Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984
55
koma í veg fyrir að hann gæti
hugsað sjálfstætt.
Það eru margar hættur sem
steðja að þeim sem leyfa sér að
andmæla stjórninni. Það er m.a.
útlegð til Síberíu, þú færð hvergi
vinnu, þú ert sendur í þrælkun-
arbúðir, og þér er útskúfað og þú
ert andlega ofsóttur á götum úti
(Peter Reddaway Soviet special-
ist).
Marina Voikhanskaya geðlækn-
ir frá Sovétríkjunum sagði að þeir
„sjúklingar" sem hún hefði litið á
hefðu allir verið andlega heil-
brigðir, enginn geðsjúkur. Hún
tók einnig fram að þeir hefðu ekki
verið hættulegir samfélaginu eða
sjálfum sér, en stjórnvöld teldi þá
hættulega stefnu sinni.
í þessum þætti kom fram að
þúsundir manna væru nú í haldi
sökum þessa víðs vegar um Sov-
étríkin. Flestir eru þeir úrskurð-
aðir geðklofar og alvarlega geð-
sjúkir, og þar sem brjálæðingar í
Sovétríkjunum eru ekki leiddir
fyrir dóm, hverfa þeir oft spor-
laust og eru settir í endurhæfingu
þar sem reynt er að fá þá til þess
að hugsa „rétt“. Og það eru ekki
bara menn sem hafa aðrar póli-
tískar skoðanir en hin viður-
kennda stefna í landinu heldur
líða kristnir menn ofsóknir fyrir
trú sína. Algengt er að fólk fái
þetta 2—3 ár í þrælkunarbúðum
eða á geðveikrahælum fyrir guðs-
trú sína í hvert skipti, sem það er
dæmt, en tíu ár er heldur ekkert
einsdæmi.
Þegar ég því sit hér við skrif-
borðið mitt og set saman þessa
grein, meðan rigningin lemur á
gluggann minn, er mér hugsað til
þessara manna sem þurfa að líða
allar þær hörmungar sem gerast
innan veggja „þvottahúsanna" í
Sovétríkjunum. Þá held ég að þú,
lesandi minn, getir tekið undir
með mér er ég segi að það sé ekki
sem verst að búa á íslandi. Þó ég
sé nokkrum sinnum búinn að reka
rassinn framan í mér „æðri“ stétt-
ir og bölvað yfir óréttlætinu hvað
varðar arðrán verkalýðsins, þá sit
ég enn frjáls minna ferða, en lægi
og væri steindauður ef fæðst hefði
ég í Sovét."
Einar Ingvi Magnússon
íslenskt dýrafóður fram-
leitt og möguleikar á út-
flutningi í athugun
Velvakandi góður.
Ég sá í dálkunum þínum um
daginn skrif um hundafóður. Datt
mér þá í hug, sem hundavinur, að
vekja athygli þína á því að hér-
lendis er framleitt hundafóður og
mun það hafa komið á markaðinn
í haust er leið. Er hér um að ræða
kurlaðan mat, sem má gefa hund-
unum með daglegum matar-
skammti þeirra. Þetta eru kurlað-
ir þorskhausar. Er þetta góður
matur, fitusnauður en stútfullur
af próteini og steinefnum. Maður-
inn, sem framleiðir þennan
hundamat, er Guðlaugur Aðal-
steinsson og býr hér í Reykjavík.
Mun hann hafa gert tilraunir með
þennan mat áður en hann setti
hann á markaðinn hér í um tvö ár.
Þessi hundamatur er í plastpok-
um, rúmlega 700 grömm í hverjum
poka og heitir „Islenskt dýrafóð-
ur“ en mynd er af hundi utaná. Ég
tel þetta mjög góðan mat fyrir
hundana. Hefur mér verið sagt að
Guðlaugur sé að athuga mögu-
leika á því að flytja þessa fram-
leiðslu sína út. Hún fæst í ýmsum
verslunum hér í bænum a.m.k.
Hundavinur
Hver orti vísuna?
Kona hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — „Mig langar til að
spyrjast fyrir um höfund þessarar
vísu og eins hvort erindin eru
fleiri. Lagið við hana veit ég að er
eftir fsólf Pálsson og man ég að
móðir mín söng hana oft. Vísan er
svona:
Ég stóð um nótt við stjórn á veltufleyi
er stjörnur lýstu svala vetrar dröfn,
og var að hugsa um þessa víðu vegi,
sem vekja sár en sýna hvergi höfn.“
Athugasemd
forstöðukonu
við bréf Jónatans
Erla Gestsdóttir forstöðukona á
barnaheimilinu Smáralundi i
Hafnarfirði hringi og óskaði eft-
ir að birt yrði eftirfarandi
athugasemd við bréf Jonatans
Jónatanssonar sem birtist í
dálkum Velvakanda hinn 7.
febrúar: — Mig langar til að það
komi fram vegna skrifa Jónat-
ans Jónatanssonar að hann hafði
fengið vinnu hér á barnaheimil-
inu sjálfur er hann skrifaði bréf-
ið, en hann virðist ekki sjá
ástæðu til að geta þess. Kona
hans sótti einnig um vinnu hér
við ræstingar en fékk ekki af
ástæðum sem þeim hefur verið
gerð grein fyrir. Þá er rétt að
fram komi, að það er ekki ég sem
ræð í þessar stöður heldur bæj-
aryfirvöld.
Hvað eru jöfnun-
arhlutabréf?
Anna hringdi og bar fram þessa
fyrirspurn: — „Hvað eru jöfnun-
arhlutabréf? Ég sé það í Lögbirt-
ingi að mörg fyrirtæki gefa núna
út jöfnunarhlutabréf — eru þau
skattlítil eða skattfrjáls?
í leiðinni langar mig til að
minnast á annað. Mér finnst það
vera að taka úr annarri hendinni
og setja í hina ef fullvinnandi fólk
á að fá launabætur úr tryggingun-
um eins og nú er í ráði. Er þetta
ekki eitthvað einkennileg ráðstöf-
un?“
Frábær uppfærsla
Þjóðleikhússins
á Tyrkja-Guddu
Þórarinn Þórarinsson frá Eiðum
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja:
„Við hjónin sáum nýverið upp-
færslu á leikriti Dr. Jakobs Jóns-
sonar, Tyrkja-Guddu, í Þjóðleik-
húsinu. Vorum við sammála um að
af þeirri leikhúsferð hefðum við
ekki viljað missa — fór þar allt
saman: hádramatískt efni, frábær
leikur og stórkostleg uppfærsla."
Athugasemd vegna
pistils um
Þórunni á Grund
LESBÓK Morgunblaðsins gerir eftir-
farandi athugasemd við pistil Guð-
bjargar Jónsdóttur „Um stólinn Þór-
unnar á Grund — og smíðar Þor-
steins“: „llmrædd grein er byggð á
bókinni „100 ár í þjóðminjasafni" eftir
Kristján Eldjárn sem hlýtur að teljast
traust heimild. Greinarhöfundur fer
þannig ekki eftir því sem hann minnir
að hann hafi lesið einhvers staðar eða
heldur að hann hali lesið einhvern
tíma.“
Þá hafði Egill Sigurðsson sam-
band út af vísunni og fullyrðir hann
að önnur hendingin sé: „á þeim
staðnum fríða" en ekki „á þeim garði
fríða". Egill segist hafa lært þessa
vísu fyrir 70 árum og telur að hún sé
eftir Þórunni sjálfa. Þá telur Egill
að þessi vísa sé einhver fyrsta fer-
skeytla sem vitað er um hér á landi.
Verðbólgan
er á undanhaldi
- í Vörumarkaðinum -
í grjónagrautinn
River hrísgrjón — hvít og brún 19.50 pk.
Rúsínur „Sun Maid“ 500 gr. 69.00 kr.
Rúsínur „Sun Maid“ 250 gr. 38.40 kr.
Dilkakjöts-útsala 2. flokkur
Leyft verö 110.65 kr./kg.
Okkar verö 99.60 kr./kg.
Nautahakk 5 kg pakkning
150 kr./kg.
Nýgrilladir kjúklingar
— allan daginn —
Hrásalat
sem kitlar bragölaukana svo um munar
Grískar appelsínur
aöeins 25 kr./kg.
Pillsbury’s Best hveiti
5 Ibs. á aöeins 47.50 pr./pk.
-íSB
Helgarr®ttur'nn
Bacon-L
bu« \
aðeins 19 kr./stk.
Kynningar:
Spánskar „Fuenmora“
appelsínur
Álegg eins og þaö verður best.
Athugiö verslunartíma
á laugardögum:
Ármúla 1A kl. 10—14
Eiöistorgi II kl. 10-16
Opiö til kl. 21:00
í kvöld
visa
Vörumarkaðurinnhf.
Meira fyrir minna
ÁRMÚLA 1a EÐISTORG111