Morgunblaðið - 20.01.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1984
13
Aldrei verða þeir fundir og
mannfagnaðir taldir, sem við
Magnús mættum á saman í starfi
okkar. Margar sögur mætti segja
frá því bæði af fundumum og þó á
stundum ekki síður af ferðunum á
fundina, en þær voru oft erfiðar,
eins og þá var háttað samgöngum.
En þær ferðir, sem við fórum með
fjölskyldum okkar á berjamó eða
ferðirnar þegar við brugðum
okkur upp í Heiðmörk, eru mér þó
minnisstæðari; þegar við tókum
einn og einn slag í spilum heima
hjá hvor öðrum. Þær stundir
verða mér ætíð ógleymanlegar og
munu ekki gleymast, þó að fjúki í
mörg önnur spor. Trú mín er sú,
að við Magnús eigum eftir að tína
ber saman, þó það verði ekki aust-
ur í Grímsnesi eða vestur á Snæ-
fellsnesi.
Með þessum línum er ekki í ráði
að mæla eftir vin minn og félaga
Magnús Jónsson. Orð skipta þar
svo litlu máli, orð geta aldrei lýst
þeim söknuði sem ég ber í brjósti,
hugurinn einn segir meira, sem
aldrei verður tjáð.
En Magnús var ekki einn í lífs-
baráttu sinni. Eiginkona hans
Ingibjörg Magnúsdóttir var ein-
stakur lífsförunautur, sem studdi
hann og styrkti allt frá því þau
kynntust. Og þrek hennar bar af í
sambandi við veikindi Magnúsar
síðari árin. Þá var hún honum eins
og alltaf fyrr, stoð og stytta, sem
hann gat treyst og aldrei brást.
Nú að leiðarlokum flytjum við
Sirrí okkar hjartanlegustu kveðj-
ur til Ingibjargar, barna þeirra,
tengdabarna og barnabarna og
biðjum þeim blessunar á ókomn-
um árum. Dauðans sorg standa
þeir einir af sér, er treysta Guði
og handleiðslu hans.
Af eilífðarljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en auga sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(E.Ben.).
Gunnar Helgason
Með okkur Magnúsi Jónssyni
bankastjóra tókst strax góður
kunningsskapur í lagadeild Há-
skóla íslands.
Við vorum níu, sem þreyttum
fyrrihlutapróf vorið 1943 og er
hann þriðji maðurinn í þeim hópi,
sem kveður þetta tilverustig. Áður
eru gengnir þeir Sigurður Áskels-
son, sem var síðast fulltrúi í
Stjórnarráðinu, og Páll S. Pálsson,
hæstaréttarlögmaður.
Allir fundu að Magnús Jónsson
var vandaður og traustur maður,
íhaldssamur í orðsins bestu
merkingu og hégómalaus.
Hann var og gætinn og grand-
var fjármálaráðherra og það er
vegna eins embættisverks hans í
því starfi, að ég nú á prenti votta
honum virðingu og þakklæti.
Þau ágætu systkini Guðríður
Stefánsdóttir Green og Gunnar
Stefánsson hugðust selja fasteign
sína Austurstræti 12 en kvöddu
mig að lokum til þeirra ráða að
Listasafni íslands skyldi afsöluð
eignin án annarrar greiðslu en líf-
eyris til þeirra systkina, sem hald-
ast skyldi meðan þeirra nyti við.
Eins konar „proventu-samkomu-
lag“.
Þetta var einföld lausn og
beggja hagur.
Málið virtist hins vegar ætla að
stranda í menntamálaráðuneytinu
enda þótt þáverandi menntamála-
ráðherra væri þessu hlyntur. Virt-
ist sem kerfiskarli í toppstöðu ætl-
aði að takast að koma í veg fyrir
þessa ráðstöfun, undir því fororði,
að ríkið gæti ekki staðið í „húsa-
braski“. Þá var það að ég leitaði til
Magnúsar Jónssonar og hann átt-
aði sig strax á því hve góð lausn
þetta væri. Málið var leyst.
Að öðrum ólöstuðum efast ég
um, að aðrir ráðherrar hefðu á
þessu máli svona góðan skilning.
Þannig eignaðist Listasafn ís-
SJÁ BLAÐSÍÐUR
22-25.
Gæði.nr.
orramatur
Blandaður
siirmatur i,!«>vvsu
(Lundabaggi- Sviðasulta - »
Hrútspungar- Bringur-Lifrapylsa og blóðmör)
AÐEINS
2ja lítra fata
Nettó innihald ca. 1,3 kg.
245'
Súrí
hvalsrengi Blandaður súrmatur
^ • 1 F á á* a -" í\ nnrlnknn/ii OxiiAníM iltn J W « V
i bakka
2ja lítra fata
m/mysu
Nettó innihald ca. 1,1 kg
(Lundabaggi — Sviöasulta
Hrútspungar— Bringur —
Lifrapylsa — Blóðmör)
Fatan
Þorrabakki
c.a. 550g
95°°
.00
pr.kg.
Kokkamir
kynna í
DAG
ÞORRAMAT <>g gefa
að smakka
Hreinsuð svið
7 JmM Pr ks-
Nýreykt liangilæri 162-^0 pr.kg.
Soðið Hangikjöt1 sneiðum385.00Pr kg
Nautahakk l.fl. 1()5*00 prkg-
Kii E idahakk \ )5«0' r.kg.
gg AÐEINS 89-00 Pr k§
Kjúklingar 5 stl k. í poka j [25 M 1 pr.kg.
Ný sviðasulta
Hákarl
Marineruð síld
Sildarrúllur
Kryddsild
Harðfiskur
Nýreykt
TILBORÐSVERÐ Á ÝSU OG STEINBÍTI
Opið til kl. 8 í Starmýri en
kl. 7 í Austurstræti t(nTí'r;run lau}:anla2
AUSTURSTRÆTI 17
STARMÝRI 2