Morgunblaðið - 09.05.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.05.1984, Blaðsíða 20
ob 68 kAPfl AM e WTrr>AflTIMfVfHM r»Tm T'Ctr<Tf'-><Tr,nr MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 9. MAÍ 1984 Hyernig á að fram- kvæma friðarfræðslu? — eftir Guðrúnu Agnarsdóttur Þegar á árinu 1947, í lok síðari heimsstyrjaldarinnar, hafði UNESCO, menningar- og fræðslu- stofnun Sameinuðu þjóðanna, frumkvæði að ráðstefnu á alþjóða- vettvangi til að leggja grundvöll að uppeldi til að auka skilning á milli þjóða. Ráðstefnan var grund- völluð í hugsjónum Þjóða- bandalagsins og viðfangsefni hennar voru tillögur að alþjóða- samvinnu, gerðar af Albert Ein- stein, Thomas Mann, Marie Curie og fleirum. Einn árangur þessarar ráðstefnu var hönnun námsefnis fyrir skóla. Þessar og aðrar seinni hug- myndir og samþykktir um friðar- uppeldi fengu aukinn byr eftir að- alfund UNESCO í París 1974 þar sem samþykkt var að mæla með því að aðildarlöndin beittu sér fyrir fræðslu til eflingar skilnings þjóða í milli, samvinnu og friðar, svo og fræðslu um grundvallar- mannréttindi. Þessi fræðsla skyldi ná til allra stiga og gerða uppeld- is- og fræðslustofnana. Aðalfund- inum lauk með svohljóðandi álykt- un: „Stríð og valdbeiting eru útilok- uð á okkar tímum. Sérhver ein- staklingur verður að læra að taka persónulega ábyrgð til að tryggja frið.“ Það er úr þessum jarðvegi sem viðleitni til friðaruppeldis á sl. áratug er sprottin. Þann 1. júlí 1983 höfðu 1650 skólar í 81 þjóð- landi tekið þátt í samvinnuverk- efni til að efla alþjóðlega sam- vinnu og frið (Associated School’s Project in Education for Inter- national CO-operation and Peace, ASPRO). Þarna er um að ræða skóla allt frá forskóla- til háskóla- stigs, sem leggja sérstaka áherslu á fræðslu til að efla skilning og samvinnu við önnur lönd. Allir skóiar geta tekið þátt í þessu verk- efni. Bæði Bandaríkin og Sovét- ríkin eru aðilar að þessu sam- starfi. Ekki ný námsgrein Friðarfræðsla í skólum erlendis, t.d. í þeim löndum, sem við höfum mest menningartengsl við, eins og Norðurlöndin, Bretland og Banda- ríkin, eru sjaldnast aðskilin náms- grein, en er öllu heldur aðlöguð sem ný vídd eða viðurkenning þess, að í hverri námsgrein þurf- um við stöðugt að mæta málefnum friðar og deilna. Það er nauðsyn- legt að leggja áherslu á að friðar- fræðsla er ekki hugsuð sem ný námsgrein sem skjóta þurfi inn í námsefnið á kostnað einhverrar annarrar námsgreinar. Markmið- ið er miklu fremur að tryggja það, að innan almennrar námsstefnu skóla sé skýr stefna um friðar- fræðslu. Það námsefni sem notað hefur verið til friðarfræðslu er ýmist út- búið af UNESCO eða af viðkom- andi löndum eða skólum. Nauð- synlegt er að byrja nú þegar að útbúa og velja viðeigandi náms- efni, sem nota mætti við friðar- fræðslu hérlendis. Má í því sam- bandi vísa til úrvalsnámsefnis frá UNESCO og eins hjá nágranna- löndum okkar. Eðlilegt er, að þetta verði í tengslum við þá námsefnisgerð og það þróunar- starf í skólum sem nú er unnið að. Markmið friðarfræðslu '* falla mjög vel að þeim markmiðum sem lýst er í aðalnámsskrá grunnskóla. T.d. hefur sú námsskrá í samfé- lagsfræði sem gerð hefur verið á vegum skólarannsóknardeildar menntamálaráðuneytisins, markmið, sem gætu myndað eðli- legan grundvöll og tengsl við friðarfræðslu. Þessi námsskrá hefur notið styrkja frá Ford- stofnuninni í New York og hefur enn fremur fengið viðurkenningu frá fulltrúum Sameinuðu þjóð- anna, Harvard-háskóla og Evrópuráðsins. í aðalnámsskrá grunnskóla í samfélagsfræðum stendur: „í samfélagsfræði er m.a. stefnt að því, að nemendur — séu færir um að setja sig í ann- arra spor og geti þannig gert sér grein fyrir eigin viðhorfum og annarra þótt þau séu ólík, — geri sér grein fyrir eigin gild- ismati og annarra, — viðurkenni ólík sjónarmið og rétt hvers manns til að hafa sjálfstæða skoðun, — hafi áhuga á að kynnast vandamálum í samskiptum manna og ieita lausna á þeim, — viðurkenni gildi samstarfs og nauðsyn samhjálpar í samskiptum manna, — öðlist nægilegt sjálfstraust til að geta snurðulaust tekið þátt i gagnkvæmum skoðanakynnum og umborið gagnrýni, — öðlist það viðhorf að þeir þurfi stöðugt að afla sér nýrrar þekk- ingar og skoða hana gagnrýnum augum." Framkvæmd friðarfræðslu Um framkvæmd friðarfræðsiu gilda sömu lögmál og um annað nám. Það verður að sníða eftir getu og aldri og vera i samræmi við skilning og þroskastig barns- ins eða unglingsins. Meginkennsluaðferð í friðar- fræðslu, einkum hjá yngri börn- um, er að beina huga barnsins að því að skilja eigin viðbrögð og samskipti við aðra. Barninu er kennt að kljást við eigin vanda- mál, eðlileg ágreiningsmál og deil- ur sem koma upp í nánasta um- hverfi. Þegar barnið skilur orsakir og mögulegt ferli sinna eigin deilna við aðra getur það smám saman, eftir því sem það eldist, yfirfært þennan skilning á nær- tækum dæmum yfir á fjarlægari ágreiningsmál, bæði innan eigin þjóðfélags og milli þjóða. Jafnframt er lögð áhersla á að rækta hæfileika barna til þess að leysa ágreining og deilur sín á milli á friðsamlegan hátt, án ofbeldis. Lögmál mannræktar er ekki nýtt undir sólinni og sem betur fer hafa lykilatriðin í því að laða það besta fram í einstaklingnum alltaf verið sumum manneskjum í blóð borin og í návist þeirra hafa aðrir menn dafnað. En niðurstöður síð- ari tíma rannsókna í uppeldissál- arfræði og geðlækningum hafa staðfest, að aðferðir þessarar eðlislægu fundvísi á hið góða í manninum eru vænlegastar til mannræktar. Þessar fræðigreinar, sem leitast við að skilja og útskýra eðli mannsins, beita einmitt svip- uðum aðferðum til sálræktar og lækninga sem styðja manninn til þess sjálfstrausts og samræmis, sem honum eru nauðsynleg til að geta átt friðsamleg samskipti við aðra. Friðarfræðsla yngri barna Friðarfræðsla barna á dagvist- arstofnunum og í yngri bekkjum grunnskóla er því fyrst og fremst fólgin á því að þroska skilning barnsins í sjálfu sér og öðrum og æfa það í jákvæðum og uppbyggj- andi samskiptum við aðra. Enn- fremur að auðvelda því að geta sett sig í spor annarra. í slíkri fræðslu er bæði auðvelt og eðlilegt að nota leiki sem skapa samheldni og góðan anda í hópi barna. Með því að höfða til sam- starfs má byggja upp gagnkvæm- an stuðning og umhyggju barn- anna hvers fyrir öðru. Það má sniðganga þá leiki sem neyða börn til að keppa hvert við annað eða taka þátt í ójafnri keppni. Það er hægt að forðast útilokunarleiki, refsileiki, leiki þar sem meirihluti þátttakenda er ekki virkur en þeim sem gengur vel leika lengst og keppa um vinninginn. Það má í staðinn leggja áherslu á leiki þar sem það að sigra eða tapa er ekki eina viðmiðun velgengninnar. Kapp og marksækni eru nauðsyn- legir eiginleikar, en í stað þess að nota samkeppni við aðra til að leysa metnað barna úr læðingi, er hægt að örva barnið til að keppa við sjálft sig og bæta þannig eigin árangur. Önnur hlið friðaruppeldis er að kenna börnum félagslega og vitsmunalega færni til samvinnu með því að búa til og gera hluti saman og njóta svo saman gleð- innar yfir unnu verki. Þau þurfa enn fremur að læra að meta yfir- lýsingar og upplýsingar og þróa með sér hæfileika til að líta á mál frá mismunandi sjónarhóli. Þeir sem lagt hafa stund á frið- arfræðslu ungra barna telja nauð- synlegt að skapa börnunum and- rúmsloft sem auðveldar þeim að leysa deilur sínar á friðsamlegan hátt. Eftirfarandi þættir eru tald- ir stuðla að því að mynda slíkt andrúmsloft. “* Viðurkenning. Kennarinn gefur fordæmi og styður börnin í því að meta og koma auga á góða og að- dáunarverða eiginleika í fari hvers annars. Það er hægt að finna slíka eiginleika í sérhverri manneskju og fólk þarfnast þess að finna til eigin styrks og verð- leika, einkum þegar það þarf að kljást við vandamál. Viðurkenning örvar slíkt og gefur aukið sjálfs- traust til skapandi aðgerða. AA blanda geði. Kennarinn leið- beinir og hvetur börnin til að tjá tilfinningar sínar og lifsreynslu á gagnkvæman hátt. Þannig brotn- ar sá múr einangrunar, sem hindrar fólk í því að tjá hlýju og samúð með öðrum, sem eiga við vandamál að stríða. Til þess að geta leyst vandamál sín án ofbeld- is þarf upplýsingar um annars konar leiðir. Þess vegna er nauð- synlegt að skiptast á lífsreynslu til að auka möguleikana á lausn- um. Stuðningshópur. Jákvæð viðhorf og stuðningur innan hóps gera vandamálin viðráðanleg. Ætlast er til að allir í hópnum hafi eitt- hvað til málanna að leggja og allir séu nauðsynlegir til að leysa vandann. Það hópefli, sem þannig myndast, vekur bjartsýni meðal barnanna og trú á að „okkur mun takast það“. Lífsgleði njóttu. Fegurð og gleði eru hluti lífsins. Með því að opna augu barnanna og hjálpa þeim til að njóta þessara verðmæta er þeim síður hætt við því að þrúgast af vandamálum. Lausn vandamála. Æfing í því að takast á við og leysa vandamál Guðrún Agnarsdóttir „FriÖarhugsunin og friöurinn gerist ekki án fyrirhafnar,“ sagöi einn þingmanna í umræöum um þetta mál á Alþingi. Þó að oft hafi verið þörf er nú meiri nauösyn en nokkru sinni fyrr að efla frið milli manna og þjóöa. Þess vegna verð- um viö aö halda áfram á hinni fyrirhafnarsömu leið okkar til friösam- legra samskipta meö öllum tiltækum ráðum.“ skapar sjálfstraust og færni og hvetur börn til að leita hæfilegra lausna uns þær finnast, í stað þess að gefast upp. Þó er reynslan sú að því meiri færni sem börn hafa í hinum þáttunum fjórum, sem að ofan er getið, þeim mun færri deil- um lenda þau í og eiga auðveldar með að leysa þær friðsamlega. Eftir því sem börnin eldast er auðveldara fyrir þau að takast á við þau vandamál sem óhjá- kvæmilega mæta þeim er út í lífið kemur. Eins og stendur í grunnsk- ólalögunum er það hlutverk skóla m.a. að búa börn undir þátttöku í því margbreytilega og flókna þjóð- félagi sem bíður þeirra. Því varðar miklu að þeim séu ljósar megin- staðreyndir í meiriháttar málefn- um. Enn fremur að þau heyri röksemdir um allar hliðar mála og geti síðan myndað sér skoðanir. Markmiðið hlýtur að vera að tryggja það, að nemendur fái yfir- vegaða mynd af hverju máli þar sem fyllsta jafnvægis er gætt við kynningu málsins. Um viðkvæm málefni, hvort sem þau eru stjórn- málalegs, félagslegs eða persónu- legs eðlis, þarf að sjálfsögðu að fjalla af nærgætni. Vitanlega eru skiptar skoðanir um mörg málefni er varða daglegt líf okkar og fram- tíð. Oft eru þetta sterkar skoðanir og andstæðar, en röksemdir þeirra þurfa unglingar engu að síður að þekkja ef menntun þeirra á að stuðla að því að þeir geti beitt lýð- ræðislegum réttindum sínum til að skapa samfélag og veröld án ófriðar. Friðarfræðsla í framhaldsskóla Þessa fræðslu má tengja ýmsum námsgreinum. Eitt af tilgreindum markmiðum friðarfræðslu, sem kemur fram í þeirri þingsályktun- artillögu, sem liggur fyrir Alþingi er „að skilja eðli og orsakir deilna, og athuga, skilja, meta og nýta aðferðir til leysa deilur". f sambandi við þetta markmið langar mig að taka dæmi úr náms- efni, sem sniðið var fyrir skóla í Nottinghamhéraði í Englandi. nl) Þar er spurt: 1. Eru nemendum gefin næg tæki- færi til þess að læra um gerð nú- tímaþjóðfélags og vandamál ver- aldar okkar? 2. Gefast nemendum tækifæri til að leika hlutverk ólíkra málsaðila sem eiga í deilum og leita þannig ýmissa mögulegra lausna á deil- um? 3. Gefur skólinn nemendum tæki- færi eða hvetur hann þá til að láta í ljósi álit sitt til þess að þeir geti þroskast í því að mynda sér skoð- anir? 4. Hver er stefna skólans í því að veita viðurkenningu og refsingu? Hugsanlegt námsefni til að nálgast þetta markmið gæti verið: a) Athugun á skiptingu heimsins (lönd, áhrifasvæði) og hinum ýmsu bandalögum sem þjóðir mynda. b) Athugun á orsökum deilna milli einstaklinga, samfélaga, menningarheilda, t.d. orsakir eins og hugmyndafræði, trúarbrögð, fátækt, eignarhald og útþenslu- stefna. c) Skilgreining lykilorða: Friður, ofbeldi, sjálfsagi, frelsi, lýðræði, jafnrétti, þróun, mannréttindi o.s.frv. d) Athugun á þeim aðstæðum sem gætu leitt til heimsstyrjaldar, þar með talið hlutverk stórveldanna og ábyrgð þeirra á því að varð- veita frið. e) Athugun á áhrifum nútíma vígbúnaðar m.t.t. Hiroshima, Nag- asaki og þróunar í kjarnorku-, efna- og sýklavopnum. f) Athugun á hlutverki friðar- gæslusveita Sameinuðu þjóðanna og tekin dæmi úr starfi þeirra. g) Athugun á deilum á vinnu- markaðinum og hvernig þær eru leystar; t.d. verkföll, verkbann, hægagangur, yfirvinnubann, sætt- ir, gerðardómur, samningar. h) Athugun á efnahagslegum af- leiðingum vaxandi vígbúnaðar- kapphlaups. i) Umfjöllun um þá kenningu, að jafnvægi í hernaðarmætti geti tryggt frið. Annað af markmiðum friðar- fræðslu var tilgreint „að rækta skilning á réttlæti og velferð með og meðal einstaklinga og þjóðfé- iaga“. Aftur tek ég dæmi af ensku námsefni, en þar er spurt: 1. Mun skólinn leitast við að út- skýra mannréttindi fyrir nemend- um? 2. Hvaða stefnu hefur skólinn tek- ið upp gagnvart þeim nemendum sem trufla kennslu og hindra aðra nemendur í því að læra? 3. Eiga nemendur rétt á því að áfrýja málum sínum? 4. Eiga kennarar rétt á því að áf- rýja málum sínum? 5. Hversu vel gætir skólinn vel- ferðar nemenda sinna? 6. Á skólinn einhvern þátt í því að stuðla að velferð samfélagsins? Hugsanlegt námsefni til að nálgast þetta markmið gæti verið: a) Athugun á bresku og evrópsku réttarfari í stórum dráttum, eink- um m.t.t. meðferðar afbrota- manna. b) Athugun á mannréttindaskrá Sameinuðu þjóðanna og hvernig má framkvæma hana innan skól- ans. c) Athugun á því hvernig velferð- arþjóðfélag er byggt upp og sam- anburður við lönd sem ekki hafa slíkt kerfi. d) Athugun á því hvernig hægt er að koma hugtakinu um mannrétt- indi í framkvæmd þannig að allir njóti þess, innan bekkjarins og í skólanum. e) Athugun á reglum, t.d. leik- reglum, skólareglum, reglum bæj- _ ^ _ Plastpoka og prentun færðu hjá jQj Nastos lll 82655

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.