Morgunblaðið - 09.05.1984, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.05.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 9. MAÍ 1984 63 Er hornsteinn lýð- ræðisins að bresta? I — eftir Ólaf Þorsteinsson Inngangur Undirritaður skrifaði grein í þetta blað 1. desember á síðasta ári, þar sem hann velti þeirri spurningu fyrir sér, hvort lögregl- an í Reykjavík hefði verið í víga- hug, þegar hún á haustdögum mis- þyrmdi fólskulega ungum manni hér í bænum, í kjölfar ólögmætrar handtöku. Fram hafði komið, að yfirmenn lögreglunnar töldu, að handtakan hefði verið með öllu tilefnislaus. Það er hverjum manni ljóst við hvaða mál er hér átt. Fyrirfram mátti líta svo á, að hér væri um mjög léttvægt og ómerkilegt ein- stakt tilvik að ræða, sem leysa mætti með einfaldri sáttagerð. Lögreglan í Reyjavík hefði ein- faldlega beðist afsökunar og harmað mistök sín. Viðbrögð almennings við þess- um atburði voru með ólíkindum og hreint ótrúleg. Þau birtust einkum í mynd hryggðar og reiði og venju- lega var hnykkt á með því að segja frá sambærilegri reynslu af sama toga. Sum viðbrögð voru þó með þeim hætti, að hægt hefði verið að ímynda sér Líbýu á áttunda ára- tugnum en ekki ísland á þeim ní- unda. Til dæmis var látið að því liggja, að svona skrif væru óþörf og undirritaður varaður við skrif- um af þessum toga. f fyrstu fannst mér þetta ágæt tilbreyting í skammdeginu og hafði lúmskt gaman af, en ekki leið á löngu, áður en sá grunur minn snerist í fullvissu þess, að hér er ekki allt raeð felldu. í niðurlagi 1. des.-greinarinnar var þeirrar spurningar spurt, og það skal játað í hálfgerðum hálf- kæringi, hvort runnir væru upp tímar hér í Reykjavík, þar sem slíkir atburðir væru að verða dag- legt brauð. Þessarar spurningar spurðu fleiri í einhverjum mestu skrifum og umræðum um stöðu lögreglunnar í Reykjavík frá stríðslokum, sem öllum eru kunn- ar. Framvinda málsins og lyktir fyrir héraösdómi Dómskerfið í þessu landi hefur á sér orð fyrir allt annað en hrað- virkni. Þetta mál allt fékk óvenju hraða meðferð gegnum „dóms- kerfið". Nú fyrir skemmstu féll dómur í héraðsdómi, þar sem lögreglu- sveitin var auðvitað með öllu sýknuð og í dómsorði sagt, að ungi maðurinn hefði að líkindum veitt sér áverkana sjálfur, handjárnað- ur og liggjandi á grúfu á gólfi lögreglubíls, sem flutti hann til lögreglustöðvar. Marklaus niðurstaöa Það, sem kom mönnum kannski mest á óvart í allri þessari um- ræðu, var af hversu miklu öryggi forsvarsmenn lögreglunnar vörðu gerðir sinna manna. Ekki fór heldur hjá því, að menn yrðu hissa á súmum þeim atriðum, sem notuð voru sveitinni til varnar, svo sem að árás ónafngreinds misynd- ismanns á Arnþrúði Karlsdóttur, fyrrverandi lögregluþjón, rétt- lætti að nokkru leyti misþyrm- ingar á Skafta Jónssyni, blaða- manni. Þetta atriði ásamt fleirum álíka fáránlegum, sem ekki verða rakin hér, sýnir svo ekki verður um villst, að í rauninni skipti engu máli fyrir lögregluna, hvað notað var til að verja gerðir sveitarinn- ar. Sjóaðir yfirmenn lögreglunnar vissu sem var, að hún yrði sýknuð allt frá fyrsta degi. Staða lögreglunnar í landinu er mjög sterk, þar sem hún er hluti af því valdi, sem lýðræðislega kjörnir fulltrúar fólksins styðjast við. f þeirra augum, því miður flestra vil ég segja, er þetta full- komið smámál. Á þetta er sussað og hugsað sem svo: Þetta gleymist á tveimur árum eða svo. Ólafur Þorsteinsson Fólki til upplýsingar skal þess getið, að þó um opinbert mál sé að ræða þ.e. ákæruvaldið á hendur í þessu tilviki lögreglusveitinni, þá gætir það ekki einasta hagsmuna þess, sem ákærir heldur og ekki síður þess eða þeirra, sem eru kærðir. Þessi háttur er góður og gildur í öllum öðrum málum en þeim, þar sem lögreglan sjálf situr öðrum megin við borðið. Ég er ekki með þessu að segja, að sveitin eigi að vera eitthvað öðruvísi sett, þó hún fyrir tilviljun gegni þessu starfi og sé viðriðin mál af þessum toga. Þetta rýrir aðeins af augljós- um ástæðum tiltrú fólks á réttar- farið í landinu, þegar svona er staðið að málum. Þá er og að geta þess, að málflutningur fyrir hér- aðsdómi í þessu tiltekna máli var allur munnlegur og því ekki hægt að fá afrit af ræðum sækjanda og verjanda málsins til yfirlestrar. Þegar þetta mál allt er skoðað, blasir sú staðreynd við, að hér er á ferðinni augljóst „gat“ í réttarfari landsins og ekki síst í því réttarör- yggi, sem hér á að ríkja og á sam- kvæmt stjórnarskrá að vera hornsteinn lýðræðis í landinu. Niðurlag Það er ljóst, að „Skaftamálið" er mál okkar allra. Ekki dugar að sitja hjá með hendur í skauti. Þetta er prófmál, sem veldur því, að búast má við málum sem þess- um á komandi misserum. Nú stendur fyrir dyrum skipu- lagsbreyting á eigna- og málflutn- ingsdeild fjármálaráðuneytis^ þannig' að ríkislögmaður, en það er nýyrði í stjórnarráðinu, annast opinberan málarekstur ráðuneyt- isins. Ég vil gera það að tillögu minni, að í skipunarbréf væntanlegs rikislögmanns yerði bætt ákvæði þess efnis, að hann skipi í sam- vinnu við dóms- og kirkjumála- ráðuneyti tímabundinn setudóm í sambærilegum málum og hér hef- ur verið gert að umtalsefni. í þennan setudóm verði skipaðir vandaðir ábyrgir lögmenn. Undirritaður er þeirrar skoðun- ar, að með þessum hætti verði hægt að stoppa í augljóst „réttar- farsgat", sem hér viðgengst að þessu leyti. Er hornsteinn lýðræðisins að bresta er spurt hér í upphafi. Hann er brostinn, ef ckkert er að gert, og við stöndum frammi fyrir Líbýu-stílnum í stjórnarfari, áður en langt um líður. Ólafur borsteinsson er vidskipta- frædingur í Reykjavík. Hún sagði: „Mikið óskaplega geta mennirnir farið vel með það, ef einhver glóra leynist í þeim. Maður kemur hvergi auga á hana.“ iríi. Svo kom löng þula um allar refsingarnar, sem hótað var. Þá var maður nýbúinn að hlusta á harmagrát yfir hinu stóra fjár- lagagati. En þetta er bara byrjunin á því að stjórna náttúruöflunum með penna. Það á að endurskoða kvótann í haust, en það vill svo til, að vertíð- in er núna og fram á vorið og kem- ur ekki aftur fyrr en eftir ár. Gæti þá sú staða komið, að þingmenn yrðu að girða sig í brók og róa sjálfir næstu vertíð. Ég vil endilegs vekja fólk til umhugsunar um, að þó útgerð- — eftir Elísabetu Gunnlaugsdóttur Hvaða stefnu eru stjórnvöld að taka í fiskveiðimálum? Aldagaml- ar venjur, sem þróast hafa með þjóðinni, eiga allt í einu engan rétt á sér. Útgerðarmenn eru rétt- dræpir hvar og hvenær, sem til þeirra næst. Margir undrast hvað umræðan hefur verið lítil um jafnviðamikið mál. Viðbrögð flestra, sem fá sinn dauðadóm, er að þá setur hljóða um stund, ef orsökin væri af óvið- ráðanlegum ástæðum. En þegar vandinn er heimatilbúinn, fiskur um allan sjó, þá má ekki veiða, ef ske kynni að þorskurinn væri nú bara í kurteisisheimsókn. Þá er til lítils að eiga stóra land- helgi. Má furðulegt heita, hvað spá- menn, sem enginn spádómur hefur ræst hjá, hefur heltekið hug sjáv- arútvegsráðherra og því miður miklu fleiri, rétt eins og um frels- un sé að ræða. Okkur er sagt, að við búum við lýðræði. Finnst mér gæta mikils ábyrgðarleysis hjá þingmönnum, að færa sjávarútvegsráðherra ein- ræðisvald á silfurfati og láta hann leika einleik í vitleysunni, en koma svo eins og hvítþvegnir engl- ar þegar allt er farið fjandans til. Hræddust er ég við sjálfs- ánægju ráðherrans, að taka við slíku valdi og setja sig í dómara- sæti, hvort þessi eða hinn verður gjaldþrota. Banna mönnum að vinna með lagaboði og koma á kvótakerfi, sem er svo snilldarlega úr garði gert, að það má einu gilda hvernig farið er að, menn eru allt- af brotlegir. Að byggja svona mikilvægt mál á ósönnuðum fullyrðingum fiski- fræðinga, en leyfa sér að hlusta ekkert á útskýringar líffræðinga, hvað þá sjómenn. Ég trúi því ekki á sjómenn að þeir láti troða sig niður í svaðið án þess að spyrna hressilega við fótum. Þið hljótið einhverntímann að hafa séð það svartara en þessa valdasjúku nefnd. Með tilliti til að ráðherrann er fiskifræðingafrelsaður og telur þorskinn hafa meiri rétt tii lífsins en ykkur, ættuð þið að reyna að fá fulltrúa, sem hefur hagsmuni ykk- ar með í dæminu. Svo er atriði, sem fólki kemur spánskt fyrir sjónir. Þegar frétta- menn fara á stúfana að ræða kvótamálin eru í flestum tilfellum drifnir upp menn, sem voru á sjó fyrir 30—50 árum, löngu komnir á ellilaun og hafa engra hagsmuna að gæta. Og þá er það hann Krist- ján Ragnarsson. Ég hélt, að hann væri í forsvari fyrir útgerðar- menn. En hann er liklega hættur. Því besta ráð hans útgerðar- mönnum til handa er að fara á hausinn, það þurfi bara að útskýra það nokkrum sinnum, hvar á hausnum sé best að lenda. Ja, ef þeir skilja það, er þeim borgið. En við viljum kvóta. Kvóta á ráðherrann. Prufa í eitt ár að svelta hann, endurskoða þá hvort hann verður hress til að takast á við árin, sem á eftir koma. Það sama hlýtur að gilda um útgerð- armenn, þeir njóta seint seinni ár- anna. Svo eru það markaðsmálin. Þegar aflinn dregst saman um helming koma aðrar þjóðir sínum fiski á framfæri. Hvar stöndum við þá, ef markaðsdyrnar lokast á okkur meðan við leyfum Halldóri að leika sér? Halldór vill og Halldór langar. Halldór verður að fá að prufa kvóta og stofna lífsafkomu fjölda fólks og heilla byggðarlaga í stórkostlega hættu. Hörmulegustu tíðindi, sem ég hef lengi heyrt, voru þegar glumdi í útvarpinu, að stöðva ætti vertíð- arbátana á miðri vertíð í mokfisk- Hópurinn gengur „fylktu“ liði eftir Skagahrautinni. Morjfunbladid/Arnór. Garðbúar í gönguferð (iarði. 6. maí. í DAG gekkst Foreldra- og kennara- félag Gerðaskóla fyrir skemmtiferð. Ferðin hófst með því að komið var saman hjá skólanum og gengið fylktu liði út á Skaga. Þegar þangað var komið var farið í ýmsa leiki, boðhlaup, hlaupið í skarið, bimm bamm, bimm bamm og ýmsa þekkta sam- kvæmisleiki. Þatkom góður gestur í heimsókn með harmónikku og var sungið og dansað. Þetta er önnur ferðin sem For- eldrafélagið gengst fyrir, en í fyrra var farið inn að Gufuskál- um. Veður var sæmilegt en þátt- taka í minna lagi. Arnór. armenn og sjómenn standi í eld- línunni, kemur þetta fljótlega niður á öllum. Að lokum vil ég segja frá um- mælum orðvarar kennslukonu þegar kvótakerfið bar á góma. Elísabet Gunnlaugsdóttir er hús- móóir á ísafirði. ititit Erindi Elísabetar Gunnlaugs- dóttur var samið fyrir sjávarút- vegsþátt útvarpsins. Útvarpsráð bannaði birtingu að sögn Elísa- betar og óskaði hún þá eftir því við Morgunblaðið að erindið yrði birt, þar sem hún telur að um- ræða um kvótakerfið og uppbygg- ingu þess hafi verið óeðlilega höll undir sjónarmið fiskifræðinga, en afkoma þeirra sem byggja á sjáv- arútvegi hafi ekki fengið að koma fram. Hún sagði að hvatinn að er- indinu hafi orðið til á fundi nokk- urra kvenna á ísafirði í vetur og höfðu þær á orði að stofna með sér Lóuvinafélag og beita aðferðum íslenskra fiskifræðina. Fóru þær út í vetrarnóttina og leituðu lóa. Fundu enga og ályktuðu þá að lóustofninn væri útdauður. — Úlfar. fiskveiðimálum? Hvert steftiir í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.