Morgunblaðið - 09.05.1984, Blaðsíða 2
50
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAl 1984
Ýmislegt nýstárlegt verður sýnt á „Hestadögum". Medal annars verða sýndar gangskipt-
ingar á hesti þar sem maður hleypur með eins og myndin sýnir. I>að er Hreggviður
Eyvindsson scm verður með þetta atriði og var myndin tekin á ælíngu.
Reynt verður við íslandsmetið í hæðarstökki. Meðal þeirra sem reyna verða Viðar Hall-
dórsson og hestur hans, Blesi frá Kirkjubæ, sem kunnur stökkvari.
„Hestadagaru í Garðabæ:
Sýning á öllu því besta í
íslenskri hestamennsku
hópur með klárnum og gæti
svo farið að þau yrðu allt að
tíu. Rétt er að taka fram að
þetta er einungis sýning en
ekki dómur á Náttfara fyrir
afkvæmi. Ekki er endanlega
ákveðið hvaða afkvæmi Nátt-
fara verða sýnd þarna, en vit-
að er um Eldjárn frá Hvassa-
felli, Hörð 954 frá Hvoli, Fylki
frá Bringu og Straum frá sama
stað.
Nú sex árum eftir Landsmótið á Þingvöllum 1978 gefst okkur Sunnlend-
ingum kostur að sjá gæðinginn Hlyn frá Akureyri á nýjan leik, og er
sennilegt að margur hlakki til að sjá þennan mesta töltara síðari tíma.
DAGANA 18.—20. maí
næstkomandi verða haldnir í
Garðabæ svokallaðir „Hesta-
dagar“ en það er hesta-
mannafélagið Andvari sem í
er fólk búsett í Garðabæ og
Bessastaðahrepp sem stend-
ur fyrir þessari uppákomu.
Óhætt mun að fullyrða að hér
sé um að ræða meiriháttar
viðburð á sviði hestamennsk-
unnar. „Hestadagar“ verða
tvíþættir þ.e. sýning á hross-
um utandyra, nánar tiltekið á
íþróttavellinum í Garðabæ og
sýning á ýmsum munum og
hlutum sem tengjast hestum
og hestamennsku innanhúss.
Leigðir verða út básar til
fyrirtækja sem selja vöru
tengdar hestamennsku.
Þegar farið er að athuga
nánar hvað á dagskránni verð-
ur kemur í Ijós að þar kennir
margra grasa. Hæst ber senni-
lega sýningu á landsþekktum
gæðingum sem efstir hafa
staðið á Lands- og fjórðungs-
mótum síðustu ár. Verða þar
sýndir Hlynur frá Akureyri,
Hrímnir frá Hrafnagili,
Vængur frá Kirkjubæ og
Kristall frá Kolkuósi og af al-
hliða hestum mæta Hrafn frá
Hvítárbakka, Þorri frá Hös-
kuldsstöðum og Eldjárn frá
Hvassafelli. Sennilegt er að
margan fýsi að sjá þessa skör-
unga því oft hefur það viljað
fara svo að hestar sem fram-
arlega standa á þessum mót-
um hverfa algerlega af sjón-
arsviðinu en nú gefst mönnum
sem sé kostur á að sjá þessa
hesta og það sem meira er alla
samtímis. Annað sýningarat-
riði sem athygli er vert er sýn-
ing á Náttfara 776 frá Ytra-
Dalsgerði og afkvæmum hans.
Náttfari er einn eftirminni-
legasti kynbótahestur sem
komið hefur fram hin seinni ár
og mikla athygli vakti á sínum
tíma léleg útkoma úr af-
kvæmarannsókn sem afkvæmi
hans fóru í. Síðan hefur mikið
vatn til sjávar runnið og ljóst
var á síðasta Landsmóti að
hefði Náttfari verið sýndur
þar með afkvæmum hefði
hann hlotið 1. verðlaun og það
með glans. Nú verður sýndur
Af öðrum atriðum má nefna
sýning félaga í Félagi tamn-
ingamanna sem ber yfirskrift-
ina samspil manns og hests.
Einnig má geta þess að Evr-
ópumeistarinn í bæði tölti og
fjórgangi, Hans Georg Gund-
lach, mun mæta og sýna listir
sínar á gæðingnum Tígli frá
Holti. Einnig munu nokkrar
snjallar reiðkonur mæta á
snjöllum hestum og þeyta
þeim um sýningarsvæðið í
söðlum og verða þær íklæddar
gömlum reiðfötum. Hindrun-
arstökk verður sýnt og er það
að sögn um að ræða „alvöru“
hindrunarstökk og hafa verið
smíðaðar hindranir að erlendri
fyrirmynd. Verður reynt að
hnekkja íslandsmetinu í hæð-
arstökki en það er 1,25 m.
Nýstárlegt sýningaratriði
verður boðið upp á en það eru
gangskiptingar á hesti í taumi.
Sett verður upp sýning inn-
an dyra í samvinnu við Árbæj-
arsafn og er hún samsett af
gömlum munum sem tengjast
hestamennsku fyrri tíma og
svo ljósmyndum af íslenska
hestinum frá fyrri tíð.
Sýningin verður formlega
opnuð föstudaginn 18. maí
klukkan 16.00 og verður forseti
íslands, Vigdís Finnbogadótt-
ir, viðstaddur opnunina. Um
klukkan 17.30 verður svo svæð-
ið opnað almenningi með sögu-
sýningu og svokallaðri Topp-
sýningu en hún inniheldur þau
atriði sem hér voru áðurnefnd.
Aðgangseyri verður mjög í
hófi stillt og kostar 150 krónur
fyrir fullorðna en 50 krónur
fyrir börn. Að sögn aðstand-
enda er tilgangurinn með lág-
um aðgangseyri sá að fá sem
flesta gesti á sýninguna.
Kaupfélag Borgfirðinga 80 ára:
„Heybandiðu eftir Ásmund Sveins-
son afhjúpað í tilefni afmælisins
Borgarn<-si, 30. apríl.
Kaupfélag Borgfirftinga varð 80 ára í
byrjun þessa árs. Á nýafstöðnum aðal-
fundi félagsins sem haldinn var í
Borgarnesi var þessara tímamóta
minnst. Gefin var út bók með ágripi af
sögu félagsins þessi 80 ár. Einnig var
afhjúpað listaverkið „Heybandið" eft-
ir Ásmund Sveinsson á lóð Mjólkur-
samlagsins á Engjaási í Borgarnesi.
Helga Bjarnadóttir húsfreyja á
Skálpastöðum, eiginkona Guðmundar
l>orsteinssonar formanns samlags-
ráðs, afhjúpaði verkið að viðstöddum
aðalfundarfulltrúum, mökum þeirra
og fleiri gestum. Meðal gesta var Ás-
dís dóttir listamannsins og eiginmaður
hennar svo og Hallsteinn Sveinsson
bróðir listamannsins.
Kaupfélag Borgfirðinga var stofn-
að 4. janúar 1904 í Deildartungu. Á
fundum í Framfarafélagi Borgfirð-
inga sem starfaði i nokkur ár og
vann að ýmsum framfaramálum
héraðsins höfðu verslunarmálin
verið til umræðu og gerðar tilraunir
með að senda u11 til Englands. Á
fundi í Framfarafélaginu síðla árs
1903 var ákveðið að gangast fyrir
stofnun verslunarfélags og kosin
nefnd til að undirbúa stofnfundinn
sem var eins og áður segir í Deild-
artungu í ársbyrjun 1904. í fyrstu
stjórn áttu sæti séra Jóhann Þor-
steinsson í Stafholti, formaður, Jón
Blöndal héraðslæknir í Stafholtsey
og Jóhann Björnsson í Bakkakoti.
Aðrir sem mjög komu við sögu við
undirbúning stofnunar félagsins
voru Jósef Björnsson Svarfhóli og
Einar Hjálmsson í Munaðarnesi en
þeir áttu ásamt Jóhanni Björnssyni
sæti í nefndinni sem undirbjó
stofnfundinn.
Þetta var upphafið en á þessum 80
árum hefur starfsemin aukist jafnt
og þétt. Er Kaupfélag Borgfirðinga
nú annað stærsta kaupfélag lands-
ins, og langstærsta fyrirtækið í
Borgarnesi. Hefur það mjög um-
fangsmikla starfsemi með höndum
á nær öllum sviðum atvinnulífs hér-
aðsins en þó er verslun með land-
búnaðarafurðir enn stærsti þáttur
starfseminnar en smásöluverslun
kemur þar skammt á eftir.
- llBj.
„Heybandið" eftir Ásmund
Svcinsson afhjúpað á lóð Mjólk-
ursamlags Borgfirðina á Engja-
ási í Borgarnesi.
MorKunblaðiA/ HBj.