Morgunblaðið - 09.05.1984, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.05.1984, Blaðsíða 16
64 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1984 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1984 65 Texti HG Myndir Friðþjófur Rækjutrollið gert klárt. Af mýmörgum leiðum er kvótinn verstur — hann er eins og að fá tilkynningu um gjaldþrot í póstin- um, segir Gylfi Gunnarsson, skipstjóri á Þorleifi EA 88 Kvótinn rothögg á atvinnulífið — segir Bjarni Magnússon, hreppstjóri „ÞORSKKVÓTINN líkist mest lax- veiðileyfum. Manni virðist engin al- vara í þessu enda skiptir sportveiði- mcnnina litlu sem engu hvort þeir fá eitthvað eða ekki. Fyrir Grímseyinga er þetta hins vegar alvörumál. Hefði vertíðin gengið eins vel og í upphafi hefði kvótinn okkar löngu verið bú- inn, en nú endist hann kannski út fjórða mánuð ársins," sagði Bjarni Magnússon, hreppstjóri í Grímsey, er hann var inntur eftir atvinnuhorfum í Grímsey. „Fyrir utan sjómennskuna bygg- ist vinna í landi nær eingöngu upp á fiskinum. Það eru um 20 manns, sem hafa vinnu af fiskinum og nú er fyrirsjáanlegt að sú vinna dregst saman niður í nánast ekk- ert. Sumarvinna fyrir skólafólk verður varla nokkur gagnstætt því, sem verið hefur. Það er því óhætt að segja að kvótinn sé rothögg á atvinnulíf Grímseyinga. Áður fyrr gátum við valið á milli fugls og fisks, þegar flekaveiðin var leyfð. Nú er búið að taka hana af okkur líka, en hún var veruleg búbót. Flekaveiðin var stunduð hér með mikilli yfirlegu og þess gætt að vitja flekanna með stuttu milli- bili og færi svo að þá ræki upp í fjöru var sigið niður að þeim til að ná fuglinum svo hann kveldist ekki um of. Þessi veiði var hins vegar bönnuð vegna þess, að aðrir aðilar, sem ekki voru jafn háðir henni, vitjuðu flekanna of sjaldan. Þrátt fyrir þessa erfiðu stöðu finnst mér fráleitt að reyna að knýja fram meiri kvóta nema til verulega aukinnar fiskgengdar komi. Eg er fremur bjartsýnn á að svo verði vegna hlýnandi sjávar. Þá er aö byrja á kræsingunum úr Sjallanum. Guðjón Pálsson, píanóleikari, og frændurnir Gylfi Gunnarsson, skip- stjóri, og Jóhann Már Jóhannsson, söngvari. Þeir Jóhann Már og Guójón skemmtu árshátíðargestum með spili og söng. Gylfi rekur ásamt Garðari ólasyni fyrirtækið Sigurbjörn hf., sem gerir út Þorleif og rekur eigin fiskverkun. Sagði hann, að nánast engin vinna væri framundan hjá fiskverkuninni fyrr en á næsta ári, en eitthvað fengist af trillum í sumar. Tvö ár væru síðan fisk- verkun þeirra hefði hafizt og væri allt verkað í skreið og salt. Frá upphafi hefðu þeir aðeins fengið borgað fyrir 50 pakka af hertum hausum en hins vegar hefði geng- ið mjög vel með saltfiskinn, hann færi nánast jafnóðum og hann væri tilbúinn. Þá gat Gylfi þess, að hafnleysið væri eyjarskeggjum verulegt vandamál. Það væri argasta klám að kalla aðstöðuna höfn enda færi að jafnaði ein trilla á ári upp í fjöru. I slæmu brimi gengi svo- leiðis yfir höfnina, að ómögulegt væri að komast að bátunum á leg- unni og þá væri bara að bíða og vona að vel færi, annars að hirða brakið úr fjörunni. Aðstaðan væri yfirvöldum skömm með tilliti til öryggismála sjómanna á þessum slóðum. Skipin gætu ekki leitað vars í eynni og yrðu því að berjast til lands ef því væri að skipta. Á fundi með þingmönnum á Akur- eyri fyrir tveimur árum hefði því verið lofað að höfnin í Grímsey yrði forgangsverkefni í hafnar- málum. I fyrra hefði framlag ver- ið gott og vel unnið, en í ár væri framlagið svo smánarlegt, að það næði ekki ráðherraafslætti af litl- um Blazer. Mannlíf í eynni væri gott, þó margt mætti betur fara. Hins vegar byggðist framtíðin á hafnaraðstöðunni og henni yrði að kippa í lag. „Nefskeriu, álka og langvía „ÞAÐ er óhemjumikið af fugli hér við eyna nú og langt síðan hann hef- ur verið svona vel feitur. Sjórinn er hlýrri nú en hann hefur verið og því meiri áta, en í fyrra var fuglinn bæði grindhoraður og oft á tíðum blaut- ur,“ sagði Valdemar Traustason er við hittum hann á bryggjunni. Valdemar var að koma af skytt- eríi með 24 fugla en tveimur dög- um áður hafði hann náð 50 stykkj- um. Hann var að þessu sinni með álku, langvíu og stuttnefju, eða nefskera eins og hann sagði stuttnefjuna kallaða fyrir vestan. Hvað varðaði kvótann sagði Bjarni Magnússon, hreppstjóri. Undanfarin tvö ár hefur enginn gróður verið í sjávarsýnum, sem tekin hafa verið hér vegna kuldans, en horfur eru nú á að það lagist. Við erum að hugsa um framtíðina, en í nánustu framtíð okkar Gríms- eyinga, það er í sumar, skiptir mestu máli, að trillurnar fái að fiska ótakmarkað til haustsins og gæftir og afli verði góður. Það er eini ljósi punkturinn," sagði Bjarni Magnússon. Rúmur helmingur íbúa á árshátíð „AF mýmörgum leiðum við stjórnun fiskveiða hefur sú versta verið valin, það er kvótinn. Þcssir fjórir dekk- bátar, sem gerðir eru út héðan, hafa haldið uppi vinnu 9 mánuði á ári, en nú er því lokið á fjórða mánuði. Þorleifur fer á rækju og landar í Siglufirði, hinum verður lagt til ára- móta um miðjan mánuðinn og trill- legt af mönnum, sem ynnu að stjórnun fiskveiða og hefðu verið á sjó, að vera að tala um að rækta upp fiskistofna við landið með friðunum og fleiru. Það væri ein- faldlega náttúran, sem öllu réði í þessu máli. Það væru allir þessir fræðingar okkar, sem væru að ríða þjóðfé- Gylfi Gunnarsson, skipstjóri á Þorleifi. urnar 7 hefja ekki veiðar fyrr en um miðjan júní. Að fá tilkynninguna um kvótann var hreinlega eins og að fá um það tilkynningu í pósti að maður væri gjaldþrota, því ekkert annað bíður þeirra, sem nú þurfa að ganga í land vegna vanhugsaðra ákvarð- ana,“ sagði Gylfi Gunnarsson, skip- stjóri á Þorleifi EA 88. Gylfi sagði ennfremur, að það væri fáránlegt að byggja veiðar á áliti fiskifræðinga. Þeir væru að skrölta á einu skipi umhverfis landið á ári og allt væri síðan byggt á því, sem þeir fyndu i þess- ari einu ferð. Þá væri það fárán- Höfnin í baksýn. laginu til helvítis. Sem dæmi um kvótaskiptinguna mætti nefna, að á Þorleif hefðu þeir fengið rúm- lega 200 tonn, þar af 177 af þorski, 12 af ufsa og hálft af grálúðu. Á síðustu vertíð hefði aflinn verið um 350 tonn, en nú væru þeir að hætta með 220 tonn alls. Þá mætti nefna það, að á einn bátinn hefði komið 6 tonn af krafa, en á þeim bát hefði karfa aldrei verið landað. Þetta væri því orðið þann- ig, að undantekning væri ef menn fengjust á bátana, slík væri af- koman og svo héldi fólk að menn yrðu ríkir á sjómennskunni. úti á höfninni. Valdemar að sér litist vel á að hann yrði ekki aukinn, þó það yrði erfitt fyrir ýmis pláss eins og Grímsey. Hins vegar fyndist sér rangt, að trillukvótinn yrði jafn um allt land. Hann sagðist hafa flutt út í eyju 1966 og hefði þá ekki fengið lán hjá Húsnæðisstofnun. Hún hefði talið framtíð eyjarinnar of óvissa og því neitað um lán. 1974 hefði síðan komið byggingaskipulag fyrir eyjuna og hefði þá loks feng- izt lán til húsbygginga. 20 ár hefðu þá verið frá því að síðast hefði verið byggt íhúðarhús í eynni, en síðan hefðu húsin hreinlega þotið upp. „ÞAÐ hefur verið fastur liður í starf- semi Kiwanisklúbbsins að halda hér veglega hátíð þegar líður að vori. Kvenfélagið hefur séð um þorrablótið og við um þetta. Á þessar hátíðir höf- um við fengið hljómsveitir úr landi og landsþekkta skemmtikrafta eins þá Jóhann Má og Guðjón núna, en einn- ig hafa Ómar Ragnarsson og Kristján Jóhannsson skemmt hér,“ sagði Þor- lákur Sigurðsson, forseti Kiwanis- klúbbsins í Grimsey. Þorlákur sagði ennfremur, að þetta væri fjárhagslega erfitt vegna þess hve takmarkaður hópur stæði að þessu. Mönnum fyndist hins vegar rétt að leggja talsvert í þessa skemmtun, hún væri öllum opin og væri nær hver einasti full- orðinn eyjarskeggi staddur á henni. Alls væri gestir nú 69, en þetta væri sjötta árið í röð, sem árshátíð klúbbsins væri haldin. Þetta væru stærstu böllin á ár- inu, en auk þess væri stundum diskótek um helgar, félagsvist ogl bingó. Skemmtanalíf gæti þó varla talizt blómlegt og hamlaði það því helzt, að enginn hljóðfæraleikari væri í eynni. Mikil þörf væri á slík- um manni enda væri það svo að hann þyrfti að fá úr landi þegar messað væri. Mannlíf væri hins vegar gott og góður félagsandi enda byggðist svona afskekkt og lítið byggðarlag upp á samheldni og öllum þætti sjálfsagt að aðstoða hver annan. Komið í land á skektunni, trillan liggur Valdemar Traustason hefur snarað fuglakippunni á öxlina og ætlar að fara að búa sig undir árshátíð. Gunnar Halldór sveiflar þeim fyrsta upp á bryggjuna. Öryggið fyrir öllu, björgunarbeltin eru líka nauðsyn við bryggjuveiðarnar. Það var líf og fjör á dansgólfinu og stignir dansar af öllu mögulegu tagi. Þorlákur Sigurðsson, for- seti Kiwanisklúbbsins. Hljómsveitin Rokkbandið leikur fyrir dansi. Fengsælir fiskimenn: Sigurður Rúnar Sigfússon, Gunnar Halldór Gunnarsson og Bjarni Hrannar Héðinsson. „Gott að vera laus við kvótann „ÞAÐ er gott að við erum lausir við kvótann enda mokfiskirí á stöngina núna. Hins vegar eru einhverjir stæl- ar í verkstjóranum því hann viil ekki taka fiskinn. Ég er nefnilega orðinn hálfleiður á að éta hann,“ sagði 11 ára aflakló, Gunnar Halldór Gunn- arsson, sem var með stöngina sína niðri á bryggju. Gunnar var fengsæll þá stuttu stund, sem við stöldruðum við hjá honum svo hann mátti lítið vera að því að ræða við blaðamenn. Hann fékk þá 5 þokkalega þyrsklinga og sagðist búast við því að þeir yrðu hafðir í matinn. Vð bryggjuna fengist aðallega þorskur og ufsi og þó hann væri fengsæll á stöngina sagðist hann ekki vera búinn að ákveða hvort hann yrði sjómaður þegar hann yrði stór. Hann sagði að það væri gott að búa í Grímsey. Þar væri skemmtilegt að vera og undir það tóku félagar hans þeir Sigurður Rúnar Sigfússon og Bjarni Hrannar Héðinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.