Morgunblaðið - 15.02.1984, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.02.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1984 61 Badgastein í Austurríki y Urval hefur undanfarin fjögur ár boðiö sérstakar skíóaferðir til Badga- stein í Salzburgerland, stutt frá Salzburg í Austurríki. Þessi staður hefur verið mjög vinsæll og í vetur hafa verið farnar tvær tveggja vikna ferðir og tvær í viðbót eru á dagskrá. Þann 19. febrúar veröur farið og er uppselt í þá ferð. Einnig verður farið 4. mars. Gastein-dalurinn, þar sem Badgastein er, er meðal kunnustu vetraríþróttasvæða alpanna, og er Badgastein einn helsti staðurinn. Einnig mætti nefna Bad Hofga- stein, Dorfgastein og Sportga- stein. í Badgastein eru hinar heitu vatnsuppsprettur, sem dalurinn er þekktur fyrir. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í skíðalönd- unum þarna í kring, bæði byrjend- ur og þeir sem lengra eru komnir. í Badgastein er ein kláfferja, 16 stóla- og toglyftur. Skíðaskólinn skipuleggur námskeið fyrir byrj- endur og þá sem lengra eru komn- ir. Einnig er hægt að fá einka- kennslu, fjalla- og skíðaferðir fyrir einstaktinga og hópa svo og gönguskíðaferðir. Aðalgististaðir sem Úrval býður upp á eru Pension Simader og Landhaus Gletschermuhle. ís- lenskur fararstjóri er með farþeg- um allan tímann. Leiðbeinir hann m.a. varðandi skíðaleigu, kennslu og fleira. Axamer Lizum Samvinnuferðir-Landsýn bjóða upp á skíðaferðir til Axamer Lizum í Austurríki, nálægt Innsbruck. Flogið er í beinu leiguflugi með Flugleió- um. Gist er á góðu hóteli miðsvæðis í Axams — og einnig er boðið upp á gistingu á íbúðarhóteli 5 km frá bænum og sér hótelbíll þá um keyrslu á skíðasvæðið. Skíðasvæðið er í dal fyrir ofan Axams, Axamer Lizum-dalnum, og er það hið fræga Innsbruck Ólympíukeppnissvæði í alpagrein- um, svigi og stórsvigi árin 1964 og 1976. Þarna hefur byggst upp glæsileg skíðaaðstaða í 1579 metra hæð „ liggja lyftur upp í 2400 metra hæð. Brottfarardagar í þeim ferðum sem eftir eru í vetur eru 19. febrú- ar og 4. mars og stendur hvor ferð yfir í þrjár vikur. Verð er kr. 24.700 fyrir manninn í tveggja manna herbergi á Hótel Neuwirt Axams með morgunverði en gisting í íbúðum Natters með morgunverði og kvöldverði kostar kr. 20.700 fyrir manninn. Til eru íbúðir fyrir 6, 4 og 3 saman í íbúð. Úrval býður upp á nýjung: Ferð í „dalina þrjá“ í Frakklandi í marz þegar er uppselt og margir á biðlista Ferða-skrifstofan Úrval efnir í samvinnu við Valdimar Örnólfsson til sérstakrar skíðaferðar til Val Thorens í frönsku ölpunum 18. mars til 1. apríl 1984. Þetta er í fyrsta skipti sem ís- lensk ferðaskrifstofa býður upp á ferð á þennan stað og aðeins verður farin þessa eina ferð. Það er greinilegt að þessi nýbreytni mælist vel fyrir, því strax er uppbókað í ferðina og um 40 manns eru skráðir á biðlista. Flogið verður til Kaupmanna- hafnar og þaðan til Genf sama dag. Frá Genf verður svo farið með langferðabíl til Val Thor- ens. Dvalið verður á Hótel Chalet Thorens 18. mars til 1. apríl, en á heimleiðinni verður flogið frá Genf til London, og þaðan til Keflavíkur. Svo nefnt sé dæmi um verð þá kostar kr. 27.300 fyrir manninn með fullu fæði í tvíbýli og 25.800 með fullu fæði í fjórbýli. Verð fyrir barn í fjórbýli með fullu fæði er kr. 17.100. Skíða- passi fyrir fullorðna kostar kr. 3.240 og fyrir börn kr. 2.270. Handhafar skíðapassa hafa aðgang að 160 skíðalyftum í döl- unum þremur. Dalirnir þrír, de trois vallées, bjóða upp á geysilega skemmti- legt skíðasvæði, en í Courchevel, sem er einn bæjanna í dölum þessum, voru Ólympíuleikar eitt sinn haldnir. THbúið nesti í skíóaferóina ★ Nýsmuröar samlokur, langlokur og heilhveiti- horn. ★ Heitir kjúklingar og franskar kartöflur. ★ Heitt súkkulaöi (fyllt á ykkar brúsa). ★ Heitt kaffi (fyllt á ykkar brúsa). ★ Sælgæti, öl og gosdrykkir. Fyrir útivistarfólk: Sunny Cool hita- og kælitaskan fyrir 12 volta rafgeymi. Heldur heitu eöa köldu endalaust. Barnakuldaskór, vettlingar, húfur, treflar, legghlífar, hlýjar úlpur og gallar. Opiö kl. 10—14 laugardaga Vörumarkaðurinn hf. ármúla ia

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.