Morgunblaðið - 22.01.1984, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984
67
Eftir hugvitsamlagar pyndingar játaói „nornin“ ottast i sig hvaó
sem var.
akuryrkjusamfélag að ræða. í
hernaðarríki snýst átrúnaðurinn
upp á karlmenn og píslarvætti.
Ef fólk gerist óánægt og snýr sér
að náttúrudýrkun, líkt og nú
gerist, þá er það vegna þess að
hið iðnvædda karlmennskuveldi
hefur valdið því vonbrigðum.
Staðfesting og fortíðarljómi er
það sem allir sækjast eftir í trú-
arbrögðum.
Við leitum staðfestingar á því
sem við trúum í dag og sveipum
það ljóma, sem við höldum að við
höfum misst — þar er m.a. að
leita skýringar á gyðjudýrkun-
inni, sem nú er í tísku meðal ým-
issa hópa. Þó kann gyðjudýrkun
fyrri tíma að hafa haft í för með
sér jafn mikla misbeitingu valds
og skipulegri trúarbrögð þó hún
birtist í dag sem aðlaðandi sér-
viska og áróðurstæki í höndum
uppreisnargjarnra kvenna. Sá
farvegur sem við veljum okkur
til þess að tilbiðja heilagan
anda, skiptir líka minna máli en
það að við tilbiðjum hann og
höldum í heiðri. Tákn átrúnað-
arins getur verið tré, kona, karl-
maður eða dýr, en skiptir ekki
höfuðmáli. Á hinn bóginn verð-
um við að virða rétt hvors ann-
ars til trúleysis eða efahyggju.
Því trúarbrögð verða ekki annað
en ein tegund einræðis ef þeim
er þvingað upp á fólk.
Mannkynssagan er yfirfull af
blóðsúthellingum og óhæfuverk-
um, sem átt hafa sér stað f skjóli
trúarinnar. Engir tímar eru
óhultir fyrir galdraofsóknum —
til þess þjóna þær of margþætt-
um tilgangi. Á vettvangi stjórn-
málanna má með þeim koma
höggi á andstæðingana og velta
sök stjórnenda yfir á aðra. Með
galdraofsóknum má hafa stéttir,
eða hópa, s.s. konur og þá fá-
tæku, undir hælnum og viðhalda
óstöðugu klerkaveldi.
Á okkar menningarsvæði hafa
galdraofsóknir og nornaveiðar
reynst ógnvekjandi tæki til þess
að hafa konur undir. Á meðan
nornaveiðarnar stóðu sem hæst
voru margar konur brenndar
fyrir þær sakir einar að hafa lin-
að þjáningar sjúkra. Hæfileiki
til þess að lækna og græða sendi
óteljandi konur á bálköstinn. Því
að á meðan eðli kvenna var í
sjálfu sér álitið glæpsamlegt,
voru störf þeirra við lækningar
litin jafn óhýru auga af feðra-
veldinu og tilraunir þeirra til
aukinna áhrifa innan kirkjunn-
ar.
Við megum ekki gera þau mis-
tök að ætla að slík viðhorf til
kvenna séu dauð og grafin. Þau
hafa einungis tekið á sig nýjar
myndir. Svo dæmi séu nefnd þá
gæti röksemdafærsla af þeirri
gerð, sem gerir ráð fyrir því að
hægt sé að draga konu fyrir rétt
og saka hana um morð, ef hún
hefur gengist undir fóstureyð-
ingu vel leitt til nýrrar tegundar
nornaveiða, sem þó yrðu þær
sömu að eðlinu til.
Svo lengi sem við sættum
okkur við siðgæðishugmyndir,
sem skipta konum í hórur og
hreinar meyjar, refsa þeim fyrir
að lifa kynlífi og láta stjóm-
stofnanir, sem upp til hópa eru
skipaðar karlmönnum, um
ákvörðunarvaldið í málum, sem
fyrst og fremst varða líkama
konunnar, má hvenær sem er
búast við aðstæðum sem geta
fætt af sér nornaveiðar í nýjum
búningi.
ímynd nornarinnar er þjóðfé-
lagsleg goðsögn sem skýrir
fjölda sálrænna fyrirbrigða, sem
valdið hafa fólk heilabrotum í
aldanna rás.
Nornin er holdgervingur
hræðslu karlmanna við konu og
vantrú kvenna á sjálfum sér.
Hún er tákn frelsis, valds og
kynlífs kvenna — en píslir henn-
ar og bálið tákna einnig hina
ógnvænlegu refsingu, sem konur
óttast að þær muni sæta njóti
þær frelsis, valds og kynlífs eins
og þeim sýnist. Hún er afsprengi
dagdrauma karlmanna um
taumlausa kvenlega kynhvöt en
táknar jafnframt hin óvægnu
endalok, sem geta beðið kvenna,
láti þær undan þessum hvötum
sínum.
Nornin er áhrifamikill sam-
nefnari fyrir fjöldann allan af
draumum og ímyndunum. í
heimi þar sem báðum kynjum er
innrætt fyrirlitning á kvenlegri
afstöðu og áframgengni, er norn-
in fullkomið tákn fyrir glæp
kvenna og refsingu. Tákn, sem
hefur jafn mikið gildi fyrir kon-
ur og karlmenn.
Þegar við brosum að norninni,
hlæjum að forfeðrum okkar
fyrir trúna á áhrifamátt hennar
og þeim sem í dag vara við hugs-
unarhætti galdrafársins nálg-
umst við tíma nýrra nornaveiða
sem því nemur.
Á hriktandi hestvagni, blind-
uð, bundin og kefluð, á leið í
pyndingaklefann, gálgann, bálið,
er nornin að reyna að koma tií
okkur skilaboðum. Hún er að
reyna að vara okkur við. Ljáum
henni eyra. Hún gæti verið þú —
næst.
(HHS þýddi og tók saman.)
hræðsla mannkynsins tekur á
sig — allra síst tilraunum karl-
kynsins til að færa kynferðisleg-
an ótta yfir á konuna, Hitt Kyn-
ið.
En skilningur á fyrirbærinu
norn ber okkur langa leið i átt til
skilnings á því rótgróna kven-
hatri, sem gegnsýrir menningu
okkar á nær öllum sviðum. Það
er grundvallaratriði að líta ekki
á goðsagnir og átrúnað sem
óhrekjanlegan, frá guði — eða
gyðju kominn sannleika, heldur
endurspeglun mannlegs samfé-
lags og mannlegs ótta. Trúar-
brögð spegla yfirleitt ríkjandi
samfélagsgerð — og öfugt. Þar
sem fólkið dýrkar tré, kornöx og
konur, er að öllum líkindum um
Bundinn galdrahnútur
með aóstoð hina
hyrnda guðs.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖOINNI
OG Á KASTRUP-
FLUGVELLI
MetsöhibUu) ó hverjum degi!
p m$w te ib
| Metsölublad á hverjum degi!
Badmintondeild Gerplu
Höfum lausa velli á mánudags- og miövikudags-
kvöldum.
Upplýsingar í símum 74907 og 74925.
f KAUPMENN- VERSLUNARSTJÓRAR
VEXTIR
IKUNNAR
Bananar Oai néonta — Appelsfnur Jaffa — Appelsínur spánskar —
Fuen Mora — Appelsínur grfskar — Blóöappelsínur ftalfa — Klent-
entínur Marokkó — Epli USA Independent — Epli USA Chic — Eplí
rauö frönsk — Epli frönsk Qranny Smith — Epli frönsk Golden —
Sitrónur Jaffa — Grapefruit Jaffa — Grapefruit Jaffa Rose —
Grapefruit Ruby Red — Vínber spönsk grsan — Vínber spönsk blá
— Perur ftalia — Perur hollenskar — Avocado — Kiwi — Pomelos
Jaffa — Lime — Plómur — Ferskjur — Ugly fruit.
EGGERT KRISTJANSSON HF
Sundagörðum 4, simi 85300