Morgunblaðið - 24.02.1984, Síða 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984
AÐ KENNA HEILANUM NÝJAR KÚNSTIR
Markviss
notkun heilabúsins
Fræðimenn á sviði vitsmunasálarfræðinnar hafa reynt að leita svara við þeim leyndar-
dómum sem liggja til grundvallar framúrskarandi árangri manna á einstökum sviðum. Hér
birtist þriðja greinin um það hvernig hægt sé að kenna heiianum nýjar kúnstir og ná þar
með betri árangri í leik og starfi.
ÁKVÖRÐUNARTAKA
John R. Hayes, sálfræölngur
viö Carnegie-Mellon-háskól-
ann, segir í bókarkafla, sem
nefnist „Algjör lausn á vanda", aö
fjölþætt kerfi til aö leita lausna á
vandamálum, auki til mikilla muna
möguleikana á aö taka heppi-
legustu ákvarðanirnar" af því aö
„flestir hafi ekki til aö bera meövit-
aöa aöferð viö aö taka ákvaröan-
ir".
Eitt tiltölulega auövelt dæmi um
úrlausnarefni, sem yfirleitt mætti
beita mun betri aðferöum viö aö
leysa úr, er aö taka ibúö á leigu.
Athuganir sem geröar hafa verið á
væntanlegum leigjendum leiöa
oftast í Ijós, aö þótt þeir hafi al-
mennt allgóöa hugmynd um hvers
konar íbúö þeir séu aö leita aö,
snúa þeir jjessum þörfum sínum
upp í ákvaröanir á mjög svo
tilviljunarkenndan og ófullnægj-
andi hátt. Þaó hefur sýnt sig, eftir
því sem Hayes segir, „aö maöur
sér, að þeir hafa gleymt vissum
þáttum, þeir láta gjarnan mjög
stjórnast af þeim þætti, sem þeir
litu siöast á, og í stuttu máli sagt,
þeir notfæra sér upplýsingar alls
ekki vel." Hann mælir meö aöferö-
um eins og „samanlögöu mati",
þar sem maöur telur fjölda þeirra
þátta, sem til greina koma og met-
ur ýmsa þætti viö íbúóir (eins og til
dæmis stærö herbergjanna, há-
vaöastaöal) og margfaldar svo
þessi gildi meö því aö flokka ein-
hverja ákveðna íbúö eftir því,
hversu vel hún uppfyllir hverja og
eina af þessum kröfum út af fyrir
sig.
Langtum algengari ákvöröun-
ar-aöferö, sem nú er kennd á flest-
um stjórnunarnámskeiöum og flest
stærri fyrirtæki notfæra sér, er
greining á kostnaöi og afrakstri. Til
þess að geta valið bezta kostinn af
allmörgum, sem til boöa standa,
veröur maöur aö meta hugsanleg-
an kostnaö og hagnaö af hverjum
valkosti út af fyrir sig, margfalda
þaö meö þeim möguleika, aö hver
og ein af kostnaöarhliöunum og
hagnaðarþáttunum komi til fram-
kvæmda, og velja þá fyrst úr þaö
tilboöiö, þar sem væntanlegt
hagnaöargildi er hæst, eftir aö
væntanlegt kostnaöargildi hefur
veriö dregiö frá. Ef eitthvert fyrir-
tæki væri til dæmis aö reyna aö
taka ákvöröun um, hvort leggja
ætti niöur úrelta verksmiöju í Nýja
Englandi (t.d. Boston) og byggja
aöra nýtízkulega verksmiöju á suö-
urslóöum, þá yröi fyrst aö taka inn
í dæmiö kostnaöarliöi eins og viö
byggingu nýju verksmiöjunnar og
sérstaka þóknun til verkamann-
anna i Nýja Englandi vegna at-
vinnumissisins, en á móti kæmi
svo hagnaöur af minni framleiöslu-
kostnaöi hinnar nýju verksmiöju
og lægri launagreiöslur.
John R. Hayes kemur meö ann-
aö dæmi, sem ekki liggur eins í
augum uppi. Eftir aö hafa reynt
mánuöum saman finnur maöur
loks mögulegan kaupanda aö
gömlu bíldruslunni sinni. En þegar
maöur er aö aka bílnum heim til
kaupandans fer bíllinn allt í einu aö
gefa frá sér hin ógnvænlegustu
hljóö, einmitt um sama leyti sést
viögeröaverkstæöi framundan. Nú
er vandi á höndum: Ætti maður aö
stanza og þurfa svo aö borga bif-
vélavirkjanum fyrir viögerö á bfln-
nm og veröa þannig af hluta hagn-
aöarins af væntanlegri sölu? Eöa á
aö halda ferðinni áfram til vænt-
anlegs kaupanda, þar sem annaö
hvort allt söluveröiö fengist greitt
eöa þá, ef kaupandinn tekur upp á
því aö fara aö hlusta nánar eftir
hljóöinu í vélinni og veröur ekkert
yfir sig hrifinn af því, sem hann
heyrir, aö maöur yröi aö láta sér
nægja einungis hluta af því sölu-
veröi, sem fyrst var fallizt á? Eigi
aö finna rétta svariö með því aö
beita kerfisbundinni greiningu á
kostnaöarhliöum og hagnaöi, þá
gerir þaö kröfu til þess, aö hugsan-
legur möguleiki á mörgum viö-
geröarreikningum veröi tekinn
meö í dæmiö, og raunar einnig sá
möguleiki, aö væntanlegur kaup-
andi bregöist hinn versti viö, þegar
hann heyrir bankiö í vélinni, aö
meötöldum þeim möguleika, aö
jafnvel þótt viögeröin hafi fariö
fram á bílnum, kunni kaupandinn
samt aö falla frá kaupunum, af því
aö honum líki alls ekki útlit bílsins.
(Þaö svar, sem Hayes kemur fram
meö: Maöur ætti samt aö láta gera
viö bílinn.)
SJÁLFSEFJUN OG
SKÖPUNARGÁFA
Vitsmunasálfræðin hefur einniq
beint athygli sinni aö streituvökum
á borö viö kynningarviðtöl við um-
sóknir um störf og væntanleg
ræöuhöld. Fyrir nokkrum árum tók
Ulric Neisser, sem er sálfræöingur
vió Cornell-háskóia í Bandaríkjun-
um, aö velta fyrir sér hinni al-
mennu iökun hugþjálfunar meöal
íþróttamanna. Þannig fullyröa
golfleikarar til dæmis, aö þeir geti
bætt leiktækni sína meö því einu
aö ímynda sér, aö þeir séu í miöj-
um klíöum viö aö slá kúluna eöa
pútta.
Til þess aö ganga úr skugga um,
hvort þetta tiltæki væri einungis
viöhaft til þess aö róa spenntar
taugar fyrir leikinn, þ.e.a.s. hvort
hugþjálfun miöi heldur aö því aö
auka sjálfsöryggi eöa sljákki frekar
spenntar taugar, tók Neisser sig
til, ásamt einum stúdenta sinna,
Georgiu Nigro, og skipulagöi ný-
lega tilraunir í markkasti meö
hringum. Þau skiptu níutíu stúd-
entum í einn tilraunahóp og fjóra
aöra viömiöunarhópa, og átti svo
hver hópur aö gera ýmiskonar
hugþjálfun. Hópar, sem beönir
voru um aö ímynda sér, aö þeir
sæju sig ýmist kasta hringunum í
mark eöa missa marks, stóöu sig
rétt miölungi vel, þegar þeir komu
til leiks. En meölimir þess hóps,
sem beðinn var um aö ímynda sér,
aö hann stæöi viö kaststrikið, og
horföi á markpinnana um leið og
þeir þættust fleygja hringunum og
hitta í mark, unnu líka leikinn meö
verulegum yfirburöum. Neisser dró
þá ályktun af þessum tilraunum,
aö huglæg þjálfun kæmi aö gagni,
ekki af því aö hún heföi nein sér-
stök áhrif á áhuga manna, heldur
virtist hugþjálfunin bæta „innri
samræmingu og alla nákvæmni í
viöbrögöum". Hann þykist fullviss
um, aö aöferðir af þessu tagi sé
einnig hægt aö nota á öörum sviö-
um en líkamlegri hæfni.
„Fari maöur í hugþjálfun til aö
undirbúa flutning ræöu, kann þaö
aö leiöa til þess aö mun betur
gangi aö flytja ræöuna af sömu
ástæöu og hugþjálfun fyrir mark-
kast gerir þaó auöveldara aö láta
hringina hitta í mark. Ástæöan er
sú, aö hver einstakur hluti fram-
kvæmdarinnar raöast mun betur
niöur í sína eölilegu röö og hefur
yfir sér meiri þokka og minni
áreynslu."
Þaö má ef til vill segja, aö
stærsta stökkiö, sem vitsmuna-
sálfræöin hafi tekiö, sé inn á hiö
skapandi sviö mannsandans, þaö
sviö sem skilur aö skapandi anda
manna á borö viö Mozart og Ein-
stein frá öllum öörum.
John R. Hayes álítur, aö vits-
munasálfræöingar hafi heldur
óljósan skilning á eöli sköpunar-
gáfunnar, en sá skilningsskortur
hefur aftur á móti ekki aftrað sum-
um vitsmunasálfræöingum frá aö