hann kemur víða við. Hann læt-
ur hugann reika um mörg svið í
einu, en bindur sig ekki við einn
hól eða eitt torg. Ferðarispurnar
eru ekki venjulegir ferðaþættir,
heldur vettvangur skálds og
blaðamanns, oftar skálds sem
betur fer. Þurrar upptalningar
eða lýsingar á sjálfsögðum hlut-
um kann Matthías ekki að setja
á pappír. I staðinn lætur hann
lesandann sjá hlutina með sín-
um augum, finna til með sér. Og
það er mjög víðsýnt þaðan sem
Matthías beinir sjónum, aldrei
þröngt eða útkjálkalegt. Hann er
sífellt með heimsmenninguna í
farangrinum og gætir fóstur-
jarðarinnar eins og ómálga
barns. Listir og skáldskap sér
hann hvarvetna og skýtur inn
hugleiðingum sínum um þessi
efni án þess að vera fræðilegur
um of. Það er helst að honum
verði dimmt fyrir sjónum þegar
hann rekst á stjórnmálamenn og
gagnrýnendur. Á haustin verða
mennirnir vondir að nýju: „Far-
fuglarnir koma á vorin, pólitík-
usar og gagnrýnendur á haust-
in.“ Eftirfarandi yfirlýsing á vel
við og lýsir að mörgu leyti anda
Ferðarispa, hinni glitrandi
fyndni og mörgum skemmtileg-
heitum sem bókin vitnar um:
„En hvernig væri að brosa svo-
lítið til að eftirtíminn haldi ekki
að við séum hátíðlegasta, hé-
gómlegasta, spilltasta og leiðin-
legasta kynslóð allra alda á ís-
landi."
Það er oft brosað við lestur
þessara ferðaþátta, líka hlegið.
En alvaran er einnig víða á ferð
og ekki síst tregi. Treginn setur
til dæmis svipmót á þættina frá
íslandi, ekki síst þegar höfund-
urinn er staddur á bernskuslóð-
um Hönnu, konu sinnar, og yrkir
um hana litla telpu. Sorgin brýst
fram í frásögnum af ðlympíu-
leikunum í Múnchen þar sem
hryðjuverkamenn varpa skugga
Matthías Johannessen
á gleðina og íþróttaandann. Og
það er eins og höfundurinn
fyllist eftirsjá í nærfærnum lýs-
ingum sínum á Lúðvík og Wagn-
er, þær þóttu mér meðal besta
efnis bókarinnar.
Fyrir þá sem telja nokkurs
virði að fá innsýn í vinnubrögð
skáldsins Matthíasar Johannes-
sen er þessi bók náma. Mörg
ljóðanna eru af því tagi að þau
eru kveikjur annarra og stærri.
Sum eru smáleg, gegna fyrst og
fremst því hlutverki að festa á
blað minningu andartaksins.
Mörg ljóðanna eru aftur á móti
tengd veigameiri Ijóðum sem
komið hafa í bókum skáldsins og
sýna okkur hvernig skáldskapur
hans hefur þróast, kviknað og
náð æskilegum þroska. Það er
bergmál frá öðrum ljóðum
Matthíasar í þessum ferðaljóð-
um, en þó standa mörg þeirra
sér, eru einstæð í skáldskap
hans. Oft leyfir hann sér að
bregða á leik með öðrum hætti
en í veigámeiri ljóðum sínum.
Þetta frjálsræði skáldsins gerir
ljóðin skemmtileg og oft mjög
nákomin lesandanum eins og
þau væru trúnaðarvinir hans.
Matthíasi er tamt að gefa í
skáldskap sínum, opna hug sinn.
Það gerir hann líka í ferðaþátt-
unum. Einlægni hans krefst tíð-
um einlægni af lesanda.
Hér verður þess ekki freistað
að lýsa að marki ferðaljóðum
Matthíasar Johannessen. Til
þess þyrfti langa ritgerð. Sum
þeirra eru löng og mælsk eins og
í Neanderdal, önnur stutt og
hnitmiðuð eins og Oberammer-
gau. Það má kannski ekki tala
um að ljóð séu skemmtileg, en
það orð gildir um mörg ljóð þess-
arar bókar ekki síður en ljóð
Tómasar Guðmundssonar sem
Matthías er vitanlega í tengslum
við svo að einhver vísbending sé
gefin um meiningu ritdómara.
Tómas orti auðvitað líka sín
ferðaljóð, m.a. um heyskapinn í
Rómaborg í Stjörnum vorsins.
Matthías þyrfti ekki að skamm-
ast sín fyrir að vera lærisveinn
Tómasar, en það er hann ekki
nema stundum í prósanum,
skyldleiki er betra orð yfir vissar
tilhneigingar í skáldskap þeirra
beggja.
Langt ljóð sem nefnist Svarti-
skógur er meðal athyglisverðari
ljóða í Ferðarispum. Þar er með-
al annars hæðst að stjórnmála-
mönnum í Bonn sem hafa upp-
götvað að „dauður og mikils met-
inn“ rithöfundur, Hermann
Hesse, „er jafnvel þjóðfélagshöf-
undur". En það er annað ljóð þar
sem Svartiskógur kemur við
sögu sem höfðaði sterkar til mín.
Það nefnist Svartiskógur, farðu
ekki, og er ort í orðastað Wil-
helms Waiblingers, skálds og
ævisöguritara Hölderlins, sem
liggur á banabeði í Róm rúmlega
tvítugur:
Hér dey ég
á rómverskri jörð
hér skii ég við ævi
Hölderlins:
ó hve himininn er blár
en ég sé hann ekki
ó hve súlurnar eru appolonhvítar
en ég sé þær ekki,
hér dey ég frá ævi
Hölderlins:
sé ekki lengur á blaðið,
sé aðeins í huga mér
svartan skóginn
ganga hægt í burtu
trén kveðja kurteislega
og hverfa úr myrkviði minninganna,
sé ekki lengur á blaðið
sé aðeins einn og einn staf
ganga burtu af blaðinu
lúta höfði og kveðja
kurteislega í síðasta sinn:
Far vel góðu vinir,
far vel.
Ó Róm, hve þú ert gömul og fögur
en ég sé það ekki,
hve þú ert ung af æsku og þrá
en ég sé það ekki.
Ekki lengur.
Hér dey ég
á rómverskri jörð:
Greiðið, góðu foreldrar, vini mínum
fimmhundruð lírur sem hann lánaði
[mér.
Svartiskógur, farðu ekki.
Komdu nær.
Hér er sleginn óvenjulegur
strengur í skáldskap Matthíasar
Johannessen. í öðrum ljóðum
þekkjum við aftur tóninn í Dag-
ur ei meir og Morgunn í maí. Svo
kynnumst við drögum að ljóðum
sem síðar áttu eftir að birtast í
Tveggja bakka veður. Meðal
annars Ijóðinu um jökulinn sem
gengur til náða án þess að
slökkva gult tungl á náttborðinu.
Hvannatúni, Andakfl:
Kuldapollur
liggur yfir
lágsveitum
Borgarfjarðar
Hvannatuni í Andakíl, 19. desember.
MEÐAN veðurathugunar-
stöðvar allt í kringum okkur
tilkynna síðustu daga hita-
stig um og yfír frostmarki,
liggur kuldapollur yfir lág-
sveitum Borgarfjarðar.
Á sunnudagsmorguninn mæld-
ist á Hvanneyri 9 stiga frost og
hafði það komist í 11,5 gráður
um nóttina áður. Þrátt fyrir
frostið hefur ekki verið hægt
annað en að njóta skemmtilegra
desemberdaga, sem vissulega
stytta skammdegið. Þeir, sem
ekki búa í þéttbýli með upplýst-
um götum og öðru ljósi, taka bet-
ur eftir stjörnum, norðurljósum
og tunglskini í blíðu eins og hef-
ur verið síðustu daga.
Ekki höfum við séð til sólar í
þrjár vikur því Skarðsheiði og
Hafnarfjall hleypa ekki geislum
hennar í Andakílinn í 6 til 7 vik-
ur, en fjöllin í norðri eru böðuð
sólu og snjó á björtum vetrar-
dögum.
Færð um vegi Borgarfjarðar er
mjög góð miðað við árstíma.
- DJ.
Fréttirfrúfirstu hendi!
Höfum fengið sendingu af sérstæðum
ítölskum rúmteppum. Efnismikil,
litaglöð og falleg. Sérlega vönduð.
Púðar í stíl við teppin fást einnig, tvær
stærðir. Getum pantað teppi eftir ykkar
óskum.
Sérverslun með listræna hú
Borgartún29 Shni 2064&H