Morgunblaðið - 20.01.1984, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 20.01.1984, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1984 27 Hanna Arnlaugs- dóttir - Kveðjuorð Fædd 29. júlí 1928 Dáin 13. janúar 1984 „Vertu trúr allt til dauða og ég mun gefa þér lífsins kórónu." Þessi orð Opinberunarbókarinnar eru ofarlega í huga þegar minnst er Hönnu Arnlaugsdóttur. Ung komst hún til lifandi trúar á Jesúm Krist sem frelsara sinn, og í samfélaginu við hann átti hún upp frá því gleði sína og athvarf. Um leið fann hún sér líka stað í samfélagi trúaðra og kristilegum félögum helgaði hún krafta sína, einkum KFUK í Reykjavík, þar sem hún um árabil starfaði sem sveitarstjóri. Einnig söng hún í kórum félaganna og oft greip hún í gítarinn með vinkonum sínum, ávallt fús til að leggja lið þar sem þörf krafði. í stjórn KFUK sat hún um 6 ára skeið, lengst af sem ritari. Það starf fórst henni vel úr hendi eins og annað, sem hún tók að sér. Hún var óvenju hógvær og ljúflyndi einkenndi mjög fram- komu hennar, en óhrædd var hún að fylgja sannfæringu sinni þegar svo bar undir. Því var hún traust- ur ráðgjafi, og öll hennar störf báru þess vott að hún elskaði mál- efni Drottins. Hanna var röntgentæknir við Landspítalann og síðar Borgar- spítalann í mörg ár. Mun ekki ofsagt að þar sem annars staðar ávann hún sér ást og virðingu. Árið 1948 giftist hún Bjarna Ólafssyni, nú lektor við Kennara- háskóla íslands. Heimili þeirra hjóna var ávallt opið og lágu þangað margra spor, ekki síst hinna ungu sem þau störfuðu á meðal. Ófáar voru stundirnar þar sem broshýr húsmóðirin bar ekki aðeins fram góðar veitingar, held- ur var og lagið að leiða samtal gesta sinna þannig að ekki snerist einasta um veður og vind, heldur það sem máli skipti, já sköpum skiptir í lífi mannsins, samþand hans við Guð. í þeim efnum gaf hún gott veganesti þeim er þiggja vildu. Hanna og Biarni eignuðust 3 börn, Gunnar, Ólaf og Höllu, sem nú eiga öll sitt heimili. Fyrsta barnabarnið fæddist fyrir tæplega tveim árum og mikið gladdist Hanna yfir þeim litla dreng. Kringum 1955 veiktist Hanna nokkuð skyndilega og þurfti utan í alvarlegan uppskurð. Hugprýði ungu konunnar varð þá mörgum til vitnisburðar, því Hanna fór ekki dult með hvert hún sótti Kirkjur á landsbyggðinni: Messur á sunnudaginn Guðspjall dagsins: Matt.: 8.: Jesús gekk ofan af fjall- ínu. BÍLDUDALSKIRKJA: Á sunnu- daginn kemur veröur sunnu- dagaskóli kl. 11. Guósþjónusta kl. 14. Fermingarbörn lesa Ritningarlestra. Organist Bjarney Þóröardóttir. Sókn- arprestur. BORGARNESKIRKJA: Messa kl. 11 á sunnudaginn. Barna- messa veröur á morgun, laugardag, kl. 10.30. Sóknar- prestur. SAFNADARHEIMILI AÐVENT- ISTA, Selfossi: Á morgun, laugardag: Blblíurannsókn kl. 10.00. Guösþjónusta kl. 11.00. Henrik Jorgensen prédikar. AÐVENTKIRKJAN VEST- MANNAEYJUM: Á morgun, laugardag: Biblíurannsókn kl. 10.00. styrk sinn og rósemi. Glöð og þakklát reis hún á ný úr þeim veikindum til þess að takast á við verkefni lífs síns með endurnýjuð- um kröftum. Henni var þá sem og síðar gefið að snúast við reynslu sinni með jákvæðu hugarfari hetj- unnar. Á árunum 1974—1975 hófst sjúkdómsstríð Hönnu aftur, en ávailt eygði hún á brattri braut náð Guðs og blessun. Þetta hafði hún oft á orði við okkur á aðal- deildarfundum í KFUK, en þang- að sótti hún trúfastlega meðan heilsan frekast leyfði. „Guð er svo góður", gat hún sagt af trúnað- artrausti, þegar við hinar stóðum hryggar og spyrjandi yfir örlögum hennar. „Að vera sjúkur er að sitja í fangi Jesú“, sagði reyndur maður eitt sinn. Þessi djúpi leyndardóm- ur verður auðskildari í ljósi þess vitnisburðar sem Hanna bar fram. Frelsari hennar og Drottinn hélt henni uppi, bar hana beint inn í dýrð sína þegar þrótturinn þvarr. Við þökkum Guði fyrir Hönnu. Einlægur og hrífandi vitnisburður hennar mun geymast á meðal okkar. Hún var trú frelsara sínum allt til dauða og hefur nú tekið við lífsins kórónu úr hendi hans. Góður Guð styrki eftirlifandi eiginmann og ástvini alla. Stjórn KFUK í Reykjavík Kveðja frá Röntgentækna- félagi íslands Hanna Arnlaugsdóttir var ein af stofnendum Röntgentæknafé- lags fslands og átti sæti í stjórn þess um árabil. Við félagar Hönnu minnumst hennar sem brautryðjanda, er lagði veginn fyrir þá, sem á eftir komu. Við minnumst hennar frá fundum í félaginu. Virðuleg í framkomu og með ákveðnar skoð- anir. í máli hennar var ávallt virð- ingin fyrir manneskjunni í fyrir- rúmi. Hún vann störf sín hávaða- laust. Á erfiðum stundum hjá nýstofnuðu félagi, sýndi hún festu ÚT ER komid þriðja heftið af Eðlis- fræði 1 fyrir framhaldsskóla eftir fimm kennara, þá Staffansson, And- erson; Johansson, Fabricius og Niel- sen. Islenskað hafa sömu menn og fyrri heftin, þeir Guðmundur Árna- son, Þórður Jóhannesson og Þor- valdur Ólafsson, sem allir eru eðlis- fræðikennarar við Menntaskólann við Sund. Þetta þriðja hefti eðlisfræðinn- ar er merkt 1B og er rafmagns- fræði. Þar eru kynnt frumhugtök rafmagnsfræðinnar með sérstakri áherslu á rakstraumsrásum. Fjallað er um rafhleðslu og frum- stærðina straumstyrk og tengist sú umfjöllun frumstærðum afl- og þrautseigju. Við þökkum Hönnu Arnlaugs- dóttur óeigingjörn störf í þágu fé- lagsins og sendum eiginmanni hennar, Bjarna Ólafssyni, börnum þeirra og fjölskyldum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Hönnu Arnlaugsdóttur. Félagar í Röntgentækna- félagi íslands. fræðinnar sem heftið 1A fjallar um. Þá er sviðshugtakið útskýrt og skilgreindar stærðirnar rafsviðs- styrkur og rafspenna í jöfnu rafsviði. Síðan eru athugaðar ýmsar mæliaðferðir og einfaldar rásir og fjallað um íspennu og hún tengd hugtökum sem áður hafa komið fram. í viðauka er Ohms-lögmál leitt út frá aflfræðilegum forsenduin og lýst ýmsum tegundum spennu- gjafa. Þetta hefti, Eðlisfræði 1 (1B), er gefið út sem handrit eins og fyrri heftin. Það er 72 bls. að stærð í brotinu A4. Þriðja heftið af Eðl- isfræði I komið út

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.