Morgunblaðið - 21.12.1983, Side 27

Morgunblaðið - 21.12.1983, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1983 27 Í!r myndinni „Einfaldi morðinginn" eftir Hans Alfredsson. verður að segjast að hvað vegleg- ast var tekið á móti okkur hjá ís- lensku sendiherrahjónunum Henrik Sveini Björnssyni og frú sem héldu okkur hjónum boð og buðu til veislu helstu forsvars- mönnum hátíðarinnar og gestum. Öll samskipti og fyrirgreiðsla við utanríkisráðuneytið hefur verið til fyrirmyndar á þessum ferðalögum og eiga þeir þakkir skildar. ís- lenski konsúllinn í Sydney sömu- leiðis, Ian Barrett, reyndist frá- bærlega vel. En við erum staddir aftur í Brussel. Það var þó ekki fyrr en eftir að heim var komið, á síðasta degi hátíðarinnar, að ég fékk upphringingu frá Jan Doense, hollenskum kvikmynda- gagnrýnanda, sem tjáði mér að Húsið hefði hlotið 1. verðlaun al- þjóðanefndar kvikmyndagagnrýn- enda og verið valið Besta kvik- mynd hátíðarinnar. Þetta kom okkur verulega á óvart, því af 22 kvikmyndum frá 14 mismunandi löndum og mörgum mjög athyglis- verðum, vorum við hæstánægðir bara að fá að vera með. En þar með var ekki sagan öll. Dómnefnd hátíðarinnar valdi sömuleiðis tvær aðrar viðurkenningar í hlut Hússins. Lilja Þórisdóttir hlaut viðurkenningu sem „Besta leik- konan" og Snorri Þórisson sem „Besti kvikmyndatökumaðurinn". Hlaut því Húsið þrjár viðurkenn- ingar á hátíðinni, fleiri en nokkur önnur mynd. Nú má spyrja hvað þetta þýði fyrir myndina. Pínulítil heimsfrægð, ofboðs peningar ... Nei, líklega þýðir þetta jákvæð skrif um myndina á alþjóðavett- vangi — umtal og ábendingar til kaupenda að hér sé hugsanlega á ferðinni mynd sem vert sé að gefa örlítinn gaum. En eins og allt er afstætt í tilverunni, verð ég að segja að það sem mér fannst mest til um í sambandi við ferðina til Brusse'l voru kynni mín af þekkt- um enskum blaðamanni, Tony Crawley, búsettum í París, sem reyndist góður vinur og kunningi þess leikstjóra sem ég hef dáð hvað mest í gegnum árin, Nicolas Roeg (Don’t look now, Bad Timing, Eurica). Tony hefur nú komið því til leiðar að Roeg er með mynd- band af Húsinu til skoðunar og hefur lýst sig fúsan að gefa okkur heiðarlega gagnrýni um myndina. Fyrir mér er þetta stórkostlegt.“ Svo var Húsið valið til útnefn- ingar Óskarsverðlauna í Banda- ríkjunum á næsta ári. „Já, það finnst okkur sömuleiðis ánægjulegt. I ár er hafður sá hátt- ur á að í stað nefndar sem valið hefur eina mynd til sömu útnefn- ingar á hverju ári, greiddu félags- menn Félags kvikmyndagerðar- manna nú atkvæði í sínum hópi og sem sagt Húsið varð fyrir valinu. Þetta er áfram hvatning til frek- ari dáða.“ Og þið stefnið í Óskarinn? „Okkar Óskar er ekki miklu stærri en óskar Gíslason, og þá ekki til að eignast heldur til að líkjast. Óskar var einn helsti brautryðjandi íslenskrar kvik- myndagerðar á árum áður, maður sem þorði." Og að síðustu, hvað er framund- an, hvert- stefnið þið? Nú, sitt í hvoru lagi fáumst við við margt þessa stundina, fyrir utan hefðbundna vinnu við auglýsingagerð. Þeir Jón Þór og Snorri hafa nýlega komið sér upp myndbandstæknibúnaði sem þeir leggja allt kapp á að galdra með — Björn hefur nýlokið uppsetningu á leikmynd fyrir Þjóðleikhúsið, sjálfur er ég að mála á sýningu og meðfram því er ég líklega að skrifa þrjú mismun- andi handrit. Það fyrsta er gam- ansöm letimynd fyrir börn og unglinga, annað er ef til vill nokk- urs konar framhald á Húsinu, ekki þó í bókstaflegri merkingu, ramm- íslensk nútímadraugasaga, nú, það þriðja veit ég ekki um hvað er, en það er komið tiltölulega lengst. Hvað verður fyrir valinu til kvik- myndunar er ekki hægt að segja um á þessu stigi máls. En þangað til er allt mögulegt að gerast, kvikmynd Kristínar Pálsdóttur og vinkvenna verður frumsýnd á næstunni, vinur minn Hrafn Gunnlaugsson á næsta stórleik og þá kemur Atómstöðin, tví-mála- mynd. Nýjar myndir og enn viðameiri og svo eru menn að tala um kreppu. Áræði örfárra ævintýra- manna ásamt einstökum áhuga al- mennings á hverju nýju íslensku kvikmyndapródúkti gerir hið ómögulega mögulegt," sagði Egill að síðustu, bjartsýnn á framtíð- ina. — ai Pepsi JÓLAVERÐ O o í flöskustærðum 0,251. og 1 lítri Látið bragÖiÖ ráöa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.