Morgunblaðið - 13.05.1984, Side 2
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1984
Hans Adam tók á raóti fréttaritara Mbl. í Vaduz-kastalanum. Einkabflar furstafjölskyldunnar stóðu
í kastalagarðinum og gúmmístívél barnanna fyrir innan inngöngudyrnar eins og á hverju öðru heimili.
Erfðaprinsinn sjálfur var einkar viðkunnanlegur og eðlilegur í viðmóti.
heppin að hér eru mörg mjög
margvísleg iðnfyrirtæki sem
framleiða til útflutnings. Um
95% vörunnar eru fluttu út. Þau
reka . litlar til miðlungsstórar
verksmiðjur hér og flest reka
einnig verksmiðjur erlendis.
Samkeppnin er mjög hörð og
fyrirtækin fá engan stuðning frá
ríkinu. Þau verða að standa sig
til að vera samkeppnisfær á
heimsmarkaðnum. Þegar eitt
fyrirtæki hefur ekki staðið sig
hafa tvö eða þrjú önnur gengið
vel svo að við höfum ekki þurft
að kvarta.
Iðnaðurinn hér óx mjög hratt
á síðustu tveimur áratugum.
Fyrirtæki urðu að færa út kví-
arnar erlendis af því að hér var
ekki nógan mannafla að fá. Það
kom okkur vel þar sem fyrirtæki
sögðu fólki frekar upp störfum
erlendis, þegar fór að kreppa að
en hér heima. Þau vissu að fólkið
yrði ekki lengur til staðar þegar
eftirspurn ykist og framleiðsla
gæti aukist á ný. Hér þekkist
varla atvinnuleysi og afkoma
fólks er mjög góð.
Hvað furstafjölskylduna varð-
ar komumst við líka vel út úr
kreppunni.
Það er sagt að aðcins ein kon-
ungsfjölskylda sé efnaðri en þið.
Er bað rétt?
Eg veit ekki. Ætli aðrar ættir
fari ekki bara leynt með eignir
sínar.
Er það satt að þið eigið mikið
land í Bandaríkjunum?
Já, við eigum land bæði í Ark-
ansas og Texas. Við áttum stór
svæði í Austurríki en ég taldi
rétt að við dreifðum landareign-
um okkar og keypti land i
Bandaríkjunum 1974. Við rækt-
um landið upp og seljum það aft-
ur fyrir mun betra verð. Ég sá að
þetta var mun hagstæðari leið til
að græða peninga en að stunda
landbúnað þegar ég var á ferð í
Bandaríkjunum.
Telur erfðaprinsinn að konur í
Liechtenstein ættu að fá rétt til að
kjósa?
Já, tvímælalaust. Ég hef stutt
kosningarétt kvenna lengi og
faðir minn einnig. Við höfum
reynt í mörg ár að sýna karl-
mönnum í Liechtenstein fram á
að kosningaréttur kvenna er
góður hlutur. Nú bendir margt
til að þeir muni fallast á það. Ég
vona að það verði annaðhvort á
þessu ári eða næsta.
Meiri hluti kantónanna leyfir
konum nú að greiða atkvæði um
málefni kantónanna. Við teljum
að nú sé hægt að fjalla um málið
á ný og greiða atkvæði alveg á
næstunni.
I*ér minntust ekki á þetta í þing-
setningarræðu yðar í gær.
Nei, það er rétt. Mér fannst
ekki rétt að blanda mér inn í
stjórnmálaumræðu nú þegar þar
sem ég er enn aðeins staðgengill
föður míns. — Mér þótti rétt að
flytja aðeins mjög almennt
ávarp. En ég hef margsinnis sagt
hug minn í þessu máli við önnur
tækifæri.
Hafið þér ekki vald til að veita
konum kosningarétt?
Nei, því miður ekki. Því miður
í þessu tilviki, sem betur fer í
öðrum tilvikum. Það væri mjög
slæmt ef við hefðum vald til að
breyta stjórnarskránni og setja
lög eftir eign geðþótta. Þá væri
ávallt hætta á að einhver furst-
inn gerðist einvaldur og það
væri hvorki gott fyrir þjóðina né
fyrir furstafjölskylduna.
Gæti verið gaman fyrir furstann.
Kannski fyrir hann, en ekki
fyrir erfðaprinsinn sem ætti að
taka við af honum.
Gæti þingið ekki ákveðið að
veita konum kosningarétt?
Jú, það gæti það en þegar
þetta mál kom fyrst upp í kring-
um 1970 þótti það svo mikilvægt
að það var ákveðið að hafa þjóð-
aratkvæðagreiðslu um það. Þá
var talið að karlmennirnir
myndu samþykkja tillöguna. Ef
þingið tekur einhliða ákvörðun í
þessu máli er hætt við að fólkið
krefjist þjóðaratkvæðagreiðslu.
Éf tillagan yrði felld við slíkar
aðstæður myndi málið liggja
niðri í mörg ár á eftir og til þess
má ekki koma.
Þér eruð nú að taka við dagleg-
um önnum af föður yðar. Hvað
viljið þér segja um framtíðina?
Við munum reyna að halda
áfram á sömu braut. Ef hlutirnir
haldast óbreyttir og styrjöld
skellur ekki á í Evrópu þá þurf-
um við engu að kvíða. Ég er
hræddur um að við myndum
ekki komast hjá áhrifum af
nýrri styrjöld hvort sem kjarn-
orkuvopn eða önnur fullkomin
vopn yrðu notuð.
Það verða auðvitað einhverjar
breytingar á þegar ég tek við af
föður mínum. Eg er opinskárri
en hann og stíllinn verður annar.
Ég mun vinna áfram sem hlut-
laus aðili með ríkisstjórninni.
Flestir hér eru fæddir inn í ann-
an hvorn stjórnmálaflokkinn og
það er gagn að okkur sem hlut-
lausum aðila.
Saga furstafjölskyldunnar og
Liechtenstein er mjög nátengd.
Landið væri ekki sjálfstæð þjóð
án okkar og við kostum þjóðina
ekki neitt. Fólk veit það og met-
ur okkur mikils þess vegna.
ab.
Litla landið Liechtenstein
Erfðaprinsinn
setti þingið
í fyrsta sinn
Gína furstynja og Marie Aglae erfðaprinsessa hvíslast á.
Kaflaskipti áttu sér stað í
sögu smáþjóðarinnar í
Liechtenstein 27. mars
síðastliðinn. Hans
Adam, erfðaprins, setti landsþing-
ið í fyrsta sinn í stað föður síns,
Franz Jósefs II, fursta. Gamli
maðurinn verður 78 ára á þessu
ári. Hann er við góða heilsu en vill
koma erilsamari hluta fursta-
starfsins yfir á herðar elsta sonar-
ins. Hann verður áfram þjóðhöfð-
ingi Liechtenstein en Hans Adam,
erfðaprins, mun annast dagleg
stjórnmálastörf og koma fram í
nafni föður síns.
Liechtenstein, litla hlutlausa
landið milli Austurríkis og Sviss,
þar sem 26.500 manns búa, hefur
verið bæði lýðræðisríki og fursta-
dæmi síðan 1921. Furstinn fer með
æðsta valdið, sem gengur í erfðir í
karllegg, en þjóðin (þ.e.a.s. bara
karlmenn) kýs fulltrúa á þing og
hefur rétt til að krefjast þjóðar-
atkvæðagreiðslu um tiltekin mál
og eigin hugðarefni.
Fimmtán menn eiga sæti á
þingi. Þeir koma saman í einn eða
tvo daga fimm sinnum á ári og
Utboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboöum í Skaaaveg
1984. (5,7 km, 33.000 m3.)
Verkinu skal lokiö 30. september 1984.
Útboösgögn veröa afhent hjá Vegagerö ríkisins í
Reykjavík og á Sauöárkróki frá og meö 14. maí nk.
Skila skal tilboöum fyrir kl. 14.00 þann 28. maí 1984.
Vegamálastjóri.
Kramhúsið
dans og leiksmiðja
Við opnum 14. maí
Þá hefst 15 daga námskeið í leikfimi — dansi og fimleikum.
Byrjenda og framhaldsflokkar.
Kennarar: Hafdís Árnadóttir og Bryndís Bragadóttir kenna
músikleikfimi og dans.
Sören Petersen kennir fimleika og dans.
Fimleikafólk
Sören hefur verið þjálfari sýningaflokks í Danmörku, hjá honum
lærið þiö aö tengja saman fimleika og dans.
Innritun daglega frá kl. 13.00.
Sími 15103.