Morgunblaðið - 09.05.1984, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.05.1984, Blaðsíða 4
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1984 í stað sauðfjár Seiðaeldi Hvanntúni í Andakíl í apríl. VIÐ I»EIM sem aka Borgarfjarðarbraut upp í Bæjarsveit blasir vel byggt býli á fallegum stað. Fossatún heitir það og stendur á bökkum Grímsár, einni af betri laxveiðiám á landinu. Sturla Guðbjarnarson hefur búið þar með hefðbundið kúa- og sauðfjárbú. Auk margvís- legra félagsstarfa hefur hann verið í 12 ár gjaldkeri félags, sem eigendur jarða við Grímsá og Tunguá stofnuðu með sér 1971. Hann hefur unnið mikið fyrir veiðifélagið, m.a. haft um- sjón með glæsiiegu veiðihúsi á bökkum Grímsár. Þegar bændur sáu fram á of mikla framleiðlsu, sérstaklega á kindakjöti, tók Sturla þá ákvörðun að farga sauðfénu. Garnarveikin hafði lengi herjað á sauðféð og valdið búsifjum. Sem ný búgrein varð fyrir valinu hjá honum laxaklak og seiðaeldi. Hann setti ekki upp fulikomnustu ker til eldis, held- ur valdi þá leið, að halda stofn- kostnaði niðri og reyna þannig að hafa arð af sinni nýju bú- grein. Margt heimaaflað efni var notað. Nægilegt kalt vatn var til staðar, heitt vatn úr hitaveitu leiddi hann í forhit- ara, þaðan rennur nú 10° heitt vatn í eldiskerin. Þau eru heimasmíðuð að mestu. Hús- næði var fyrir hendi. Þannig mátti áfram telja. Þegar undirritaðan bar að garði, voru Sturla og kona hans, Sjöfn Pálsdóttir, að enda við daglega hreinsun á kerjunum. „Um tveggja til þriggja vikna skeið verður að hreinsa kerin sérstaklega vel og tína burt dauð seiði," útskýrir Sturla. „Þetta er talsverð vinna um þennan tíma. Að sögn kunnugra er svipaður seiðadauði hjá mér og algengt er annarsstaðar, þó búnaður sé hér frumstæður. Eg el seiðin fram á sumar og sleppi þeim síðan í Grimsá og Tunguá. Við vonumst eftir betri heimt- um á sumaröldum seiðum en sjógönguseiðum." En hvaðan koma seiðin? Það er skemmtileg kenning höfð til viðmiðunar, án þess að hún hafi nokkurs staðar fengið vísinda- lega staðfestigu. Notaður er lax, sem tekið hefur flugu, og veiði- menn gefa til hrognatöku. Hann er geymdur í sérstökum búrum í ánni í upphafi, en síðan fluttur í ker á stöðinni, þangað til hrognataka fer fram. „Þannig getum við tekið hrogn úr allt að 20 punda löxum, fiskum, sem e.t.v. eru eitthvað frekari að taka flugur en aðrir sem ekki veiðast. Ef þessi eiginleiki erf- ist, gæti komist upp stofn, sem betur veiðist á stöng. Banda- rískir veiðimenn hafa mikla trú á þessu og gefa fúslega stóra laxa í þetta eldi,“ segir Sturla. Fyrst og fremst er verið að hugsa um stofninn úr Grímsá og ekki er áhugi á að flytja seiði milli áa. „Þetta er að mörgu leyti skemmtilegra við að fást en að elta kindur," bætir Sturla við. Um fjárhagslegan ábata var ekki rætt að sinni, en mikill hugur er í Sturlu, sem fleytir honum sjálfsagt yfir fyrstu erf- iðleikana. D.J. 50x50x 5 50x50x 7 50x50x10 ÚR VIKRl EÐA GJALLI 50x50x7 cm: 52 kr. pr. stk m/ssk. R M VAII Á r Heimsending er án endurgjalds innan U.lvl. VflLLflr Stór-Reykjavíkursvæðisins. Pantanir: Steinaverksmiðja Breiðhöfða 3, sími: 91-85006 og Iðnverk hf. Nóatúni 17, símar: 91-25930 og 91-25945 Útflutningur á dilkakjöti og osti: Borga þarf með út- flutningnum þó bænd- ur gæfu búvörurnar Borgarnosi, 9. apríl. AFAR óhagstætt er að flytja land- búnaðarafurðir út um þessar mundir og er dæmið sífellt að verða óhag- stæðara eins og reyndar hefur oft komið fram í Morgunblaðinu. Á bændafundi sem Búnaðarsamband Borgarfjarðar hélt í Borgarnesi fyrir skömmu, sýndi Ingi Tryggvason, formaður Stéttarsambands bænda, nokkur dæmi um útkomu útflutn- ings á mjólkurvörum og kindakjöti. Kom fram að þegar búið er að draga kostnað við flutning, vinnslu og sölu kjötsins frá útflutningsverði er yfir- leitt ekkert eða minna en ekkert eft- ir upp í búvöruverðið til bóndans. Dæmi um útflutning á osti til USA í desember 1983: Útflutningsverð cif 46,89 kr.pr.kg. -f Flutningskostnaður o.fl. 11,43 kr.pr.kg. Útflutningsverð fob 35,46 kr.pr.kg. -r Vinnslukostn. (áætlun) ■f 2,5% umboðslaun -f Stofnlánadeildargjöld Nettó-skilaverð til bóndans í þessu tilviki vantar 1,60 kr. uppá að útflutningsverðið dugi til að greiða milliliðakostnaðinn, og 30,00 kr.pr.kg. 3,92 kr.pr.kg. 3,14 kr.pr.kg. ■f 1,60 kr.pr. kg. ekkert verður eftir til að greiða sjálft búvöruverðið til framleið- andans. Dæmi um útflutning á dilkakjöti til Danmerkur í janúar 1984: Útflutningsverð cif + Flutningskostn. o.fl. Útflutningsverð fob 51,26 kr.pr.kg. 10,55 kr.pr.kg. 40,71 kr.pr.kg. + Slátur- og heildsölukostn. + Vaxta- og geymslugjald + Kostn. v/útflutningsverkunar + Stofnlánadeildargjöld Nettó-skilaverð til bóndans Þetta dæmi um útflutning á dilkakjöti til Danmerkur sýnir að þó að bóndinn gæfi kjötið þyrfti að greiða rúmar 5 krónur með hverju kílói af því við útflutning. Nettóskilaverð til bænda á einum hagstæðasta dilkakjötsútflutn- ingnum, það er til Færeyja, er 1,57 krónur pr.kg., en það verð sem 30,55 kr.pr.kg. 9.54 kr.pr.kg. 3,23 kr.pr.kg. 2.54 kr.pr.kg. + 5,15 kr.pr.kg. fæst fyrir dilkakjötið í Færeyjum er 20—30% yfir heimsmarkaðs- verði að sögn. Ingi Tryggvason sagði í þessu sambandi að stilla þyrfti útflutn- ingnum í hóf, því að íslenskir bændur hefðu ekki efni á að fram- leiða vöru sem þeir fengju minna en ekkert fyrir. — HBj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.