Morgunblaðið - 24.02.1984, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984
39
koma fram meö tillögur um aö-
ferðir til þess aö efla og örva sköp-
unargáfu fólks. Þeir leggja meöal
annars til, aö menn ættu aö þvinga
sjálfa sig til aö hugsa meira af-
strakt og þröngva þannig hugs-
anaganginum út úr fastri vanaslóö,
svo aö unnt sé aö leiöa hugann aö
heldur fjarstæöukenndum, ósenni-
legum en samt hugsanlega alveg
nýjum úrkostum.
i bók sinnl fullyröir Hayes, „aö
unnt sé aö hafa nokkra stjórn á
þróun sköpunargáfu sinnar og
þeim félagslegu aöstæöum, sem
hafi áhrif á skapandi hæfileika
mannsins. Aö þessu marki er unnt
aö auka möguleikana á aö veröa
skapandi andi“.
BAKSLAG í SEGLIN
„Þetta er ekkert nema frat og
leikrænir tilburöir," segir sálfræö-
ingurinn Ulric Neisser um tilraunir
William Chases á sviöi aukinna
minnishæfileika og um önnur
dæmi aukinna andlegra afkasta,
sem vitsmunasálfræðingar álíta sig
geta sýnt fram á. Neisser er einn í
litlum en háværum hópi banda-
riskra sálfræðinga á þessu sér-
sviði, sem finnst, aö sumir starfs-
bræöur þeirra, og þá alveg sér-
staklega þeir sálfræðingar, sem
starfa viö Carnegie-Mellon-háskól-
ann, séu alltof gjarnir á aö draga
of víðtækar ályktanir af sáralitlum
atriöum.
Þótt hann segist bera fulla virö-
ingu fyrir starfsbræðrum sínum viö
Carnegie-Mellon-háskólann segist
hann vera þeirrar skoöunar, aö
niðurstöðurnar, sem þeir hafi feng-
iö, „réttlæti á engan hátt þær full-
yröingar, sem þeir koma fram meö
varöandi þaö, hvernig unnt sé aö
bæta almennan hugsanaferil
rnanna". Aö hans sögn er það
„hinn mesti misskilningur“ aö full-
yröa til dæmis, aö tilraunir í minn-
ishæfni séu hæfar til aö skera á
nokkurn hátt úr um andlega yfir-
burði sérfræöinga fram yfir byrj-
endur“, því töluminni standi í alls
engu sambandi viö víötæka sér-
þekkingu. Reglulegir sérfræöingar
eins og vtsindamenn, segir Neisser
til skýringar, eru sérfræöingar, „af
því að þeir vita meira og betur, en
ekki af því aö þeir beiti svo snjöll-
um aöferöum viö lausn úrlausnar-
efna. Sjálf þekkingin er lykillinn aö
öllu saman. Ég held ekki aö hægt
sé aö stytta sér mikið leiöina í
þeim efnum.“
Sumir þeirra sálfræöinga viö
Carnegie-Mellon-háskólann, sem
unniö hafa aö rannsóknum á þess-
um sviðum, álíta aö fyrstu ályktanir
þeirra varðandi sérþekkingu og
andiega frammistööu hafi aö
mörgu leyti veriö of fljótfærnisleg-
ar og byggöar á of einföldum rök-
um.
Michelene Chi, eiginkona Willi-
am Chases, sem einnig starfar viö
sálfræðideild Pittsburgh-háskóla,
segir aö á síðastliðnum árum hafi
menn tekiö aö gera sér Ijóst, „aö
ekki sé hægt aö líta eingöngu á
sjálfar aöferöirnar við afstrakt
hugsanaferil. Þaö varö augljóst, aö
maður veröur aö líta á raunveru-
legan þekkingarforöa manna til
þess aö öðlast skilning á því, hvers
vegna sérfræöingar standi sig svo
vel“.
Jill Larkin viö Carnegie-Mellon-
háskólann hefur þessu viö aö
bæta:
„Þaö er ekki hægt aö sniðganga
þá staöreynd, aö það krefst mjög
langs tíma aö veröa sérfræðingur
meö víötæka þekkingu, þar þarf
aö reikna meö áratug eöa svo í
þaö minnsta. Þaö er ekki til nein
auöveld leiö í þeim efnurn." Larkin
fullyröir samt sem áöur, aö til séu
viss þýöingarmikil hæfileikasviö,
sem unnt sé aö tiieinka sér, og
hraöa þannig víötækri þekkingar-
öflun sinni.
En jafnvel þeir vitsmunasálfræö-
SJÁ NÆSTU SÍDU.
WAGNER-
sjálfstýringar
Wagner-sjálfstýringar,
komplett meö dælusettum
12 og 24 volt, kompás og
fjarstýringum fram á dekk,
ef óskaö er, fyrir allar
stæröir fiskiskipa og allt
niöur í smá trillur. Sjálf-
stýringarnar eru traustar
og öruggar og auöveldar í
uppsetningu. Höfum einn-
ig á lager flestar stæröir
vökvastýrisvéla.
Hagstætt verö og
greiösluskilmálar.
Atlas hf
Armúli 7 — Sími 26755.
Pósthólf 493, Reykjavík
Hudson’s Bay Lorsdon
Uppboð á refaskinnum og fleiru
12.—17. febrúar 1984.
Frá London fur Group:
Tegund: Fjöldi: selt% Toppverö: Skýringar:
Blárefur 170.755 100 3.753,- Hækkun 30—70%
frá des. 1983
I þessum blárefaskinnum voru um 7000 skinn frá íslandi, um 1000 skinn voru seld í London í des. 1983,
og eftir er að selja um 2000 skinn héðan, en alls hafa um 65 loödýrabændur sent um 11.000 refaskinn
til London í vetur frá islandi.
Aöalkaupendur blárefaskinnanna voru Austurlönd fjær í stærri og betri skinnunum en ítalía í stærö 1
og lélegri gæöum.
Uppboðsmeöalverð í „1670, London Label“, og I. fl. kr. 1360,-
Shadow-refur 33.663 100 3.584,- Verö óbreytt frá
í þessum shadow-refaskinnum voru um 1000 skinn frá íslandi. Helsingfors, 1984. jan.
Aðal kaupendur: Italía. Silfurblár 3.249 85 7.380,- Sama verö og í
Silfurrefur 2.305 88 9.909,- Helsingfors í 1984. Sama verö janúar og í
Platínurefur 137 80 7.590,- Helsingfors 1984. í jan.
í heild voru boöin upp 354.500 refaskinn frá ýmsum löndum og um 500.000 lambaskinn auk fjölda
annarra loöskinnategunda.
Loðskinnamarkaöurinn hefur styrkst mjög mikiö frá því í desember og reiknaö er meö enn frekari
hækkunum í mars.
Um 1.000.000 minkaskinn veröa boöin upp hjá Hudson's Bay í London dagana 23. til 28. febrúar 1984.
sýning hefst þann 17 febr Kjörbær hf. / Skúli Skúlason,
Kópavogi.
FRÍSKK
/MÍN
Nýr heilsuvökvi
fyrir böm og fulloröna.
Frískamín er blanda rík af A-, B-, C-
og D-vítamínum. Hæfilegur
skammtur uppfyllir vítamínþörf
allraaldurshópa. Dagleg notkun
Frískamíns kemur í veg fyrir
vítamínskort á vaxtarskeiði barna
og unglinga.
Frískamín með fersku ávaxta-
bragði fæst í næstu matvöruverslun.