Morgunblaðið - 15.02.1984, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.02.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1984 71 Hinir frægu bandarísku tvíbura- bræður Steve og Phil Mahre hafa miklar tekjur af skíðaíþróttinni. Phil er með sex milljónir króna á ári. Samt fær hann að keppa sem áhuga- maður á vetrarólympíuleikunum. Hverjir eru atvinnumenn og hverjir ekki? Phil Mahre hefur sex milljónir króna í tekjur á ári Eins og alltaf fyrir Olympíuleika hafa menn deilt mikið um hverjir eru atvinnumenn í íþrótt sinni og hverjir ekki. Menn eru ekki á eitt sáttir um hvernig túlka eigi þessar reglur, en svo virðist sem menn teljist áhugamenn ef þeir setja auglýsingatekjur sínar á bankabók hjá viðkomandi sambandi í sínu heimalandi og síðan sér sambandið um að deila þeim pen- ingum til „áhugamannsins" eftir því sem við á. Margir „áhugamenn" hafa miklar tekjur af auglýsingum og sumir hverjir eru svo mikið skreyttir með auglýsinum að þeir minna einna helst á jólatré í fullum skrúða. Phil Mahre hefur þannig um sex milljónir króna árlega fyrir að auglýsa ákveðna tegund skíðaútbúnaðar. Þessir peningar eru síðan notaðir til að kosta ferðalög hans og æfingar og á meðan það er haft þannig telst hann áhugamaður. Ekki alls fyrir löngu dæmdi Alþjóðaskíðasambandið þau Stenmark og Wenzel frá keppni á Ólympíuleikum á þeim for- sendum að þau væri atvinnu- menn í íþróttinni. Bæði höfðu þau þegið peninga fyrir að aug- lýsa og voru ekkert að fara leynt með það. Stenmark fær um 45 milljónir króna árlega fyrir auglýsingar og þar sem hann býr nú í Mónakó, þar sem hann borg- ar enga skatta, neitar hann að láta þessa peninga af hendi til sænska skíðasambandsins, sem hefði þó án efa látið hann fá þá aftur í eins stórum skömmtum og hann hefði „þarfnast". Wenz- el sagðist ætla að gefa pen- ingana sína í sjóð, sem notaður yrði fyrir landslið Liechtenstein, en það fannst nefndinni ekki nóg og hún var einnig dæmd frá frekari þátttöku í ólympíuleik- um. Sovétmenn þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að þeirra íþróttamenn teljist atvinnu- menn, því þar eru flest allir af- reksmenn skráðir í herinn og „starfa“ þar á meðan þess er þörf. Einn leikmaður í íshokkí- liði þeirra var í desember fyrir rétti í Svíþjóð, fyrir þjófnað úr verslun, og þar hélt hann því fram að hann væri atvinnumað- ur í íshokkí og þyrfti því ekki að ræna úr verslunum, þar sem hann hefði nægar tekjur til að borga fyrir það sem hann þarfn- aðist. Þetta er í fyrsta skipti sem sovéskur íþróttamaður viður- kennir að vera atvinnumaður, en hvort það verður til þess að ein- hverjir verða dæmir frá keppni á ÓL-leikum skal ósagt látið hér. Skíðaþjónusta Sportvals, Laugavegi 116, jsímar 26690 og 14390 Ekki er ráð nema í tíma sé tekið Sportval hefur nú opnaö mjög fullkomið verkstæði þar sem m.a. eftirfarandi viðgerðir fara fram: Viðgerðir á skíðasólum. Alsólun. Slípingar á skíðaköntum. Berum áburð á skíði. Yfirförum bindingar. Víkkum skíðaskó. Lagfærum skó, t.d. smellur, bönd o.fl. Varahlutir í Caber og Salomonskó. Talið er nauðsynlegt að yfirtara skíði ð 1 -2 I_ ára fresti, t.d. skerpa kanta, gera við rispur I sóla. Skautaskerpingar. Byssuviðgerðir. Viðgerð á badmmtonspöðum og tennisspöðum. Viðgerðir á veiði- stöngum og veiðihjólum. VIÐ í SKÍÐAÞJÓNUSTU SPORTVALS LEGGJUM MIKLA ÁHERSLU Á VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU Skíðaþjónusta Sportvals, Laugavegi 116, símar 26690 og 14390

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.