Morgunblaðið - 21.12.1983, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1983
Jóhann Ingi Gunnarsson fjallar um vestur-þýska handboltann:
Alfreð væri í byrjunarliði
vestur-þýska landsliðsins
Nær helmingi allra leikja í Vestur-þýsku Bundesligunni í handknatt-
leik er nú lokið. Fyrir mótiö voru flestir sórfræöingar í handknattleik í
Vestur Þýskalandi þeirrar skoðunar aö breiddín yröi meiri á toppnum
en oftast áöur.
Margt kemur þar til, og má þá helst nefna aö liö Gummersbach varð
aö sjá á bak sínum besta manni, mesta markaskorara, Erhard Wund-
erlich, til Spánar. Nokkur liö höföu einnig styrkst allverulega frá í fyrra.
Sum höföu „keypt“ nýja leikmenn eöa/og fengiö nýja þjálfara, sem
voru líklegir til aö ná árangri.
Ljóst var að liö Grossvallstadt
kæmi sterkt til leiks, þar sem þeir
höfnuöu „aðeins“ í þriöja sæti á
síöasta keppnistímabili, á eftir
Kielarliöinu. Segja má aö liö
Gummersbach og Grossvallstadt
hafi skipst á um aö vinna meistara-
titilinn síöustu fimm árin. Einnig
má benda á aö margir snjöllustu
leikmenn liösins eru komnir til ára
sinna og því ekki seinna vænna en
aö ná bikarnum aftur til Gross-
vallstadt.
Margir voru einnig þeirrar skoö-
unar aö liö Alfreö Gíslasonar,
Tusem-Essen yröi í allra fremstu
röö, þar sem liöiö lék langt undir
getu síöasta keppnistímabil. Auk
þess bætti liöiö viö sig fjórum
sterkum leikmönnum og síöast en
ekki síst aö liöiö fékk til sín þjálfar-
ann Petre Ivanescu frá Gumm-
ersbach, sem þykir góöur þjálfari.
Önnur liö, sem komu til greina i
baráttunni um efstu sætin, voru
meistarar Gummersbach, „millj-
ónaliöin“ Swabing frá Munchen og
Fuchse frá Berlín, sem fengu
hvorki fleiri né færri en 7 nýja
leikmenn til liös viö sig á þessu ári.
Margir töldu einnig aö liö Kiel
kæmi einnig til greina vegna
frammistööu liösins á síöasta
keppnistímabili. Önnur liö myndu
síöan berjast í miöju deildarinnar
og um neöstu sætin.
j upphafi móts kom liö Frisch
auf Göppingen á óvart, liöiö sem
þeir Geir Hallsteinsson, Ágúst
Svavarsson og Gunnar Einarsson
léku meö á árum áöur. Liöiö vann
fyrstu 6 leikina og kom þar aöeins
eitt til. Pólska stórskyttan Jerzy
Klempel var óstöövandi, skoraöi
varla undir 10 mörkum í leik. Gár-
ungar voru ekki seinir til aö breyta
nafni liösins, gekk þaö nú undir
nafninu Frisch auf Klempel!
Klempel átti síöan viö meiösli aö
striöa og Göppingen varö því aö
láta af hendi fyrstu sætin í deildinni
um stundarsakir, en Ijóst er að
Göppingen veröur í hópi efstu liöa
í vor, þökk sé Klempel.
Liö Grossvallstadt og Swabing
hafa sýnt mestan stööugleika þaö
sem af er mótsins. Ef áfram heldur
sem horfir hreppir annað titilinn
þegar keppni lýkur. Ekki má
gleyma því aö liö Swabing hefur
meistaraheppnina meö sér. Til
marks um það, þá hafa þeir unnið
þrjá leiki sína á heimavelli meö
eins marks mun!
Essen og Gummersbach veröa
einnig meö í baráttunni. En minni
líkur eru á því aö Fúchse Berlin og
Kiel veröi meöal efstu liöa að
þessu sinni.
Frammistaða
íslendingaliðanna
Tusem Essen
Tusem Essen hefur fyllilega
staöiö undir þeim væntingum sem
geröar voru til liösins. Margir eru
þeirrar skoöunar aö liö Essen sé
sterkasta liöiö í vestur Þýskalandi í
dag. Þeirrar skoðunar viröist Sim-
on Schobel, landsliösþjálfarinn
vera, ef marka má val hans á
landsliðinu. í vestur-þýska lands-
liöinu má oft sjá 4 leikmenn frá
Essen af þeim fyrstu 7 sem byrja
inn á!
Eins og Alfreö Gíslason hefur
leikiö í vetur, er ég þess fullviss aö
hann myndi veröa fimmti leikmað-
ur Essen í byrjunarliöi vestur- |
þýska landsliösins, ef hann heföi
þýskan ríkisborgararétt. Bogdan
landsliösþjálfari er örugglega |
dauöfeginn aö svo er ekki!! Ef að
líkum lætur á Alfreö eftir aö leika
| enn betur þegar fram líöa stundir,
þegar hann hefur kynnst betur fé-
lögum sínum og aölagast breyttum
aöstæöum.
Lemgo
Liö Siguröar Sveinssonar,
Lemgo, hefur átt erfitt uppdráttar í
vetur eins og kannski viö mátti bú-
ast. Liöiö vann sig upp úr 2. deild í
fyrra og þaö er ekki svo lítili munur
að leika í fyrstu eöa annarri Bund-
esligu í Þýskalandi.
Liö Lemgo er samt sem áöur
erfitt heim að sækja. Ávallt fullt
hús og engu líkara en í Ijónagryfju,
þvi áhorfendur sitja allt umhverfis
völlinn og hafa mikil áhrif á gang
mála! En þeim hefur enn ekki tek-
ist aö sigra á útivelli, þrátt fyrir
marga ágæta leiki.
Siguröur hefur veriö einn besti
maöur Lemgo í vetur, átt marga
góöa leiki og skoraö þá grimmt
eins og hans er von og vísa. Þess á
milli hefur hann átt leiki þar sem
hann hefur ekki náö aö sýna sitt
besta viö markaskorunina. Ég er
þó þeirrar skoöunar aö Siguröur
hafi vaxið í vetur, hann leikur betur
en hann geröi meö Nettlestedt í
fyrra. Vonandi haga forlögin því
ekki þannig aö liö Sigurðar,
Lemgo, falli í aöra deild eins og liö
hans, Nettelstedt, í fyrra. Liöiö hef-
ur buröi til aö halda sér í deildinni.
THW Kiel
Eins og nærri má geta uröu aö-
standendur Kiel ánægöir meö ár-
angur liösins á síöasta ári, annað
sæti á eftir Evrópumeisturum
Gummersbach. Til gamans má
geta þess aö undirritaður lagöi
spurningalista fyrir leikmenn liös-
ins í fyrra og aftur í ár. í þessum
spurningum voru leikmenn beönir
aö tjá sig um markmiössetningu
líösins. í fyrra voru 10 leikmanna
þeirrar skoöunar aö liöiö ætti aö
stefna aö því aö halda sér í deild-
inni, 3 voru þeirrar skoöunar aö
keppa ætti aö 6.-9. sæti og aö-
eins 1 var þeirrar skoðunar aö
stefna ætti aö 1.—5. sæti.
I ár snerist dæmiö all verulega.
12 töldu aö keppa ætti aö sæti
1—5, en aöeins 2 töldu aö sæti
6—9 væri raunhæft. Af þessu má
sjá að væntingar leikmanna voru
miklar fyrir keppnistímabilið og
sömu sögu má segja um áhorfend-
ur. Til marks um það, þá seldust
4.600 ársmiðar fyrirfram, sem er
aö sjálfsögöu algert met í heimi
handboltans.
I upphafi var strax Ijóst aö róöur
Kielarliösins yröi þyngri í ár en í
fyrra. Af fjórum fyrstu leikjunum í
ár varö liöiö aö leika þrjá leiki á
útivelli og einn á heimavelli gegn
öllum sterkustu liöum í deildinni.
Útileikirnir töpuöust allir mjög
naumlega eöa meö einu, tveimur
eða þremur mörkum, en sigur
vannst örugglega gegn meisturum
Gummersbach á heimavelli. Liöiö
varö þvi í 11. sæti, þrátt fyrir aö
hafa leikiö vel!! I kjölfariö fylgdu
síöan þrír sigrar, í svokallaöri
enskri viku þar sem leiknir eru þrir
leikir á einni viku og liðiö skaust
upp í 5. sæti deildarinnar. Fram-
haldiö virtist bjart, liöiö haföi ööl-
ast sjálfstraust á ný. Þá varö liöiö
fyrir því áfalli aö tveir bestu menn
liösins meiddust samtímis og uröu
frá í heilan mánuö. Annar þeirra er
landsliösmaöurinn og markhæsti
leikmaöur Kielarliðsins, Dirk
Sommerfeld og hinn er pólski
landsliðsmaöurinn Marek Panas,
sem margir telja besta miöjuspil-
ara í heimi. Afleiöingarnar lótu ekki
á sér standa. Liöiö tapaöi sínum
fyrsta leik á heimavelli í tæp tvö ár,
og þaö gegn einu af botnliöunum í
deildinni, Dankersen. Jafntefli varö
einnig á heimaveili gegn Hofweier,
sem er í miöju deildarinnar. Sjálfs-
traust leikmanna beiö nokkurn
hnekki viö mótlætiö, en samt sem
áöur tókst aö ná i jafntefli á útivelli
og sigur á heimavelli í síöasta leik
liðsins á þessu ári.
Á stööunni má sjá aö liö Kiel er
í 6. sæti og segir mér svo hugur að
liðið hafni í 6.-9. sæti þetta
keppnistímabil.
Staöan í 1. deild:
TV Grosswallstadt 12 10 1 1 247:204 21: 3
MTSV Schwabing 11 9 1 1 239.211 19: 3
TuSEM Esssn 10 6 2 2 182:148 14: 6
Göppingen 11 7 0 4 246:239 14: 8
VfL Gummarsbach 10 6 1 3 189:188 13: 7
THW Kiel 12 5 2 5 228:224 12:12
Rein. FOchse 9 4 14 185:168 9: 9
TuS Hofweier 10 4 1 5 219307 9:11
TuSpo NUrnberg 11 4 0 7 196229 8:14
TuRa Bergkamen 10 3 1 6 183204 7:13
TV HUttenberg 11 3 1 7 222248 7:15
Dankersen 12 3 0 9 215227 6:18
VfL GUnzburg 9 2 1 6 192214 5:13
TBV Lemgo 10 2 0 8 180212 4:16
Petre Ivanescu, Rúmeninn landflótta, fyrrum þjólfari Gummersbach,
núverandi þjólfari Alfreðs Gíslasonar og félaga í Essen.
• Arthur Graham hefur reynst Man. Utd. betri en enginn í vetur. Hann
skoraði eina mark liösins í fyrrakvöld en þaö dugði ekki til.
Oxford áfram
— sigraði Man. Utd. í mjóikurbikarnum
MANCHESTER United var slegið
út úr enska mjólkurbikarnum í
fyrrakvöld af 3. deildarliði Oxford
United. Liðin mættust í þriðja
sinn — tveir fyrri leikir liöanna
höfðu endað með jafntefli. Oxford
sigraöi í þriöja leiknum, á heima-
velli sínum, 2:1, eftir framleng-
ingu.
United skoraði aö vísu á undan:
Arthur Graham á 38. mín. meö
þrumuskoti framhjá mörgum varn-
armönnum eftir hornspyrnu.
En tveimur mín. síöar haföi Ox-
ford jafnaö. Neil Whatmore átti
skalla i stöng eftir hornspyrnu, og
George Lawrence, útherjinn þel-
dökki, skallaöi knöttinn í netiö.
Rétt fyrir leikinn varð United
fyrir því áfalli aö Gary Bailey,
markvöröur liösins, meiddist i upp-
hitun. Jeff Wealands, varamark-
vöröur United, varöi frábærlega
vel i seinni hálfleiknum. United átti
þá varla skot á mark Oxford, — en
þess má geta aö Bryan Robson,
fyrirliöi United, þurfti aö fara af
velli á 57. mín. Meiddur á fæti. Eftir
aö hann var farinn af velli átti Uni-
ted mjög í vök aö verjast. Oxford
átti mörg góö færi en Wealands
bjargaöi því sem bjargaö varö.
Framlengja varö leikinn, og
varamaöurinn Steve Biggins skor-
aöi sigurmarkiö á 114. mín. Big-
gins stökk hæst allra í vítateig Uni-
ted og sendi þrumuskalla í netiö
hjá Wealands eftir fyrirgjöf Kevin
Brock, besta manns vallarins.
Þegar flautaö var til leiksloka
tróöust æstir Oxford-áhangendur
inn á völlinn í gleöi sinni. Áhorf-
endur á leiknum voru 14.000 —
mesti áhorfendafjöldi í fimm ár á
heimavelli Oxford.
Þetta er i fyrsta skipti sem Ox-
ford kemst svo langt í Mjólkurbik-
arkeppninni (deildarbikarkeppn-
inni) en liöiö er nú komiö i þriöju
umferð. Hagnaöur liðsins af þátt-
töku í keppninni til þessa er oröinn
100.000 sterlingspund, og i næstu
umferö mætir liöið 1. deildarliöinu
Everton.
Grete best
í Noregi
GRETE Waitz, heimsmeistarinn í
maraþonhlaupi kvenna, var t gær
kjörinn íþróttamaður ársins í
Noregi.
Grete hefur veriö ósigrandi í
maraþonhlaupum aö undanförnu
— og hún sigraði m.a. í greininni í
heimsmeistarakeppninni í Helsinki
í ágúst, og á nokkrum stööum,
m.a. í London og New York. Þetta
var í fjóröa skipti á undanförnum
árum sem Waitz er kjörin Iþrótta-
maöur ársins í Noregi.