Morgunblaðið - 15.02.1984, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1984 63
regla er að biðja lyftuvörðinn að
draga örlítið úr hraða lyftunnar í
fyrstu ferðunum eða þar til barnið
hefur hlotið dálítið öryggi. t sum-
um lyftum er hægt að hafa barn á
milli fótanna á sér og láta það
vefja handleggjunum um fæturna.
Ef barnið er orðið það þjálfað að
það fer eitt í lyftu, minnið það þá
á að standa beint, með skíðin vel í
sundur.
Hafið ætíð hugfast þegar þið
skíðið með barninu að þá er ekki
skíðamennska aðalatriðið, eða
framfarirnar, heldur stundin sem
þið eigið með barninu. Skemmtið
ykkur og stillið kröfunum í hóf og
sníðið þær eftir aldri barnsins,
getu þess, persónuleika og skap-
gerð.
Skiptið um skíðastað endrum og
eins og leyfið barninu að ráða
hvert á að fara og hvað skal gera
og finnið upp skemmtilega leiki
sem henta í snjó — látið öðrum
leiknari skíðamönnum eftir flókn-
ar leiðbeiningar. Fyrir alla muni
fylgist með framförum og sparið
ekki lof og hvatningarorð. Þau
byggja upp sjálfstraust og stolt
barnsins. Ekkert er dásamlegra —
fyrir báða aðila.
NIDUR
BREKKUNA
AF
Steinunn Sæmundsdóttir, „Skíðadrottning íslands" í nokkur ár er hætt
keppni fyrir fáeinum árum, en hún hefur þó að sjálfsögðu ekki snúið baki við
skíðunum. Þessi mynd var tekin af Steinunni þegar hún var að leiðbeina
ungum og efnilegum skíðamanni og ekki er að efa að hún hefur getað kennt
honum ýmislegt nytsamlegt
Skíðakennsla barna er vandasöm — menn verða að passa sig að vera ekki of
kröfuharðir — og fyrir þá yngstu ætti að gera skíðaíþróttina að leik. Hér sést
einn ungur í kennslustund.
FULLU
ORYGGI
Höfundar Skíðabókar AB
Jahn Riidiger og félagar eru
allir þekktir og þaulvanir
skíðamenn og skíðakennarar.
Þeir leggja áherslu á hve skíðaíþróttin sé
í rauninni auðveld - galdurinn sé að kunna
réttar aðferðir. Og þær aðferðir
lærum við af þessari bók.
Hún lýsir glögglega hvernig skíðamaður
skuli fara að við hvað eina allt frá því
hann spennir á sig skíðin í fyrsta sinn og
þar til hann er orðinn þátttakandi í
Ólympiuleikum.
Ingvar Einarsson
þýddi Skíðabók AB.
í henni er fjöldi
skýringarmynda.
Ljósmyndanámskeiðin vinsælu
hefjast aftur mánudaginn 20. febrúar — Sími 85811
LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF
LAUGAVEGI 178-PO BOX 5211-125 REYKJAVIK
GYLMIR ♦ G&H 6.11