Morgunblaðið - 28.03.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984
53
Málefni aldraðra III____________________________I>órir S. Guðbergsson
„Hugur og hönd þrosk-
ast við hæfilega þjálfun“
„Auðsætt er að þjálfun og hófsemi megna að
tryggja ellinni hluta af þrótti liðinna ára ...
En ekki nægir að hlúa að líkamanum einum.
Það er enn brýnna að hvessa sálargáfurnar.
Þær dvína einnig með aldrinum eins og ljós á
lampa er honum er eldsneytis vant.“ (Cicero)
Félagsmálastofnun Reykja-
víkur rekur nú öflugt félagsstarf
á 4 stöðum í borginni, en auk
þessa er rekin félagsstarfsemi
fyrir aldraðra í Menningar-
miðstöðinni í Gerðubergi og dag-
vistun fyrir aldraða í þjónustu-
íbúðunum við Dalbraut, hvort
tveggja á vegum Reykjavíkur-
borgar.
Höfuðmiðstöð félagsstarfs
aldraðra er á Norðurbrún 1. Áð-
ur hafði starfið verið rekið á
ýmsum stöðum m.a. á Hall-
veigarstöðum við Túngötu og í
félagsheimili Fóstbræðra við
Langholtsveg, Tónabæ o.fl. stöð-
um.
Þegar íbúðir aldraðra voru
teknar í notkun á Norðurbrún 1,
1972, var ákveðið að þjónustu-
deild með félagsstarfi yrði rekin
í kjallara hússins enda yrði þá
létt á erfiðleikum starfsmanna
sem sífellt þurftu að vera á hött-
unum eftir leiguhúsnæði sem
hentaði misjafnlega vel.
Félagsstarfið í Norðurbrún
hófst svo skömmu síðar þó að
allur kjallarinn væri ekki tekinn
í notkun samtímis. Forstöðu-
maður félagsstarfsins, Helena
Halldórsdóttir, sem áður hafði
haft skrifstofu í Tjarnargötu 11,
fluttist nú í Norðurbrún og hafði
eins og áður yfirumsjón með
daglegum rekstri félagsstarfs-
ins.
Með bættum möguleikum og
betri aðstöðu var svo reynt að
fitja upp á ýmsum nýjungum,
reynslan borin saman við ná-
grannaþjóðir okkar og reynt að
vega og meta hvað væri þýð-
ingarmest miðað við aðstæður
aldraðra í Reykjavík.
Félagsstarfið í
Norðurbrún 1
Félagsstarf í Norðurbrún er
nú þróttmikið og daglega opið
frá kl. 9.00—17.00. Allar nánari
upplýsingar eru gefnar í síma:
86960.
Nær daglega er hringt í Norð-
urbrún eða á deild Félagsmála-
stofnunar sem hefur málefni
aldraðra á sinni könnu til þess
að fá upplýsingar um það fyrir
hvern félagsstarfið sé, hvort all-
ir megi koma, hvað sé um að
vera, hvort annað hjóna megi
vera yngra en 67 ára eða önnur
systra o.s.frv.
Eftir því sem félagsstarfið
eykst í borginni og ýmiss konar
öldrunarþjónusta veitist á æ
fleiri sviðum og af fleiri aðilum
verður nauðsynlegt að kynna
málefni aldraðra vel meðal borg-
arbúa, en eins og sakir standa
eru allar upplýsingar veittar í
félagsstarfinu að Norðurbrún 1
eins og áður sagði en jafnframt
að Lönguhlíð 3 og í Furugerði 1.
Félagsstarf aldraðra á vegum
Reykjavíkurborgar er fyrir alla
Reykvíkinga 67 ára og eldri (og
jafnvel þótt annað hjóna sé
yngra). Það er rekið til þess að
mæta ákveðinni þörf aldraðra
fyrir aukna tómstundastarfsemi
og félagslega samveru og býður
upp á þjónustu og starfsemi eins
og: smíði, föndur, leðurvinnu,
leirmunagerð, leikfimi, bókaút-
lán, félagsvist, böðun, hársnyrt-
ingu, fótsnyrtingu, teiknun og
málun og þannig mætti lengi
telja og má þá ekki gleyma
gömlu dönsunum í Norðurbrún
sem eru síðasta fimmtudag
hvers mánaðar og sundnám-
skeiðunum í Sundhöllinni.
Forstöðumenn og starfsmenn
félagsstarfsins vilja gjarna
heyra meira frá þátttakendum
um þarfir þeirra og þörf á breyt-
ingum. Aldraðir þurfa að eiga
meira frumkvæði, starfið og
þjónustan er fyrir þá fyrst og
fremst.
„Auðsætt er að þjálfun og hóf-
semi megna að tryggja ellinni
hluta af þrótti liðinna ára ... Vér
hljótum að sporna við ellinni, og
andæfa slíku böli með ráðum og
dáð, ellihrumleik á sama hátt og
sjúkdómum, gsta heilsu vorrar af
kostgsfni, iðka hsfilega þjálfun,
neyta ekki meiri matar né drykkj-
ar en svo að kraftarnir haldist en
dofni ekki. En ekki nsgir að hlúa
að líkamanum einum. Það er enn
brýnna að hvessa sálargáfurnar.
Þsr dvína einnig með aldrinum
eins og Ijós á lampa ef honum er
eldsneytisvant. Hugur og hönd
þroskast við hsfdega þjálfun. Sá
er þó munur á að líkaminn þreytist
við áreynslu, en andinn fjörgast og
hressist þegar honum er beitt.“
(Cicero: „Um ellina**.)
Eygló Huld Jónsdóttir, 9 ára, vann
utanlandsferð í bingói.
Egilsstaðir:
„Eg ætla að
gefa mömmu
viiniinginn“
— segir Eygló Huld, 9
ára stúlka, sem vann
utanlandsferð í bingó-spili
Egilsstöðum, 15. mars.
Ferðaskrifstofan Útsýn gekkst fyrir
sérstakri ferðakynningu í V’alaskjálf
hér á Egilsstöðum nú fyrir skemmstu.
Þar komu fram ýmsir þekktir
skemmtikraftar auk þess sem spilað
var bingó og voru vinningarnir ekki
af verri endanum: Tvær utanlands-
ferðir og helgarferð til Reykjavíkur.
Við náðum tali sem snöggvast af
einum vinningshafanum, Eygló
Huld Jónsdóttur, 9 ára stúlku úr
Fellabæ, sem vann aðrs utanlands-
ferðina.
„Ég hef aldrei komið til útlanda,"
sagði Eygló Huld, „og varla fer ég að
fara ein núna. Ætli ég gefi mömmu
bara ekki vinninginn."
Heldurðu að hún þori að fara ein
til útlanda?
„Ætli pabbi fari nú ekki með
henni. Svo fer ég bara einhvern tíma
seinna sjálf þegar ég er orðin stór.
Kannski vinn ég þá aftur utanlands-
ferð í bingói,“ sagði Eygló Huld að
lokum. _ ()|afur
LAUNAIM
Með reg/ubundnum viðskiptum
fara hiutirnirað rúlla
Launalánakerfíð er traustur bakhjarl sem
getur rúllað fjármálunum yfir erfiðleikatíma - það
er bæði hagkvæmt og öruggt fyrirkomulag.
Með því að láta greiða (eða gera það sjálf(ur))
laun þín, tryggingabætur eða aðrar reglubundnar
greiðslur inn á reikning í Verzlunarbankanum,
geturðu sjálfkrafa gengið að öruggu láni þegar þér
best hentar.
Hærri Launalán.
Upphæðir Launaláns hafa nú verið hækkaðar:
eftir 3ja mánaða viðskipti kr. 20.000.-
eftir 6 mánaða viðskipti kr. 30.000.-
eftir 12 mánaða viðskipti kr. 40.000.-
eftir 18 mánaða viðskipti kr. 50.000.-
Leitaðu upplýsinga og fáðu bækling í næsta Verzlunarbanka
V/€RZLUNRRBRNKINN
Bankastræti 5 Grensásvegi 13 Umferðarmiðstöðinni Vamsnesvegi 13, Keflavík Húsi verslunarinnar,
Arnarbakka 2 Laueavegi 172 v/Hringbraut Þverholti, Mosfellssveit nýja miðbænum
AUK hf. Auglysingastofa Kristínar 43.61