Morgunblaðið - 01.05.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.05.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MAl 1984 Vorum rólegir allan tímann segir Jón Hálfdánarson, skipverji á GuÖrúnu Olafs- dóttur, sem leitað var undan Látrabjargi á sunnudag „ÞAÐ VAR aldrei nein ástæða til að óttast. Við vissum að verið var að leita að okkur og hjálpin myndi berast fyrr eða síðar,“ sagði Jón Málfdán- arson, annar skipverja á mótorbátnum (íuðrúnu Olafsdóttur ÍS 208, sem lcitað var út af Látrabjargi á sunnudaginn. Báturinn, sem er sjö tonna trilla, var á leið frá Keflavík til Bolungarvíkur er vélin bilaði, en um borð í bátnum voru feðgarnir Ilálfdán Örnólfsson og Jón llálfdánarson, báðir þaulvanir sjómenn. Laust eftir klukkan fimm á sunnudagsmorguninn höfðu þeir feðgar samband við Reykjavík- urradíó og tilkynntu um vélarbil- un, en nokkru síðar rofnaði sam- band við bátinn. Var þá þegar skipulögð leit og tóku þátt í henni varðskipið Óðinn og tíu skip á Breiðafirði, ásamt vél Landhelg- isgæslunnar. Stóð leitin til klukk- an fjögur á sunnudag er flugvél Landhelgisgæslunnar fann bátinn á reki vestur af Látrabjargi. Varðskipið Óðinn hélt á staðinn og kom að bátnum um sexleytið. Ekki tókst að koma vél bátsins í gang og var hann dreginn til Patreks- fjarðar. Jón Hálfdánarson sagði í sam- tali við Morgunblaðið að ferðin hefði gengið vel framan af. „Er við fórum að nálgast Bjargið gerði él, þreifandi svartabyl og við keyrð- um því út til að vera öruggir á að lenda ekki upp í landi. Skömmu eftir miðnætti bilaði vélin tvíveg- is, en við komum henni í lag aftur. Vélin bilaði svo í þriðja skiptið um hálf fjögur og þá tókst okkur ekki að koma henni í gang aftur. Þá vorum við staddir út af Bjarg- inu. Þá heyrði ég eitthvað auka- hljóð og í ljós kom að startarinn snerist með og gerði það að verk- um að allt rafmagn fór út af geyminum þannig að sambandið rofnaði. Það gerðist eitthvað um hálf tíuleytið og við vorum sam- bandslausir þangað til varðskipið Ljósmynd Helgi Hallvarösson. Varðskipsmenn af Oðni komnir um bord í Guðrúnu Olafs. Óðinn kom að okkur. Við vorum þó junum," sagði Jón og kvaðst vilja rólegir allan tímann, enda gat koma á framfæri kæru þakklæti ekkert komið fyrir. Það var blíð- til Landhelgisgæslunnar og skip- skaparveður, nema í verstu hryð- verja á Óðni fyrir aðstoðina. Tekjur ríkissjóðs 200 millj. kr. umfram fjárlög ÞjóÖartekjur nær 66 milljarðar í stað 63,6 milljarða kr. RÍKISSTJORNIN gekk frá tillögum sínum um ráðstafanir í ríkisfjármál- um í gærmorgun. Tillögurnar voru kynntar á samráðsfundi forsætis- ráðherra og fulltrúa atvinnulífsins í gærmorgun og síðdegis í gær sam- þykktu þingflokkar stjórnarliða heimildir til handa ráðherrum sínum að ganga frá frumvarpi til laga um breytingarnar, en það verður lagt fram á Alþingi á morgun eða fimmtudag. Að sögn forsætisráð- herra byggjast tillögurnar á drögum að nýrri þjóðhagsspá, sem að hans sögn reikna með 200 millj. kr. meiri tekjum ríkissjóðs en gert var ráð fyrir. Heildarvandinn er því nú tal- inn 1,9 milljarðar kr. í stað 2,1 millj- arðs kr. Þá gera drögin einnig ráð fyrir, að sögn forsætisráðherra, að þjóðartekjur verði nær 66 milljörð- um kr. í stað þeirra 63,6 milljarða, sem frágangur fjárlaga og lánsfjár laga á Alþingi byggðist á. Forsætisráðherra sagði í viðtali við Mbl. í gær, að ríkisstjórnin kæmi til fundar árdegis og gengi frá frum- varpinu, scm lagt yrði fram á Alþingi á morgun eða fimmtudag, en það færi eftir því hvenær unnt yrði að ganga frá því í prentun. Hann sagði ennfremur að hin nýja þjóðhagsspá lægi ekki fyrir í endanlegri gerð, en ráðstafanirnar væru byggðar á drög- um að henni, sem ríkisstjórnin hefði fengið í hendur. Eins og tillögurnar voru kynnt- ar á samráðsfundinum í gærmorg- un er reiknað með lækkun ríkis- útgjalda að fjárhæð 930 millj. kr., þar af 745 vegna sérstakra verk- efna og 185 millj. kr. vegna al- mennra lækkana. Stærstu liðirnir í sérstökum lækkunum eru á sviði heilbrigðis- og tryggingamála, eins og Mbl. hefur skýrt frá, eða 300 millj. kr., auk þess lækkun niðurgreiðslna landbúnaðarvara og lækkun fjárveitinga til náms- lána. Þar að auki eru almennar lækkanir útgjalda ráðuneytanna frá 2 milljónum kr. í utanríkis- ráðuneyti og viðskiptaráðuneyti upp í 45 millj. kr. í fjármálaráðu- neyti. Þá er gert ráð fyrir nýjum lán- tökum og tilfærslum fyrir eftir- stöðvum vandans eða samtals 970 millj. kr. Forsætisráðherra sagði í viðtali við Mbl. í gær, að ekki væri um aðrar leiðir að ræða en erlend- ar lántökur þar sem innlent lánsfé væri á þrotum. Eins og Mbl. hefur skýrt frá stendur ríkisstjórnin auk þessa frammi fyrir óbrúuðu bili í lánsfjárlögum, sem getur numið allt að einum milljarði kr., þannig að viðbótarþörf erlendrar lántöku mun nema allt að 1,9 milljörðum kr. Þannig munu heildarskuldir ríkissjóðs við út- lönd nema 38,9 milljörðum í árs- lok, en það er að sögn forsætis- ráðherra þó undir 60% markinu, miðað við nýja þjóðhagsspá. Sam- kvæmt útreikningum Mbl. munu þær samkvæmt þeim tölum sem forsætisráðherra nefndi nema 58,9% að óbreyttu. Þingflokkur Framsóknarflokks- ins afgreiddi heimildir til handa ráðherrum sínum eftir nokkra umræðu um tilhögun á fóðurbæt- isskatti, þ.e. hvernig innheimta ætti skattinn. Þá höfðu framsókn- arþingmenn á orði, vegna endan- legrar afgreiðslu sjálfstæðis- þingmanna á hugmyndum stjórn- arliða um nýjar skattaálögur, að búið væri að berjast lengi fyrir lítið og eyða miklum tíma til einskis til að finna skynsamlegar leiðir. í þingflokki Sjálfstæðis- flokksins var umboð til ráðherra veitt með fyrirvara fulltrúa úr bændastétt. Fyrirvarinn hljóðaði upp á að ríkisstjórnin tæki sér- staklega til athugunar áburðar- verð til bænda við frágang frum- varpsins og þótti talsmanni bænda, sem loforð sem hann taldi að gefin hefðu verið á þingflokks- fundi sl. laugardag hefðu verið svikin í tillögum ríkisstjórnarinn- ar. Til lesenda A UNDANFÖRNUM fjórum til fimm árum hafa staðið yfir um- fangsmiklar skipulagsbreytingar á ritstjórn Morgunhlaðsins. Með þeim ráðningum, sem skýrt er frá á baksíðu Morgunblaðsins í dag, eru þær komnar vel á veg. Fram til ársins 1980 voru starfshættir ritstjórnarinnar með þeim hætti, að allir blaða- menn komu saman til sameigin- legs fundar upp úr hádegi dag hvern, þar sem verkefni dagsinS voru skipulögð undir forystu rit- stjóra og fréttastjóra. Fyrir fjór- um til fimm árum var orðið ljóst, að ritstjórn Morgunblaðs- ins var orðin svo fjölmenn, að þetta vinnufyrirkomulag hentaði ekki lengur, en um þessar mund- ir starfa nálægt 60 manns á rit- stjórn blaðsins, þegar allir starfsmenn eru taldir. Síðan hef- ur verið unnið að því að skipta ritstjórninni upp í nokkrar deildir, sem starfa nú á ábyrgð sérstakra yfirmanna, fulltrúa ritstjóra og fréttastjóra, en þeir ræða við ritstjóra blaðsins á daglegum morgunfundum, þar sem verkefni dagsins eru ákveð- in. Ritstjórar blaðsins eiga einn- ig daglega fundi með þeim, sem annast skrif um stjórnmál og er stefna blaðsins mörkuð á þeim fundum. Stærsta deild ritstjórnarinnar er innlenda fréttadeildin, sem starfar undir stjórn fjögurra fréttastjóra, sem skipta með sér vöktum á þann veg, að frétta- stjóri er alltaf á vakt á Morgun- blaðinu frá því snemma að morgni til miðnættis. Frétta- stjórarnir eru Freysteinn Jó- hannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson og Ágúst Ingi Jónsson. Önnur stærsta deild ritstjórn- arinnar er erlenda fréttadeildin, sem starfar undir stjórn Björns Jóhannssonar, fulltrúa ritstjóra, og hann hefur einnig umsjón með sunnudagsritstjórninni. Þorbjörn Guðmundsson, full- trúi ritstjóra, sér um daglegt efni blaðsins og annast móttöku margvíslegs aðsends efnis, eins og hann hefur gert um langt ára- bil. Gísli Sigurðsson ritstjórnar- fulltrúi hefur umsjón með Les- bók Morgunblaðsins, svo sem verið hefur, en Lesbókin tók miklum breytingum um síðustu áramót, eins og lesendum er kunnugt. Árni Jörgensen, nýráðinn full- trúi ritstjóra, sem hefur verið verkstjóri hönnunardeildar blaðsins og hefur mótað útlit Morgunblaðsins og fylgiblaða þess meir en nokkur annar mað- ur hin síðari ár, mun nú einbeita sér að því verki að fylgja eftir þeirri þróun blaðsins sem verð- ur, þegar ný prentvél Morgun- blaðsins verður tekin í notkun á miðju sumri, jafnframt því sem hann verður tengiliður milli rit- stjórnar og framleiðsludeilda blaðsins og ber ritstjórnarlega ábyrgð á fylgiblaði Morgun- blaðsins á föstudögum. Björn Bjarnason, sem nú hef- ur verið ráðinn aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins, mun, ásamt öðrum verkefnum, hafa umsjón með stjórnmálaskrifum blaðsins og fréttum af stjórnmálavett- vangi. KiLstj. Atvinnu- flugmenn boða verkfall FLUGMENN hjá Flugleiðum hafa boðað til tveggja daga verkfalls 11. og 12. maí næstkomandi til að leggja áherslu á kröfur sínar í yfirstand- andi samningaviðræðum Félags ís- lenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Fluglciða. Þrír fundir hafa verið haldnir í deilunni og hefur sá fjórði verið boðaður á fimmtudagsmorgun- inn kl. 9:30. „Vonandi skýrast málin á þeim fundi, svo ekki þurfi að koma til verkfalls en hingað til hefur ekk- ert gengið í viðræðunum," sagði Jóhannes Ásgeirsson, starfsmaður FÍ A, er blaðamaður Mbl. hafði tai af honum í gær. Jóhannes sagði að kröfur flugmanna væru helstar þær að grunnkaupshækkanir yrðu þær sömu og almennt hefði verið samið um. „Við gerum einnig kröfu um smávægilegar flokkatil- færslur og breytingar á orðalagi í gildandi samningi," sagði hann. „Hér er ég einkum að tala um leið- réttingar fyrir þá, sem hafa skemmstan starfsaldur. Það vilj- um við að gert verði með því að bilið milli lægstu flokkanna verði minnkað." Hann sagði að flokkatilfærsl- urnar hefðu ekki verið reiknaðar til verðs af samninganefnd flug- manna. Stjórn og trúnaðarráð FÍ A fékk verkfallsheimildina á félagsfundi 17. apríl sl., og ákvað að beita henni sl. föstudag. Verði af verk- fallinu stöðvast allt flug á vegum Flugleiða, bæði innan lands og utan. í Félagi íslenskra atvinnu- flugmanna eru um 160 félagar. Helgi á Hrafnkels- stöðum látinn SyAra-Langholti, :ill. apríl. HELGI Haraldsson, fyrrum bóndi á Hrafnkelsstöðum, lést þann 27. apríl á Sjúkrahúsi Suðurlands á Sclfossi, 92 ára að aldri. Hann var fæddur á Hrafnkelsstöðum 12. júní 1891, son- ur hjónanna Guðrúnar Helgadóttur frá Birtingaholti og Haraldar Sig- urðssonar frá Kópsvatni. Helgi var búfræðingur frá Hvanneyri og gerðist bóndi á föð- urleifð sinni og bjó þar í nær fimm áratugi. Hann rak m.a. sauðfjár- kynbótabú og var kjörinn heiðurs- félagi Búnaðarfélags íslands fyrir búfjárrækt. Helgi gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir sveit sína og hérað, var m.a. formaður Ungmennafélags Hrunamanna um langt árabil, átti lengi sæti í hreppsnefnd og var oddviti um skeið. Hann var í stjórn Sláturfé- lags Suðurlands um áraraðir og stjórnarformaður um tíma. Helgi var gæddur fágætri minnisgáfu og var víðlesinn í íslenskum bók- menntum. Einkum dáði hann ís- lendingasögurnar mikið og var Njála þar í öndvegi. Helgi kvæntist ekki og var barnlaus. — Fréttaritari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.