Morgunblaðið - 22.01.1984, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984
51
Söluverð íbúða á landinu:
Hækkaði liðlega
48% á milli ára
Áttræð:
Þorsteina Jóhanns-
dóttir Vestmannaeyjum
Áttatíu ára afmæli á í dag
Þorsteina Jóhannsdóttir frá Þing-
holti í Vestmannaeyjum. Þor-
steina vr fædd á Brekku í Eyjum,
22. janúar 1904, og voru foreldrar
hennar Jóhann Jónsson smiður og
Kristín Árnadóttir.
Systir Jóhanns frá Brekku, Þór-
unn Jónsdóttir veitingakona, tók
Þorsteinu í fóstur og gekk henni í
móðurstað er hún var þriggja ára.
Þórunn bjó í Þingholti og rak þar
veitingasölu.
Upp frá þessum tíma bjó Þor-
steina í Þingholti, eða þar til 1968
er hún fluttist í litla íbúð hjá dótt-
ur sinni og tengdasyni að Búa-
staðabraut 15. Þetta heimili
missti Þorsteina í eldgosinu sem
hófst 23. janúar 1973, en þeir gest-
ir, sem glöddust með Þorsteinu á
69 ára afmæli hennar, voru rétt að
festa blund er umbrotin hófust.
Eldgosið hafði mikil áhrif á
hagi Þorsteinu, eins og annarra
Eyjamanna. Hún fluttist upp á
meginlandið til Reykjavíkur, en
jafnskjótt og hún hafði fundið sér
heimili úti í Eyjum var hún komin
aftur.
Fjórða heimili hennar á langri
ævi er Dvalarheimili aldraðra að
Hraunbúðum. Þar býr Þorsteina
nú, í rúmgóðu herbergi, sem er bú-
ið fallegum húsgögnum og er það
stolt hennar, svo og starfsfólks
heimilisins.
Aðeins 19 ára gömul giftist
Þorsteina Páli Jónassyni skip-
stjóra, ættuðum frá Eskifirði, en
Páll var þá 22 ára.
Stærstu áföll, sem Þorsteina
hefur orðið fyrir á lífsleiðinni, eru
er hún missti eiginmann sinn í
flugslysi á milli lands og Eyja 31.
janúar 1951. Það var mikið áfall
fyrir Þorsteinu að missa eigin-
mann sinn frá öllum börnunum,
eftir 28 ára farsælt hjónaband.
Þann 28. október 1983 missti
Þorsteina elsta son sinn, Emil, í
hörmulegu slysi er Sandey II
hvolfdi á Viðeyjarsundi.
Eins og áður sagði var Páll skip-
stjóri, en hafði ekki full skip-
stjórnarréttindi. Lýsir það best
samheldni og dugnaði þeirra
hjóna, að Páll settist í Stýri-
mannaskólann í Reykjavík 44 ára
gamall, til þess að fá meiri rétt-
indi. Það hefur þurft mikinn kjark
og áræðni til að setjast á skóla-
bekk í þá daga frá stórri fjöl-
skyldu og slíkt er ekki hægt, nema
húsmóðirin sé röggsöm og dugleg.
Alls eignuðust þau 16 börn. 13
komust á legg og eru 12 á lífi í dag.
Barnabörnin eru 55 og barna-
barnabörnin 34. Eru því afkom-
endur þeirra hjóna orðnir 105, en
líklega verður þessi tala komin í
110 innan skamms. Það er ein-
kenni Þingholtsfjölskyldunnar, að
öll börnin og tengdabörnin tengj-
ast meira eða minna sjómennsku.
Fjórir af sonum Þorsteinu hafa
verið skipstjórar og kunnir afla-
menn og þrír tengdasynir sömu-
leiðis. í dag hafa átta af barna-
börnum hennar útskrifast úr
Stýrimannaskólanum, þannig að
15 úr fjölskyldu Þorsteinu eru
skipstjórnarlærðir.
Það er ætíð gestkvæmt hjá
Þorsteinu á Hraunbúðum og mikið
um heimsóknir þangað af ýmsum
gestum og Þingholtsfjölskyldunni.
Þorsteina er mjög ánægð með
vistina á Hraunbúðum og umönn-
un starfsfólksins. Þorsteina hefur
ætíð verið hraust til heilsunnar,
en ekki er laust við nokkur þreytu-
merki í dag. Sjónin er farin að
gefa sig nokkuð, en að öðru leyti er
Þorsteina hress með lífið og til-
veruna.
í dag, sunnudag, tekur Þor-
steina á móti gestum í Akoges-
húsinu við Hilmisgötu.
Að lokum óska ég og fjölskylda
mín ömmu gæfu og gengis á kom-
andi árum.
Magnús Kristinsson
FASTEIGNAVERÐ hefur þróast
meö nokkuð öðrum hætti á nýliðnu
ári en næstu ár þar á undan.
Ef miðað er við tímabilið frá októ-
ber 1982 til sama tíma 1983 hækkaði
söluverð íbúða á landinu um liðlega
48%. Ekki var merkjanlegur munur
á höfuðborgarsvæðinu og öðrum
landshlutum eins og verið hefur oft
áður, að þvi er segir í frétt frá
Fasteignamati ríkisins. Þá segir:
Hækkunin er nokkru minni en verð-
bóiga var á þessu tímabili. Miðað
við byggingarkostnað lækkaði
raunvirði söluverðs um 11% en 20%
miðað við lánskjaravísitölu.
Hækkanir voru mjög breyti-
legar eftir tegundum fasteigna.
Mest hækkuðu litlar íbúðir en
stórar íbúðir hækkuðu minna.
Einbýlishús og raðhús hafa hækk-
að minna í verði en íbúðir í fjöl-
býlishúsum. Sérbýlishús í bygg-
ingu hafa hækkað minnst.
Greiðslukjör voru mjög hlið-
stæð því sem verið hefur undan-
farin ár. 75% eru greidd sem út-
borgun og eftirstöðvar lánaðar til
fjögurra ára með 20% ársvöxtum.
Helsta breytingin á greiðslu-
kjörum virðist vera sú að yfirtek-
in, verðtryggð lán verða sífellt
stærri hluti af kaupverði. Sú
þróun er eðlileg því nærfellt öll
lán sem veitt eru til íbúðakaupa
eru fullverðtryggð og hafa verið
síðustu 3—4 ár. Þessi þróun er
hins vegar svo hæg að hún hefur
enn sem komið er ekki haft áhrif á
hlutfall útborgunar.
Ibúðaverð á höfuðborgarsvæð-
inu stóð nærfellt í stað mikinn
hluta ársins. Helstu hækkanir á
árinu áttu sér stað á fjórum mán-
uðum. Febrúar, apríl, september
og október. 1 öllum ársfjórðungum
hækkaði verð sérbýlishúsa minna
en fjölbýlishúsa.
Fjöldi kaupsamninga, sem
notaður var við beinar markaðs-
kannanir á nýliðnu ári, var
nokkru meiri en áður. Það bendir
til þess að ekki hafi verið sam-
dráttur í fjölda á seldum eignum
frá fyrri árum.
Brú yfir Grafarvog:
Tilboði upp á 17,8 milljónir tekið
BORGARRÁÐ hefur samþykkt sam-
hljóða að taka tilboði Árna Jó-
hannssonar byggingarverktaka, um
byggingu brúar yfir Grafarvog. Til-
boð Árna hljóðaði upp á um 17,8
milljónir króna, og var næstlægst
þeirra er bárust. Lægst var fyrirtæk-
ið Bergverk, um 2,2 milljónum kr.
lægra.
Magnús L. Sveinsson borgar-
ráðsmaður sagði í samtali við
Morgunblaðið, að fyrir hefði legið
álit ráðgjafa frá Verkfræðiskrif-
stofu Sigurðar Thoroddsen, þar
sem mælt var með að tilboði Árna
Jóhannssonar yrði tekið. Fyrir-
tæki hans hefði enda mikla
reynslu á sviði brúabygginga,
hefði byggt einar níu brýr á und-
anförnum árum, síðast Höfða-
bakkabrúna í Reykjavík.
HVERS VEGNA VARÐ UNO BÍLL ARSINS
Uno!
Þaö er ekkí nóg crð vera ,,bara” íallegur og
sparneytinn til þess ad ná kjöri, sem bíll ársins.
Áöur en atkvœöagreiöslan íer íram eru allir
helstu þœttir hvers bíls grandskoöaöir aí
bílasérfrœöingum oglokaniöurstaöaþeirra er
byggö á gaumgœfilegu mati á hverju atriöi.
Grundvallarþœttir í slíku mati eru heildar-
hönnun, þœgindi, öryggi, akstursþœgindi og
aksturseiginleikar, dugnaöur og sparneytni,
notkunarmöguleikar og ánœgja viö akstur.
FLAT UNO var þvíkjörinn bíll ársins vegnaþess
aö hann fékk bestu útkomuna þegar tillit haföi
veriö tekiö til allra þeirra kosta, sem góöan bíl
mega prýöa.
TVEIR BÍLAR FENGU 10 í EINKUNN,
FIAT UNO OG MERCEDES BENZ
í atkvœöagreiöslunni um bíl ársins eru gefnar
einkunnir frá 1 uppí 10. Aöeins tveir bílar fengu
einkunnina 10 hjá hinum 53 sérfrœöingum,
UNO tvisvar og MERCEDES BENZ einu sinni.
FRÁBÆRT FIAT-UNO-VERÐ
Þó lof og hrós hlaöist á UNO bjóöum viö hann
enn á sama frábæra veröinu. UNO er dýr og
vandaöur bíll en vegna hagstœörar gengis-
þróunar undanfarnamánuöi kostar hann ekki
fleiri krónur en raun ber vitni.
FIAT UNO 45. 3 DYRA
FIAT UNO 45, ES, 3 DYRA
FIAT UNO 45, SUPER, 3 DYRA
la. 219.000.-
ki. 238.000.-
Icr. 249.000.-
anaa
OPIÐ IDAG KL. 13.00 — 17.00
EGILL
VILHJÁLMSSON HF.
Smið/uvegi 4. Kópavogi. Simar 77200 - 77202