Morgunblaðið - 15.02.1984, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1984
fólk í
fréttum
+ Breski söngvarinn Boy George
er vanur því að koma aðdáend-
um sínum og öðrum á óvart og
hann hefur t.d. oft lýst yfir, að
kynlífið sé algert aukaatriði hjá
honum. Raunar hefur hann sagt,
að hann meti jafnvel karlmenn
meira en konur og þess vegna
vakti það ekki litla furðu þegar í
ljós kom, að í tvö ár hefur hann
haft náinn kunningsskap við
japanska dansmey, Miko að
nafni.
„Ég kynntist Miko þegar ég
var á ferð í Japan, en hún átti
viðtal við mig fyrir rokktónlist-
artímarit, sem hún vann fyrir.
Það fór strax vel á með okkur og
nú erum við oftast saman. Við
elskumst ekki mjög oft en and-
legir félagar erum við allan sól-
arhringinn," segir Boy George.
Boy George með Miko, vinkonu sinni.
Boy George á japanska
ástmey
+ Danska ljósmyndafyrirsætan Helle hefur nú í ann-
að sinn verið valin skemmtilegasta og fallegasta fyrir-
sætan í Englandi. Hún hefur búið í London í sex ár og
hefur aldrei haft neitt á móti því að vera ljósmynduð
allsnakin.
„Mér er alveg sama þótt ég sé ekki í nokkurri spjör
enda eru ljósmyndararnir allir góðir vinir mínir. Þess
vegna er ekki um neinn vandræðagang að ræða,“ segir
Helle, sem heitir Kjær að eftirnafni.
Julie sem Julie — og Díana.
í hálfu starfí sem
Díana prinsessa
+ Julie Woldridge heitir af-
greiðslustúlka í stórverslun i
London, sem var svo væn að leyfa
kunningja sínum, hárgreiðslu-
meistara, að nota sig sem módel
fyrir alls kyns greiðslur. Einu
sinni þegar hann var að reyna
nýja greiðslu veitti hann því eftir-
tekt, að Julie var eins og lifandi
eftirmynd af Díönu prinsessu.
Julie er núna bara í hálfu starfi
sem afgreiðslustúlka og í hálfu
starfi sem Díana fyrir framan
ljósmyndavélarnar. Myndirnar
eru síðan notaðar í hinum og þess-
um auglýsingum.
„Að sjálfsögðu er ég ekki í
Díönugervinu nema hjá ljósmynd-
aranum. Ég kæri mig ekkert um
að fólk sé að snúa sér við á götu af
þvi að það haldi að Díana sé þar á
ferð," segir Julie.
Julie býst ekki við að geta grætt
lengi á „Díönumyndinni" en tals-
maður Buckingham-hallar segir
hins vegar, að ekkert verði gert til
að stöðva tvffarann.------------
kíöa-
fatnaður
fyrir
svigiö
FRA
idi
Ln -(Quitúá.
AUSTUR-
RÍKI
Vorum að taka
upp Skíðasam-
festinga á dömur.
Stærðir 38—44.
Litir: Dökkblátt
— Ljósblátt —
Grátt Dökk-
rautt.
Verð 3.630,-
Skíðaúlpur
á unglinga,
dömur og herra.
Margir litir.
Verð 2.562,-
Skíðastretsbuxur.
Litir: Dökkblátt —
Rautt — Grátt —
Milliblátt.
Verð:
116/128
1.495,-
140/152
1.995,-
164/176
2.150,-
Skíðathermo-
stretsbuxur.
Str. 48-56.2 litir.
SPORTVÖRU B Ú Ð I N
ÁRMÚLA 38 — SÍMI 83555.
m m c luri . íi r ‘ 11 Jti ■ f It
MeisöluHcid á hverjum degi!