Morgunblaðið - 28.03.1984, Qupperneq 8
56
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984
þess kost að greiða 3 dollara fyrir
töskuna ef þeir vildu að starfsfólk
PE kæmi henni út í vél. Um borð í
vélunum áttu ekki að vera nein
tímarit eða dagblöð og ef farþeg-
arnir óskuðu eftir drykk, kaffi,
mat eða snarli þá áttu þeir að
greiða aukalega fyrir það. Sem
sagt, í stuttu máli, engin af hinum
hefðbundnu þægindum áætlunar-
flugsins nema gegn aukagreiðslu.
í dag eru flestar þessar hugmynd-
ir orðnar að raunveruleika, flug-
félagið PEOPLExpress.
PEOPLExpress hefur notað eina Boeing 747/200 í N-Atlantshafsflugleiðinni frá því að það flug hófst í júní 1983.
Væntanlega verður þremur B-747-breiðþotum bætt við í sumar.
um ódýrt fargjald í innanlands-
fluginu er 44 dollara-fargjaldið
(1.300 ísl. kr.) milli New York og
Washington DC, sem er 70 mín.
flug með B-727-þotu. Á þessari
sömu leið býður PE aðeins 19 doll-
ara fargjald (560 ísl. kr.) sem er
svipuð upphæð og við borgum
fyrir leigubíl frá Lækjartorgi til
Hafnarfjarðar og til baka. Að
vísu eru þau skilyrði sett fyrir
þessu ódýra gjaldi að ferðast eftir
kl. 19.00 virka daga eða á laugar-
og sunnudögum.
í öðru lagi vitnar það til hinna
sérstöku samskipta við starfsfólk-
ið, en það er ekki óeðlilegt, því allt
fastráðið starfsfólk verður að
kaupa hlutabréf við ráðningu og
fer upphæðin eftir eðli starfsins.
Sérhver starfsmaður ber titil-
inn „framkvæmdastjóri" (manag-
er) t.d. eru flugmenn fram-
kvæmdastjórar flugs, starfsfólk
farskrárdeildar og flugfreyjur/-
þjónar eru framkvæmdastjórar
viðskiptaþjónustu, og flugvirkjar
bera tiltilinn framkvæmdastjórar
viðhalds o.s.frv. Titlarnir eru ekki
aðeins til skrauts eins og svo oft
vill verða, því það eru aðeins
fimmtán raunverulegir æðstu
stjórnendur. Það, að félagið er
sameign allra 1.200 „stjóranna" er
bersýnilega nóg til að þeir verði
hver og einn yfirmaður yfir sjálf-
um sér og inni starf sitt vel af
hendi.
Þá er starfsfólkið ekki í neinu
stéttarfélagi, en það skiptir auð-
vitað miklu máli fyrir reksturinn,
því verkalýðsfélögin setja fyrir-
tækjum margvíslegar takmarkan-
ir, ekki síst flugfélögum. Þannig
hefur PE leyfi til að láta fólkið
ganga á milli hinna ýmsu starfa.
Flugmenn þurfa eftir hverja
70—80 flugtíma að vinna nokkra
daga í flugumsjón, starfsfólkið í
farskrárdeild vinnur sem flug-
freyjur/þjónar og öfugt. Auk þess
þurfa allir með regulegu millibili
að hjálpa til við innritun farþega,
afgreiðslu vélanna, bera töskur
o.s.frv. og meira að segja æðstu
stjórnendurnir fimmtán eru ekki
undanþegnir skiptingunum.
Starfssvið þeirra fimmtán
æðstu skiptist ekki eftir deildum
eins og víða tíðkast hjá flugfélög-
um heldur ber hver og einn
ábyrgð á sinum hluta starfsfólks-
ins og ákveðnum flugleiðum. Síð-
an samræma þeir þetta innbyrðis
og fá þannig heildarsýn yfir
reksturinn. Til gamans má geta
þess að enginn þeirra hefur einka-
ritara.
Hið lýðræðislega skipulag og
von starfsfólksins um hlutdeild í
hagnaðinum ef vel gengur virðist
vega þyngra a metunum en mikið
vinnuálag og lægri grunnlaun hjá
PE. Gífurlegur fjöldi umsókna
um lausar stöður er til marks um
það. PE borgar töluvert lægri
grunnlaun en önnur flugfélög og
áþreifanlegt dæmi eru byrjenda-
laun flugmanna, sem eru frá 30
þús. dollurum á ári (885 þús. ísl.
kr.), en það þykja ekki sérstaklega
há laun fyrir atvinnuflugann í
Bandarikjunum.
í kjölfar Laker
á Atlantshafinu
Það er ekki langt síðan sir
Breska flugtímaritiö Flight International skýrir frá því í nýlegu hefti aö bandaríska
flugfélagiö PEOPLExpress (PE) hyggi á aukin umsvif á Noröur-Atlantshafsflug-
leiöinni. Auk innanlandsflugs í Bandaríkjunum flýgur félagið nú á flugleiðinni
New York — London og býður mjög lág fargjöld eða 149 dollara (tæpl. 4.400 ísl.
kr.) fyrir sætiö aðra leiðina.
í frétt frá Flight kemur fram að PE hafi nýlega undirritað tveggja ára samning við
eitt af dótturfyrirtækjum Boeing um leigu á þremur notuðum Boeing 747-breiðþot-
um — tveimur B-747/200 og einni B-747/100. Vélarnar verða teknar í notkun í júní
nk. Samkv. samningum getur PE annaðhvort keypt vélarnar á samningstímabilinu
eða í lok þess ef áhugi er fyrir hendi. B-747/200 vélarnar eru mun dýrari og er
kaupverð hverrar vélar 21,5 millj. dollara (rúml. 634 millj. ísl. kr.) samanborið við
16,5 millj. dollara (tæpl. 487 millj. ísl. kr.) sem 100-gerðin kostar.
Núverandi stjórnarformaður og
aðalhvatamaðurinn að stofnun
flugfélagsins fyrir tæpum þremur
árum, Donald Burr, hefur að sögn
Flight áhuga á að nota hinar nýju
breiðþotur á N-Atlantshafsleið-
iimi og hefur í þvi sambandi mik-
inn áhuga á Luxemborg og Amst-
erdam sem nýjum endastöðvum í
Evrópu. Ef þetta er eitthvað ann-
að en orðin tóm þá er þess að
vænta að PEPOLExpress hefji
flug inn á meginland Evrópu á
komandi sumri og þá kannski
hættulega nærri endastöð Flug-
leiða sem er í Luxemborg eins og
kunnugt er.
Bæði flugfélögin eru kunn aust-
an hafs og vestan fyrir lág far-
gjöld yfir Atlantshafið. Fram að
þessu hefur þó eini ákvörðunar-
staður PE í Evrópu verið London
og því er ekki óliklegt að áform
stjórnenda PE skaði samkeppnis-
aðstöðu Flugleiða á Atlantshafs-
flugleiðinni; þ.e.a.s. ef þau verða
að veruleika.
PEOPLExpress, sem er eitt
fyrsta afsprengi frjálsræðisstefnu
Carter-stjórnarinnar í flugmál-
um, hefur vaxið mjög hratt og það
er óhætt að fullyrða að það sé
flugfélag með mjög ferskan blæ.
Fargjöld og kostnaður
í lágmarki
Flugfélaginu var ýtt úr vör af
hópi fyrrverandi framkvæmda-
stjóra Texas International-flugfé-
lagsins sáluga, en þeir töldu að
með frjálsari flugmálastefnu
Bandaríkjastjórnar árið 1978 yrði
hægt að brydda upp á ýmsum nýj-
ungum í flugrekstri, og litu m.a.
til nágrannaflugfélagsins
Southwest Airlines sem hafði um
skeið boðið lág fargjöld, haldið
kostnaði í lágmarki og rekið
flugflota sinn eins og strætis-
vagna, ef svo má að orði komast.
Hugmyndin var að bjóða lág
fargjöld, tíðar ferðir og bein flug
milli stöðva í eða við stærsu borg-
irnar í mið- og austurríkjum
Bandaríkjanna, og borga, þar sem
ferðatíðnin var frekar lág miðað
við flutninga og fjargjöldin því
tiltölulega dýr. Töldu aðstandend-
ur PE að á slíkum leiðum væri
helst hægt að auka farþegafjöld-
ann. Þá áttu ekki að vera neinar
söluskrifstofur og væntanlegir
farþegar áttu að hringja beint í
farskrárdeild félagsins í New
York eða að panta far hjá ferða-
skrifstofum. Innritun farþega átti
að fara fram við brottfararhliðin
eftir tölvuprentuðum pöntunar-
listum en farþegarnir áttu að
greiða sjálft fargjaldið um borð í
flugvélunum. Farþegarnir áttu að
bera farangur sinn sjálfir að
flugvélunum en skyldu þó eiga
í byrjun keyptar
17 Boeing 737
Þegar framangreindar hug-
myndir voru færðar í form var
ákveðið að aðalstöðvarnar yrðu á
Newark-flugvellinum sem er einn
þriggja flugvalla New York-
borgar.
Samið var við þýska flugfélagið
Lufthansa um kaup á 17 notuðum
Boeing 737/100-vélum og var
kaupverð hverrar vélar 4,5 millj.
dollarar, 132,7 millj. ísl. kr.). PE
setti fleiri sæti um borð þannig að
þær rúmuðu 118 farþega í stað 90
eins og var hjá Lufthansa, en
þetta var unnt með því að taka úr
vélunum hluta eldhúsanna og
fyrsta klassa farrýmið. Þá voru
settir í vélarnar rýmri skápar
fyrir handfarangur.
Reksturinn hófst svo formlega
30. apríl 1981 með 3 af hinum 17
vélum sem voru keyptar af Luft-
hansa og var í fyrstu flogið til 4
borga. Núna eru áfangastaðirnir
innan Bandaríkjanna orðnir
a.m.k. 16 og svo London í Atlants-
hafsfluginu. Flugvélaflotinn er
núna orðinn 22 B-737, 8 B-727 og 1
B-747. Sl. ár keypti félagið 44
B-727-vélar, 8 eru þegar í notkun
en hinar 36 komu ein af annarri
næstu tvö árin. í júní nk. bætast í
hópinn breiðþoturnar þrjár sem
getið var hér að framan.
Sérhver starfs-
maður „stjóri“
Orðið „People" í nafni félagsins,
eða fólk, eins og það útleggst á
íslensku, hefur tvöfalda merkinu.
í fyrsta lagi vitnar það til þeirrar
staðreyndar að lágu fargjöldin
laða að stóran hóp ferðafólks sem
annars hefði tekið sér far með
lestum eða langferðabílum. Dæmi
PEOPLExpress
Luxemborg hugs-
anlegur ákvörðun-
arstaður í Evi'
Flug
Gunnar Jónsson