Morgunblaðið - 09.05.1984, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.05.1984, Blaðsíða 12
60 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAl 1984 Munchausenæyintýri — eftir Þorvald Búason Rúmt ár er síðan undirritaður sýndi nokkrum áhugamönnum fyrstu drög að greinargerð, þar sem reynt var að lýsa ferli fjár- muna, sem lög og reglur gera ráð fyrir að fari um hendur fram- leiðsluráðs landbúnaðarins og þeirra, sem reka vinnslustöðvar sauðfjárafurða. Um svipað leyti mun Hreiðar Karlsson kaupfélagsstjóri á Húsa- vík hafa fengið drögin í hendur. Á síðastliðnu hausti óskaði hann eft- ir að fá eintak af greinargerðinni í endanlegri gerð, og fékk það. Skömmu síðar birtist útdráttur úr greinargerðinni í Morgunblaðinu. Nú hálfu ári síðar greinir Hreiðar Karlsson alþjóð frá því í orðsendingu til ritstjórnar Morg- unblaðsins, að tölurnar í greinar- gerðinni séu margar, sláturhúsa- dæmið flókið og ekki hlaupið að því að afsanna hana í einu vet- fangi. Enginn hefur rekið á eftir honum, hann gat tekið sér allan þann tíma, sem hann taldi sig þurfa. Honum hefur ekki nægt hálft ár svo ekki sé sagt heilt ár. Líklega verða landsmenn að bíða enn um hríð eftir afsönnuninni. Annars virtist Hreiðar Karlsson hafa mestan áhuga á því að rit- stýra Morgunblaðinu og er það óskylt mál. Svo iangt er um liðið, síðan ies- endum Morgunblaðsins gafst kost- ur á að lesa umrædda greinargerð, að hér þykir rétt að rifja upp nokkur meginatriði. Gjafir eru gefnar Kjarna þess efnis, sem hér um ræðir, er best lýst með lítilli dæmisögu: Hugsum okkur Ólaf nokkurn, sem nýtur vildarkjara hjá ríki og bönkum í 50% verðbólgu. Hann fær eina milljón króna lánaðar hjá banka í ársbyrjun á 29% vöxt- um og kaupir þegar í stað íbúð fyrir peningana. í árslok selur hann íbúðina á eina og hálfa millj- ón, greiðir bankanum 1.290 þús- und og á þá eftir 210 þúsund. Þetta voru dágóð viðskipti fyrir Ólaf. Hann hóf árið með tvær hendur tómar, fékk gott lán og á 210 þús- und krónur í árslok. Allur almenningur skilur þessa dæmisögu svo, að verðbólga og vaxtakjör hafi fært Ólafi að gjöf 210 þúsund krónur. En Ólafur kann að barma sér og telur 29% vexti örugustu okur- vexti. Af alkunnu örlæti alþing- ismanna á almannafé, þegar Ólaf- ar eiga í hlut, hafa þeir ákveðið að greiða Ólafi útlagðan vaxtakostn- að úr ríkissjóði. Ölafur fær nú 290 þúsund greiddar beint úr vasa skattgreiðenda. Vinur okkar hefur 500 þúsund í hreinan tekjuafgang í árslok. Lesandinn er beðinn að veita því athygli, að tvennt þurfti að koma til; annars vegar vildarvaxtakjör, sem færðu honum 210 þúsund og hins vegar endurgreiðsla vaxta- kostnaðar, sem færði honum 290 þúsund til viðbótar. Af þessu tvennu er niðurgreiðslan á vaxta- kostnaði þyngri á metunum. Hvort tveggja eru gjafir gefnar af rausn. Almenningur borgar. Það er ótrúlegt en satt, að vinnslustöðvar sauðfjárafurða hafa búið við þau vildarkjör síð- ustu fimm árin, sem hér var lýst í dæmisögu. Ferill fjármuna er þó miklu flóknari en í dæmisögunni. Nauðsynlegt er að setja upp all- margþætt líkan til að greina áhrif verðbótgu og hlunninda á afkom- una í sláturhúsadæminu. í greinargerðinni, sem minnst var á í upphafi þessarar greinar og birtist að hluta í þremur tölu- blöðum Morgunblaðsins i nóvem- ber í haust, var einmitt slíku lík- ani gerð skil. í smiðju hjá sérfræðingum Forsendur fyrir útreikningum og niðurstöðum í sláturhúsadæm- inu eru fáar og lítt umdeilanlegar. 1) Gengið var út frá verðum og sjóðagjöldum og reglum um uppgjör þeirra, eins og þau voru ákveðin af sexmanna- nefnd og ríkisstjórn árið 1980—'81. 2) Reglur um vaxtakjör og upp- gjör á haust-, afurða- og rekstrarlánum voru hafðar í huga. 3) Reglur um niðurgreiðslur og svokallaðar niðurgreiðslur á vaxta- og geymslukostnaði voru virtar. 4) Aðferðum við uppgjör við bændur var gefinn gaumur og miðað við þá reglu, sem algeng- ust virtist vera. 5) Tekið var mið af sölu dilkakjöts eftir mánuðum og miðað við meðaltal næstu þriggja ára á undan, því ekki voru handbær- ar upplýsingar um vinnsluárið 1980—'81. Sömuleiðis var tekið tillit til þess greiðslufrests, sem smásalar jafnan fá. 6) Slátur- og heildsölukostnaður var áætlaður óháð ákvörðun sexmannanefndar og ríkis- stjórnar, en i samræmi við reynslu í vel reknu sláturhúsi. Geymslukostnaður var þar innifalinn. Nam þá áætlunin samtals 21,38 kr/kg eða um 72% af meðaltali ákvarðana sexmannanefndar og ríkis- stjórnarárið 1980—'81. 7) Litið var svo á, að vinnslustöð gæti verðtryggt og ávaxtað lausafé, sem hún hefði á hverj- um tíma. Forsendurnar, sem hér eru tald- ar, voru margræddar við fjölda manna, sem hver um sig verður að teljast sérfræðingur á því sviði, sem við hann var rætt. Landskunnur landbúnaðarhag- fræðingur, sem er öllum hnútum þessarar atvinnugreinar kunnugri en flestir aðrir, las handrit yfir og gerði athugasemdir, sem allar voru teknar til greina. Hann tjáði sig þó ekki um 6. forsenduna. Engar athugasemdir, sem máli skipta, hafa verið gerðar við þess- ar forsendur á opinberum vett- vangi. Helstu niöurstöður Miðað við aðstæður eins og þær voru á vinnsluárinu 1980—'81 og miðað við framleiðslu og sölu á 10.000 tonnum af fyrsta flokki dilkakjöts voru niðurstöður eftir- farandi. Allar upphæðir eru á verðlagi í apríl 1984 eins og reynd- ar alls staðar í þessari grein, nema annað sé tekið fram. 1) Kjör á haust-, afurða- og rekstrarlánum hafa vegna verðbólgu fært frá bönkum og þá sparifjáreigendum til vinnslustöðva um 64 milljóna króna tekjur. 2) Niðurgreiðslur vaxta- og geymslukostnaðar hafa skilað vinnslustöðvum 187 milljónum króna sem hreinum gjöfum. Samanlagt hefur því verðbólga, vaxtakjör og ofrausn alþing- ismanna fært vinnslustöðvum á silfurfati 251 milljón vinnslu- árið 1980—'81. 3) Bændur hafa borið minna úr býtum en til var ætlast, ef allar vinnslustöðvar hafa gert upp við þá með þeim hætti, sem al- gengastur virðist vera. Skaði þeirra hefur numið u.þ.b. 7 milljónum króna. 4) Greiðslufrestur sá, sem vinnslustöðvar oftast veita smásölum, dreifing sölu á mán- uði ársins, sú staðreynd, að verð kjöts er verðbætt einungis á þriggja mánaða fresti, svo og sú regla, að niðurgreiðslur eru greiddar mánuði eftir á, hafa Þorvaldur Búason „Kerfið, sem íslend- ingar búa við, hvað varðar vinnslu landbún- aðarafurða, er sannkall- að Miinchhausenæfin- týri. Eins og greifinn dró sjálfan sig og mer- ina upp úr keldunni á eigin hári geta vinnslu- stöðvar „halað upp“ af- komu sína með því að framvísa nógu háum eigin reikningum. Aðeins einn þáttur vinnslunnar stenst sam- anburð við erlenda reynslu. Duglegt fólk, sem fer hamförum í sláturtíðinni á haustin, skilar afköstum, sem eru sambærileg við það, sem gerist best erlend- is, en fær lægra kaup eins og flestir á þessu landi. Það breytir kind á fæti í matvöru í frysti. Sú vinna telst minna en einn þriðji af „löggilt- um“ kostnaði. Síðan hefst æfintýrið. Allt annað er óheyrilega dýrt.“ rýrt tekjur vinnslustöðva um nær 108 milljónir króna. 5) Sexmannanefnd og ríkisstjórn hafa ákveðið slátur- og heild- sölukostnað verulega hærri en vel rekið sláturhús notaði í kostnað á sama tíma, jafnvel þótt geymslukostnaður þess fyrirtækis væri þar meðtalinn. Sá munur hefur einn út af fyrir sig getað þýtt um 102 milljóna króna tekjuauka. 6) í vel rekinni vinnslustöð hefur orðið, miðað við allar reglur og venjur, mjög rúm lausafjár- staða. Fyrir allar vinnslustöðv- ar landsins gæti það svarað til um 970 milljór.a króna að jafn- aði allt árið. f góðum fyrirtækj- um hefur ávöxtun slíkra fjár- muna getað gefið hagnað upp á nær 119 milljónir króna. Hér hafa allar helstu niðurstöð- ur verið tíundaðar, vegna þess, að þær dreifðust á þrjú tölublöð Morgunblaðsins og nauðsynlegt er vegna þeirra umræðna, sem nú fara fram, að færa þær til verð- lags líöandi stundar. Sláturhúsafurstar og bændur Jón H. Bergs forstjóri Sláturfé- lags Suðurlands ritaði langa grein í Morgunblaðinu án þess að benda á eitt einasta dæmi um ranga for- sendu, þótt heiti greinar hans boð- aði slíkar athugasemdir. Grein hans var samansafn af rangfærslum. Hann sagði t.d. að undirrituðum hefði láðst að geta þess, að verð til bænda væri leið- rétt á þriggja mánaða fresti, en ekki slátur- og heildsölukostnað- ur. í töflu III í greinargerðinni, sem hann þóttist vera að gagn- rýna, er tilgreindur slátur- og heildsölukostnaður á föstu verð- lagi (september 1980) í þeim fjór- um verðákvörðunum, sem skiptu máli fyrir athugun vinnsluársins 1980—'81, og er deginum ljósara, að hann fer lækkandi: — 651, 651, 590, 541 kr/kg. Einnig er bent á þessa staðreynd í samfelldum texta. Annað var eftir því í grein- inni. Þetta dæmi verður hér látið nægja um augljósar rangfærslur Jóns H. Bergs. Jón H. Bergs lætur hins vegar undir höfuð leggjast, að gera grein fyrir því, að það skiptir ekki síður máli fyrir bændur hvenær er gert upp við þá og hvernig, heldur en að fá leiðréttingu á grundvallar- verði. Útreikningar sýna, að í langflestum tilvikum bera bændur skarðan hlut frá borði í viðskipt- um við vinnslustöðvar vegna dráttar á uppgjöri, og vegna þess að of lágir vextir hafa verið reikn- aðir af inneign þeirra. Grein Jóns H. Bergs hefur verið svarað í öllum meginatriðum. Rétt er samt að nota þetta tækifæri til að benda á eitt atriði, sem látið var liggja á milli hluta þá. í ferðasögu frá Nýja Sjálandi, sem birtist í Árbók landbúnaðar- ins 1980, kemur fram, að sláturhús þar syðra fá 26% tekna af sölu innmatar. f grein sinni segir Jón H. Bergs það myndi lækka slát- urkostnað á íslandi um 20%, ef vinnslustöðvar fengju innmatinn upp í sláturkostnað (og þyrftu þá ekki að standa bændum skil á verði fyrir hann). Hvern er Jón H. Bergs að reyna að blekkja? Heldur hann að bænd- ur séu einhverjir Bakkabræður? Þetta myndi að sjálfsögöu ekki lækka neinn kostnað, en það flytti tekjur frá bændum yfir á vinnslu- stöðvar að öðru óbreyttu. Innmatur- inn er afuró rétt eins og kjötið. Hann hefði alveg eins getað sagt, að sláturkostnaöurinn yrði lægri, ef sláturhúsið fengi annað lærið af hverjum dilk, eða hreint ekki neinn, ef það fengi læri og bóg. Þessi kafli úr grein Jóns H. Bergs er rifjaður hér upp til að benda á, að vinnslustöðvaforstjór- um er ekkert tamt að líta til hags- muna bænda. Ólafur Sverrisson forstjóri Kaupfélags Borgfirðinga ritaði grein í Morgunblaðið í fyrri viku, þar sem hann fer lofsamlegum orðum um grein Jóns H. Bergs. Varla hefur hann haft í huga rangfærslur kollega síns, sem búið var að hrekja, en hann hefu. vafa- lítið rennt hýru auga til innmatar- ins (eða lærisins). „Með milljarð í forgjör4 Niðurstöður greinargerðarinnar má að sjálfsögðu bera saman við reikninga ríkisins og Seðlabanka Islands. Þannig mætti prófa, hversu ábyggilegar þær eru. Svokallaðar niðurgreiðslur vaxta- og geymslukostnaðar námu samkvæmt ríkisbókhaldi fyrir vinnsluárið 1980—'81 (nóv.—okt). u.þ.b. 260 milljónum króna. Þegar haft er í huga, að 10.000 tonn af fyrsta flokki dilkakjöts eru um 75% af heildarverðmæti kjöts ar sauðfé haustið 1980, verður upp- hæðin 195 milljónir sem bera á saman við 187 milljónir, sem fyrr getur. Samræmið er ágætt. Veru- leikinn var ekki nákvæmlega eins og lýst var í greinargerðinni, en einungis ber lítið á milli. Athugun á reikningum Seðla- banka fslands yfir endurkeypt lán til landbúnaðar fyrir árið 1981 bendir til þess, að 96 milljónum minna hafi verið greitt til baka ásamt vöxtum en lánað var út, þegar reiknað er með föstu verð- lagi (apríl 1984). Hlutur sauðfjár- búskapar í þessu samhengi er um 80%, nemur því um 78 milljónum. Einnig hér er samræmi ágætt, 75% af þessari upphæð eru 58 milljónir, sem bera á saman við 64 milljónir, sem fyrr getur. Ólafur Sverrisson hefur engin rök fram að færa en talar um skáldaðar töl- ur í greinargerð undirritaðs. Þessi samanburður staðfestir þó niður- stöður greinargerðarinnar fremur en hitt. Gísli Blöndal bendir á það í greininni „Með milljarð í forgjöf", sem birtist í Morgunblaðinu fyrir skömmu, að vinnslustöðvar hafi fengið einn milljarð króna að gjöf á undanförnum fjórum árum í svokölluðum niðurgreiðslum vaxtakostnaðar. Tölur frá ríkisbókhaldi sýna, að hér er sam- tals um einn og einn fjórða millj- arð króna að ræða. Sé hlutur „áætlaðs" geymslukostnaðar dreg- inn frá, sem engin ástæða er þó til, svo sem fyrr hefur verið frá skýrt, lætur nærri að niðurstaðan sé einn milljarður. Gísli Blöndal hef- ur viljað hafa vaðið fyrir neðan sig og nefna ekki of háa upphæð. Hann hefur því lög að mæla. Einnig hefði mátt áætla þessa upphæð út frá niðurstöðum grein- argerðarinnar, sem hér er á dagskrá. Sá sem það vill gera verður að margfalda 187 milljónir með fjórum og deila með 0,75. Út- koman er sem næst einn milljarð- ur. Sú niðurstaða er þó of lág (munar u.þ.b. fjórðung milljarð- ar), vegna þess að vinnsluárið 1980—'81 er ekkert dæmigert meðaltalsár fyrir tímabilið í heild. Reyndar myndaðist ólafur Sverrisson við að gera slíka út- reikninga, en hann tók óskylda upphæð, þ.e. hagnað vinnslustöðva af verðbólgu og vaxtakjörum í viðskiptum við bændur, banka og sjóði, ekki þá tölu, sem lýsir niður- greiðslu vaxta- og geymslukostn- aðar. Útkoma hans er því tómt rugl og athugasemdir hans um reiknilist Gísla Blöndal út í hött. Ólafur Sverrisson skuldar Gísla Blöndal og Hagkaup afsökunar- beiðni á flumri sínu. Neikvæðir skattar SÍS og kaupfélaga En hvernig gat Ólafi Sverris- syni sést yfir þá staðreynd, að það voru endurgreiðslur vaxtakostn- aðar, sem voru í brennidepli. Varla hefur Kaupfélag Borgfiróinga fengið minna en 25 milljónir gefins í þess- um endurgreiðslum á sl. ári, og mun- ar margan um minna. Hann á auk þess sæti í aðal- stjórn Sambands íslenzkra sam- vinnufélaga. Sláturhúsakeðja SÍS og kaupfélaganna fékk í endur- greiðslum vaxtakostnaðar að gjöf hvorki meira né minna en um 230 milljónir króna árið 1982, en það er hærri upphæð cn SÍS og kaupfélögin greiddu samanlagt í opinber gjöld af rekstri og í skatta það árið. Jafnvel Grettir laut að litlu. Getur verið að aðalstjórn SfS líti aldrei á eða fjalli aldrei á fundum sínum um tekjuliði, sem nema slíkum upp- hæðum og eru þó hrein búbót fyrir auðhringinn. Þá var gjöfin, sem Sláturfélag Suðurlands þáði í endurgreiddum vaxtakostnaði í fyrra, engir smáaur- ar heldur 50 milíjónir króna. (Eins og alls staðar í þessari grein hafa upphæðir verið umreiknaðar á verðlag í apríi 1984.) Heildarframlög úr ríkissjóði til endurgreiðslu á vaxta- og geymslukostnaði námu 310 millj- ónum 1982 og 330 milljónum 1983. Það skal engan undra, þótt Ólafur Sverrisson og Jón H. Bergs fallist í faðma. Oft hafa menn snúið bökum saman til að verja minni feng. Þar sem þegnar gjafir nema hærri upphæðum en greidd opin- ber gjöld af rekstri og skattar fá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.