Morgunblaðið - 20.01.1984, Page 18

Morgunblaðið - 20.01.1984, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1984 Blómlegt lags eldri Hveragerði 18. janúar. Félag eldri borgara var stofnað hér í Hveragerði fyrir rúmu einu ári. Hefur markmið þess verið að lífga upp á tilveru fullorðna fólks- ins og má segja að vel hafi til tek- ist. Einu sinni í mánúði er félagið með „opið hús“ og einnig hafa ver- ið farnar ferðir í leikhús o.fl. Formaður félagsins, frú Alda Andrésdóttir bankamaður og Menningarmiðstöðin við Gerðuberg: Málfreyjur halda fund á laugardaginn ANNAR fundur fyrsta Ráðs málfreyja á íslandi starfsárið 1983 — 84 verður haldinn í Menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi laugardaginn 21. jan. nk. Fundir fyrsta Ráðs eru haldnir fjórum sinnum á ári og koma þá saman málfreyjur hvaðnæva af landinu. Tólf málfreyjudeildir eru starfandi á íslandi og sjá þær um undirbúning að fundum fyrsta Ráðs til skiptis. Málfreyjudeildin Melkorka í Reykjavik heldur fund- inn að þessu sinni. Málfreyjusamtökin eru opin öll- um konum. Forseti málfreyju- samtakanna fyrir starfsárið 1983—’84 er Kristjana Milla Thorsteinsson. starf „Fé- borgara“ hreppsnefndarfulltrúi, með meiru, hafði sambandi við mig í gær og gaf nokkrar upplýsingar um fé- lagsstarfið. Sagði hún að í undir- búningi væri ferð í íslensku óper- una til að sjá La Traviata og kvað hún það von stjórnarinnar að sem flestir félagar gætu tekið þátt í förinni. Farið verður með rútu frá Hveragerði kl. hálfsjö nk. sunnu- dag. Þá sagði Alda að í vetur yrði „opið hús“ einu sinni í mánuði og væri það alltaf fyrsta laugardag í mánuði. Þar er jafnan boðið upp á góðar veitingar og ýmiskonar dægrastyttingu til fróðleiks og skemmtunar. Á jólaföstunni tók félagið virkan þátt í einu aðventu- kvöldinu og bauð, ásamt sóknar- nefndinni, öllum kirkjugestum til kaffidrykkju í safnaðarheimilinu að lokinni sérlega ánægjulegri at- höfn þar sem börn úr grunnskóla Hveragerðis fluttu helgileiki. Síðastliðið sumar stóð félagið hópferð austur í sveitir. Var ferð- inni heitið austur að Kirkjubæj- arklaustri á afmælisdegi kirkj- unnar, en vegna sandbyls á Mýr- dalssandi urðu þau frá að hverfa, en fóru þess í stað um Fljótshlíð- ina og gerðu þrátt fyrir breytta áætlun góða reisu. Að lokum sagði Alda að ýmis- legt væri í athugun varðandi starfið í framtíðinni og kæmi það í ljós síðar. Ég vil nota tækifærið og senda öldruðum borgurum í Hveragerði bestu nýársóskir. , Sigrun BÍÓHÖLLIN frumsýnir í dag hina umtöluðu mynd „The Day After". Mynd þessi sýnir, hve alvarlegar afleiðingar kjarnorkustríð getur haft og hefur hvarvetna hlotið mikið umtal, þar sem hún hefur verið sýnd. Var kvikmyndin eins og kunnugt er af fréttum frum- í fiskvinnu Eskifjördur 17. janúar. LOÐNUSKIPIN liggja flest í höfn og hafa mörg þeirra legið hér inni síðan á föstudag. Þeir finna lítið af loðnu sjómcnnirnir og taka þann kostinn að bíða í landi þar til ástand loðnunnar breytist. Þá voru bæði rannsóknarskipin í höfn en þau fóru aftur út í gær til að fylgjast með loðnugöngunni. Vetrarvertíðin fer rólega af stað hér. Tveir bátar eru byrjaðir á línuveiðum og hafa fengið þrjar og hálfa til sjö lestir í róðri. Einn sýnd í sjónvarpi í Bandaríkjunum seint á síðari ári. Myndin gerist í Kansas City. Kjarnorkuflaug er send til Sovét- ríkjanna og Sovétmenn svara í sömu mynt. Myndin lýsir afleið- ingunum. á Eskifirði bátur er á rækjuveiðum. Þrjú skip eru á loðnuveiðum, þá eru einnig gerðir út tveir togarar. Hraðfrystihús Eskifjarðar hef- ur nýlega ráðið til sín 10 danskar stúlkur því skortur hefur verið á kvenfólki í fiskvinnsluna og munu þær vinna hjá fyrirtækinu í vetur. Við höfum alveg sloppið við öll óveður í vetur. Veður hefur verið gott, stillt og frost hefur verið um sjö gráður seinustu dagana. — Ævar. Ýsuveiðar með 6 tommu möskva: Verða ekki framlengdar - segir Halldór Ásgríms- son ráðherra „ÞAÐ hefur verið ákveðið að framlengja ekki leyfi til ýsuveiða með 6 tommu möskva í Faxaflóa. Leyfilegt var að stunda veiðar með þessum hætti til 15. janúar og ég hef tekið þá afstöðu að breyta ekki fyrri ákvörðunum í þessum efnum,“ sagði Halldór Ásgríms- son, sjávarútvegsráðherra, í sam- tali við Morgunblaðið. „Við höfum aldrei gefið vil- yrði um að þetta yrði framlengt og margir, bæði sem þessar veiðar hafa stundað svo og aðr- ir, hafa skipulagt veiðar sam- kvæmt því, að leyfið rynni út á þessum tíma. Hins vegar má halda áfram veiðum í 7 tommu möskva, sýnist mönnum svo,“ sagði Halldór Ásgrímsson. Leiðrétting í frétt Mbl. í gær um hækkun byggingarvísitölu frá desember til janúar misritaðist prósentuhækk- unin. Þar sem stóð 0,8 átti að standa 0,08. Leiðréttist þetta hér með. Tíu danskar stúlkur Greinargerð um grundvöll fiskveiðiráð- gjafar Hafrannsóknarstofnunarinnar Að undanförnu hafa líffræð- ingarnir Jón Gunnar Ottósson, Jón Kristjánsson, Sigurður Snorrason og Tumi Tómasson varpað fram fullyrðingum og spurningum um fræðilegan grundvöll þeirrar fiskveiðistefnu sem Hafrannsóknastofnunin hef- ur mælt með. Hafrannsókna- stofnunin og Líffræðifélag ís- lands efndu til fundar 13. janúar sl. um þetta efni. Hugmyndir líf- fræðinganna hafa verið reifaðar í fjölmiðlum og orðið tilefni for- ystugreina, þar sem grundvöllur fiskveiðistefnunnar hefur verið dreginn í efa. Hefur komið fram alvarlegur misskilningur varð- andi rannsóknir og niðurstöður Hafrannsóknastofnunarinnar og þar með fiskveiðistefnunnar. Stofnunin telur því rétt að koma á framfæri eftirfarandi leiðrétt- ingum og athugasemdum. Grundvöllur fi.sk- veiðistefnunnar Meginkenning líffræðinganna Jóns Gunnars Ottóssonar og Sig- urðar Snorrasonar er að ekki séu líffræðilegar forsendur fyrir þeirri fiskveiðistefnu, sem Haf- rannsóknastofnunin hefur mælt með, enda sjái þeir engin merki um ofveiði þorskstofnsins. Þessa kenningu byggja þeir einkum á því, að ekkert samband sé milli hrygningarstofns og niðjafjölda. Þess vegna standist ekki að hægt sé að byggja upp stofninn með því að stækka hrygningarstofn, og ennfremur að ekki sé hægt að byggja upp stofn sem gefi af sér jafnan og góðan afla ár eftir ár. Hér kemur fram sá megin- misskilningur að gert hafi verið ráð fyrir beinu sambandi milli hrygningarstofns og niðjafjölda. Auk þess hefur því verið haldið fram að hér væri um ný sjónar- mið að ræða varðandi þroskstofn- inn. Þessu fer að sjálfsögðu fjarri. í því sambandi má t.d. benda á eftirfarandi tilvitnun í skýrslu Hafrannsóknastofnunar- innar um ástand nytjastofna á íslandsmiðum og aflahorfur 1978 (sjá Hafrannsóknir, 13. hefti, 1978). „Ört minnkandi hrygningar- stofn hefur leitt til vaxandi lík- inda á því, að klak þorsksins mis- farist. Enda þótt ekki hafi verið sýnt fram á samhengi milli stærðar hrygningarstofns og niðjafjölda, er þó auglóst, að ein- hver eru þau stærðarmörk hrygn- ingarstofnsins, þar sem hann verður ófær um að gegna líf- fræðilegu endurnýjunarhlutverki sínu. Lítill hrygningarstofn samsett- ur af tiltölulega fáum aldurs- flokkum, kemur til hrygningar á takmörkuðu tímabili og veltur því á miklu, að umhverfisaðstæð- ur séu hagstæðar einmitt þá. Þegar hrygningarstofn er stór og í honum eru margir aldursflokk- ar, dreifist hrygning yfir lengri tíma, sem stuðlar að því að ein- hver hluti stofnsins hrygni við hagstæðar aðstæður. Líta má á stóran hrygningarstofn sem að- lögun tegundarinnar að breyti- legum umhverfisaðstæðum og tryggingu fyrir viðhaldi hennar." í framhaldi af þessu má benda á að hrygningarstofninn hefur minnkað ört síðustu 3—4 árin og er nú um 300 þúsund tonn sam- anborið við um 700 þúsund tonn árið 1980. Fyrir þann tíma var stofninn minnstur um 400 þúsund tonn árið 1975. Samband hrygningarstofns og niðjafjölda er enn óþekkt og að líkindum breytilegt eftir um- hverfisaðstæðum á hverjum tíma. Slíkt samband getur hæg- lega verið fyrir hendi enda þótt það sé ekki sjáanlegt af fyrir- liggjandi gögnum. Reynsla bæði hérlendis og erlendis hefur jafn- an verið sú að hrun fiskstofna hefur verið afleiðing þess að hrygningarstofn hefur farið nið- ur fyrir svokölluð hættumörk. Þau hafa ekki verið greind fyrr en eftir að skaðinn er skeður. Markmið Hafrannsóknastofnun- arinnar við þessar aðstæður hef- ur mótast af því að halda stærð hrygningarstofnsins innan sögu- legra marka og er þar m.a. höfð hliðsjón af samstarfi og reynslu á vettvangi Alþjóðahafrannsókna- ráðsins. Verulegs misskilnings virðist gæta hjá líffræðingunum tveim- ur um að ekki sé hægt að búa til stofn, sem gefi af sér jafnan og góðan afla ár eftir ár. Hér er til umræðu eitt af meginmarkmið- um fiskveiðistjórnunar víða um lönd, þ.e. að stjórna fiskveiðum þannig að hámarksafrakstur (varanlegur) fáist úr tilteknum fiskstofni. Hugtakið um varanlegan há- marksafrakstur er engan veginn gallalaust og hefur raunar sætt gagnrýni á síðustu árum. í skýrslum Hafrannsóknastofnun- arinnar er vissulega gengið út frá forsendu varanlegs hámarksaf- raksturs og reyndar tiltekið hver hann sé. Þar með er þó engan veginn litið fram hjá því að sá afrakstur ræðst verulega af styrk þeirra árganga, sem veiðin bygg- ist á hverju sinni svo og öðrum ytri skilyrðum. Eftir því sem veiðin byggist á fleiri árgöngum ættu aflasveiflur að verða minni. Hugtakið varanlegur afrakstur er einkum gagnlegt til að meta ávinning mismunandi fiskveiði- stefna. Stjórn fiskveiða á þessum grundvelli hefur gefið góða raun hjá ýmsum nytjastofnum hér við land, t.d. síld og humri. Stjórn fiskveiða felst í raun í því að nýta tiltekinn stofn þannig að ekki komi til ofveiði, sem skilgreina má á eftirfarandi hátt: 1. Ofveiði sem leiðir til minnk- andi viðkomu eða viðkomubrests þegar hrygningarstofn fer niður fyrir viss mörk. Eins og að fram- an greinir hefur ekki verið sýnt fram á slíka ofveiði í íslenska þorskstofninum. 2. Ofveiði sem hlýst af því að sókn í smáfisk er það mikil að fiskurinn gefur ekki hámarksaf- rakstur. Þyngd tiltekins þorskár- gangs vex ört til 6—7 ára aldurs ef ekki er gert ráð fyrir fiskveiði- dauðsföllum. Vöxtur hvers ein- staklings á þessu aldursskeiði gerir því betur en að hafa við náttúrulegum afföllum. Þetta hefur ekki breyst á síðustu árum enda þótt vöxtur hafi minnkað. Stækkun möskva í togveiðar- færum 1976 og 1977 og fleiri að- gerðir höfðu að markmiði að sporna við ofveiði af þessu tagi. Otvírætt er af gögnum Hafrann- sóknastofnunarinnar að þessar aðgerðir hafa borið umtalsverðan árangur sérstaklega á tímabilinu 1977-80. 3. Ofveiði, sem leiðir af því að meira er veitt úr stofninum á til- teknu tímabili en sem nemur viðbót vegna nýliðunar og vaxtar, þannig að stofninn minnkar. Til- laga Hafrannsóknastofnunarinn- ar um þorskafla á árinu 1984 miðast við að koma í veg fyrir slíka ofveiði. Þar sem stærð stofnsins er nú í lágmarki og ár- legur vöxtur því einnig og nýliðun síðustu ára auk heldur léleg, er aflamarkið óhjákvæmilega lágt. 4. Hagræn ofveiði. Síðast en ekki síst er mikilvægt að stofninn sé sem stærstur af hagrænum ástæðum. Þá er unnt að ná þeim afla sem stofninn gefur af sér með minnstum tilkostnaði. Stór stofn sem er samsettur úr mörg- um árgöngum er auk þess minni sveiflum háður í stærð og þar með afrakstri, vegna tiltölulega minni áhrifa einstakra árganga á stofninn í heild. Um áratuga skeið hefur verið ljóst að stærð árganga sjávar- fiska er mjög breytileg og að afla- brögð eru óhjákvæmilega háð stærð árganganna á hverjum tíma. Einnig hefur lengi verið talið ljóst að stærð árganga réð- ist að mestu af umhverfisaðstæð- um á fyrsta æviskeiði ungviðis- ins. Þær hugleiðingar, sem fram komu í erindi líffræðinganna tveggja í þessu sambandi eru hluti þeirrar umræðu, sem fram hefur farið á þessu sviði um langt árabil, án þess að hjá þeim hafi nokkuð nýtt komið fram. Minnkandi vöxtur þorsks Fram hefur komið hjá fiski- fræðingunum Jóni Kristjánssyni og Tuma Tómassyni, að sam- dráttur í vexti þorsks á síðustu árum stafi af fæðuskorti, sem orsakist af of mikilli mergð smá- fisks í kjölfar þess að möskvi togveiðarfæra var stækkaður 1976 og 1977. í þessu sambandi má nefna að mergð uppvaxandi þorskungviðis hefur verið með minnsta móti á uppeldisstöðvunum undanfarin ár, þar sem nýliðun þorsks hefur verið með lakasta móti allt síðan 1977, að árinu 1980 undanskildu. í annan stað sýna fæðurann- sóknir að magafylli hefur verið óbreytt hjá smáþorski (u.þ.b. 2 ára og yngri) síðan 1976. Maga- fylli virðist á hinn bóginn hafa minnkað hjá stærri fiski, en fæðuval þessara tveggja stærðar- flokka er mjög mismunandi. Loks sýna gögn Hafrannsókna- stofnunarinnar að minnkandi vaxtar tekur ekki að gæta að marki hjá þorski fyrr en árið 1979 og þá einkum hjá 3 ára fiski og eldri. Með hliðsjón af þessum atrið- um verður að teljast ólíklegt að of mikil mergð smáfisks sé orsök þeirra breytinga sem orðið hafa á vexti þorsksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.