Morgunblaðið - 15.02.1984, Side 17
64
MORQUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1984
i\s i
♦V
k
i
m
—
<D
U)
tfi
U>
fvS
V J
O O O O
— o O Ö Q
t- N N pi
•w ^
i
- (o 5
» i?
Ol'Z' — 3
c ™ W.O
° 't O 3
* cn
" oS *
O Q O O
o o>o o
U1 IDN N
3 <fi
-X. C
c
>4 S! 5
§
• <fi
3
m “í <0 CTJ
£2 =c
> Oi £ >
■o ■-* e ■;
c ^ f. - =
é!>«i -5 *-*
w
>3 3 U) *- <«
_o 3 $: “j n ro
'111111
« - u « n ti o^o O JP
•wocowaníhifOcD
O ii _: -i
>2 Js >
m ^ o) rc
9=oS
< DO u O LU LL
«r
■o
c
D
-J
. 0)
n
n
*b
c
>«
E
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1984
65
Skíðaland með lyftum fyrir
6.500 manns á klukkustund
Astóru Ijósmyndinni hér til
hliðar má sjá glöggt hversu
fólkvangurinn í Bláfjöllum
er orðinn fjölbreytilegt skíðaland
fyrir almenning. Nú er hægt að
flytja samtímis í skíðalyftum á
svæðinu um 6.500 manns á
klukkustund ef allar lyftur eru í
gangi. Þá eru skíðabrekkurnar
orðnar mjög fjölbreytilegar og við
allra hæfi eins og sjá má. Þetta
glæsilega skíðasvæði er við bæj-
ardyr Reykvíkinga og stutt að
fara fyrir íbúa á stór-Reykjavík-
ursvæðinu.
Aðstaða í Bláfjöllum hefur verið
bætt árlega, með vegabótum, bygg-
ingu glæsilegrar þjónustumiðstöðv-
ar, kaupum á snjótroðurum og nú
nýrri stólalyftu sem var vígð á dög-
unum og staðsett er í Suðurgili. Með
tilkomu þessarar nýju lyftu ætti
biðraðavandamálið sem svo oft
skapast á góðviðrisdögum að leysast
verulega.
Það eru sjö sveitarfélög sem
standa saman að uppbyggingu
Bláfjallasvæðisins og hefur vel tek-
ist til. Áhugi almennings á skíðum
hefur aukist gifurlega eins og að-
sóknin f skíðalöndin hefur sýnt.
Skíðaparadísin i Bláfjöllum biður
upp á fjölbreytta möguleika til úti-
veru og skíðaiðkana. Ekki aðeins á
svigskíðum heldur líka á gönguskíð-
um. Troðnar göngubrautir sem eru
upplýstar og vel merktar eru hinar
ákjósanlegustu á svæðinu.
Að sögn forráðamanna Bláfjalla-
svæðisins hefur sjaldan eða aldrei
verið jafnmikill snjór á svæðinu og í
vetur og mun hann væntanlega
standa langt fram á vor. Nú er bara
að vera duglegur við að stunda
skíðaíþróttina því að aðstaðan er
svo sannarlega fyrir hendi.
Tveir snjótroðaðar eru í Bláfjöll-
um til að troða og leggja brautir.
Hjálparsveit skáta annast örygg-
isgæslu um helgar.
í Bláfjallaskála eru seldar veit-
ingar á tímum sem lyftur er opnar.
I skálanum eru leigð út skíði, skór
og stafir.
Daglegar áætlunarferðir eru í
Bláfjöll frá Reykjavík, Seltjarnar-
nesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði.
Upplýsingasími fyrir Bláfjöll er
80111.
Verð aðgöngumiða er:
8 miða kort, fullorðnir, kr. 70.
(Tveir miðar í stólalyftur.)
8 miða kort, börn, kr. 35.
(Tveir miðar í stólalyftur.)
Dagkort, fullorðnir, kr. 175.
Dagkort, börn, kr. 85.
Kvöldkort, fullorðnir, kr. 130.
Kvöldkort, börn, kr. 65.
Árskort, fullorðnir, kr. 2.600.
Árskort, börn, kr. 1.300.
Barnagjöld gilda fyrir 15 ára og
yngri.
Lyftur í Bláfjöll eru opnar:
Mánudaga frá
kl. 10.00-18.00
Þriðjudaga frá
kl. 10.00-22.00
Miðvikudaga frá
kl. 10.00-22.00
Fimmtudaga frá
kl. 10.00-22.00
Föstudaga frá
kl. 10.00-18.00
Laugardaga frá
kl. 10.00-18.00
Sunnudaga frá
kl. 10.00-18.00
VWKYNNUM,
NÆSTRMRL!
MS-SmUOKUR
Loftskiptar umbúðir sem I l>rjú lög af I íslenskt smjör og tvö lög
varðveita ferskleika Samsölubrauði. af gómscetu áleggi.
innihaldsins.
Reyndu MS-samloku í nœsta mál !
[jólkursamsalan
AUK HF. Auglýsingastofa Kristlnar 3.123