Morgunblaðið - 20.01.1984, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 20.01.1984, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1984 19 HÁSKÓLABÍÓ hefur hafid sýningar á kvikmyndinni „Who Will Love My Children?", sem á íslenzku hefur hlotið nafniö „Hver vill elska börnin mín?“. Aöalhlutverk leikur Ann Margret. Myndin fjallar um 10 barna móður, sem er dauðvona af krabbameini, og baráttu hennar við það að finna börnum sínum góða foreldra áður en hún deyr. Eiginmaðurinn er áfengissjúkl- ingur og því ekki til stórræða í barnauppeldi. í kynningu kvikmyndahússins um myndina segir m.a.: „Fátt er sorglegra en þegar móðir deyr frá ungum börnum og „Hver vill elska börnin mín?“ lýsir harmleiknum á áhrifamikinn hátt. Þessi mynd lætur engan ósnortinn." Þorrafagnaður Frí- kirkjusafnaðarins Þorrafagnaður Fríkirkjusafnaöar- ins veröur haldinn í Oddfellow- húsinu aö Vonarstræti 10 á sunnu- dagskvöld og hefst hann kl. 19.00 meö borðhaldi. Þar verða á borðum allar teg- undir af íslenskum mat, sem kall- ast samræmdur matur forn hjá þeim í Árnastofnun. í fyrra var húsfyllir og við vonum, að svo verði einnig nú. Dóra Reyndal, söngkona, skemmtir með söng við undirleik Pavels Smíd og eftir borðhald verður stiginn dans við dansmúsík Þorvaldar Björnssonar og félaga. Aðgöngumiðar eru seld- ir í versluninni Brynju, Laugavegi 29, þangað til í dag, föstudag, 20. janúar. (íunnar Björnsson, fríkirkjuprestur. Ýmsar aðrar skýringar eru hugsanlegar á minnkandi meðal- lengd þorsks: í fyrsta lagi getur aukin sókn hafa valdið lækkun á meðallengd þorsks. Fiskar úr sama árgangi vaxa mishratt. Lengd 5 ára fisks er t.d. á bilinu 45—80 sm. Stærstu fiskarnir úr hverjum árgangi koma að jafnaði fyrr inn í veiðina en þeir sem hægar vaxa. Við venjulegar aðstæður veiðist því tiltölulega meira af hrað- vaxta fiski en þeim er hægar vex. Þetta breytist þó ef sóknin eykst því að hægvaxta fiskur veiðist þá í auknum mæli. Við slíkar að- stæður lækkar meðallengd hvers árgangs. I öðru lagi verður ástand þorskstofnsins vart skoðað án til- lits til ástands loðnustofnsins á hverjum tíma, þar sem loðna er mikilvægasta fæða þorsks 40—100 sm að lengd. Astand loðnustofnsins versnaði mjög ört 1979—82 í kjölfar ört vaxandi sumar- og haustveiða á loðnu. Sú þróun er samstiga minnkandi vexti og minnkandi magafylli hjá þessum þorski. Á síðasta ári stækkaði loðnustofninn hins veg- ar verulega, en áhrif þess á þorskstofninn liggja enn ekki fyrir. Loks ber að nefna að ástand sjávar hefur verið mjög breyti- legt síðustu árin og almennt með lakara móti síðan 1975 og raunar allt síðan 1965, með skamvinnu „hlýskeiði" árin 1972—74 og 1980. Einnig hefur minnkandi vöxtur á síðustu árum engan veginn tak- markast við þorsk, heldur er um slíkt að ræða hjá ýmsum öðrum fiskstofnum, t.a.m. hjá uppsjáv- arfiskum eins og loðnu og síld. 1 þessu sambandi má og hafa í huga að efnaskipti fiska verða hægari við lækkandi hitastig. Kannsóknir í sjávarvistfræði Þeir líffræðingar sem hér hafa verið nefndir hafa lagt sérstaka áherslu á að taka þurfi meira til- lit til samspils fiskstofna inn- byrðis og við aðra þætti lífríkis- ins í tengslum við stjórn fisk- veiða og mat á afrakstri ís- landsmiða. Ennfremur hafa þeir lagt áherslu á nauðsyn aukinna rannsókna á þessum sviðum, þ.e. á sviði sjávarvistfræði. Hafrann- sóknastofnunin tekur eindregið undir þessi sjónarmið. Ljóst er að þær spurningar sem vaknað hafa á síðustu misserum og árum um ástand og þróun þorskstofnsins eru að verulegum hluta vistfræðilegs eðlis. Þeim verður því ekki svarað til hlítar nema til komi stórlega auknar rannsóknir á vistfræðilegu sam- spili nytjastofna innbyrðis sem og við aðra hluta lífríkisins og ólífræna umhverfisþætti. Stefna Hafrannsóknastofnun- arinnar í vistfræðirannsóknum kemur fram í langtímaáætlun Rannsóknaráðs ríkisins fyrir tímabilið 1982—87. Þar segir á bls. 98 og 103: „Með vaxandi þekkingu á nytjastofnum hefur komið sífellt betur í ljós hversu náin tengsl eru milli þeirra og annarra lífvera hafsins svo og ólífrænna um- hverfisþátta. Jafnframt er ljóst að þessi vistfræðilegu tengsl verða ekki könnuð til hlítar nema rannsóknum sé beint að öllum þeim þáttum sem um er að ræða. Aukin þeking á sviði vistfræði hafsins er því forsenda fyrir betri skilningi á lífinu i hafinu i heild svo og afkomu og hegðun nytja- stofna á hverjum tíma.“ „Gert er ráð fyrir að mannafli verði aukinn talsvert á ýmsum sviðum umhverfis- og vistfræði- rannsókna. Alls er hér um að ræða ársverk 2,5 sérfræðinga og ársverk 4,4 rannsóknarmanna. I heild er aukinn mannafli til um- hverfis- og vistfræðirannsókna eingöngu ætlaður til þess að efla undirstöðurannsóknir á þessum verkefnasviðum." Ljóst er að sjávarvistfræði- rannsóknir hafa ekki hlotið þann meðbyr sem þeim er hér ætlaður og stjórnvöld hafa formlega stað- fest. í raun hafa fjárveitingar til hafrannsókna lækkað á fyrri helmingi þess tímabils sem lang- tímaáætlunin nær til. Hlutdeild vistfræðirannsókna í þeim fjár- veitingum hefur ekki stækkað. Hér þarf að verða breyting á ef áform um auknar vistfræðirann- sóknir eiga að ná fram að ganga. Hafrannsóknastofnunin 19.1.1984. Jón Jónsson. Athugasemd frá landlækni Morgunblaöinu hefur borizt eftir- farandi frá landlækni, Ólafi Ólafs- syni: „Hr. ritstjóri. Bréf það, er birt var í blaði yðar þann 19.1 ’84 undir fyrisögninni „Svar landlæknis við fyrirspurn lögmanns Hundavinafélagsins" var birt án samráðs við mig. í kaflanum um Taenia Ovis skal koma fram, að sá sullur berst ekki í menn. Ennfremur skal leiðrétt, að líkur á að hundaæði hafi borizt hingað til landsins var 1765, en ekki 1975. Olafur Ólafsson, landlæknir." Aukasýning hjá Stúdentaleikhúsi Aukasýning á Svívirtum áhorf- endum eftir Peter Handke verður í Tjarnarbæ sunnudaginn 22. janú- ar kl. 20.00. Leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir. Athugið að þetta er allra síðasta sýning. Stúdentaleikhúsið frumsýnir annað verk í Tjarnarbæ fimmtu- daginn 26. jan. Það er „Jakob og meistarinn** eftir Milan Kundera í leikstjórn Sigurðar Pálssonar. Kúplingar i f lesta bíla Höfum einnig kúplingsbarka, kúplingslegur og kúplingskol. Viögeröarsett I kúplingsdælur og hjöruliöskrossar. (fflmnaustkf Síðumúla 7-9, simi 82722. TbeCotnpleleChitch. avaxta ^grautar Tílbúnir beinfa dískinn! Þér getið valið á milli 6 tegunda af Kjarna ávaxtagrautum. Jarðaberjagraut, apríkósugraut, sveskjugraut, rabarbaragraut, eplagraut eða rauðgrauts. íslensk framleiðsla. Hollur og bragðgóður grautur unninn úr ferskum ávöxtum. Ávaxtagrauturinn er tilbúinn, aðeins þarf að hella úr femunni á diskinn, mjólk eða rjómabland út á, ef vill. Hentar við öll tækifæri, allsstaðar. Framleiðandi: Suitu og efnagerð bakara

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.