Morgunblaðið - 15.02.1984, Blaðsíða 24
72
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1984
Þe8sir tveir ungu skíðakennarar kenna í Skálafelli, en allar nánari upplýsingar um skíöaskólann þar er hægt að fá í
skálanum. Kennararnir eru Viktor Urbancic (Lv.) og Eyjólfur Kristjánsson.
Skíðakennslu er
víða hægt að fá
Fiest skíðasvæAin í nágrenni Reykjavíkur bjóda upp á skíða-
kennslu jafnt fyrir byrjendur og þá sem eru lengra komnir.
Þeir sem hafa áhuga á að æfa fyrir keppni geta svo snúið sér
til skíðadeilda félaganna í Reykjavík.
Bláfjöll
Á Bláfjallasvæðinu er hægt að
fá skíðakennslu alla daga. Þar
starfa tveir skíðakennarar sem
eru með námskeið fyrir byrjendur
og miðlungsgóða skíðamenn.
Námskeiðin standa í tvo til þrjá
tíma og kosta tvö hundruð krónur
fyrir manninn. Þar er hægt að fá
kennslu í undirstöðuatriðum,
þannig að enginn þurfti nú að fara
stefnulaust niður brekkurnar. Þá
er í Bláfjöllum leiksvæði fyrir
börn.
*
Armann
Skíðadeild Ármanns er með
tvær mjög fullkomnar skíðalyftur
á svæði sínu í Bláfjöllum. Skíða-
deild Ármanns bíður upp á skíða-
kennslu til 15. mars. Kennt er á
kvöldin og um helgar. Boðið er upp
á einkatíma og svo sérstaka hóp-
tíma. Þá eru sérstakir tímar fyrir
börn. Hægt er að skrá sig í skíða-
skóla Ármanns með því að hringja
í síma 35959. Kennarar við skól-
ann eru Hafliði Bárður Harðarson
og Einar Úlfsson. Þá fer líka fram
þjálfun keppenda hjá Ármanni, og
sjá þeir Tómas Jónsson og Hans
Kristjánsson um þá hlið mála.
Allar upplýsingar er að fá í síma
77700.
HVAÐ ER POLAR-RA Y?
Polar-Ray er sólgler
sem stangveiöi-, siglinga- og skíöafólk og allir sem gaman
hafa af útiveru, hafa beöiö eftir.
Polarized gler fáanlegt í mörgum litum, t.d. gráu, gulu, grænu,
brúnu og bláu. Einnig sams konar gler, meö eða án styrkleika,
sem dökkna í sól.
Gleraugnamióstöóin Ausfurluæti 2on
Laugavegi 5*Símar 20800*22702 Sími 14566
Tækninni fleygir stöðugt fram í skíðaíþróttinni sem öðru og hér má sjá
nokkuð sem mörgum hefði eflaust þótt furðulegt fyrir nokkrum árum.
Brunmaðurinn á myndinni er inni í sérstökum loftgöngum, þar sem
ýmis atriði eru prófuð. Loftmótstaðan er t.d. prófuð, hvernig gallar séu
heppilegastir með tilliti til hennar, því eins og kunnugt er munar aöeins
sekúndubrotum á mönnum í keppni og því gott að hafa loftmótstöðuna
sem minnsta.
Skíðasvæðið { Hveradölum er eitt hið elsta á landinu og þar hefur margur
maðurinn stigið sín fyrstu spor á skíðum. Nú er unnið að gagngerum endur-
bótum á skíðaskálanum og í framtíðinni mun á svæðinu verða vélsleðaleiga.
Það er ein af þeim nýjungum sem nú er í ráði að taka upp í Hveradölum. Á
kyrrum kvöldum er fagurt um að litast þar efra, eins og sést á þessari fallegu
mynd' MoWnblaðift/S„orri Snorrason.