Morgunblaðið - 20.01.1984, Síða 10

Morgunblaðið - 20.01.1984, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1984 Magnús Jónsson frá Mel Fæddur 7. september 1919. Dáinn 13. janúar 1984. Það var glaður og fríður hópur fjörutíu ungmenna, sem þeysti út um dyr Menntaskólans á Akureyri snemma sumars árið 1940, að loknu stúdentsprófi. I vesturhluta Evrópu geysaði styrjöldin með sínum ógnum og skelfingum. Her- skarar Hitlers leggjandi undir járnhæl sinn hvert lýðríkið af öðru. Þessir atburðir vörpuðu skugga á líðandi stund, en við stúdentarnir frá MA fögnuðum langþráðum áfanga og trúðum á framtíðina. Síðan þetta gerðist hafa árin liðið hvert af öðru, skin og skúrir skipst á. Öll höfum við átt okkar heillastundir og mætt sorgum og andstreymi. Maðurinn með ljáinn hefir og barið á dyrnar. Nú síðast hvarf Magnús Jónsson frá Mel á braut. Hann andaðist að heimili sínu aðfaranótt föstudagsins 13. janúar síðastliðinn. Útför hans fer í dag fram frá Dómkirkjunni. Magnús Jónsson var fæddur á Torfmýri, Blönduhlíð, í Skaga- firði, þann 7. september 1919, son- ur Jóns Eyþórs, bónda þar og síðar á Mel, Jónassonar, Ólafssonar, bónda á Barká. Móðir Jóns á Mel var Guðrún Jóhannesdóttir, Guð- mundssonar á Svalbarði og víðar. Móðir Magnúsar Jónssonar var Ingibjörg Magnúsdóttir á Torf- mýri og síðar á Sauðárkróki, Hannessonar, Þorlákssonar. En móðir Magnúsar Hannessonar var Ingibjörg Þorleifsdóttir, Þorleifs- sonar frá Stóradal í Húnavatns- sýslu og móðir hennar var Ingi- björg Magnúsdóttir, prests í Glaumbæ og Sigríðar Halldórs- dóttur Vídalín frá Reynistað. Móðir Ingibjargar frá Mel var Jakobína Gísladóttir, hreppstjóra í Hvammi í Laxárdal. í móðurætt var Jakobína af Skíðastaðaætt. f ættum þessum er margt þekktra gáfumanna, sem ættfræðingar vita. Ingibjörg og Jón á Mel eign- uðust og tvo aðra syni: Baldur, sem var rektor Kennaraháskóla fslands og lézt á sl. ári og Halldór, nú sýslumaður Skagfirðinga. Magnús Jónsson var mikill námsmaður, jafnvígur í flestum greinum. Hann tók frá byrjun skólavistar virkan þátt í félagslífi, mestur ræðumaður á fundum og Inspector Scolae. Mannvirðingar og álit nemenda og kennara stigu honum ekki til höfuðs. Það viðhorf átti eigi eftir að breytast síðar á lífsleiðinni. Öllum vildi hann leiðbeina og hjálpa. Sú afstaða entist honum til leiðarloka. Á menntaskólaárunum vann hann á sumrum við vegagerð, í síldar- verksmiðju, sem þá var eftirsótt staf vegna góðra tekna, og heima í föðurgarði við búskapinn. f Há- skóla fékkst hann við kennslu og ritstörf. Eins og í MA var vina- hópurinn í Háskólanum stór. Þó var öllum þar ljóst, að norðan- menn héldu saman. Meöal okkar var Magnús fremstur í flokki. Á góðum stundum var hann allra manna kátastur, þótt ekki nyti hann „guðaveiga" sem flestir okkar. Að leita til hans, er á bját- aði, var gott. Við Magnús tókum embættis- próf í lögfræði sama daginn árið 1946. Sá háttur var á hafður, að tveir þreyttu munnlegt próf í einni lotu, að loknum skriflegum próf- um. Við gengum hnarreistir upp í kjóli og hvítu, en klæðin höfðu góðviljaðir menn lánað okkur. Báðum gekk vel. Þessi prófdagur, í glampandi sólskininu, var innsigli, tákn, fyrir vináttu okkar á öllum skólaárunum, og raunar byrjunin á nánu og óvenjulegu samstarfi, sem náði yfir nær þrjá áratugi. Öllum kunnugum hlaut að vera ljóst að Magnús Jónsson yrði fyrr en síðar kallaður til starfa á vett- vangi stjórnmálanna. Til þess hafði hann alla hæfileika. Skarpar gáfur, málsnilld, en um fram allt atorku og gæddur sterkri rétt- lætiskennd. Hann var fljótur að kryfja mál til mergjar og eygja leiðir til úrlausnar. Hamhleypa til verka, er því var að skipta. Eftir rækilega íhugun settist hann að skrifborðinu og lauk ritverki á skemmri tíma en flestir aðrir, sem ég hefi kynnst. Rökfastur og ber- sögull í málflutningi. Framkoma og viðmót var með þeim hætti, að hiklaust var til hans leitað. Við nánari kynni spratt vinátta sem entist. Magnús Jónsson þurfti ekki að bíða lengi. Sjálfstæðismenn á Ak- ureyri leituðu til hans og báðu hann um að taka við ritstjórn „ís- lendings“. Að loknu lögfræðiprófi átti hann án efa margra kosta völ. En hann kaus að hefja starfið norðan heiða í grennd bernsku- byggða. Ritstjórastarf við viku- blað á Akureyri var ekki arðvæn- legt, en það setti Magnús Jónsson ekki fyrir sig. Hann tók hugsjónir fram yfir fjármuni. Innst inni hef- ir hann fundið að til hans kasta myndi koma í þjóðmálunum. Þá væri það góð reynsla að hafa við þröngan kost stýrt málgagni úti á landsbyggðinni, einn og óháður. „íslendingur“ efldist stórum þau tvö árin, sem Magnús annaðist blaðið. Störf Magnúsar og forusta í málum Sjálfstæðisflokksins leiddi til þess, að hann tók sæti á Alþingi árið 1951 sem varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Eyjafjarð- arsýslu, en kjörinn var hann ann- ar þingmaður Eyfirðinga í Alþing- iskosningum 1953. Síðan var hann þingmaður Norðurlandskjördæm- is eystra frá 1959 til 1974. Hann vann að ýmsum verkefn- um í fjármálaráðuneytinu 1948 til 1953, en þá var hann ráðinn fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks- ins. Allir eldri sjálfstæðismenn hér í borg og úti um byggðir landsins minnast Magnúsar í því starfi með þakklæti. Sama sumarið, eða árið 1946, og Magnús Jónsson fór til Akureyrar, hóf ég þar rekstur málflutn- ingsskrifstofu. Jafnframt sinnti ég erindrekstri fyrir Sjálfstæðis- flokkinn á Norðurlandi og að nokkru eystra. Samstarf okkar varð því náið. Eftir að við gerð- umst þingmenn í sama kjördæmi má segja, að eitt og hið sama hafi gengið yfir báða. Betri og kærari samstarfsmann hefi ég ekki eign- ast um ævidagana. Að ferðast með Magnúsi um kjördæmið, mæta þar á fundum, spjalla við fólkið yfir kaffibolla eða úti undir vegg, var unun, sem aldrei gleymist. Magn- ús var mér fremri á fundum, en ég reyndi að bæta það upp með öðru. í þingmennskunni var með okkur verkaskipting, sem reyndist vel. En umfram allt ríkti með okkur trúnaður og einlæg vinátta, sem aldrei bar skugga á. Magnús Jónsson varð þegar at- kvæðamikill í þingsölunum og einn af helztu málsvörum Sjálf- stæðisflokksins. Hann átti sæti í miðstjórn, og má segja, að hann hafi látið öll meiriháttar flokks- mál til sín taka. Hann var vara- formaður Sjálfstæðisflokksins frá því í nóvember 1973 til sama mán- aðar 1974. Á árunum 1%5 til 1971 gegndi hann starfi fjármálaráðherra í Viðreisnarstjórninni. Þar sýndi hann röggsemi sem var annáluð og oft hefir verið vitnað til síðan. Áður en hann varð fjármálaráð- herra hafði hann átt sæti í fjár- veitinganefnd. Við afgreiðslu fjár- lagafrumvarps hafði hann haft framsögu fyrir áliti meirihluta nefndarinnar þótt ekki væri for- maður. Um tíma vorum við saman í nefndinni og þótti ýmsum nóg um, að tveir þingmenn í sama flokki, úr sama kjördæmi, væru í þeirri miklu valdastofnun. Var þó látið kjurt liggja, og tel ég það skemmtilega öruggan dóm um réttsýni okkar Magnúsar. Magnús Jónsson tók mikinn og farsælan þátt I samstarfi þing- manna Norðurlandanna. Þar var hann enn í forustu. Hann var for- maður stjórnar Atvinnubótasjóðs, og síðar í stjórn Framkvæmda- stofnunar ríkisins, formaður Raf- orkuráðs, formaður stjórnar Kísil- iðjunnar hf. við Mývatn, ein þrjú ár í Flugráði og telja mætti upp mörg önnur störf, er hann sinnti. Á Alþingi hafði hann mest af- skipti af atvinnu- og fjármálum. Félagsmálin voru honum og hug- leikin. Hann bar hag hinna dreifðu byggðarlaga fyrir brjósti. Magnús Jónsson var frjálslynd- ur í skoðunum en vildi fara að öllu með gát. Magnús Jónsson var ráðinn bankastjóri í Búnaðarbanka ís- lands frá 1. janúar 1961 og gegndi því starfi til dauðadags, nema þau árin, er hann var fjármálaráð- herra. Undir hans stjórn hefir Búnaðarbanki íslands blómgast. í árslokin 1973 varð vinur minn, Magnús, fyrir þungu áfalli. Heils- an bilaði skyndilega með þeim af- leiðingum að hann hlaut að hætta afskiptum af stjórnmálum. Með kjarki og óvenjulegu vilja- þreki, frábærri karlmennsku, náði hann þeim árangri, að hann gat haldið áfram sínu vandasama starfi í Búnaðarbankanum. Þá naut hann umhyggju sinnar góðu konu, Ingibjargar, sem reyndist honum bjargvættur í veikinda- stríðinu. Magnús Jónsson var gæfumaður í einkalífi. Þann 28. október 1950 kvæntist hann Ingibjörgu Magnúsdóttur, bónda í Miklaholti á Snæfellsnesi, Sigurðssonar og Ásdísar Sigurð- ardóttur, hinni mikilhæfustu konu. Þau eignuðust tvö börn: Kristín, kennari, gift Torfa Stef- ánssyni, presti á Þingeyri, og Jón, fulltrúi, sem er kvæntur Erlu Sveinsdóttur, bankaritara. Barna- börnin voru öll augasteinar afa síns og hjá þeim, börnum sínum og Ingibjörgu var hann sælastur. Með Magnúsi Jónssyni er geng- inn einn af beztu sonum okkar kynslóðar. Hann er í fylkingunni, sem mótaði öldina. Ég, kona mín og ættmenni, vott- um Ingibjörgu og öllum ástvinum Magnúsar Jónssonar innilegustu samúð. Ástúðar- og saknaðarkveðju flyt ég þeim frá fólkinu í Norður- landskjördæmi eystra. Vini mínum þakka ég samfylgd- ina. Jónas G. Rafnar Við kvöddumst gjarnan á gang- inum fyrir framan skrifstofur okkar að loknu dagsverki með nokkrum gamanyrðum og glettni. Svo var einnig fimmtudaginn 12. janúar, ekki sízt vegna þess að við áttum framundan daginn eftir hinn árlega fagnað okkar með starfsfólki bankans undir forsæti Magnúsar. Dagurinn skyldi vera meiri fyrir það, að vígja átti nýjan vinnusal í afgreiðslu bankans og þó miklu fremur vegna þess, að nú átti að kveðja með nokkurri við- höfn félaga okkar, Þórhall Tryggvason, sem hætti störfum fyrir fáeinum dögum og þakka honum langa samvinnu okkar þriggja og annarra, og meira en hálfrar aldar farsælt starf fyrir Búnaðarbanka íslands. Allra sízt óraði mig fyrir þvi á þeirri stundu, að feigðin kallaði nú að Magnúsi og þessi væri okkar Kveðja frá Sjálfstœðisflokknum Fráfall Magnúsar Jónssonar frá Mel snertir óneitanlega strengi í brjóstum sjálfstæðismanna. Með honum er genginn mikilhæfur og traustur forystumaður. Hann helgaði hugsjónum og baráttu- málum sjálfstæðismanna drýgstan hluta starfsævi sinnar. Þjóðin sér að baki heilsteyptum stjórnmálamanni, sem vann henni af einurð, festu og rétt- sýni. Það er almælt, að Magnús Jónsson ávann sér strax á unga aldri hylli umbjóðenda sinna. Hann naut mikils trausts sam- herja og virðingar mótherja. Þar hefur komið til heiðarleg og markviss framganga í hverju því máli, er hann kom að. Magnús Jónsson hófst upp af verðleikum sínum. Hann var ekki borinn til metorða eða mannvirðinga. Þvert á móti þurfti hann að vinna til trausts- ins. Sjálfstæðismenn völdu Magnús Jónsson til margra og mikilla trúnaðarstarfa. Ungir sjálfstæðismenn kusu hann til forystu í samtökum sínum. Um árabil gegndi hann því vanda- sama starfi að veita forstöðu skrifstofu Sjálfstæðisflokksins. Þar hélt hann um innviði flokksstarfsins. Hann var fyrst kjörinn til setu á Alþingi fyrir Eyfirðinga og síðar fyrir Norð- urlandskjördæmi eystra. Síðari hluta viðreisnartíma- bilsins var Magnús Jónsson fjár- málaráðherra I ráðuneytum þeirra Bjarna Benediktssonar og Jóhanns Hafsteins. Samherjar Magnúsar Jónssonar mátu festu hans og aðhaldssemi við stjórn ríkisfjármálanna. Hitt sýnir þó miklu fremur yfirburði hans í þessu erfiða og ábyrgðarmikla starfi að almennt er vísað til starfa hans þar til fyrirmyndar og eftirbreytni. Á erfiðum tím- um hefur örugglega reynt á þrautseigju og æðruleysi í fjár- málaráðuneytinu. Árangur starfsins á þessum árum sýnir, að hann hefur ráðið yfir þessum eiginleikum. Eftir að Geir Hallgrímsson tók við formennsku í Sjálfstæð- isfiokknum kusu sjálfstæðis- menn Magnús Jónsson til þess að gegna starfi varaformanns. Það var óumdeild ákvörðun og rökrétt framhald þess, sem á undan var gengið. Sjálfstæðis- menn væntu áfram mikils af Magnúsi Jónssyni. Áður en varði gripu örlögin þó í taumana. í einni svipan var heilsu hans þannig komið, að hann gat ekki deilt starfskröftum sínum og varð því að hverfa frá störfum á vettvangi stjórnmálanna. Það var áfall fyrir Sjálfstæðisflokk- inn. Störf Magnúsar Jónssonar marka djúp spor I sögu Sjálf- stæðisflokksins og hann áorkaði miklu í þágu þjóðar sinnar. Um langan tíma var helstu málum þessa lands ekki ráðið án þess að hann kæmi við sögu. Sjálfstæð- ismenn sakna þessa mæta og merka forystumanns. Hinsta kveðja er helguð minningu um gifturíka starfsævi og góðan dreng. Á þessum degi er hugur og samúð sjálfstæðismanna hjá frú Ingibjörgu, börnum þeirra og fjölskyldu. Þorsteinn Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.