Morgunblaðið - 20.01.1984, Síða 1

Morgunblaðið - 20.01.1984, Síða 1
56 SIÐUR STOFNAÐ 1913 16. tbl. 71. árg. FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1984 Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra, í ávarpi á öryggismálaráðstefnu Evrópu í Stokkhólmi: Heimsbyggðin þarfnast öll alhliða afvopnunar Símamynd AP. Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra, flytur ræðu sína í gær. „UNDANFARIN ÁR hafa samskipti austurs og vesturs farið versnandi, en það er von okkar, að Öryggismálaráðstefna Evrópu, scm nú kemur saman, stuðli að bættum samskiptum þátttökuríkjanna," sagði Geir Hallgrímsson, utanríkis- ráðherra íslands, í ræðu er hann ávarpaði Öryggismálaráðstefnu Evrópu f Stokkhólmi í gær. Hann sagði ennfremur: „Með gagnkvæmum upplýsingum og tilkynningum um athafnir og hreyfingar herliða, sameiginlegr eftirliti og könnunum og betra sambandi aðila á milli ætti að vera unnt að koma í veg fyrir hótanir um neyðaríhlutun og eyða mis- skilningi, sem gæti leitt til hættu- ástands, og draga úr hættu á skyndiárás á Evrópu. Viðræður okkar hér koma ekki í stað samninganna í Vínarborg um gagnkvæman samdrátt herafla. Þær eru þeim til styrktar og við vonum, að Vínarviðræðunum verði fljótlega haldið áfram jafnhliða þessum." Þá sagði Geir, að þrátt fyrir hörmulega lítinn árangur í tak- mörkun vígbúnaðar undanfarinn áratug, mættum við ekki láta hug- fallast. Þvert á móti yrðum við að einsetja okkur að ná verulegum árangri á þessari ráðstefnu. „Það er miður, að Sovétmenn slitu Genfarviðræðunum," sagði utanríkisráðherra. „Að okkar mati geta hvorki tímabundnir erfiðleik- ar á hernaðarsviðinu, né óhóflegt vígbúnaðarkapphlaup stuðlað að því öryggi og stöðugleika, sem öll- um Evrópuríkjum er svo nauðsyn- legt. Við bjuggumst einnig við því, að START-viðræður Bandaríkja- manna og Sovétmanna myndu geta tryggt jafnvægi langdrægra kjarnavopna og dregið úr tölu þeirra. Það er því í þágu allra þjóða, að START-viðræðurnar hefjist á ný og skili árangri." Grundvöll utanríkisstefnu ís- lands og stefnunnar í öryggismál- um sagði Geir Hallgrímsson byggj- ast á aðild okkar að Atlantshafs- bandalaginu og varnarsamningn- um við Bandaríkin. Sagði Geir framlag Bandaríkjanna til varna fslands vera snaran þátt í öryggi Vestur-Evrópu. „í dag þarfnast Evrópa og heims- byggðin öll alhliða afvopnunar á gagnkvæmisgrundvelli. Við þurfum að semja um nýjar yfirgripsmiklar ráðstafanir til að efla traust og ör- yggi, sem ná frá Úralfjöllum að Atlantshafi ásamt aðliggjandi haf- svæðum og loftrými," sagði utan- ríkisráðhera undir lok ávarps síns. „Enginn árangur" Osló, 19. janúar. AP. GEORGE Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lýsti því yfir við komuna til Osló í dag, að enginn árangur hefði orðið af fimm klukku- stunda fundi hans og Andrei Grom- yko, utanríkisráðherra Sovétríkj- anna, í Stokkhólmi í gærkvöld. Hann sagði hins vegar, að Bandarík- in myndu halda stefnu sinni óbreyttri þrátt fyrir harðorðar ásak- anir í garð þeirra í ræðu Gromykos í fyrradag. Osló er síðasti viðkomustaður ráðherrans á ferð hans um 5 Evr- ópulönd. Þrátt fyrir að Shultz segði árangurinn af viðræðum hans og Gromykos hafa verið afar tak- markaðan sagði hann, að Sovét- menn hefðu látið í ljósi ákveðinn vilja til að snúa aftur að samn- ingaborðinu í Vínarborg. Þar hafa stórveldin rætt um gagnkvæma fækkun herja. Lennart Bodström, utanríkis- ráðherra Svía, staðfesti í dag þennan vilja Sovétmanna. Síðdeg- is bárust þær fregnir frá höfuð- stöðvum Atlantshafsbandalags- ins, að Sovétmenn myndu ekki standa í vegi fyrir banni á fram- leiðslu og notkun efnavopna. Shultz lagði til slíkt bann í ræðu sinni á öryggismálaráðstefnunni. „Það virðist gegna öðru máli um þessar viðræður hjá Sovét- mönnum,“ sagði Shultz og vísaði þá til staðfastrar neitunar þeirra um að hefja viðræður um fækkun kjarnorkuvopna að nýju. Frá fundi Andrei Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, og Geoffrey Ilowe, utanríkisráðherra Bretlands, Stokkhólmi í gær. Ráðherrarnir fremstir á myndinni. Símamynd ap. Vogel krefst afsagnar varnarmálaráðherrans Bonn, 19. janúar. AP. HANS Jochen-Vogel, leiðtogi jafnaðarmanna, krafðist þess í dag, að Hclmut Kohl, kanslari, ræki Manfred Wörner, varnarmálaráðherra, úr embætti vegna aðildar hans að brottvikningu Giinther Kiessling, fyrrum varahers- höfðingja hjá Atlantshafsbandalaginu. Kohl hafnaði kröfu hans á fundi þeirra í kvöld. Kiessling og lögfræðingur hans reyndu í dag að fá dómsvaldið til þess að krefja Wörner sagna um hina raunverulegu ástæðu brott- vikningar Kiessling um áramótin. Það spurðist út í dag, að Wörn- er hefði lýst því yfir á fundi fyrir luktum dyrum í gærkvöld, að ástæðan fyrir brottvikningunni hefði verið sú, að tengsl Kiessl- ings við kynvillinga hefðu stefnt öryggi landsins og NATO í hættu. Jafnframt spurðist það út, að Wörner hefði sagt hin slæmu samskipti Kiesslings og Bernard Rogers, yfirmanns herafla Atl- antshafsbandalagsríkjanna, haft sitt að segja við ákvarðatökuna. Rogers hefur lýst því yfir, að hann eigi engan þátt í brottvikn- ingunni. Þrátt fyrir aðgerðir Kiesslings og lögfræðings hans í dag, svo og aukinn þrýsting frá þingflokki jafnaðarmanna, hefur varnar- málaráðherrann þverskallast við að gefa opinbera skýringu á því hvers vegna Kiessling var leystur frá störfum. Prentsmiðja Morgunblaðsins Á Babangida, yfirmaður hersins. Nígería: Herinn herðir tökin Lagos, Nígeríu, 19. janúar. AP. HERRÁÐH) í Nígeríu herti enn tök sín í dag, er það samþykkti tilskipun um að handtaka mætti almenna borgara og hneppa þá í allt að þriggja mánaða fangelsi án þess aö bera fram formlega kæru á hendur þeim. Með þessari tilskipun fær yf- irmaður herafla landsins, Ibra- him Babangida, ennfremur leyfi til þess að taka að nýju upp mál þeirra, sem hnepptir hafa verið í fangelsi frá því Shagari, forseta, var steypt af stóli. Babangida er því í sjálfsvald sett hvort einhverj- um fanganna verður sleppt eða hvort hann lengir fangelsis- vistina um 3 mánuði. Þá samþykkti herráðið, sem skipað er 18 háttsettum mönnum innan hersins og ein- um borgara, stjórnarskrár- tilskipun, þar sem kveðið er á um eigið lögmæti, með því að fella suma hluta stjórnar- skrárinnar frá 1979 úr gildi og breyta öðrum. Farþegar ærðust í hitanum Rio de Janeiro, 18. janúar. AP. EINHVER mesta hitabylgja, sem um getur á þeim slóðum, hefur herj- að á íbúa Rio de Janeiro undanfarna daga. Hefur hún staðið í 9 daga og hitinn ekki farið niður fyrir 40 stig á daginn. Hvar sem rennandi vatn er að finna þyrpist fólk að og gosbrunn- ar minna einna helst á almenn- ingssundlaugar. Slíkt er ástandið, að fólk hleypur á eftir vatnsúðun- arbílum, þar sem þeir aka um göt- urnar og kæla malbikið í svækj- unni. Hitinn hefur þó ekki aðeins leitt til meiri ásóknar borgarbúa t vatn en venja ber til. Afbrot hafa verið óvenjutíð og í vikunni bar það til, að farþegar í strætisvagni ærðust þegar loftkælingin bilaði. Bundu þeir bílstjórann á höndum og fót- um, óku vagninum að næstu lög- reglustöð og kröfðust endur- greiðslu. Af ótta við barsmíðar jánkaði saklaus lögregluþjónn kröfunni og lofaði farþegunum því að auki, að strætisvagnafyrirtæk- ið yrði sektað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.