Morgunblaðið - 24.02.1984, Page 11
HVAD ER AÐ GERAST UM HELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984 43
Forsetaheimsókninni og er þaö
aukasýning. Hart í bak, leikrit Jök-
uls Jakobssonar, veröur sýnt á
sunnudagskvöld. Sýningar eru nú
orðnar yfir 40 talsins og fer þeim
fækkandi.
Tröllaleikir
Leikbrúöuland sýnir Tröllaleiki í
lönó kl. 15.00 á sunnudag. Trölla-
leikir samanstanda af einþáttung-
unum Ástarsögu úr fjöllunum,
Draumlynda risanum, Egginu og
Búkollu. Bryndís Gunnarsdóttir,
Hallveig Thorlacius og Helga Steff-
ensen geröu leikmynd og brúöur,
sem þær stjórna ásamt Þórhalli
Sigurössyni, leikstjóra sýningar-
innar.
TÓNLIST
Fríkirkjan:
Bel-Canto-kórinn
Kórtónleikar veröa í Fríkirkjunni
í Reykjavík á sunnudaginn kl.
17.00. Syngur þar Bel-Canto-kór-
inn í Garöabæ undir stjórn Guð-
finnu Dóru Ólafsdóttur. Organleik-
ari er Gústaf Jóhannesson.
Á efnisskrá tónleikanna, sem
haldnir eru til styrktar orgelsjóöi
kirkjunnar, er m.a. madrígalar frá
ýmsum löndum, íslensk tónlist og
negrasálmar.
Grindavík:
Gítartónleikar
Símon H. ivarsson, gítarleikari,
heldur tónleika í Grindarvíkurkirkju
á sunnudag kl. 17.15. Á efnis-
skránni, sem er tvíþætt, eru
spænsk klassísk verk, m.a. eftir
Albeniz, Turina, Tarrega og fleiri,
auk flamenco-tónlistar.
Símon hefur stundaö nám í
klassískum gítarleik hjá Gunnari H.
Jónssyni viö Tónskóla Sigursveins
og síöar viö Tónlistarskólann í Vín.
Hann hefur einnig sótt námskeiö í
flamenco-tónlist hjá prófessor A.
Batista á Spáni.
Norræna húsiö:
Tónleikar Peter
Kowald
Bassaleikarinn Peter Kowald
heldur tónleika t Norræna húsinu í
kvöld og hefjast þeir kl. 21.00.
Kowald hefur áöur leikiö hérlendis,
en hann kom hingað fyrir fjórum
árum.
Kowald, sem er vestur-þýskur,
hefur á tuttugu ára ferli sínum leik-
iö m.a. meö Evan Parker, Albert
Mangelsdroff, Carla Bley og fleir-
um, en síöustu tvö árin hefur hann
leikiö meö hljómsveitinni Jazz
Doctors. Einnig hefur hann leikiö
inn á hljómplötur, bæöi undir eigin
nafni og meö öörum.
Hljómplötuútgáfan Grammiö
stendur aö þessum tónleikum.
Hringur Jóhannesson, listmálari.
Kjarvalsstaöir
og Asmundarsalur:
Málverk Hrings
Jóhannessonar
Listmálarinn Hringur Jóhann-
esson opnar á morgun, laugar-
dag, sýningu á verkum sínum á
Kjarvalsstööum og i Ásmundar-
sal. Á báöum stööum veröa sýnd
verk sem Hringur hefur málaö á
undanförnum þremur árum, eöa
frá því að hann hélt síöast sýn-
ingu.
Á Kjarvalsstaöasýningunni,
sem veröur opnuö kl. 14, eru
rúmlega hundraö myndir, olíu-
málverk, teikningar og litkritar-
myndir. I Ásmundarsal sýnir
Hringur síöan 38 olíupastelmynd-
ir. Sýninguna í Ásmundarsal
opnar Hringur kl. 15 á morgun.
Sýningarnar veröa opnar frá
kl. 14 til 22 og standa þær til 11.
mars.
2 Gcxkin daginn!
Stjúpsystur í
Naustinu
Söngtríóiö Stjúpsystur kemur
fram á skemmtikvöldum í veitinga-
húsinu Naustinu í kvöld, föstu-
dagskvöld, og á sunnudagskvöld.
Stjúpsystur skipa leikkonurnar
Saga Jónsdóttir, Guörún Alfreðs-
dóttir og Guörún Þóröardóttir.
Djamm-sessjón
Jassklúbbsins
Jassklúbbur Reykjavíkur heldur
djamm-sessjón númer tvö í Kvos-
inni, veitingastaönum í húsi Nýja
bíós, á sunnudag kl. 15.00.
í Kvosinni koma fram tvær
hljómsveitir skipaöar nemendum í
jassdeild Tónlistarskóla Félags ís-
lenskra hljómlistarmanna. Einnig
kemur fram á sessjóninni TON-
EKA, söngsextett sem syngur viö
undirleik Carls Möller, Árna
Scheving og Alfreös Alfreössonar.
Þá kemur einnig fram „sveíflu-
sveit" undir stjórn Guðmundar R.
Einarssonar, skipuö honum, Gunn-
ari Egilssyni, Arna Elvari og Jóni
Sigurössyni.
Stúdentaleikhúsiö:
Söngdagskrá
Bertold Brecht
Breyttu heiminum, þaö þarf
hann. Svo nefnist tónlistarkvöld
sem haldiö veröur í Stúdentaleik-
húsinu á laugardag kl. 20.30.
Veröa þar fluttir söngvar úr leik-
ritum Bertold Brecht, flutt Ijóö
eftir hann, bæöi lesin og sungin
viö tónlist eftir Eisler, Paul Dess-
au, Kurt Weill og fleiri.
Dagskrána tóku þau Margrét
Pálmadóttir og Hafliði Arngríms-
son saman, en flytjendur eru sex,
Ástrtöur Helga Ingólfsdóttir, Bára
Lyngdal Magnúsdóttir, Guðlaug-
ur Viktorsson, Kristján Viggós-
son, Margrét Pálmadóttir og Sig-
ríður Eyþórsdóttir. Auk þeirra er
sjö manna hljómsveit og skipa
hana þeir Bjarni Jónatansson, pí-
anó, Joseph Fung, gítar og
banjó, Jón Björgvinsson, slag-
verk, Knútur Birgisson, klarinett,
Richard Korn, kontrabassi, Rún-
ar Vilbergsson, fagott og Sigríð-
ur Eyþórsdóttir, flauta.
Nokkur Ijóö Brecht hafa sér-
staklega veriö þýdd til flutnings í
dagskránni og margir söngvanna
ekki heyrst áöur hérlendis.
Dagskráin er í Félagsstofnun
stúdenta viö Hringbraut.
Oryggi í stað áhættu!
Hafið þið áttað ykkur á því að í mörgum tilfellum er hagkvæmara
að kaupa góðan notaðan MAZDA bö hjá okkur heldur en
nýjan bíl af ódýrari gerðum?
Nú höfum við til sölu sérlega gott úrval af notuðum
MAZDA bílum í sýningarsal okkar, sem allir seljast með
6 mánaða ábyrgð.
Góðir greiðsluskilmálar.
MAZDA eigendur athugið: Okkur bráðvantar
allar árgerðir af MAZDA 323 á sölulista.
1
i
f
BILABORG HF
Smiðshöfða 23 sími 812 99
4
m
jm
JBt