Morgunblaðið - 28.03.1984, Blaðsíða 20
68
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984
Fimmmenningarnir í hljómsveitinni Lizard teknir tali:
„Sumt fólk veit ekki hvað báru-
járnsrokk er en dæmir það samt“
„Það er til fullt af fólki, sem veit
ekki hvað bárujárnsrokk er, þaö
bara skilur ekki þetta orð. Lætur
sig hins vegar ekki muna um að
dæma þessa tónlist ómögulega
jafnvel þótt það hafi aldrei heyrt
hana. Svo er annað. Ef fólk er
komið yfir einhvern ókveöinn ald-
ur er eins og ekki mega hlusta á
þessa tónlist. Svona hugsunar-
háttur er fáránlegur.“
Þeir, sem eiga ofangreind um-
mæli eru fimm ungir sveinar. Und-
anfarnar vikur hafa þeir æft af
kappi í Fischersundinu undir heitinu
Lizard. Stóra stundin rennur upp á
morgun, fimmtudag, er þeir koma i
fyrsta sinn fram á tónleikum. Þeir
tónleikar veröa í Safari.
Sem fyrr segir eru meðlimir Liz-
ard fimm talsins. Ársæll Stein-
móösson syngur, ívar Árnason leik-
ur á gítar, Siguröur jvarsson á
bassa, Valdimar Sigfússon á gítar
og Brynjar Björnsson á trommur.
Enginn fimmmenninganna hefur
lagt tónlistarnám fyrir sig, en Brynj-
ar hefur notiö leiösagnar Magnúsar
Stefánssonar.
Þaö voru þeir Valdimar og Brynj-
ar, sem settu sveitina á laggirnar.
Þeir byrjuðu sjálfir aö spila saman
fyrr í vetur, síöan bættist Siguröur
viö. Ársæll varö næstur til aö ganga
til liðs viö Lizard og ívar Árnason
fyllti svo töluna fyrir nokkrum vik-
um. Sveitin er reyndar ekki nema
Lizard-flokkurinn rýnir í linsu Ijósmyndarans.
Eiríkur Hauksson, söngvari Drýsils.
Bárujárnstón-
leikar í Safari
Þriðju og væntanlega síöustu rokkinu, sem viröist óðum vera að
tónleikarnir í tónleikaröö SATT
undir heitinu „1984“ fara fram í Saf-
ari á morgun, fimmtudag. Þessir
tónleikar verða helgaðir bárujárns-
vaxa fiskur um hrygg.
Þaö verður hljómsveitin Lizard,
sem ríöur á vaöiö. Eins og sjá má í
viötali við hljómsveitina annars stað-
ar á Járnsíöunni, er þetta ung sveit
og efnileg.
Centaur stígur því næst á svið, en
sá flokkur er í örri framför. Drýsill
rekur síöan smiöshöggiö á verkiö.
Skemmst er aö minr.ast magnaörar
frammistööu þeirrar sveitar í Safari í
byrjun mánaöar.
Miöar á tónleikana munu kosta kr.
200 og rennur hagnaöurinn til SATT.
mánaðargömul í núverandi mynd.
Ég spuröi strákana aö því hvort
þaö heföi alltaf veriö takmarkiö aö
stofna bárujárnssveit.
„Já, þaö var alltaf markmiöiö hjá
okkur. Auðvitað viljum viö svo leika
sem mest eigin tónlist og eigum
núna 7 fullkláruö lög, en síöan verö-
um viö kannski meö eitthvaö af
„kópíeruöum" lögum. Viö semjum
þetta hver í sínu lagi, en berum svo
saman bækur okkar þegar lögin
eru útsett. Ársæll semur textana."
— Hversu oft æfiö þiö í viku?
„Viö reynum aö æfa a.m.k. fjór-
um sinnum. Stundum æfum viö
oftar og notum helgarnar alltaf sér-
lega vel.“
Aö sögn strákanna mætast í
raun fimm ólíkir bárujárnspólar inn-
an Lizard. Einn heldur mest upp á
Judas Priest, annar upp á Iron
Maiden o.s.frv.
Lizard er fyrsta hljómsveitin, sem
strákarnir gista. Brynjar lók reyndar
í einhverjum dansiballasveitum fyrir
austan en telur þaö ekki meö til
afreka. Þótt ólikir pólar mætist inn-
an sveitarinnar segja strákarnir
andann vera sérlega góöan og al-
varlegan ágreining aöeins einu sinni
komið upp. Þá sló í brýnu vegna
einhvers tiltekins lags, en allt féll í
Ijúfa löö aö nýju.
„Viö stefnum núna aö því aö
spila eins mikiö og viö getum. Ætl-
um kannski aö reyna aö komast
eitthvaö inn í skólana og kýla síöan
á sveitaböllin í sumar. Þaö er allt
annar „fílingur" rikjandi gagnvart
rokkinu úti á landi. Hann þarf bara
aö ná hingaö inn í Reykjavík líka."
— SSv.
Síöustu
forvöö
EINS OG Járnsíðan hefur skýrt frá
hefur SATT aö undanförnu veriö aö
vinna aö undirbúningi útgáfu safn-
plötu. Undirbúningurinn hefur gengiö
vel og hafa margar hljómsveitir sent
inn efni. Jóhann G. Jóhannsson, ein
helsta sprauta SATT-samtakanna,
hefur beöið Járnsíöuna aö koma því
á framfæri viö allar þær hljómsveitir,
sem eiga upptekiö efni í fórum sínum
og hefðu e.t.v. áhuga á aö koma því
á þessa plötu, aö síöustu forvöð séu
nú aö skila efni.
Dá vakti alla úr rot-
inu meö frábærum leik
Dá var tvímælalaust aú hljómsveit, sem kom meat
á óvart á tónlistarkvöldi SATT, sem haldið var I Saf-
ari sl. fimmtudag. Auk þeirrar sveitar komu Dúkku-
Ksurnar og Jelly Systur fram.
Dá er sex manna flokkur, skipaöur tveimur bassa-
leikurum, gitarleikara, hljómborös- og trommuleikara
auk stórskemmtilegrar söngkonu. Söngkonan, sem
heitir Hanna Steina, á ekki langt aö sækja hæfileikana
— er nefnilega systir Diddúar, sem um árabil heillaöi
landsmenn upp úr skónum meö söng sínum og fram-
komu. Auk hennar er Eyjólfur Jóhannsson, fyrrum
Tappi, í sveitinni, svo og þeir Heimir og Helgi úr Haugn-
um. Nöfn hinna þekki ég ekki.
Tónlistin hjá Dá er um margt ákaflega sérstök. Undir
yfirborðinu ólgar drungalegur en í senn seióandi
bassa- og trommuleikur. Dá teflir fram tveimur bassa-
leikurum, sem spila afar skemmtilega saman og af
miklu öryggi, og trymbillinn notast viö tvær bassa-
trommur. Gítarleikurinn er eiginlega ekki síöur spurn-
ing um „effecta" en heföbundinn gítarleik, sömuleiöis
hljómborósleikurinn. Söngkonan hefur allt til aö bera,
sterka rödd og góöa sviðsframkonu, en samt heyröist
lítið hvað hún var aö segja. Tek hér meö undir ummæli
SigA í DV varöandi söngvarana. Dá er sveit, sem á
framtíöina fyrir sér, en um vinsældirnar held ég gegni
ööru máli. Dá er bara ekki þannig sveit.
Dúkkulísurnar riöu á vaöiö þetta kvöld i Safari og
ekki bar á öóru en þeir rúmlega 100 gestir, sem
greiddu sig inn, tækju þeim vel. Mörg laganna hjá
Dúkkulísunum haföi ég ekki heyrt, en þau bera þvi vitni
aö þetta er hljómsveit, sem er í örri framför. Bassaleik-
urinn ákaflega öruggur og án efa sterkasti hlekkurinn í
keöjunni. Söngurinn var ekki eins sterkur og ég hef
áöur heyrt, sömuleiöis gítarleikurinn. Hljómborösleik-
urinn er hins vegar nokkuö góöur sem og trommuleik-
urinn. Þó átti Guöbjörg á trommunum þaö til aö
„hlaupa upp" eins og stundum er sagt um hestana, þ.e.
missa vald á því sem hún var aö gera. Sem fyrr voru
Dúkkufisurnar hin besta skemmtun. Tvímælalaust
hljómsveit, sem vert er aö fylgjast meö.
Jelly Systur tóku viö af Dúkkulísunum. Ánægjulegt
aö í höfuöborginni skuli vera aö finna tvær hljómsveitir,
sem alfariö eru skipaöar „veikara kyninu". Þaö er mikill
munur á þessum tveimur sveitum og Jelly Systur eiga
mikiö ólært. Inn á milli örlaöi þó á góóum töktum og
sviösframkoman var ágæt. Bætti vafalítiö upp máttlit-
inn hljóöfærleik á köflum. Þaö er engin.ástæða til aö
vera meö nein hnútuköst, Jelly Systur voru samt lang-
samlega slakasta sveitin þetta kvöld, en eiga örugg-
lega eftir aö þroskast verulega.
POPP-
Bergþóra Árnadóttir.
Ný plata
Bergþóru
í vinnslu
Bergþóra Árnadóttir hefur lítiö
látiö í sér heyra aö undanförnu
enda hvíldinni vafalítiö fegin eftir
hamaganginn allt síðasta ár. Hún
er þó ekki aldeilis sest í helgan
stein og er meö nýja breiöskífu í
smíðum.
Þaö er Tryggvi Hubner, sem
ber hitann og þungann af þessu
verki. Ekki aöeins sér hann um
alla upptökustjórn og „pródúsj-
ón“ (vel á minnst, fyrsta verkefni
hans á þessu sviöi) heldur sjá
hann og Þórir Baldursson aó
mestu um allan hljóófæraleik á
plötunni.
Ekki hefur veriö ákveöió hve-
nær þessi plata Bergþóru kemur
út. Hún verður unnin í rólegheit-
unum og allt eins gæti svo fariö
aö safnsnældan Á felgunni, sem
hefur að geyma lög af plötum
Bergþóru, Hálft í hvoru og Guö-
mundar Árnasonar, yröi fyrri til á
götuna.
Síöast en ekki síst má svo geta
þess, aó Bergþóra var fyrir
skemmstu beöin aö semja lag á
sérstaka snældu, sem gefin verö-
ur út af Menningar- og fræðslu-
sambandi alþýöu eöa sambæri-
legum félögum á öllum Norður-
löndunum. Snældan er væntan-
leg meö vorinu.
Bobby og
Stefán S.
taka upp
Vafalítió kannast lesendur
Járnsíöunnar við Bobby
nokkurn Harrison. Hann geröi
garðinn frœgan hár á árum
áöur moö hinni heims-
þekktu hljómsveit Procol
Harum, en hefur undanfarin
ár dvaliö hér á islandi og
skemmt veitingahúsagest-
um, aöallega þó í Þórscafé,
meö blúsuöum söng.
Járnsíöan hefur nú fregn-
aö, aö Bobby og Stefán Stef-
ánsson, stórsaxófónleikari,
hafi að undanförnu veriö aö
vinna við upptökur og hyggist
gefa út plötu saman áður en
langt um líöur. Hafa þeir fé-
lagar þreifað fyrir sér í Bret-
landi meö útgáfu og fengiö
jákvæðar undirtektir.