Morgunblaðið - 15.02.1984, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.02.1984, Blaðsíða 14
62 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1984 Gera þarf skíðaferðir jákvæðar og skemmtilegar fyrir yngstu kynslóðina Aþessum árstíma fara allir sem vettlingi geta valdiö á skíði. Enda er skíðafþróttin ein ákjósan- legasta fjölskylduíþrótt sem hægt er að stunda. Foreldrar taka börn sín með sér til fjalla til að njóta útiveru og án- ægjunnar af skíðaíþróttinni. En hafa ber ýmislegt í huga þegar börnin eru tekin með. Sum þeirra hafa öðlast kunnáttu í íþróttinn. En mörg eru að stíga sín fyrstu skref á skíðum. !>á er áríðandi að fara rétt að. Foreldrar verða að hafa hugfast að fara rólega af stað með yngstu kynslóðina og gera sem mestan leik úr öllu saman. Gera þarf skíðaferðirnar jákvæðar og skemmti- legar þannig að löngunin vaxi hjá börn- unum við að læra meira. Hér á eftir fara ýmis ráð fyrir foreldra sem eru að byrja með börn sín á skíðum. Skíðaíþróttin er ekki síður íþrótt barnanna en fullorð- inna og algengast er að bestu skíðamennirnir séu þeir sem hófu að stunda íþróttina strax í barn- æsku. Það þarf að gera börnin skikkanlega út af örkinni strax í byrjun til þess að þau fái sem mesta ánægju af íþróttinni. Hvernig er best að haga kennsl- unni með tiliiti til aldurs barns- ins? Sé barnið 2—5 ára gamalt er þjóðráð að gera leik úr öllu saman. Börn á þessum aldri eru í raun ekki á skíðum í orðsins fyllstu merkingu. Á þessum aldri er best að láta þau venjast snjónum og skíðunum, til dæmis með því að setja þau á eitt skíði í einu og draga barnið um sléttan völl. Með þessu móti venjast þau hreyfing- unni og fá jafnvægisskyn. 5—9 ára börn geta verið ótrú- lega áhugasöm og tímann þarf að nýta vel meðan þau eru á þessum aldri. Grundvallaratriðin eru numin á þessum aldri og þau læra einnig á umhverfið og veturinn. En hafa ber í huga og leggja verð- ur út frá þeirri staðreynd, að upp að 10 ára aldri hafa bein, liðamót og vöðvar barna ekki tekið út þroska, því beita þau líkamanum með öðrum hætti en fullorðnir. Það er mikilvægt að vita þetta í sambandi við skíðakennsluna. 9—12 ára fara börnin að læra fyrir alvöru, þau eru að taka út líkamlegan þroska og verða að læra réttar hreyfingar og rétta takta á þessum aldri. 12—16 ára. Þegar hér er komið sögu má markviss þjálfun hefjast, enda hafa börnin nú meiri áhuga á því að læra allt sem hægt er held- ur en að leika sér. Hversu mikils hægt er að krefj- ast af ákveðnum aldri er undir hverju einstöku barni komið. Sum fjögurra ára börn eru svo dugleg að erfitt er að fá þau úr brekkun- um. Önnur sýna alls engan áhuga fyrr en þau eru eldri. I mörgum tilfellum er áhuginn sveiflukennd- ur og getur farið eftir veðri, skapi eða hverju öðru. Best er að vera hvetjandi við barnið, án þess að beita það þrýstingi. Látið barnið ráða ferðinni. Að vera á skíðum með þeim yngstu, sem eru undir skóla- skyldualdri, getur krafist meiri lagni en með sex til sjö ára göml- um, því líkamsburðir þeirra og styrkur er svo lítill að þeim veitist örðugt að ganga, klifra og reisa sig upp eftir fall. Sama hversu oft er hrópað og kallað á fjögurra ára gamalt barn, sem segir „ég get ekki“, ekkert fær það til að standa upp. Trúið barninu. Verið hvetj- andi, lagfærið skíðin og hjálpið barninu við að rísa á fætur. Þegar þið eru í lyfturöð eða að ganga er gott að láta barnið halda í skíða- stafinn, án þess þó að draga það. Það veitir barninu meira jafnvægi og hindrar að það renni afturábak. Framfarirnar munu ekki láta á sér standa. Skíði fyrir börn sem eru rétt að byrja skíðaiðkun ættu ekki að vera lengri en barnið sjálft og mjög hæfilegt er að skíðin nái við- komandi barni hverju sinni í axl- arhæð. Bein, liðamót og vöðvar barna eru ekki fullþroskuð og því þreytast börn fyrr en fullorðnir, það er því gott ráð að kaupa skíði með rifluðum botni, en slíkur botn gerir börnum kleift að klífa brekk- urnar með mun minni fyrirhöfn en ella. Þá ættu barnaskíði að hafa málmbrúnir. Annars er alveg óhætt að fylgja ráðum afgreiðslu- fólks í skíðavöruverslunum, þar er yfirleitt kunnáttufólk á ferðinni. Loks má geta þess, að viðhald á barnaskíðum er ekki síður mikil- vægt en viðhald á skíðum fyrir fullorðna. Bindingar Það borgar sig ekki að ætla að spara peninga þegar bindingar eru annars vegar. í þeim efnum dugir ekkert nema það besta svo að ör- yggi barnsins sé eins tryggt og hugsast getur. Bindingar á barna- skíði verða að vera öryggisbind- ingar, sem eru sérstaklega hann- aðar með þyngd viðkomandi barns í huga. Ekki skyldi nota fullorð- insbindingar og hyggilegra væri að láta fagmann koma bindingun- um fyrir á skíðunum. Eitt í þessu sambandi, sem vert er að hafa í huga þegar fest eru kaup á bind- ingum, er að láta barnið festa og losa þær sjálft í versluninni, það er mikilvægt að barnið ráði sjálft við siíka hluti. Skíðaskórnir Fyrir öllu er að þeir haldi snjó og vatni. Þeir verða að verja ökklaliðinn og vera þægilegir. Eigi er vitlaust að láta litlu foringjana spranga um verslunina í skónum í 10—20 mínútur svona til að ganga úr skugga um að skórnir séu ekki óþægilegir. Reynist skór óþægi- legir verður það ekki til að glæða áhugann hjá eigandanum. Lyftuferðir Að ferðast í lyftu með barni er lærdómur út af fyrir sig og góð Velkomin til Hótel KEA Við bjóðum meðal annars: Gistiherbergi Bar Veitingasal — sérréttir og réttir dagsins — dansleikir laugardagskvöld Munið Súlnaberg Glæsileg matstofa Heitir og kaldir réttir allan daginn Opiö frá 8.00—20.00. MlfMI Skíðastökk er ekki mikið stundað hér á landi, því miður, en nokkuð þó. Keppt er í stökki á Andrésarandarleikunum á Akur- eyri ár hvert — og var þessi mynd tekin á leikunum í fyrra. Það er að sjálfsögðu mikilvægt að búa börn vel áður en haldið er á skíði. Hér á landi getur verið allra veðra von — það er betra að vera of vel klæddur en að vera illa búinn. Þessi hefur greinilega búið sig vel áður en hann fór í fjallið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.