Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 22
54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984
198? UmvefMl Prest Svndicale
y, þú getur setiS þarna, þangafc til ég
fi'nn gle-raugun, Sem þú fa\d\r fyr'.r mér! "
Á símskeytið aö vera í viðhafnar- Fæ ég þá reykta síld hjá þér í dag?
útgáfu?
HOGNI HREKKVISI
v EKTU AÐ FARA \ v & 1 -SSNi "SSA1ANMAHÁDESiS -
VERfJ"?"
„Heilaþvottahús** Sovétmanna:
Hvers virði er frelsið?
„Velvakandi.
Þar sem ég sit fyrir framan rit-
vélina mína, við skrifborðið mitt
við gluggann í herberginu mínu,
og horfi út í storminn og rigning-
una yfir Sogamýrinni, hugsa ég
hve gott ég eigi að vera íslending-
ur og vera búsettur hér á íslandi.
Ekki að ég sé svo mikill þjóðern-
issinni, heldur er ég að hugsa um
frelsið sem við búum við. Það er
nefnilega ekkert sjálfsagt að fólk í
heiminum sem við byggjum búi
við frelsi.
Ég ætla mér þó ekki að fara að
útskýra hvað frelsi er, það er allt
of teygjanlegt hugtak. Pólitíkusar
skilgreina frelsi, félagsfræðingar
skilgreina frelsi og heimspekingar
skilgreina frelsi og svo má lengi
telja. Allir vilja frelsi til athafna
og hugsana, frelsi í orði og verki.
Ég held við getum öil verið sam-
mála um það að sá maður, sem
ekki má setja fram skoðanir sínar
og hugsa og trúa á þann veg sem
hann sjálfur vill, býr ekki við
frelsi. Hér á landi ríkir sem betur
fer svo mikið „frelsi" að ég mætti
skrifa eða þvæla mikið um pólitik
sem færi í algjöran bág við stefnu
ríkisstjórnarinnar, án þess að
vera settur inn í svartholið og
hálfdrepinn.
Hér fyrir framan mig hef ég all-
nokkrar heimildir um ófrelsi til
sjálfstæðs hugsunarháttar í Sov-
étríkjunum. Eg minnist einnig
myndbandsupptöku í fræðslu-
formi fyrir almenning í ameríska
bókasafninu sem ég sá þar fyrir
skömmu um „heilaþvottahús" Sov-
étmanna sem eru víðs vegar um
öll Sovétríkin. Þessi spóla ber
nafnið Soviet Mental Hospital,
Soviet Use of Psychiatry og þar
ræðir fréttamaðurinn hjá ABC
News — Nightline, New York —
Ted Koppel, við sovéska geðlækna
sem eru í útlegð á Vesturlöndum
og einnig við aðra Sovétmenn sem
fengist hafa til Vesturlanda, eftir
miklar fortölur og þrýsting á
stjórnina 1 Kreml. L. Kleminov
var sendur í átta ára fangelsi fyrir
það eitt að berjast fyrir réttlæti.
Ha, segir þú kannski, hvernig má
það vera?
Sálfræðineminn Vladimir Buk-
ovsky (exile soviet dissident) var
sendur ýmist á sjúkrahús eða
fangelsi í 12 ár fyrir andsovéskan
hugsunarhátt. Hann sagði í viðtali
við Koppel að læknarnir á þessum
sjúkrahúsum hafi ekki verið lækn-
ar heldur KGB-menn, sem unnu
að þvotti á því sem stjórnin kall-
aði óhreinindi í höfðum þegnanna.
Meðan Bukovsky var lokaður inni
tók hann fram hve hræddur hann
hefði verið við að sturlast, því
hann hafði ekkert viðmið, vissi
varla lengur hvað var rétt og hvað
var rangt. Hann var gjörsamlega
einn og enginn til hjálpar, aðeins
menn sem unnu skipulega að því
að brjóta hann niður andlega og
Enn um Njálu
Magnús Jósefsson skrifar:
Ég hlusta yfirleitt á þáttinn
„Nýjustu fréttir af Njálu" í út-
varpinu. Alveg er ég gáttaður á
þessu málskrafi sem þar fer fram
— þetta er bara rabb um Njálu,
meira að segja endurtekið. En
þurfa kennarar ekki að fylgjast
með nýjungum Njálu?
Ég fyrir mitt leyti hefi aldrei
lesið neitt sem kemst í hálfkvisti
G.A. skrifar:
„Núna þegar Listahátíð er í
nánd eru margir að spá í það
hvaða hljómsveit eigi að koma
hingað á hátíðina. Ég og margir
aðrir sem ég þekki viljum fá Dire
Straits, en allar þessar stelpur
virðast vilja fá Duran Duran.
Staðreyndin er sú að Dire Straits
er miklu betri hljómsveit, stelpur
— og alveg tvimælalaust miklu
betri sviðshljómsveit en Duran
við rit Einars Pálssonar „Rætur
íslenzkrar menningar". Þar er
hafsjór af nýjustu upplýsingum
um Njálu. Þetta ritsafn er að mín-
um dómi mesta ísienzka bók-
menntaafrekið á þessari öld. Og
skrítið finnst mér að það skuli
ekki vera minnst á rit Einars í
þessum þáttum.
Duran. Þótt sum lög með Duran
Duran séu að vísu góð, eru lög
Dire Straits miklu betri. Svo má
telja víst að Duran Duran yrði
dýrari og þyrfti að fá mjög marga
áheyrendur, þannig að endar
myndu varla ná saman. Það
myndi frekar borga sig að fá Dire
Straits — sem sagt Dire Straits á
Listahátíð í staðinn fyrir Duran
Duran.
Þessir hringdu . . .
Óstundvísi í
sjónvarpsdagskrá
Jóhanna Björnsdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — „Ég
get ekki orða bundist yfir óstund-
vísi þeirri sem tíðkast hjá íslenska
sjónvarpinu — það er hreinlega
ekkert að marka dagskrána hvað
varðar tímasetningu einstakra
þátta. T.d. núna á sunnudaginn
var byrjaði myndin „Úr árbókum
Barchester-bæjar" tuttugu mínút-
um síðar en auglýst hafði verið.
Þetta var ekkert einsdæmi og
venjuiega má reikna með svona 10
mínútum, og þá er ég ekki að tala
um tafir sökum bilana sem eru
skiljanlegar. Svo virðist stundum
að stjórnendur einstakra þátta
ráði því alveg hversu þættirnir
eru langir — sérstaklega fara
íþróttaþættirnir oft fram yfir
auglýstan tíma.“
Dire Straits
á Listahátíð
í staðinn fyrir Duran Duran