Morgunblaðið - 15.02.1984, Blaðsíða 22
70 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1984
Það er vitað mál að stutt er úr skíðalandi Húsvíkinga niður í bæinn, en það er aftur annað mál hvort viturlegt er að reyna að stökkva niðureftir! Þessi ágæti skíðakappi virðist vera á hraðferð heim
og hafa tekið þann kostinn að „fljúga", en svo er nú þó sennilega ekki. Þetta er ein af þeim sem teknar eru á „réttu augnabliki". Stórskemmtileg mvnd.
Skíöaland Húsvíkinga
er við bæjardyrnar
Skíðaland Húsvíkinga er gott að mörgu leyti og stór kostur við
það er hversu nálægt það er bænum. Fólk getur labbað á
skíðunum heiman að frá sér í neðstu lyftuna og losnar þar með
við þann ferðakostnað sem fylgir því að fara á skíði í flestum öðrum
byggðarlögum.
Að sjálfsögðu er boðið upp á
skíðaferðir til Húsavíkur sem og
annarra staða hér á landi og hót-
elgestir þar ekki í vandræðum
með að koma sér til og frá skíða-
svæðinu eins og nærri má geta.
Ekki er óalgengt-að sjá fólk með
skíöin undir hendinni eða á öxl-
inni arka til fjalla enda tekur það
ekki nema örfáar mínútur. Þegar
menn vilja halda heim er stefnan
svo tekin á hótelið og skíðin
spennt á stéttinni fyrir utan! Oft
er það a.m.k. hægt — slík er
nálægðin að fólk rennir sér heim á
hótel.
Helsti ókosturinn við skíðaland-
ið á Húsavík er, að sögn heima-
manna, hve nálægt sjó það er og
einnig að það vísi mót sólu —
þannig að „maður sér snjóinn
næstum því hverfa“, eins og Hús-
víkingur einn sagði. En meðan
snjórinn er nægur þarf enginn að
kvarta og þá er ánægjulegt að
heimsækja skíðalandið því það
býður upp á góðar brekkur.
Fjórar lyftur eru við Húsavík,
allt toglyftur. í Skálamel er 300
metra löng lyfta sem getur flutt
um 700 manns á klukkutíma. Uppi
í Stöllum er 480 metra löng lyfta
og er hæðarmismunur 150 m og
getur hún flutt 400 manns á
klukkustund. Efsta lyftan á staðn-
um er 400 metra löng og nær frá
toppi Skálamels- og Löngulautar-
lyftanna. Hæðarmismunur efstu
lyftunnar er 160 m en hún getur
flutt 150 manns á klukkutíma.
Kort sem gilda í lyfturnar allan
veturinn kosta 1700 kr. fyrir full-
orðna en fyrir 10 til 15 ára kosta
þau 800 kr. Krakkar 6—9 ára
borga 400 kr. fyrir þessi kort. Fjöl-
skyldukort eru einnig seld á Húsa-
vík og eru vitanlega hagkvæmasta
lausnin fyrir áhugasamar fjöl-
skyldur.
ísafjörður hefur
fagurt skíðaland
Fyrir þá sem vilja bregða sér í stuttar
helgarferðir á skíði innanlands
koma þrír staðir til greina ef fólk
vill bregða sér af höfuðborgarsvæðinu. Það
eru Akureyri, Húsavík og fsafjörður. En
hinsvegar ef utanbæjarfólk vill bregða sér
á skíði fyrir sunnan þá getur það valið á
milli Bláfjalla og Skálfells, sem er skíða-
svæði KR-inga. Vissulega er líka hægt að
bregða sér í Hamragil og á fleiri minni
staði.
Á ísafirði er mjög gott skíðasvæði og er
áhugi heimamanna á skíðaíþróttinni mik-
ill.
Seljalandsdalur er á stundum kallaður
vetrarparadís skíðamanna. Þar er eitt feg-
ursta skíðaland sem völ er á. Það nær upp
í 620 metra hæð og er aðeins um fjóra
kílómetra frá bænum. Aðstaðan til skíða-
iðkana þar er mjög góð. Þrjár lyftur þjóna
svæðinu. Auðvelt er að komast úr bænum
upp í Seljalandsdal því rútuferðir eru
daglega.
I skíðaskálanum Skíðaheimum er hægt
að fá svefnpokagistingu. Setustofa er fyrir
gesti með sjónvarpi, og hægt er að fá
s'.urtuböð. Á ísafirði er sundlaug, gufubað,
gott bókasafn, kvikmyndasýningar og böll
um helgar. Svefnpokagistingu er hægt að
fá í Skíðaheimum.
Skíðaáhugi á ísafirði er geysilega mikill og skíðasvæöi þeirra ísfirðinga er geysilega fallegt.
Þegar gott er veður flykkist fólk „upp á Dal“ og hér má sjá að aldur skiptir engu máli þegar
skíðaíþróttin er annars vegar. Ungir sem aldnir bregða sér til fjalla, njóta hollrar útivistar og
góðs veðurs.