Morgunblaðið - 28.03.1984, Blaðsíða 25
fclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984
73
David Bowie fer með aðalhlut-
verkið í „Rottufangaranum“
+ Söngvarinn David Bowie er
fleira til lista lagt en að syngja
eins og flestum mun kunnugt.
Hann er líka dágóður leikari og
er stöðugt að færa sig upp á
skaftið í kvikmyndunum. Þær
eru orðnar nokkuð margar
myndirnar, sem hann hefur leik-
ið í, og yfirleitt hefur hann fengð
ágæta dóma fyrir frammistöð-
una.
Bowie hefur nú verið valinn til
að fara með aðalhlutverkið í
nýrri mynd, nokkurs konar
ævintýramynd, sem heitir
„Rottufangarinn", og munu upp-
tökur á henni hefjast í Kanada í
sumar. Leikstjóri myndarinnar
verður Nick Meyer, sá sem gerði
„Daginn eftir“ og Bowie þurfti
ekki að hugsa sig um tvisvar
þegar honum var boðið hlutverk-
ið.
A1 Pacino:
„Kraftaverk að ég
skuli vera á lífí“
+ Um þessar mundir er víða verið
að frumsýna myndina „Scarface"
en þar fer með aðalhlutverk leik-
arinn A1 Pacino. Raunar hafði
leikstjórinn, Brian De Palma,
fyrst boðið John Travolta hlut-
verkið, en honum leist ekkert á
það. „Allt of mikið blóð,“ sagði
hann og hafnaði því.
„Það á best við mig að vera í
stöðugu uppnámi,“ segir Pacino,
„og Brian sá líka til þess. Ég hafði
hann alltaf grunaðan um að ætla
að kála mér einhvern daginn og
þótt hann hefði þar með misst að-
alleikarann í mynd, sem kostaði 21
milljón dollara, þá hefði hann
sjálfur fengið sitt út úr því. Hann
er með blóðbað á heilanum og vildi
helst af öllu hafa raunverulegar
kúlur í byssunum. Það má því
heita kraftaverk að ég skuli vera á
lífi.“
A1 Pacino, sem er 44 ára gamall,
er annars ekkert ginnkeyptur
fyrir kvikmyndaleiknum. Hann er
miklu hrifnari af leikhúsinu og
hefur nú í nærri sex mánuði leikið
'fyrir fullu húsi á Broadway í leik-
ritinu „American Buffalo“. Hann
býr í New York og skiptir um
heimilisfang fimmta hvern mánuð
til að geta frekar verið í friði með
sitt einkalíf.
„Mér alveg sama um veraldleg
verðmæti og kem öllu mínu í tvær
ferðatöskur," segir Pacino.
+ Leikarar og annað frægt fólk
eru yfirleitt heldur stórtækir í
kröfugerðinni fyrir sjálfs sín
hönd og í Bandaríkjunum
a.m.k. leika allar tölur á millj-
ónum þegar þeir eru annars
vegar. Það getur hins vegar
líka verið dýrt fyrir þá sjálfa
að verða á í messunni eins og
leikarinn Peter O’Toole hefur
nú fengið að reyna. Hann var
við kvikmyndaupptökur í Kali-
forníu nú fyrir nokkru þegar
maður nokkur nálgaðist hann
og bað um að fá að taka af
honum ljósmynd. Peter svaraði
manninum engu heldur sló
manninn til jarðar. Nú hefur
ljósmyndarinn höfðað mál á
hendur honum og vill fá 60
milljónir ísl. kr. í bætur fyrir
kjaftshöggið.
Al Pacino í myndinni „Scarface". Hér er hann með leikkonunni Michelle
Pfeiffer.
COSPER
Rým-
ingarsala
á skíðum,
skíðaskóm
og skíðafatn-
aði.
Allt að
40%
afsl.
D»mi: Áöur Nú
Red Star skíði 160—165 cm 3.150 1.890
Cup Star Mid og RS 170—190 3.150 2.485
Racer Junior 90—130 cm 1.795 1.595
Racer Junior 140—165 2.387 1.990
Blue Star Mid og GT 175—190 cm 4.514 3.490
Formel V Compact 190 cm 3.100 1.490
Racing Star 140—175 cm 3.608 3.190
White Star keppnisskíði 185—200 cm 8.000 4.000
Touring gönguskíöi 180—215 2.247 1.790
Touring HC gönguskíði 180—215 2.397 1.950
Super Star VM gönguskíði 4.000 1.990
Fatnaöur
Stretsb. 116—128 1.850 1.395
140—152 1.950 1.595
164—176 2.150 1.695
38—44 2.325 1.990
46—56 2.425 1.990
Thermo stretsbuxur 46—56 3.995 3.100
Skíðaskór
Maya 26—30 1.250 750
Wicke Flex 26—30 1.340 690
Junior 32—40 1.595 990
Flash 41—46 2.285 1.965
Contessa 4—7 2.419 1.965
Serena 4—7 2.950 2.400
Junior Racer 36—40 2.307 1.595
Turpo 42—46 3.900 2.900
Quatro 42—46 5.640 4.300
Strator 42—46 4.451 3.650
Samfestingar 38—44 3.630 2.890
Skíöaúlpur Lisch 36—54 2.562 1.995
Skíöaúlpur Kneissl 36—52 2.050 1.399
Ath.: Takmarkaö magn
Póstsendum — Visa — Eurocard —
Greiðsluskilmálar — Póstsendum